Morgunblaðið - 29.04.1999, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
>
Kosninga-
baráttan
Um stórmál og smámál, kvóta-
umrœðuna, Samfylkingarraunir og
kosningainnleg biskupsins.
að hefur farið í taug-
arnar á ýmsum að
almenningur skuli
hafa það gott og
kjósi að búa við
óbreytt ástand, vantreysti fag-
urgala og úrtöluröddum og vilji
almennt fá að vera í friði fyrir
pólitískum loddaraskap. I
morgunútvarpi Bylgjunnar töl-
uðu stjómendurnir um „meint
góðæri“ (!) og tóku undir þá
skoðun sumra stjórnarand-
stæðinga að kosningabaráttan
snerist fremur um menn en
málefni. Auðvitað er það mis-
jafnt hversu sterkan svip mál-
efnaumræður
VIÐHORF setjaá kosn-
--------- mgabarattu
Eftir Jakob F. hverju sinni,
Asgeirsson en þa(j nær
engri átt að
halda því fram að þeir sem nú
ljá stjómarflokkunum stuðning
hafi ekki áhuga á málefnum.
Fólk sem vill byggja á þeim
gmnni sem þegar hefur verið
lagður er ekki síður að kjósa
um málefni en þeir sem vilja
söðla um.
Pað er náttúrlega meginmál í
kosningum hvort efnahags-
stefna sitjandi ríkisstjórnar
verður við lýði eða ekki. Þá er
það ekki síður meginmál hvort
staðið verður við þá mennta-
stefnu sem nú hefur verið
mörkuð - og svo mætti áfram
telja. Þeir sem kvarta undan
því að ekki sé talað um málefni
í kosningabaráttunni hafa sjálf-
ir þvert á móti vikið sér undan
því að tala um veigamestu mál-
efnin og sýnst vilja beina um-
ræðunni að ýmsum ágreinings-
efnum sem hljóta að teljast
smámál í heildarmyndinni. Og
það er einmitt eitt mesta
áhyggjuefni í kosningabaráttu
lýðræðisríkja ef umræðan er
yfirgnæfð af háværu karpi um
smámál.
Eitt stórmál sem almenning-
ur hefur vissulega látið sig litlu
varða undanfarið er sjávarút-
vegsstefnan. En á hvaða for-
sendum hefur verið boðið uppá
umræður um hana? Annars
vegar á forsendum Samfylking-
arinnar um að kvótakerfið skuli
afnumið og síðan skoðað hvort
„eitthvað" betra finnist, semsé
engar raunhæfar tillögur um
annan valkost. Og hins vegar á
forsendum smáframboðs
Sverris Hennannssonar með
viðeigandi gífuryrðum, rógi og
staðleysum. Andstæðingar
kvótakerfisins hafa málað sig
út í hom og geta úr þessu ekki
talað við aðra en sjálfa sig. Ef
til vill er almenningur líka bú-
inn að fá nóg af allri kvótaum-
ræðunni sem tröllriðið hefur
fjölmiðlunum undanfarin ár.
Sjálfur fletti ég í dauðans of-
boði yfir á næstu síðu þegar ég
sé grein um kvótann í Morgun-
blaðinu.
Skoðanakannanir undanfarið
hafa sýnt dalandi fylgi Sam-
fylkingarinnar. Flestir gera sér
nú grein fyrir því að kosninga-
bandalag þetta stendur ekki á
traustum undirstöðum. Uttekt
Morgunblaðsins sl. laugardag á
aðdraganda bandalagsins er
ótráleg saga tortryggni, óheil-
inda og valdagirndar. Maður
spyr sjálfan sig hvernig sú
landstjórn yrði þar sem slíkt
andrámsloft ríkti. Verður fróð-
legt að sjá hver verður framtíð
þessa bandalags ef úrslit kosn-
inganna verða á líkum nótum
og síðustu skoðanakannanir
gefa til kynna.
