Morgunblaðið - 29.04.1999, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nemendur í MR hlutskarpastir í hugmyndasamkeppni ungs fólks í vísindum og tækni
Rannsökuðu
vetrarbrautar-
þyrpingu
Morgunblaðið/Sverrir
LIÐIN sem fengii viðurkenningu í keppninni ásamt ieiðbeinendum sínum og aðstandendum keppninnar, en
fyrirtækin Isaga og Islensk erfðagreining gáfu verðlaunaféð sem fulltrúi fyrrnefnda fyrirtækisins, Geir
Zoéga, afhenti sigurvegurunum.
HELMINGUR sigurliðsins úr MR, þeir Tryggvi Þorgeirsson og Jóel
Karl Friðriksson.
FJÓRIR nemendur úr Menntaskól-
anum í Reykjavík fengu fyrstu verð-
laun Hugvísis, samkeppni ungs fólks
í vísindum og tækni, sem afhent voru
í gær. Sigurliðið fékk 200 þúsund
krónur í verðlaunafé og boð að auki
um að keppa fyrir Islands hönd í
Evrópukeppni ungra vísindamanna
sem haldin verður í Grikklandi
næsta haust.
Formaður dómnefndar, Sigmund-
ur Guðbjarnason prófessor, afhenti
verðlaunin við athöfn í Hinu húsinu í
gær. Sigurliðið, sem skipað er þeim
Jóel Karli Friðrikssyni, Páli Mel-
sted, Sverri Guðmundssyni og
Tryggva Þorgeirssyni, nefndu verk-
efni sitt Vetrarbrautarþyrpingin
MS1621+2640. Nutu þeir hand-
leiðslu Vilhelms Sigfúsar Sigmunds-
sonar stjameðlisfræðings og kenn-
ara í MR.
Afar vandað verkefni
Verkefnið fólst í að unnið var úr
ljósmyndum, sem teknar hafa verið
af tveimur íslenskum visindamönn-
um, með norræna stjömusjónaukan-
um á Kanaríeyjum og beitingu
þeirra við notkun eðlisfræði til að
svara mikilvægum spumingum í nú-
tíma eðlisfræði, sveigju ljóss í
geimnum vegna þyngdarlinsuáhrifa.
Vinna hópsins fólst einkum í að
samræma íslensk gögn við kanadísk
gögn sem voru til viðmiðunar og
kanna með sameinuðum gagna-
gmnni hvaða vetrarbrautir á mynd
íslenska hópsins tilheyra vetrar-
brautarþyrpingunni MS1621+2640.
Þannig var sett upp línurit sem
sýndi lit vetrarbrauta og fjarlægð
þeirra frá jörðu með því að nota eðl-
isfræði rauðviks ljóss. Þá reyndi
hópurinn að ákveða eðlisfræðilegar
stærðir í hinni fjarlægu vetrar-
brautaþyrpingu, svo sem massa,
fjarlægð frá jörðu, Ijósafl og lit.
Einnig freistaði hópurinn þess að at-
huga hvort vetrarbrautarþyrpingin
hefur vegna gífurlegs massa síns
svokölluð þyngdarlinsuáhrif á ljós
frá bakgrunnsuppsprettum Ijóss í
himingeimnum.
„í heild er hér á ferð afar vandað
og metnaðarfullt verkefni sem hefur
verið leyst af hendi á mjög fagmann-
legan hátt. Hópurinn hefur notið
góðs stuðnings frá kennara sínum og
íslenskum fræðimönnum á sviði
stjarneðlisfræði,“ sagði Sigmundur
við afhendinguna og og kvað hópinn
jafnframt hafa sýnt vandaða vinnu
við gagnaúrvinnslu.
Þá ákvað dómefrid að veita verk-
efninu „Viðhorfskannanir á Intemet-
inu“ sérstaka viðurkenningu en það
fjallaði um tæknilega möguleika á að
framkvæma frjálsar viðhorfskannan-
ir í gegnum Intemetið. „Þar var
unnin sélega vönduð og fagleg vinna
við lýsingu á heildstæðu kerfí af hug-
búnaði sem gæti gert slíkar kannan-
ir mögulegar og auðveldar í uppsetn-
ingu. Slíkt kerfí gæti lagt tæknilegan
gmnn að nýjum aðferðum við kann-
anir af ýmsum toga. Framhaldið
gæti til dæmis verið athugun á töl-
fræðilegu eða vísindalegu gildi slíkra
kannana og á hvaða hátt mætti
byggja slíkt mat inn í sjálfvirkni
kerfísins,“ segir Sigmundur.
