Morgunblaðið - 26.05.1999, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 15
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
BORGIN séð með augum barna er yfirskrift Ijósmyndasýningar
í Safnahúsinu á Egilsstöðum.
Borgin séð með
augum barna
Egilsstaðir - Ljósmyndasýning er
nú í Safnahúsi Austurlands á
Egilsstöðum. Sýningin ber yfir-
skriftina Borgin séð með augum
barna.
Höfundar myndanna eru ungir
að árum, 5 og 6 ára leikskóla-
börn úr Ægisborg og Vestur-
borg. Þau fengu kennslu í að
nota myndavélar og síðan það
viðfangsefni að mynda það sem
fyrir augu bæri á ferð sinni um
Reykjavíkurborg. Myndimar
vom síðan framkallaðar og sett-
ar á stór spjöld. Myndirnar era
hengdar upp í augnhæð barna.
Sýningin er opin virka daga
frá kl. 9-19 og laugardaga frá kl.
9-13. Sýningin er farandsýning
og verður sýnd víðar um land.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
. • v i mr p iM
VI
.
SJÖ ára börn úr Húnavallaskóla og grunnskóla
Blönduóss með nýju hjálmana sína.
Flutti
pistilinn
98 ára
gömul
Hvammstanga - Uppstigningar-
dagur er tileinkaður eldri borgur-
um á Islandi. Þá taka þeir gjaman
þátt í helgihaldinu með lestri og
söng. Að þessu sinni var guðs-
þjónustan á Hvammstanga í
Sjúkrahúsinu. Sóknarpresturinn,
sr. Sigurður Grétar Sigurðsson,
fékk til liðs við sig aldraða konu,
Herdísi Bjarnadóttur, og las hún
pistil. Það væri ekki í frásögur fær-
andi, nema vegna þess að Herdís
er níutíu og átta ára gömul en afar
skýr í hugsun.
í messulok spjallaði prestur
nokkuð við Dísu, eins og hún er
ávallt kölluð, og sagði hún nokkuð
frá fermingu sinni, sem var í
Breiðabólstaðarkirkju í Vestur-
hópi. Geta má þess, að áhugavert
samtal við Dísu er skráð í Húna,
árgang 1998, en hann er væntan-
legur á markað á næstu dögum.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Morgunblaðið/Ingimundur
FRÁ afhendingu styrks SparisjóÖs Mýrasýslu til UMSB og Umf. Skallagríms. F.v. Ásdís Helga Bjarnadóttir,
formaður UMSB, Gísli Kjartansson sparisjóðssljóri, Steinunn Ásta Guðmundsdóttir, skrifstofusljóri SM, og
Jófríður Anna Sigfúsdóttir, formaður Skallagríms.
UMSB og Skallagrímur
hljóta styrk frá Sparisjóðnum
Borgarnesi - Sparisjóður Mýrasýslu
úthlutaði fyrir skömmu styrkjum til
Ungmennasambands Borgarfjarðar
og Ungmennafélagsins Skallagríms í
Borgarnesi. Fór afhendingin fram í
húsi Skallagríms við íþróttamiðstöð-
ina í Borgarnesi.
Við það tækifæri sagði Gísli Kjart-
ansson sparisjóðsstjóri að forráða-
menn Sparisjóðs Mýrasýslu vildu
styðja við bakið á þessum félagasam-
tökum sem vinna markvisst að
æskulýðs- og íþróttamálum. Hefur
Sparisjóðurinn styrkt þessi félaga-
samtök undanfarin ár og sagði Gísli
að hugmyndin væri að gera slíkt í
náinni framtíð. Styrkur til hvors að-
ila var að upphæð 800 þús. krónur.
Viðstaddir afhendinguna voru
stjórnarmenn í Umf. Skallagrími,
formaður UMSB, auk fréttamanna.
Sjö ára
börn fá reið-
hjólahjálma
Blönduósi - 011 sjö ára böm í
grunnskólanum á Blönduósi og
Húnavallaskóla fengu afhenta
reiðhjólahjálma og veifur fyrir
skömmu.
Það var kvenfélagið Vaka á
Blönduósi og Kiwanisklúbbur-
inn Drangey á Sauðárkróki
sem stóðu fyrir þessu átaki.
Verkefni þetta var stutt af ís-
landsbanka og Tryggingamið-
stöðinni.
Áður en börnin fengu hjálm-
ana hlýddu þau á leiðbeiningar
um notkun þeirra, bára fram
fyrirspurnir og sögðu lífs-
reynslusögur úr umferðinni. Að
lokinni hjálmaafhendingu var
haldin grillveisla fyrir krakk-
ana og aðstandendur þeirra.
Að sögn forsvarsmanna gef-
enda verður það árviss við-
burður héðan í frá að sjö ára
börn á þessu skólasvæði fái
hjálma.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Fólk við vorstörfín
Stykkishólmi - Bæjarstarfmenn í
Stykkishólmi eru farnir að sinna
vorstörfunum. Eitt af því sem ligg-
ur fyrir að gera er að merkja
gangbrautir, því allar merkingar
eru löngu horfnar eftir umferð
vetrarins. Þeir eru komnir með
sópinn og hvítu málningarrúlluna
Davíð Hafsteinsson og Kári
Hjaltalín og bæjai-verkstjórinn
Högni Bæringsson tekur út verk-
ið.