I ljósi þess hvernig gekk að
stofna til Samfylkingarinnar
kemur auðvitað ekki á óvart að
kosningastarf hennar skuli
hafa einkennst af óðagoti og
ráðleysi. Þeir Fylkingarmenn
hafa ekki fylgt fyrirfram
ákveðinni áætlun, heldur
hlaupið til sitt og hvað - í ör-
væntingafullri leit að vinsæld-
um. Þetta er þeim mun undar-
legra að flestum átti að vera
ljóst að staðfesta er einmitt það
sem kjósendum er efst í huga
um þessar mundir. Með því að
fitja sífellt upp á einhverju
nýju hefur Samfylkingin því í
raun verið að berjast gegn
straumi almenningsálitsins.
VG-menn mátu hins vegar
stöðuna rétt. Þeir mörkuðu sér
strax skýra stefnu og hafa
staðið fast á henni og reynt að
stilla gylliboðunum í hóf. Gylli-
boðin eru nefnilega ávísun á
óvissu í efnahagsmálum og um
þessar mundir vill almenningur
greinilega hafa traust land
undir fótum.
Athygli hefur vakið að bisk-
up Islands, Karl Sigurbjörns-
son, skuli blanda sér í kosn-
ingabaráttuna. Undanfarna
daga hafa birst í blöðum aug-
lýsingar í nafni Öryrkjabanda-
lagsins undir yfirskriftinni:
„Kjósum við óbreytt ástand?"
Undir þessu kjörorði virðist
biskupi íslands þykja hæfa að
ljá mynd af sér og tilvitnun úr
nýárspredikun. Ennfremur er í
auglýsingu Öryrkjabandalags-
ins vitnað í „fréttabréf biskups-
stofu“. Tónninn í þeim tilvitn-
unum er sérlega óviðfelldinn í
ljósi þess að þar er mælt í nafni
þjóðkirkjunnar.
Öryrkjar eru búnir að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri
og það ríkir mikill skilningur
meðal allra stjómmálaflokk-
anna á að bæta þurfi hag
þeirra. Auglýsingar Öryrkja-
bandalagsins undir yfirskrift-
inni „Kjósum við óbreytt
ástand?“ nú í miðri kosninga-
baráttunni era því ekki til þess
að vekja athygli á málstað
þeirra eða reyna að hafa áhrif á
ráðamenn, heldur markviss
hvatning til kjósenda um að
kjósa ekki núverandi stjórnar-
flokka. Það er auðvitað öryrkja
sjálfra að meta hvort þeir telji
hagsmunum sínum best borgið
með því að félagi þeirra sé beitt
með svo afdráttarlausum hætti
gegn stjórnmálaflokkum sem
njóta stuðnings um 60% lands-
manna, en óskiljanlegt sýnist
hvers vegna biskup Islands vill
taka þátt í þeim hráskinnaleik
sem nú er stundaður úr höfuð-
stöðvum Öryrkjabandalagsins.
UMRÆÐAN
Þáttaskil á öllum
skólastigum
NYJAR námskrár
fyrir leikskóla, grunn-
skóla og framhalds-
skóla taka gildi á þessu
ári og koma til fram-
kvæmda stig af stigi.
Þær eru samdar með
samfellu og stígandi í
huga. I fyrsta sinn í
skólasögu þjóðarinnar
hefur innra starfið á
þremur fyrstu skóla-
stigunum verið mótað
með þessum hætti.
Við gerð
námskránna fyrir
grunnskólann var til
dæmis tekin ákvörðun
um að auka nám veru-
lega í náttúrufræði-
greinurn í yngri bekkjum skólans.
Kennsla í stærðfræði vex einnig á
yngri árum. Tungumálakennsla
hefst fyrr en áður og enska verður
fyrsta erlenda málið. Tækifæri eru
veitt til að bjóða þriðja erlenda
tungumálið í grunnskóla. Upplýs-
ingatæknin skipar veglegan sess og
enginn á að útskrifast úr grunnskóla
án þess að kunna á lyklaborðið. Mik-
ill þungi er á íslenskunám. Ýtt er
undir sköpunarþörf með listnámi og
sjálfstraust nemenda á að auka með
nýrri námsgrein, lífsleikni.
Stefnan er, að nemendur hafí
hlotið góða almenna menntun, þegar
þeir koma úr grunnskóla, og séu
þess vegna betur undir það búnir en
nú til að sérhæfa sig í framhalds-
skóla. Stórfellt átak er hafið við
námsefnisgerð og endurmenntun
kennara.
