Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 11

Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 11 Ásdís sagði að starfsfólkið hefði barist á móti sameiningunni því það hefði óttast það sem nú er orðið að veruleika. „Við vissum að þetta færi svona enda hef ég geymt yfirlýsing- amar frá 1996. En þetta eru svo sem ekki endalok. Við höfum áður upplifað atvinnuleysi en aldrei lengi í einu, kannski tvo mánuði. Rúm- lega 70 manns fengu útborgað síð- astliðinn föstudag en þeir verða mun færri í haust. Þá er líka daufasti tíminn en það er engin lausn að ganga í störf sem útlend- ingar gegna. En ég ætla að sjá til með framhaldið og láta uppsagnar- frestinn líða.“ Ekki sammála mömmu Mæðgurnar Guðrún Helga Jó- hannesdóttir og Jóhanna Guð- mundsdóttir vinna hjá Vinnslustöð- inni. „Hún segir að næga vinnu sé að fá hérna en ég er ekki sammála,“ sagði sú síðarnefnda. Sonur hennar, Guðmundur Bjarnason, er 12 ára og búa mæðginin hjá Guðrúnu Helgu. Hann var að ljúka námi í 6. bekk grunnskólans, er í skátafélaginu Mel og vonast til að komast á lands- mótið í sumar. Hins vegar segist Jó- hanna hvorki eiga sumarfrí né vinnu í vændum. „Ég er alveg eyðilögð," sagði hún. „Ég hafði heyrt ýmislegt en bjóst ekki við að þetta færi svona illa. Ég geri ekki ráð fyrir að halda vinnunni og það hefur mikil áhrif. Ég má ekki vinna allan daginn og erfitt verður að fá annað starf héma. Eins þýðir varla að fara í bæinn því leiga hefur hækkað svo mikið. Þess vegna er þetta mikill skellur.“ Jóhanna sagðist ætla að bíða og sjá til. „Vonandi fæ ég eitthvað að gera en það er allt fullt hjá öðrum fyrirtækjum í fiskvinnslunni. Ég veit ekki hvað ég á að gera en þetta verð- ur að bjargast einhvem veginn." Sár og súr Mæðgumar Sigríður Ái-nadóttir og Guðný Jónsdóttir vinna líka hjá fyrirtækinu. „Ég er voðalega sár og súr,“ sagði Sigríður. „Ég er líka mjög reið og þori varla að tala um þetta því ég óttast að tala af mér, er hrædd um að ég segi eitthvað sem ég á ekki að segja. En það er alveg ljóst að mikil óvissa er framundan og uppsagnirnar setja örugglega strik í reikninginn hjá mörgum. Fólk er í fjárfestingum og gerir ráð fyrir að fá launin reglulega." Hún sagðist samt ekki ætla að gefast upp og bætti við að eiginmað- urinn, Jón Baldursson, væri í góðri vinnu hjá Skipaþjónustu Suður- lands. „Við fiytjum ekki og ef í harðbakkann slær er ekki málið að sækja vinnu héðan til Reykjavíkur. Það er líka gott að búa í Þorláks- höfn.“ Kvótinn er farinn Erfitt reyndist að fá viðbrögð karlmannanna. Mátti skilja að lík- legra væri að þeir héldu vinnunni og var eins og þeir óttuðust eitthvað. Sumir sögðu að nú væri komið að stjórnmálamönnum að sýna viljann í verki en aðeins einn karlmaður vildi koma fram undir nafni. Þorsteinn Gunnarsson býr á Kot- strönd í Ölfusi en hefur unnið hjá Vinnslustöðinni í Þorlákshöfn í 39 ár. „Mér skilst að 15 til 20 starfs- menn verði áfram en ég reikna al- veg eins með því að verða sagt upp og verð þá að fara að leita mér að annarri vinnu,“ sagði lyftaramaður- inn. „Þetta kom mjög fljótt upp og ég trúði því varla að það yrði lokað en þess vegna hef ég ekki kannað hvort hægt sé að fá annað starf. Þó oft hafi verið talað um að loka hefur þessi eining gengið vel og því mátti halda að henni yrði haldið áfram. Með góðum fiski má reka fyrirtækið hér með hagnaði en kvótinn er far- inn.