Skólayfirvöldum hrósað
Dómnefnd ákvað ennfremur að
veita nemendum í Fjölbrautaskóla
Suðurlands sérstaka viðurkenningu,
en þeir tóku þátt í Hugvísi í tveimur
verkefnahópum á sviði notkunar svo-
kallaðra vöðvavíra í vélmennum.
Dómnefndin hrósaði skólayfírvöld-
um Fjölbrautaskólans fyrir það
fmmkvæði að setja upp námskeið á
sviði stýritækni og efnistækni í skól-
anum og lagði til að nemendahópun-
um og skólanum yrði veitt viður-
kenning fyrir verkefnasviðið og
frumkvæði í þessum efnum.
Samkeppninni er ætlað að efla
hæfni ungra vísindamanna til að
leysa vandamál á nýstárlegan hátt,
t.d. með því að taka verkefni fyrir í
heOd sinni, sýna markvisst vinnu-
ferli, eigið fmmkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð. Keppnin er hluti af
mannauðsáætlun Evrópusambands-
ins, sem Island tekur þátt í með
EES-samningnum. Að lokinni verð-
launaafhendingunni í gær var opnuð
sýning á þeim verkefnum sem
komust í undanúrslit og einnig sýn-
ing á sigurverkefni sænsku vísinda-
keppninnar í ár, en það fjallar um of-
urleiðara.
Tryggvi Þorgeirsson og Jóel Karl
Friðriksson, sem sæti eiga í sigurlið-
inu, segja að ótal rannsóknir hafi
verið gerðar á vetrarbrautaþyrping-
um og ekki sé hægt að segja að
þyrpingin sem þeir tóku til athugun-
ar sé merkilegri en aðrar. „Okkur
finnst mikilvægast í þessu samhengi
að sýna fram á að hver sem er getur
náð í upplýsingar á Netinu af því
tagi sem við sóttum og gert eigin
mælingar út frá þeim,“ segja þeir.
Notfærðu sér litiun
„Okkur tókst að ákveða litinn á
vetrarbrautaþyrpingunni út frá
myndum sem við höfðum til hlið-
sjónar. Þær voru annars vegar
teknar með rauðri ljóssíu og hins
vegar með blárri ljóssíu. Þannig
tókst okkur að nota litinn til að
ákveða hvað tilheyrði vetrarbrauta-
þyrpingunni og hvað ekki. Þessar
upplýsingar eru margþættar og
virðast kannski flóknar við fyrstu
sýn, en eru kannski mun einfaldari
þegar grannt er skoðað.“ Þeir segj-
ast ánægðir með viðurkenninguna
og hópinn í heild sinni, en hann hafi
verið einstaklega samstilltur og
góður og meðlimir hans unnið vel
saman.
20 sm
stillanlegur háls Sápu/-
\ vatnsstillir
200 ml
sápuhólf
Sápu-^
áfylling
Snúanlegur stútur, 6 mism.
sprautugerðir
Sterkur belgur,
ryðgar ekki
Gikkur
20 sm lenging, stillanleg
Hitaeinangrað
handfang-----
Háþrýstivalnsbyssunni er smellt
á garðslönguna og útkoman er
lítil háþrýstidæla.
Sápan er sett í sáputankinn og
Smellitenging fyrir
venjulega garðslöngu
hægt er að þvo gluggana, jafnvel
á 3. hæð, þakið, þakrennuna,
gangstéttina, bílinn og hvað sem
er. Þvottur verður fljótlegri og
auðveldari.
12 mánaða verksmiðjuábyrgð.
Falleg gjafapakkning
og verðið er ótrúlegt,
kr. 2.800
Vírusar
hafa ekki
áhrif á
Apple
ACO hefur sent frá sér eftirfar-
andi athugasemd:
ÞEIR tölvuvírusar sem hafa verið
að hrjá „suma“ landsmenn hafa
alls engin áhrif á Apple-tölvur. Að
gefnu tilefni viljum við hjá Aco
koma þeirri athugasemd á fram-
færi við fjölmiðla og aðra að tölvu-
veirur þær sem fjallað hefur verið
um í fjölmiðlum síðustu daga hafa
engin áhrif á Apple-tölvur. Við
hjá Aco erum samþykkir því að
hvetja almenning og tölvunotend-
ur til að vera á varðbergi gagn-
vart tölvuvírusum en það verður
að gæta sanngirni í fréttaflutn-
ingi.
216% söluaukning á Apple-tölv-
um á síðasta ári þýðir að mun
fleiri nota Apple-tölvur í dag en
fyrir ári og þessi umræddi tölvu-
vírus hefur alls engin áhrif á
Apple-tölvur. Það er von okkar að
þetta verði leiðrétt til að saklausir
Apple-notendur hljóti ekki ónæði
af og auk þess væri nú rétt hjá
fjölmiðlum að fjalla um 2000-
vandaleysi Apple því allar Apple-
tölvur eru stilltar fram til ársins
29.940 (tuttuguogníuþúsundníu-
hundruðogfjörutíu!) - geri aðrir
betur.
Firmakeppni
í pilukasti
PÍ LUKASTSFÉ LAG Grandrokks
stendur fyrir firmakeppni í pílu-
kasti laugardaginn 1. maí kl. 14.
Um er að ræða opið mót og verður
hver sveit skipuð fjórum keppend-
um.
Þátttakendur geta skráð sig á
Grandrokk, Smiðjustíg 6, til kl.
13.30 á laugardag. Keppnisgjald er
1.000 kr. fyrir hverja sveit og
hljóta þrjár efstu verðlaun. A
Grandrokk hefur nú verið komið
upp fullkominni aðstöðu til pílu-
kasts og með því hefur verið bætt
úr brýnni þörf á þessari íþrótt sem
nýtur vaxandi vinsælda hérlendis,
segir í fréttatilkynningu.
Ráðstefna
Komið og
dansið
KOMIÐ og dansið, samtök áhuga-
fólks um almenna dansþátttöku á
Islandi, standa fyrir ráðstefnu
fimmtudaginn 29. apríl kl.
9-14.30.
Efni ráðstefnunnar er undir yf-
irskriftinni „Verum saman" en
sambáerilegt átak undir nafninu
„Vær sammen" hefur á undan-
förnum árum verið samtarfsverk-
efni lögreglu, kirkju, skóla og fé-
lagsþjónustu í samstarfi við Kom
og Dans í Noregi, segir í fréttatil-
kynningu.
Níu fyrirlesarar frá ofangreind-
um aðilum í Noregi ílytja erindi
ásamt ávörpum frá fulltmum sam-
takanna Island án eiturlyfja og
Afengis- og vímuvarnaráði.
Ráðstefnan verður haldin í
Danshöllinni, Drafnarfelli 2. Eng-
inn kostnaður er við þátttöku.
A ráðstefnunni er reiknað með
þátttöku fulltrúa frá lögreglu,
kirkju, skóla, íþrótta- og tóm-
stundaráði, félagsþjónustu og
ýmsum félagasamtökum á sviði
uppeldismála á Reykjavikursvæð-
inu, segir einnig í fréttatilkynn-
ingu.
Y alborgarhátíð
í Viðey
EINS og venja er heldur Islensk-
sænska félagið upp á Valborgar-
messu með sænsku hlaðborði,
skemmtun og brennu að kvöldi 30.
aprfl.
Að þessu sinni verður Valborg-
arhátíðin í Viðey og mun Herman
af Trolle, nýskipaður sendiherra
Svíþjóðar á Islandi, flytja hátíðar-
ræðuna. Meðal skemmtiatriða er
Glúntasöngur Ingimars Sigurðs-
sonar og Þorsteins Guðnasonar við
xmdirleik Reynis Jónassonar.
Brottför til Viðeyjar er frá
Sundahöfn kl. 19.30 nk. föstudags-
kvöld.