Bylting í starfsnámi
Það verður bylting að því er
starfsnám varðar. Menntamála-
ráðuneytið hefur forgöngu um gerð
námskráa fyrir bóknámsbrautir og
listnám en atvinnuh'fið sjálft gerir
tillögur um inntak starfsnámsbraut-
anna. Skipuð hafa verið fjórtán
starfsgreinaráð til að skipuleggja
nám á jafnmörgum eða fleiri starfs-
námsbrautum. Fullyrði ég, að þessi
nýskipan og áhiif hennar á öllum
sviðum atvinnulífsins eru þegar far-
in að valda viðhorfsbreytingu í
mörgum starfsgreinum. Tillögur
um nýjar námsbrautir og nýskipan
starfsnáms eru að fæðast.
Skólakerfið mun næstu ár þreyta
mikla prófraun vegna nýrra krafna
frá atvinnulífinu.
Nýskipan á háskólastigi
Fjórða skólastigið, háskólastigið,
hefur einnig verið að taka á sig nýja
mynd undanfarna mán-
uði. Ný háskólalög,
sem tóku gildi 1. janúar
1998, gera ráð fyrir rík-
isháskólum og einkahá-
skólum.
Tveir einkaháskólar
hafa komið til sögunn-
ar. Viðskiptaháskólinn
í Reykjavík, sem hóf
störf síðastliðið haust,
og Listháskóli Islands,
sem tók formlega til
starfa undh’ stjórn
rektors um síðustu
áramót. Þetta eitt eru
mikil tíðindi. Hitt hef-
ur einnig gerst, að
skipulagi Háskóla ís-
lands hefur verið gjör-
breytt með nýjum sérlögum, sem
taka gildi eftir fáeina daga, eða 1.
maí. Ný lög hafa einnig verið sam-
Skólakerfi
Öll skólastigin hafa
tekið miklura breyting-
um segir Björn Bjarna-
son og hvetur til að at-
hyglin beinist næst að
háskólunum.
þykkt um Háskólann á Akureyri og
taka þau gildi 1. júlí. Lögð hafa ver-
ið á ráðin um það, hvernig haga
beri breytingum á Tækniskóla Is-
lands á grundvelli nýju háskólalag-
anna.
Frá því að fyrstu lögin um Há-
skóla Islands voru sett 1909 hefur
ekki verið gerð jafnróttæk breyting
á stjórnarháttum skólans. Sjálf-
stæði hans er aukið og þar með
einnig ábyrgð stjórnenda hans á
eigin málum. Menntamálaráðherra
skipar í fyrsta sinn menn í háskóla-
ráð, tvo af tíu, sem sitja í ráðinu.
Fjárhagsleg tengsl háskóla og
ríkisvaldsins eru að taka breyting-
um á grundvelli samninga. Kjara-
mál háskólakennara hafa einnig
verið í mikilli gerjun, eftir að kjara-
nefnd úrskurðaði um laun prófess-
ora.
Háskólar eru eins og aðrir skólar
til vegna nemendanna. Af hálfu
stjórnvalda hafa verið teknar marg-
ar ákvarðanir, sem bæta hag nem-
enda. Ég nefni hér, að fé til Rann-
sóknanámssjóðs hefur aukist ár frá
ári. Innan háskólanna, einkum Há-
skóla Islands, er lögð meiri áhersla
en áður á framhaldsnám. Athyglis-
vert er, hve áhugi á framhaldsnámi
við Kennaraháskóla Islands eykst
jafnt og þétt.
Keppni háskóla um neinendur
takmarkast ekki lengur af hnatt-
stöðu, því að allur heimurinn er nú
einn menntamarkaður. Hefðbundn-
ir háskólar keppa ekki aðeins inn-
byrðis heldur einnig við nýja teg-
und af háskólum, sem öflug fyrir-
tæki reka. Þau hafa flest lengi rek-
ið stofnanir í þágu rannsókna og
þróunar. Nú eru fyrirtækin að fikra
sig inn á nýjar brautir í mennta-
málum. Líklegt er, að innan tíðar
þyki ekki aðeins alþjóðlegur gæða-
stimpill að hafa háskólapróf frá Ox-
ford eða Harvard, heldur einnig frá
Intel eða Microsoft.
