Morgunblaðið - 29.04.1999, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 29.04.1999, Qupperneq 58
58 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ 'V Dýraglens s/cytDi MOKJcoeu Tí/ha ve&i HÆ6T AÐ Fee&AST / Tt/tMNOM^ / /6/9 GÆT/ £G tX)/H/D /‘TFTV^. OG FOR&/1ST Þe&SX/Z. SAAW&EDO/Z. Hundalíf þe.tt<x er -&xU<gur harcUJb Ferdinand Smáfólk I WONDER HOU) THE COMPOSER COULD WRITE 50METHIN6 50 BEAUTIFUL. I LOONDER HOU) THE VlOLINIST CAN REMEMBER ALL THOSE N0TE5.. I UIONDER HOW THEV CHAN6E THOSE LIGHT 0ULB5 WM UP THERE IN THE CEILIN6.. Ég er að velta því fyrir mér hvernig tónskáldið gat samið nokkuð svona fallegt... Hvernig skyldi fiðlu- leikarinn geta munað allar þessar nótur... Hvernig skyldu þeir skipta um allar ljósaperur þarna hátt uppi í loftinu... BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Táknmál Frá Daniel Jensen: í FRÉTTABRÉFI Félags heyrnar- lausra birtist nýlega grein eftir Svandísi Svavarsdóttur sem hún nefnir „Hvað er táknmál?" í greininni víkur hún orðum að skyldleika ís- lenska og danska • táknmálsins og tilgreinir þrjár ástæður fyrir þeim skyldleika, íslensk heyrnar- laus börn ytra í námi á nítjándu öldinni, kennarar heyrnarlausra menntaðir í Dan- mörku árum saman - og síðast en ekki síst koma Færeyings til íslands sem setið hafði á skólabekk í Dan- mörku og dreif í því að setja á lagg- irnar Félag heyrnarlausra. Ævin- lega þykir manni vænt um hólið - en ég verð samvisku minnar vegna að bera þetta lof af mér af þeirri ein- földu ástæðu að ég á það ekki skilið. „Þessi Færeyingur talaði vitaskuld danskt táknmál sem hafði áhrif á málþróunina hér. Þetta táknmál að- lagaðist því sem fyrir var en varð ef til vill gi’unnurinn að því táknmáli sem talað er á Islandi um þessar mundir,“ segir Svandís. Heldur þyk- ir mér lítið gert úr heyrnarlausum á Islandi og íslenska táknmálinu með þessum orðum og miklu sennilegra að grunnurinn að íslenska táknmál- inu í dag megi rekja til fyrstu kenn- inganna tveggja um skyldleika danska og íslenska táknmálsins. Staðhæfíngar Svandísar um stóran þátt minn í því að koma á öflugu fé- lagsstarfi eru sambærilegt oflof. Þótt vissulega hafí ég verið hlynntur stofnun félagsins og sat stofnfundinn ásamt 32 öðrum heyrn- ailausum þegar Guðmundur Bjöms- son var kjörinn formaður. Brandur heitinn Jónsson skólastjóri aðstoðaði okkur við stofnun félagsins og var ómetanleg hjálparhella. Þakka að öðru leyti athyglisverða og fróðlega grein. DANIEL JENSEN, Grænuhlíð 15, Reykjavík. Um hugverkaþjófnað Frá Ragnari Lár: ÞAÐ HEFUR lengi loðað við okkur Islendinga að taka verk annarra til handargagns, nýta þau í eigin þágu, eins og ekkert sé sjálfsagðara. Blöð og tímarit birta Ijósmyndir, teikningar eða ritmál án þess að geta höfunda, skreyta greinar með „stoln- um“ hugverkum, ritverkum, teikn- ingum eða ljósmyndum. I mörgum tilvikum er um gamlar ljósmyndir, teikningar, málverk eða ritmál að ræða. Þar eð ég skrifa þetta bréf í Morgunblaðið, er best að geta þess strax, að Mogginn og Lesbók hans halda höfundarétt í heiðri. Mættu aðrir lesmiðlar taka sér það til fyrir- myndar. Auglýsendur svífast einskis til að koma vörum viðskiptavina sinna á framfæri. Þeir nota verk listamanna, látinna eða lifandi, til að skreyta lág- kúrulegan áróður sinn. Þetta á við um þá sem auglýsa vöru, hugverk eða hverskonar „þjónustu“. „Oður- inn til gleðinnar“, fjórði þáttur og sönghluti níundu og síðustu sinfóníu Beethovens, hefur mai'goft verið misnotaður. Tónai* Beethovens voru ekki samdir fyrh' Evrópusambandið. Þeir voru samdir fyrir alla jarðarbúa. Því tekur steininn úr, þegar hall- ærislegt samkrull svokallaðra vinstri flokka á Islandi reynir að slá um sig með þessum þekktu tónum Beet- hovens. Ekki bætir úr skák, þegar efsti maður á lista moldarflokksins í Reykjavík (grænt og rautt gerir brúnt) segir í sjónvarpsviðtali, að „Oðurinn til gleðinnar" sé „þjóðsöng- ur“ Evrópusambandsins. Hvaðan hefur þessi sjálfumglaði framagosi þá fullyrðingu? Hver er sá auglýs- ingahöfundur Samfylkingarinnar sem vogar sér að nota þessa sömu tóna til framdráttar sundurlausri samfylkingu? Hættið að skreyta ykkur með stolnum fjöðrum. RAGNAR LÁR, Vesturbergi 102, Reykjavík. Undarleg hegðun eftirlits- manns í Olfusborgum! Frá Vilhjálmi Guðbjörnssyni: UM páskana, nánar tiltekið á föstu- daginn langa, var mér boðið í heim- sókn tU vinafólks míns sem var með sumarbústað á leigu í Ölfusborgum. Það er svo sem ekki í frásögur fær- andi, nema hvað að ég er svo óhepp- inn að vera í hjólastól. Þegar komið var á staðinn kom í ljós að.umræddur bústaður var efst og fjærst húsi eftirlitsmannsins og var aðgangur að svæðinu lokaður fyrir bflaumferð með hliði. Nú voru góð ráð dýr, við bönkuð- um upp á hjá eftirlitsmanninum til að biðja hann um að opna hliðið svo ég kæmist leiðar minnar. Þá kom í ljós að hann var ekki á staðnum en vinir mínir voru með símanúmer sem hægt var að hringja í og var það gert. Kom þá í ljós að hann var ekki á svæðinu, heldur staddur í Reykjavík í veislu að eigin sögn og enginn á staðnum fyrir hann! Var hann ekk- ert nema ólund og ókurteisi og sagði svæðið lokað fyrir allri bflaumferð - alltafí! og spurði meðal annars hvort ekki væru hjól undir hjólastól, okkur væri engin vorkunn að keyra hann þarna uppeftir. En það er ekki rétt, því ég hef ekki alltaf verið bundinn hjólastól og hef sjálfur farið margar ferðfl- á rút- um og öðrum bílum þarna um svæðið og ekkert verið að því fundið. Mér finnst það furðulegt að ekki megi opna fyrir fötluðum, þar sem umferð hjólastóla er ekki nógu greiðfær frá bílastæðum og þurftum við að klöngrast með aðstoð vina minna yfir þúfur og milli trjáa til að komast leiðar okkar, og eftir gang- stíg, sem varla var boðlegur gang- andi fólki hvað þá hjólastól, ekkert nema holur, grjót og drulla. VILHJÁLMUR GUÐBÖRNSSON, Hesthömrum 16a, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.