Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Heildarafli á næsta fískveiðiári ákveðinn í gær
3 milljarða samdráttur
í útflutningsverðmæti
RÍKISSTJÓRN íslands ákvað í
gær leyfilegan heildarafla fyrir
næsta fískveiðiár í kjölfar veiðiráð-
gjafar Hafrannsóknastofnunar
sem kynnt var sl. laugardag. Er
um að ræða samdrátt í flestum
tegundum frá_ yfirstandandi fisk-
veiðiári. Utflutningsverðmæti
sjávarafurða dregst saman um 3%
frá yfirstandandi fiskveiðiári að
mati Þjóðhagsstofnunar. Það sam-
svarar um 3 milljarða króna sam-
drætti eða um 0,5% af landsfram-
leiðslu.
í reglugerð um leyfilegan heild-
arafla á fiskveiðiárinu 1999/2000
sem Davíð Oddsson, starfandi
sjávarútvegsráðherra, gaf út í gær
er að mestu farið að tillögum Haf-
rannsóknastofnunar. Þó er
þorskafli aukinn um 3.000 tonn frá
því sem tillögurnar kváðu á um,
eða í 250.000 tonn sem er sami
þorskafli og á yfirstandandi fisk-
veiðiári. Ennfremur er leyfilegur
heildarafli í ufsa aukinn um 5.000
tonn frá tillögum Hafrannsókna-
stofnunar eða í 30.000 tonn.
Akvörðun um leyfilegan heildar-
afla fyrir úthafsrækju og innfjarð-
ari-ækju verður endurskoðuð að
fengnum nýjum tillögum Hafrann-
sóknastofnunar.
í útreikningum Þjóðhagsstofn-
unar er ekki gert ráð fyrir verð-
breytingum og stuðst við sama
verð á yfirstandandi fiskveiðiári.
Friðrik Már Baldursson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir að í út-
reikningum stofnunarinnar sé
gengið út frá ákveðnum forsend-
um, meðal annars að loðnukvótinn
verði aukinn í áætlaða lokastöðu.
Ennfremur sé í útreikningum gætt
hóflegrar bjartsýni hvað varði
frystingu á loðnu og gengið út frá
því að hún verði töluvert skárri en
hún var í vetur. Þá sé miðað við að
rækjuafli verði sá sami og á yfir-
standandi fiskveiðiári. Sama eigi
við um úthafskarfaaflann þó búast
megi við að hann verði nokkuð
minni vegna ráðgjafar Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins.
Friðrik segir að þrátt fyrir sam-
drátt megi sjá ýmsa ljósa punkta í
skýrslu Hafrannsóknastofnunar.
„Samdrátturinn er nánast einvörð-
ungu í botnfísktegundum en þar
hefur verðlag haldist mjög gott.
Það eru ekki sjáanleg frekari áföll
í uppsjávarfiskum en þar hefur
verðlag lækkað mikið undanfarnar
vikur og mánuði," segir Friðrik
Már.
Verndunin litlu skilað
Guðjón A. Kristjánsson, formað-
ur Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, segir ráðgöf Haf-
rannsóknastofnunar vissulega
valda töluverðum vonbrigðum.
Undanfarin ár hafi mörgum orðið
tíðrætt um markvissa og vísinda-
lega uppbyggingu þorskstofnsins
og sumir talað um besta fiskveiði-
stjórnunarkerfi í heimi. Hann seg-
ist hinsvegar enga uppbyggingu
sjá í ráðgjöfinni nú. „Það er sam-
dráttur í flestum almennum botn-
fisktegundum. Eins er enga upp-
byggingu að sjá í grálúðu, þó veiði
á sóknareiningu hafi aukist til
muna, bæði í fyrra og það sem af
er þessu ári. Það sýnir að mínu
mati að Hafrannsóknastofnunin
fylgist ekki nægilega vel með því
sem er að gerast. Sjómenn hafa
viljað veiða meira á undanförnum
árum, enda hefur að þeirra mati
uppsveiflunni í þorskstofninum
ekki verið fylgt eftir. Það var hins-
vegar ákveðið að láta af þeirri
gagnrýni í bili og sjá til með hvort
að úr rættist með ráðgjöf Haf-
rannsóknastofnunar. Ég get hins-
vegar ekki séð að það skili okkur
neinu sérstöku.“
Guðjón segir þessar niðurstöður
Hafrannsóknastofnunar hljóta að
vekja upp ýmsar spurningar.