Skýr markmið
fyrir háskóla
í háskóla starfa menn ekki í
vernduðu samfélagi heldur í harðri
samkeppni. Þar skiptir ekki síður
máli en á öðrum vettvangi, að fyi’ir-
komulag og stjórnarhættir tryggi,
að kraftar allra nýtist sem best,
jafnt nemenda sem kennara. Þeir
tapa, sem hræðast breytingar í stað
þess að grípa tækifærin, sem í þeim
felast.
Farsæl framkvæmd nýju skóla-
stefnunnar ræðst meðal annars af
því, hvernig skilaboð háskólar
senda til framhaldsskólanemenda.
Frelsi nemenda til að móta náms-
leiðir er meira en áður. Vilji há-
skóladeildir laða til sín nemendur
verða þær að gera það með mark-
vissum hætti og í samvinnu við
framhaldsskóla, kennara innan
þeirra og nemendur. Áhuga- og af-
skiptaleysi skilar ekki frekar ár-
angri á þessu sviði en öðrum.
Vilji stjórnvöld halda áfram að
framkvæma nýju skólastefnuna
með skipulegum hætti á næsta
kjörtímabili ber þeim að beina at-
hygli sinni sérstaklega að háskóla-
stiginu, rannsóknum og vísindum.
Þetta vil ég undirstrika. Efna þarf
til víðtækra umræðna um inntak
háskólamenntunar og hlutverk há-
skóla við nýjar aðstæður. Reynslan
sýnir, að það eitt fellur í góðan
jarðveg að stofna til almennra um-
ræðna um skólamál á jákvæðum
forsendum í því skyni að virkja
krafta allra til nýrra átaka. A
grundvelli víðtæks samstarfs og
samráðs á síðan að setja háskólum
skýi’ markmið innan nýrra laga og
með hliðsjón af nýjum kröfum.
Höfundur er menntnmdlaráðherra.
Björn
Bjarnason
Orðsending
frá egóista
ÞAÐ ER varla hægt
að hugsa sér neitt kald-
hæðnislegra en að
Samfylkingin skuli nú
ganga í gegnum sömu
tilvistarkreppuna og
NATO átti í allt fi’á
lokum kalda stríðsins
og fram á þetta ár.
Óvinurinn er týndur.
Talsmaður Samfylk-
ingarinnar skoraði
Sjálfstæðisflokkinn á
hólm en fékk engin við-
brögð. Hún skoraði
Davíð á hólm en Davíð
ákvað að nota stílinn
hans Tanna og ráðsett-
ur hundur eins og
Tanni ansar ekki gjammi. Hann
lætur slíkt sem vind um gömul eyr-
un þjóta, geltir sjaldan og helst að
gamni sínu.
í öllu áskoranastandinu dalaði
fylgið dag frá degi og
þar kom að m.a.s. tals-
maðurinn gat ekki bor-
ið sig vel. Þá voru góð
ráð dýr því ekki mátti
glefsa í Framsókn í til-
hugalífinu. Þannig
gerðist það að Sam-
fylkingin, sem var jú
alveg sérstaklega
stofnuð til að berjast
við Sjálfstæðisflokkinn,
ákvað að skeyta skapi
sínu á Vinstrihreyfing-
unni - grænu framboði.
Margur heldur
mig sig
Eitt er að heykjast á
þeim markmiðum sem maður setur
sér sjálfur og síst er það stórmann-
legt. Verra er þegar stjórnmálafor-
ingja hungrar svo í ráðherrastóla að
þeir hætta að gera gi’einarmun á
Steinþór
Heiðarsson
Kosningar
Verra er þegar stjórn-
málaforingja hungrar
svo í ráðherrastóla,
segir Steinþór Heiðars-
son, að þeir hætta að
gera greinarmun á
hagsmunum og
hugsjónum.
hagsmunum og hugsjónum. En þó
gerast Vermalandsferðir Margrétar
Frímannsdóttur fyrst rislitlar þegar
hún ræðst á það hugsjónafólk sem
stofnaði Vinstrihreyfinguna
grænt framboð og brigslar því um
egóisma. Eða erum það kannski við
sem höfum slegið banka um tug-
milljóna lán til að horfa á okkur
sjálf í sjónvarpsauglýsingum oft á
dag í heilan mánuð?
Höfundur er framkvæmdastjóri
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs.