Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 25
Siofn er samheiti yfir tryggingar l'jölskyldimnar. (írtmnur aö
Stofni er ávailt Fjöiskyldutrygging en auk hennar veluröu þær
tryggingar sem fjölskyldan þarfnast. Slofn er sveigjanleg lausn
þar sem þú iagar tryggingamálin aú þiirfum þíuum
Jagland
tapar fylgi
FYLGI norska Verkamanna-
flokksins hefur minnkað síðan í
desember sl. úr 41.5% fylgi í
33.5%, samkvæmt niðurstöðum
skoðanakannana er birtar voru
um helgina. Niðurstöðumar eru
jákvæðar íyrir Carl I. Hagen,
formann Framfaraflokksins, en
Thorbjom Jagland, forsætis-
ráðherra og formaður Verka-
mannaflokksins, hefur sam-
kvæmt þeim orðið af stuðningi
fimmta hvers kjósanda flokks-
ins síðan í desember.
Meintir morð-
ingjar nást
LÖGREGLA á Miðjarðar-
hafseynni Korsíku handtók í
gær fjóra af fimm mönnum sem
gmnaðir em um að hafa myrt
háttsettan embættismann á
eynni fyrir rúmu ári. Mennimir
em sagðir meðlimir í samtökum
aðskilnaðarsinna sem era and-
vígir frönskum yfirráðum á Kor-
síku. Umfangsmikil leit stendur
yfir að fimmta manninum.
Halonen
útnefnd
TARJA Halonen, utanríkisráð-
herra Finnlands, vann afger-
andi sigur í prófkjöri sem
flokkur hennar, Jafnaðar-
mannaflokkurinn, hélt til að
velja frambjóðanda flokksins í
forsetakosningunum, sem
haldnar verða í Finnlandi á
næsta ári. Hlaut Halonen
57,7% atkvæða, en sá sem
næstur kom, fyrrverandi for-
maður flokksins, Pertti Paasio,
hlaut 22,2 prósent.
128 lík fundin
í Pakistan
TALSMAÐUR pakistanska
hersins sagði í gær að 128 lík
hefðu fundist í þeim strandhér-
uðum landsins er urðu fyrir
barðinu á fellibyl sl. fimmtu-
dag. Talið er að um eitt þúsund
manns sé enn saknað.
Snýr aftur
SONJA Gandhi tók á ný við
formennsku í Kongressflokkn-
um á Indlandi í gær, en hún
hafði áður sagt af sér vegna
þrýstings frá háttsettum mönn-
um í flokknum. Hún sagði hins
vegar ekkert um það hvort hún
myndi sækjast eftir embætti
forsætisráðherra landsins.
I3ICMIEGA
E-vítamín
■s
'i
■i
Sindurvari sem verndar
frumuhimnur líkamans.
Fæst í næsta apóteki.
Omega Farma
mss -s monr&A
SJOVAOIljALMENNAR
Traustur þáttur í tilverunni
Ólíklegt að Mallory
hafi náð toppnum
Katmandú. Reuters.
FJALLGÖNGUMENNIRNIR sem
fundu lík Bretans George Leigh
Mallory í hlíðum Everest-Qalls
fyrir skömmu sögðust í gær telja
ólíklegt að Mallory hefði komist
á tind þessa hæsta fjalls í heimi.
Á fréttamannafundi í Katmandú í
Nepal í gær sögðu þeir sennilegt
að tæknilegir erfiðleikar og fyr-
irstöður á síðasta hluta göngu-
leiðarinnar hefðu komið í veg
fyrir að Mallory, og förunautur
hans Andrew Irvine, kæmust alla
leið upp á tind Everest.
Hingað til hefur verið litið svo
á að Sir Edmund Hillary og
sherpinn Tenzing Norgay hafi
árið 1953 orðið fyrstir til að kom-
ast á tind Everest, en eftir að lík
Mallorys fannst fyrir þremur vik-
um, skammt frá tindi fjallsins,
hafa spurningar vaknað um
hvort hann hafí orðið fyrstur tii
að ná toppnum árið 1924.
Eric Simonsen, leiðtogi Banda-
rísku leiðangursmannanna
greindi frá því að leit að Kodak-
myndavél Mallorys og líki Irvines
hefði reynst árangurslaus.
Simonsen sýndi fréttamönnum
TaktuStoín
mað í raikninginn
ag njóttu þess að haía eggin þín á sama stað
Núverandi Stofn-félagar, og þeir sem ganga í Stoín fyrir 1. júlí
næstkomandi, eiga kost á að vera í hópi þeirra sem fá endur-
greiðslu á næsta ári.
Færð þú endurgreiðslu?
Til þess að eiga kost á afslætti í Stofni þarft þú að vera með
Fjölskyldutryggingu og tvær tegundir grunntrygginga að auki.
Með þriðju grunntryggingunni til viðbótar átt þú möguleika
á endurgreiðslu.
Mundu 1. júh'!
Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 569 2500 eða
umboðsmenn okkar á landsbyggðinni og kynntu þér kostina
fyrir 1. júlí næstkomandi.
Reuters
þá muni sem þeir fundu á fjall-
inu, en meðal þeirra er súrefn-
iskútur Mallorys sem sést á
myndinni, handskrifuð bréf,
hlífðargleraugu sem Mallory
hafði í vasa sínum, hæðarmælir,
vasaklútur merktur upphafsstöf-
um Mallorys og vasahnífur.
Simonsen upplýsti ennfremur
að hópurinn hygðist halda aftur
á Everest til að leita myndavélar-
innar og líkamsleifa Irvines.