“ Vonleysi hjá ungu stúlkunum Guðrún Eva Jónsdóttir og Guðný Jónsdóttir, sem verða 17 ára síð- sumars og í haust, heimsóttu Hörpu Lind Pálmarsdóttur, sem verður tvítug í ágúst, eftir fundinn í gær en hún hætti hjá Vinnslustöðinni fyrir tveimur árum og starfar hjá mynd- bandaleigunni Tojyimyndir og Kaffi FRETTIR Yfírlýsingar vegna Vinnslustöðvarinnar og Meitilsins 1996 Minnst 4000 þorskígildi verði unnin í Þorlákshöfn Rún. Stúlkurnar sögðu að svo væri sem fótunum hefði verið kippt und- an þeim og mikil óvissa væri framundan. „Ég vann hjá Vinnslustöðinni í fyrrasumar, um jólin og um pásk- ana, er nýbyrjuð aftur og treysti á þessa vinnu í sumar; hafði síðan hugsað mér að fara í bæinn og læra fórðun en nú veit ég ekki hvað ég á að gera,“ sagði Guðný, sem starfar við hlið móður sinnar, Sigríðar Árnadóttur. „Hér er búið að ráða í öll störf. Ég er áhyggjufull því ég finn ekki aðra vinnu.“ Guðrún tók í sama streng. „Það er talað um að starfsleyfi útlending- anna hjá Ámesi og Portlandi verði ekki endurnýjuð þegar þau renna út í haust en ekki er hægt að bíða þangað til auk þess sem við höfum ekkert á móti útlendingunum. Ég byrjaði að vinna hjá Vinnslustöðinni fyrir ári vegna þess að þetta var eina starfið sem mér líkaði héma en nú er það farið. Ég var að hugsa um að fara aftur í skóla en ég geri ráð fyrir að flytja í bæinn þar sem ég vona að ég fái vinnu hjá 10-11.“ Eins og hjá öðmm viðmælendum var stutt í reiðina hjá stúlkunum. „Þó allir tali um að þetta hafi legið í loftinu frá sameiningunni var alltaf sagt að það yrði örugglega ekki lok- að fyrr en í haust og því byrjaði ég aftur héma en svo er allt í einu allt búið,“ sagði Guðný. „Þetta er allt sameiningunni að kenna,“ sagði Guðrún og bætti við að ástandið gæti verið betra. Talað hefur verið um að opna hérna pappírsverk- smiðju og hvernig væri að gera eitt- hvað í því.“ STJÓRN Vinnslustöðvarinnar hf. og stjórn Meitilsins hf. gerðu með sér eftirfarandi viljayfirlýsingu í september 1996: .,1. gr. Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. og stjóm Meitilsins hf. gera með sér samkomulag um að vinna að sam- einingu félaganna tveggja miðað við 1. september 1996. Munu félögin vinna sameiginlega að gerð sam- runaáætlunar fyrir félögin og gerð sameiginlegs upphafsefnahags- reiknings, sem síðan verður lögð fyrir stjórn til ákvörðunartöku. 2. gr. Sammninn fari fram með þeim hætti að Vinnslustöðin hf. taki við öllum réttindum og skyldum Meitilsins hf. og skulu hluthafar Meitilsins hf. fá hlutabréf í Vinnslu- stöðinni hf. sem gagngjald fyrir hlutafé sitt. 3. gr. Markmiðið með sameiningunni er að auka arðsemi rekstrareininganna og ná betri árangri í veiðum og vinnslu ásamt þvi að auka fram- leiðslu á fullunnum afurðum. Þannig verði stefnt að því að við sameining- una verði ekki fækkun á störfum í vinnslu á hvomm stað fyrir sig. 4. gr. Stefnt skal að því að fiskveiði- heimildir sem nú em á skipum Meitilsins verði áfram á skipum, sem skráð verða í Þorlákshöfn. 5. gr. Skipaður verður vinnuhópur til að vinna að framgangi sameiningar- innar. í þeim vinnuhópi verða Guð- mundur Baldursson, Gunnar Birg- isson og Sighvatur Bjarnason, auk fulltrúa tilnefndum af Ölfushreppi. Reykjavík, 30. september 1996.“ Undir viljayfirlýsinguna rituðu þeir, sem þá sátu í stjóm Vinnslu- stöðvarinnar annars vegar og Meitilsins hins vegar. Rúmum tveimur mánuðum síðar skrifuðu fulltrúar hluthafanna Olíu- félagsins, íslenskra sjávarafurða, Vátryggingafélags íslands og Út- sams undir eftirfarandi yfirlýsingu: „I tilefni af fyrirhugaðri samein- ingu Meitilsins hf. og Vinnslustöðv- arinnar hf. staðfesta undirritaðir hluthafar stefnu sína á nýtingu eigna Meitilsins hf. í Þorlákshöfn. afleiðingar. „Til að byrja með verð- ur trúlega mikið atvinnuleysi en erfitt er að spá í framhaldið. Ekki er um marga aðra vinnustaði að ræða og þeir em vel mannaðir. Því óttast ég að atvinnuleysi geti kom- ið til eftir að uppsagnirnar- taka gildi, sérstaklega hjá konum, því þægilegra er fyrir karlmennina að fara á milli staða.“ Víða heyrist að útlendingar í Þorlákshöfn verði að víkja fyrir innlendum heimamönnum. „Hér er hópur með atvinnuleyfi þar til í október eða nóvember í haust og það verður ekki endumýjað miðað við óbreytt ástand. Það hefur líka mikil margfeldisáhrif ef öll löndun stoppar héma, ef fiskurinn hættir að fara í gegnum staðinn. Þótt það sé ekki endilega afráðið era mestar líkur á að þessi skip komi ekki hingað inn til löndunar en gáma- fiski má landa hér eins og annars staðar auk þess sem hér em tveir fiskmarkaðir.“ Þórður sagði að málið væri alfar- ið í höndum fyrirtækisins. „Ég legg áherslu á og vona að þeir sem em við stjórnvölinn taki réttar ákvarð- anir fyrir fyrirtækið og aðra sem hlut eiga að máli. Sjáanlegt var að allt stefndi beint niður á við, því miður. Menn urðu að setjast niður og skoða málið þegar fyrirtækið tapaði 100 milljónum á mánuði. Hins vegar legg ég ríka áherslu á að fólk fyllist ekki svartsýni. Það er bjart yfir staðnum og flest ef ekki allt jákvætt við hann. Við höfum fengið slæm ár áður og svartsýni, bölmóður eða æsingur laga ekk- ert.“ Geir Magnússon stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar „Sárt að þurfa að segja upp fólki“ „ÞAÐ tekur okkur mjög sárt að þurfa að segja fólki upp, en við ger- um þetta til að reyna að byggja fyrirtækið upp með hagsmuni eig- enda og þar með fólksins að leiðar- ljósi. Það skapar atvinnutækifæri að ná tökum á þessu í framtíðinni,“ segir Geir Magnússon, stjórnarfor- Þessi yfirlýsing byggir á þeirri for- sendu að ekki verði verulegar breytingar á rekstrammhverfi sjáv- arútvegs, markaðsaðstæðum, fram- leiðslu eða veiðiaðferðum. Framleiðsla: I Þorlákshöfn verði að lágmarki unninn afli sem nemur þeirri afla- hlutdeild sem skráð er á skip Meitilsins hf. í dag. í dag er afla: hlutdeildin um 4.000 þorskígildi. í framtíðinni mun aflahlutdeildin fylgja þeim breytingum sem yfir- völd ákvarða á hverjum tíma. Vægi tegunda mun fara eftir hagkvæmni og markaðsaðstæðum hverju sinni. Það er jafnframt stefna okkar að auka þennan afla eins og kostur er á næstu ámm. Þá verður stefnt að því að vöru- þróun á sjávarafurðum fari einnig fram í Þorlákshöfn. Utgerð: Það er stefna okkar að hluti af fiskiskipaflota sameinaðs fyrirtækis verði skráður í Þorlákshöfn. Á þann flota verða skráðar þær aflahlut- deildir sem nú tilheyra skipum Meitilsins hf. Reykjavík, 6. desember 1996.“ maður Vinnslustöðvarinnar, í sam- tali við Morgunblaðið. „Við bemm fyrst og fremst ábyrgð á fyrirtækinu sem slíku gagnvart eigendum. Fyrirtækið er svo starfsfólki lítils virði, ef það er keyrt í þrot. Við eram því að skera af okkur það sem við erum að tapa á, það sem við höfum ekki náð ár- angri í miðað við aðra. Náttúru- hamfarir í loðnu og hrun á mjöl- og lýsismörkuðum og gengistap, er á hinn bóginn almenn staða í rekstrarskilyrðum greinarinnar. Landvinnslan hefur verið okkar vandamál og við erum að taka á henni. Við eram að skera af okkur þann kostnað, sem hefur verið of þungur til að sjá hvaða tækifæri við höfum til að byggja upp frá þvi á eftir. Það hefur verið gerð grein fyrir því að undanförnum aðal- fundum Vinnslustöðvarinnar að landvinnslan hefur verið okkur þung og við höfum ekki náð þeim árangri, sem að hefur verið stefnt og því ætti þetta ekki að koma á óvart.