Morgunblaðið - 29.04.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 55
Morgiinblaðið/Einar Sebastian
CHAD Adam Bantner, dansari
íslenska dansflokksins, í verki
Rui Horta „Flat Space Moving“.
Alþjóðlegur
dagur dansins
ALÞJÓÐLEGI dansdagurinn er
haldinn hátíðlegm' í dag, 29. apríl.
Hlutverk dagsins er að færa saman
allar tegundir dans og brjóta niður
pólitísk, menningarleg og þjóðfélags-
leg höft. Dagurinn er haldinn hátíð-
legur víða um heim með dans-
skemmtunum og sýningum en haldið
hefur verið upp á daginn frá árinu
1982. Dansunnendut- fagna deginum
á efri hæð Sólons íslanduss í kvöld
þar sem boðið verður upp á
skemmtiatriði og sitthvað fleira. All-
ir eru ve'lkomnir.
í tilefni dagsins er ávarpi frá
þekktum danslistamanni dreift um
allan heim. Höfundur ávarpsins í ár
er egypski danshöfundurinn Ma-
hmoud Reda og segir hann meðal
annars þar að erfitt sé að finna orð
sem lýsa þeim tilfinningum sem
dansinn getur framkallað. „Kannski
er best að lýsa þessum tilfinningum
með því að dansa,“ segir Reda meðal
annars í ávarpinu.
■ AÐALSAFNAÐARFUNDUR Frí-
kirkjunnar í Reykjavík verður hald-
inn fimmtudaginn 29. apríl kl. 20.
Fundurinn hefst í kirkjunni með
helgistund en færist síðan yfir í sal
Safnaðarheimilisins. Á dagskrá
verða venjuleg aðalfundarstörf og
lagabreytingar.
Leikhúsið í Lindarbæ
í viðhorfsgrein í gær brást blaða-
manni minnið að nokkru varðandi
sögu Lindarbæjar sem leikhúss. Sú
saga hófst talsvert löngu áður en
Leiklistarskóli íslands fékk þar inni
með Nemendaleikhúsið því Þjóðleik-
húsið hafði afnot af Lindarbæ sem
Litla sviði frá því á sjöunda áratugn-
um og einnig höfðu ýmsir leikhópar
FRÉTTIR
ÁLLT TÍL RAFHITUNAR
Þrír 12 punda
komnir á land
Mikill fiskur er í ánum í kring
um Klaustur og seigla vetrar
mun trúlega lengja nokkuð vor-
veiðina þetta árið. Stærstu fiskar
vorsins eru Þrír 12 punda sjó-
birtingar , allir veiddir á flugu og
var tveimur þeirra gefið líf á nýj-
an leik. Fiskarnir komu úr Geir-
landsá, Tungulæk og Vola, sem
er reyndar ekki við Klaustur,
heldur rétt austan við Selfoss.
Prýðilega hefur veiðst víða að
undanförnu
Á annað hundrað bii'tingar eru
komnir á land úr Geirlandsá,
a.m.k. 60-70 úr Eldvatni á
Brunasandi og einhverjir tugir
fiska úr Hörgsá. Alls staðar hafa
menn séð talsvert af físki og
telja sumir að enn eigi mikið af
fiski eftir að sakka niður af efri
svæðum þar sem ekki er veitt.
Slíkt gerist helst í flóðum og til
þess þurfi, við núverandi aðstæð-
ur, gott suðaustan slagveður
með hlýindum.
12 punda úr Vola
„Það skruppu menn nývei'ið
og fengu nokkra fiska. Sá stærsti
var 12 punda og það er óvenju-
lega stór sjóbirtingur fyrir læk-
inn. Þessum fiski var sleppt eins
og öllum þessa dagana, en við
höfum veiða-sleppa fyrirkomu-
lagið í vorveiðinni, svona í til-
raunaskyni," sagði Magnús
Brynjólfsson, leigutaki Vola-
svæðisins, í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði veiði mjög
góða þegar skilyrði leyfðu á ann-
að borð, nóg væri af fiski og tals-
vert af honum allt að 5-6 pund.
ÞÓRARINN Kristinsson með
fallega birtinga úr Tungu-
læk, en þar hefur verið ríf-
andi veiði. Sá sem hann held-
ur á var tæp 9 pund og tók
fluguna Sólrúnu, einkrækju
númer átta.
Aðeins er veitt á efsta svæðinu
fyrst um sinn.
Moka upp hoplaxi
Bleikjuveiði hefur verið frem-
ur treg í Soginu í vor vegna
kulda, en lax á niðurleið eftir
hrygningu í fyrrahaust hefur að
sama skapi verið spenntur að
taka agn. Talsvert hefur veiðst
af honum, allt að 10-12 á dag
þegar mest hefur verið. Fyiár
skömmu veiddist einn sem var
98 sentimetra langur og hefur
hann verið hinn glæsilegasti þeg-
ar hann var upp á sitt besta í
fyrra, um eða yfir 20 pund. For-
ystumenn SVFR, sem hafa
svæðin á leigu, hvetja menn til
að fluguveiða í Soginu og sleppa
hoplaxinum og hafa margir gert
það. Þó eru alltaf brögð að því að
menn hirði hoplaxinn. Stundum
vegna þess að hann skaðar sig til
ólífis á önglunum.
LEIÐRÉTT
fengið þar inni með sýningar sínar.
Lindarbær var því orðið þekkt og
viðurkennt leikhús þegar Leiklistar-
skóli íslands tók til starfa. Er beðist
velvirðingar á þessu.
Viðurkenningar
íslandsdeildar IBBY
í írétt í gær um viðurkenningar í
Ljóðasamkeppni almenningsbókasafna
var fyrir misskilnmg sagt að verðlaun
hafi verið fyrii' bækur. Rétt er að verð-
laun voru veitt íyrir ljóð. Beðist er vel-
vii'ðingar á þessari vitleysu.
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með fóðurnafn
Dagrúnar Sólu í myndartexta með
frétt um Nýsköpun í Gerðubergi í
blaðinu í gær. Dagrún Sóla er Óðins-
dóttir og er hún beðin velvirðingar á
mistökunum.
Fyrir heimiii - sumarhús - fyrirtæki
ELFA-OSO hitakútar og túbur
Ryðfríir kútar með áratuga frábæra reynslu.
Stærðir á lager: 30—50—80—120—200 og
300 lítra.
Getum útvegað stærðir frá 400—1.000 lítra.
Blöndunar-, öryggis- og aftöppunarlokar
fylgja.
Ennfremur bjóðum við hitatúbur frá 6—1200
kW og elektróníska vatnshitara fyrir vaska og
handþvott.
ELFA-VÖSAB olíufylltir ofnar
Fallegir, einstaklega jafn og þægilegur hiti,
engin rykmengun, lágur yfirborðshiti.
Thermostatstýrðir. Kapall og kló fylgja.
Stærðir á lager: 400-750-800 og 1.000 W.
Hæð: 30 eða 60 sm.
Getum einnig útvegað tvöfalda ofna.
HAGSTÆTT
VERÐ!
Einar
Farestveit&Co
Borgartúni 28 'B’ 562 2901 og 562 2900
Veður og færð á Netinu ^mbl.is
AL.LTAf= G!TTH\/A£3 NÝTTl
Hnmi
Ólafur Örn Haraldsson
þingmaður Reykvfkinga hefur
með góðum órangri barist fyrir
hagsmunum sumarhúsaeigenda.
FRELSI FESTA FRAMSÓKI
w w w . x b . i s / r ey kj av i