„Menn hljóta að spyrja sig hvort
verið sé að gera rétt eða hvort
standa eigi öðruvísi að málum. Það
vantar að taka hegðunarmynstur
fisktegundanna inn í þessa líf-
fræði, hvort fiskurinn hefur nægi-
legt æti, hvernig hitafarið er, hvort
fiskurinn er í göngu eða ekki og
svo framvegis. Það er einnig
áhyggjuefni að fiskurinn er að létt-
ast. Menn hafa varað við því áður,
meðal annars sjómenn úr Breiða-
firði og frá Vestfjörðum í fyrra.
Það var lítið gert úr þeim ummæl-
um þá,“ segir Guðjón.
Röng hugmyndafræði
Jón Kristjánsson fiskifræðingur
segist ekki hafa kynnt sér ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunar ítarlega
en sér sýnist uppbygging fiski-
stofnanna, einkum þorskstofnsins,
ganga hægt. „í fyrra töluðu marg-
ir hátt um að nú væri uppbygging
þorskstofnsins í góðu lagi. En nú
virðist vélin hinsvegar hiksta og
engin skýring gefin á því. Mín
skoðun er að sú hugmyndafræði
sem byggt er á, það er að hægt sé
að geyma fisk í sjónum, láta hann
stækka þar og veiða hann seinna,
gangi ekki upp. Nú kemur líka í
ljós að þorskurinn er farinn að
horast og fæðugrundvöllurinn
brostinn," segir Jón.
Ekki stuðst við
fagleg sjónarmið
Kristinn Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Gunnólfs hf. á
Bakkafirði, segir þorskstofninn á
Vestfjarðamiðum og fyrir Norður-
landi hafa verið ofverndaðan á und-
anförnum árum. Ástæða sé til að
hafa áhyggjur af lækkandi kyn-
þroskaaldri þorsks. „Árgangurinn
frá árinu 1993 fór einhverra hluta
vegna einu ári of snemma suður
fyrir land til hrygningar. Það bend-
ir til þess að þéttleiki fisksins hafi
verið of mikill. Það segir mér að of
lítið hefur verið veitt úr þessum ár-
Morgunblaðið/RAX
gangi. Afleiðingarnar eru að vaxt-
arhraðinn minnkaði, kynþroskaald-
urinn féll og rækjan var étin upp.
Vaxtarhraði og kynþroskaaldur
hefur áður fallið þegar reynt er að
þvinga fram uppbyggingu í stofnin-
um í stað eðlilegrar veiði. Það er
áratuga reynsla af því að stunda
eðlilega veiði og það hefur aldrei
reynst hættulegt þó að kæmu léleg
aflaár.“
Kristinn segir þá sem tali um ár-
angur í uppbyggingu þorskstofns-
ins tala út frá allt öðrum sjónar-
miðum en faglegum. Hann segir
þau vísindi sem veiðiráðgjöfin
byggi á vera tilbúning og hættuleg
afkomu þjóðarinnar. „Þessir
svokölluðu vísindamenn hafa
stjórnað allri umræðu um þessi
mál og meðal annars notað fjöl-
miðla til að stilla stjórnmálamönn-
um upp við vegg og hótað þeim að
þeir verði gerðir ábyrgir ef ekki er
í einu og öllu farið eftir tillögum
vísindamannanna. Veiðiráðgjöfin
er því orðin einskonar yfirstjórn
efnahags- og sjávarútvegsmála á
Islandi. Önnur sjónarmið og skoð-
anir eru virtar að vettugi og um-
ræðan þess vegna verið nánast
frosin í hartnær tvo áratugi. Mér
finnst að umræðan í dag ætti að
snúast um frjálsar veiðar á þorski
sem leið til að reyna að koma í veg
fyrir hrun stofnsins, svo vísað sé
til reynslu frá Kanada, Vestur-
Grænlandi og nú síðast úr
Barentshafmu," segir Kristinn.