“ Kemur til greina að hefja land- vinnslu að nýju í haust? „Það kemur eiginlega í stöðunni allt til greina, sem er arðbært. En hvað það verður vitum við ekki núna.“ Munu þessar aðgerðir duga til að stöðva taprekstur félagsins? „Það er mikið mál að tala um að stöðva taprekstur í sjálfu sér, þeg- ar greinin öll er mjög illa sett í uppsjávarfiskinum. En að þessu leyti teljum við okkur ná utanum það, sem hefur valdið tapinu í land- vinnslu á bolfiski. Sá þáttur er tek- inn tökum, sem við teljum að muni duga. Hvernig almenn rekstrar- skilyrði verða að öðra leyti, fjár- magnskostnaður og markaður fyrir afurðir úr uppsjávarfiski, getur svo ráðið úrslitum, en verði þau eins og á síðustu vertíð, verður erfitt að þrauka. Við skulum vona að nú sé botninum náð þar og afurðaverð fari hækkandi á ný. Vinnslustöðin er mjög vel undir það búin að vinna uppsjávarfisk. Það dæmi hefur gengið mjög vel. Við emm nú að salta með ágætum árangri í Vest- mannaeyjum, útgerðin er eins og gengur, eftir því hvernig árar. Við erum með skip, sem henta kvóta okkar, en þau em kannski flest eldri en menn vildu hafa þau, en það er bara eins og hjá öðrum í landinu, hvorki betra né verra,“ .segirUejj- MggpvífiSQn,^,^ ( , Sesselja Jónsdóttir Geir Magnússon Þórður Ólafsson Sesselja Jónsdóttir bæjarstjóri Ölfuss Uppsagn- irnar svik við okkur „ÞAÐ er rosalega þungt í okkur og þetta var það versta sem maður gat ímyndað sér,“ sagði Sesselja Jónsdóttir, bæjarstjóri Olfuss, þeg- ar hún var spurð hvernig uppsagn- ir hjá Vinnslustöðinni horfðu við bæjarstjórninni. Sagt verður upp 45 starfsmönnum í landvinnslunni þar. „Við lítum á yfirlýsingu stjórnar, sem gefin var vegna uppsagnanna, sem svik við okkur. Þegar Meitill- inn og Vinnslustöðin vora samein- uð vora gefin þau loforð af hálfu stjórnar og aðalhluthafa Vinnslu- stöðvarinnar að það yrði bæði út- gerð og landvinnsla hér í Þorláks- höfn. Þess vegna er yfirlýsingin nú svik,“ sagði bæjarstjórinn. Hún bendir jafnframt á að forsenda áð- urgreindra loforða hefði verið sú að ekki yi'ðu vemlegar breytingar á rekstraramhverfi sj ávarútvegsins. Engar slíkar breytingar hefðu orð- ið og því stæðu forsendumar enn- þá. Sesselja segir Vinnslustöðina og áður Meitilinn hafa verið öflugan atvinnurekanda til margra ára og margir hafi byggt afkomu sína á staríi þess. Hún sagði atvinnu hafa verið næga og góða í Þorlákshöfn og þar væri talsvert af eriendu vinnuafli en það ætti eftir að koma í ljós hver áhrif uppsagnanna yrðu. Bæjaryfirvöld ætla að fylgjast með hvemig þeim sem sagt verður upp gengur að fá önnur störf. „Þetta er fólkið okkar,“ sagði Sesselja. „Skoðun heimamanna hefur ver- ið sú að frystihúsið hér væri hag- kvæm eining. Ef því hefði verið stýrt rétt þannig að hráefni hefði alltaf verið tryggt hefði það skilað góðum hagnaði. Þetta er skoðun okkar heimamanna og því eram við mjög ókát með þessa þróun mála.“ Þórður Ólafsson for- maður Verkalýðsfé- lagsins Boðans Svartsýni lagar ekkert „ÞETTA er slæm frétt en hún hef- ur samt haft sinn aðdraganda,“ sagði Þórður Olafsson, formaður Verkalýðsfélagsins Boðans, við Morgunblaðið um uppsagnirnar hjá Vinnslustöðinni. Hann var að vinna við uppskipun úr Jóni Vídalín ÁR á um 90 tonnum af þorski fyrir Vinnslustöðina sem stakk í stúf við ástandið í Þorláks- höfn í gær. „Þegar sex mánaða uppgjör Vinnslustöðvarinnar lá fyrir var ljóst að eitthvað stórkostlegt var að og þá fór ég að hugsa um málið. Menn urðu að bregðast við og von- andi era þetta réttar aðgerðir sem koma fyrirtækinu á heilbrigðan rekstargrandvöll." Hann sagði að uppsagnirnar gætu haft alvarieg^r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.