Skynsamleg ákvörðun
í flestum tegundum
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segist í megindráttum sátt-
ur við ákvörðun um heildarafla og
hún sé í flestum tilfellum skynsam-
leg. Hann segir ákvörðun um 250
þúsund tonna þorskafla þannig
skynsamlega, og betur horfi nú
með ýsustofninn en áður, sam-
dráttur í karfaveiðum sé í sam-
ræmi við tækniframfarir í bæði
veiðum og veiðarfærum. Eins telur
Kristján eðlilegt að ufsaaflinn sé
hækkaður umfram tillögur Haf-
rannsóknastofnunar, enda sé um
flökkustofn að ræða. „Ég hefði
hinsvegar talið æskilegt að auka
við grálúðuna, enda eru aflabrögð
mjög góð. Við höfum skorið grá-
lúðuveiðar mikið niður á meðan ná-
grannar okkar, Grænlendingar og
Færeyingar, hafa aukið sinn afla
úr sama stofni. Við munum þannig
lenda í vandræðum þegar kemur
að pólítískri skiptingu stofnsins,
enda eru þeir með meiri afla úr
stofninum en við.“
Kristján segir ánægjulegt að sjá
á ný aukningu á sfldaraflanum.
Eins sé humarstofninn á réttri leið
þótt ekki verði um aukningu að
ræða á næsta ári. „Rækjuaflinn er
hinsvegar aðeins þriðjungur af því
sem lagt var upp með í fyrra. Ég
vona hinsvegar að þetta sé ekki
endanleg niðurstaða vegna þeirra
útgerða og sjávarplássa sem
byggja mikið á rækjunni. Eins er
gefið til kynna að úthafskarfaaflinn
verði skorinn niður í 85 þúsund
tonn, vegna þess að ekki hafl náðst
að veiða 153 þúsund tonna leyfileg-
an heildarafla. Við höfum hinsveg-
ar alltaf náð að veiða okkar 45 þús-
und tonn þótt aðrir hafi ekki veitt
sinn skammt. Það stafar aðeins af
minni sókn þeirra og vegna þess að
karfinn hefur haldið sig í íslenskri
lögsögu. Það styrkir okkar kröfu
um hærri kvóta og góð veiði okkar
ætti þessvegna að leiða til upp-
skipta,“ segir Kristján.
í samræmi við áætlanir
Jóhann Sigurjónsson, forstóri
Hafrannsóknastofnunar, vísar því
á bug að ekki sé sjáanlegur árang-
ur af uppbyggingu þorskstofnsins
hér við land og bendir á að frá fisk-
veiðiárinu 1995/1996 hafi heildar-
aflamark verið aukið úr 155 þúsund
tonnum í 250 þúsund tonn. Tillaga
stofnunarinnar um þorskafla á
næsta fiskveiðiári sé ennfremur í
fullu samræmi við fyrri áætlanir,
enda hafi ekki verið gert ráð fyrir
aukningu á næsta fiskveiðiári. „Við
fiskverndunina hafa einstaklingar í
þorskstofninum náð að vaxa og
bæta við sig þyngd. Aukningin á
undanförnum árum felst í þessu en
ekki vegna fleiri einstaklinga í
stofninum. Vissulega sjáum við
merki þess að þorskurinn sé rýrari
en á undanförnum árum en það er
ekkert sem við þurfum að hafa
verulegar áhyggjur af á þessum
tímapunkti en engu að síður full
ástæða til að fylgjast vel með þessu
og það höfum við gert mjög ná-
kvæmlega. Það er hinsvegar ekki
ástæða til að ætla að þorskurinn sé
að éta sig út á gaddinn."
Jóhann segir góðu tíðindin vera
þau að árgangar frá árunum 1997
og 1998 ættu að verða gott efni í
aukningu aflaheimilda á komandi
árum. Eins líti vel út með síldar- og
loðnustofnana, humarstofninn sé
að rétta úr kútnum og það sama
eigi við um steinbítinn. Eins sé góð
nýliðun í karfastofnunum, bæði
gullkarfa og djúpkarfa, þó enn eigi
þeir eftir að ná sér fyllilega á strik.
„Hinsvegar eru horfurnar ekki
góðar í rækjustofninum þótt það
komi ekki á óvart. Það helgast
einna helst af stækkandi þorsk-
stofni. Ennfremur er ekki gott útlit
í skarkola á Faxaflóa sem kannski
fyrst og fremst má rekja til mikill-
ar sóknar. Eflaust spilar sýking í
stofninum þar einnig eitthvað inn í.
Eins eru blikur á lofti í út-
hafskarfastofninum þó svo ekki sé
þar komin fram nein ráðgjöf. Við
teljum mikilvægt að veiðum á út-
hafskarfa verði stýrt þannig að um
tvo stofna sé að ræða, þó svo að þar
liggi ekki fyrir óyggjandi gögn,“
segir Jóhann.
Landspítali fær
fjölsneiðatæki
RÖNTGENDEILD Landspítalans
hefur keypt nýtt og afar tæknivætt
sneiðmyndatæki. Tækið kostar rúma
91 milljón króna og er keypt af Heklu
hf. Tækið er af gerðinni Lightspeed
Qxi og er framleitt af General Elect-
ric í Bandaríkjunum.
I fréttatilkynningu frá Ríkisspítöl-
um segir að þetta sé fjölsneiðatæki,
það fullkomnasta sem völ er á. Tækið
kom á markað í fyrrahaust og eru
mörg slík komin nú þegar á sjúkra-
hús beggja vegna Atlantshafsins.
Nýja tækið er margfalt hraðvirkara
en sneiðmyndatækin sem nú eru not-
uð. Sá mikli hraði og aukin myndgæði
sem tækið gefur eiga eftir að hafa
mikil áhrif í rannsóknum og lækning-
um á spítalanum. Rannsóknartími
styttist og auðveldara verður að
tryggja betri skoðun á bráðveikum
sjúklingum, slösuðum, gjörgæslu-
sjúklingum og börnum.
------........—
Afsala sér
launahækkun
Á FUNDI i bæjarstjóm Árborgar 12.
mai síðastliðinn var ákveðið að bæjai'-
fulltrúar tækju ekki þá tæplega 30%
hækkun launa sem þeim hefði staðið
til boða ef haldið hefði verið áfram að
miða laun bæjai-fulltrúa við þingfar-
arkaup. Var ákveðið að afnema þessa
viðmiðun.
Karl Bjömsson, bæjarstjóri í Ár-
borg, sagði laun bæjarfulltrúa og ým-
is nefndalaun hafa verið ákveðið hluL
fall af þingfararkaupi en ekki langt
síðan að launakerfi bæjarins var end-
urskoðað að þessu leyti. Hann sagði
bæjarfufltrúa hafa ákveðið að afnema
tengingu launa sinna við þingfarar-
kaupið þegar ljóst varð að það myndi
hækka um tæplega 30% með síðustu
ákvörðun Kjaradóms 8. maí síðastlið-
inn. Laun bæjarstjóra hafa ekki mið-
ast við þingfararkaup.
-------♦ ♦♦-----
Brotist inn
í Videohöllina
BROTIST var inn á skrifstofu mynd-
bandaleigunnar Videohallarinnar við
Lágmúla 7 um klukkan tvö aðfara-
nótt mánudags og stolið þaðan tæp-
um 1,9 milljónum króna í peningum,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu.
Þóroddur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Videohallarinnar og
Bónusvídeós, kvað það ekki vera rétt
að stolið hefði verið 1,9 milljónum
króna og sagðist undrandi á því að
lögreglan skyldi láta í té slíkar upp-
lýsingar, því að hans mati virki það
mjög „innbrotshvetjandi" á þjófa að
vita hversu miklir fjármunir væru
geymdir á hinum og þessum stöðum.
Hann sagði það vera íyrir öllu að eng-
inn skyldi hafa staðið þjófana að verki
því þá hefði getað farið verr, þ.e. ein-
hver hefði getað meiðst.
Videohöllin rekur einnig Bónusvid-
eóleigumar, en alls rekur fyrirtækið
12 myndbandaleigur á höfuðborgar-
svæðinu og var upphæðin, sem stolið
var af skrifstofunni, komin frá mörg-
um leigum. Þóroddur sagði að þessi
atburður kæmi ekki tfl með að hafa
nein veruleg áhrif á rekstur mynd-
bandaleiganna, því aðeins væri um
litla upphæð að ræða samanborið við
veltu fyrirtækisins.
Að sögn lögreglu hefur enginn ver-
ið handtekinn en rannsókn á málinu
stendm- yfir.
------♦♦♦-------
Tíkin Tína fundin
TÍKIN Tína lifði ekki veturinn og
fannst hún dauð við Hafravatn á laug-
ardaginn. Tína týndist 5. janúar við
Ásbúð í Mosfellsbæ og var lengi leit-
að að henni þar í nágrenninu.
Tíkin fannst dauð í skurði við
Hafravatn og var hún enn klædd bláu
kápunni sinni og með rúllur í feldin-
um. Tína, sem var þriggja ára gömul,
var af Yorkshire terrier-kyni og var
sérstaklega flutt inn til landsins til að
efla ræktun kynsins hérlendis.