Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
1”
LISTIR
Morgunblaðið/Ásdís
ÞÁTTTAKENDUR í söng- og gleöidagskrá Hugleiks.
Söng- og gleðidag-
skrá Hugleiks
LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur stendur
fyrir söng- og gleðidagskrá í Mögu-
leikhúsinu við Hlemm á morgun og
föstudaginn 28. maí kl. 21 bæði
kvöldin. Dagskráin hefur yfirskrift-
ina Þótt ótrúlegt megi virðast, þá er
ég ekki laglaus og koma dagskrárat-
riðin úr ýmsum áttum. Það eru 15
listamenn sem að sýningunni standa,
þar af sjö manna hljómsveit, sem sér
um allan undirleik.
Skemmtunin er liður í íjáröflun leik-
félagsins, en Hugleikur er á leið til Lit-
háen í júlí nk. Félagið hefúr þekkst
boð Trakai-listahátíðarinnar í Litháen
um að sýna leikverkið Sálir Jónanna
ganga aftur. í ágúst sl. fór Hugleikur
með leikritið á norræna leiklistarhátíð
í Harstad í Norður-Noregi. Þar kom
einnig fram leikhópur frá Trakai, hin-
um foma höfuðstað Litháen. Á meðal
félaga í leikhópnum var borgarstjóri
Trakaiborgar og barst Hugleik boð á
liðnum vetri um að sýna leikritið á
listahátíðinni í Trakai. Sálir Jónanna
verður sýnt 17. júlí. Það er um 30
manna hópur frá Hugleik sem heldur
utan.
VÍNARKLASSÍSKUR
DRAUGAGANGUR
TONLIST
Hvuragerðiskirkja
BJARTAR SUMARNÆTUR
Schumann: Phantasie-Stiicke Op.
73; Liszt: sex sönglög; Beethoven:
Píanótríó í D Op. 70,1 („Geister").
Signý Sæmundsdóttir sópran og
Edda erlendsdóttir píanó; Tríó
Reykjavfkur, (Guðný Guðmunds-
dóttir, fiðla; Peter Máté, píanó;
Gunnar Kvaran, selló.
Föstudaginn 21. maí kl. 20:30.
ÞAÐ andaði köldu úr útnorðri,
þegar þriðja tónlistarhátíð Hver-
gerðinga gekk í garð á föstudags-
kvöldið var með allvel sóttum
kammertónleikum. Á móti kom,
að inni fyrir réðu hlýjar viðtökur,
heitt kaffi og heillandi tónverk.
Það mátti skilja á ávörpum að-
standenda, að tónlistarþrídægran
austan fjalls sé komin til að vera,
eins og sagt er á ísl-ensku, enda
hefur hún þegar sannað gildi sitt.
Það hefur og komið í Ijós, að kirkj-
an er þokkalegasta söng- og
strengjahús, þó að glymjandin sé
ívið of mikil fyrir píanó. Væri vert
að athuga, hvort með einhverju
móti mætti þar um bæta, án þess
að þurfa að bylta öllu innan
stokks.
Líkt og farfugl úr landsuðri var
kominn góður gestur frá Franseis,
Edda Erlendsdóttir píanóprófess-
or, sem seinna í sumar mun
væntalega veita tónlistarhátíðinni
austur að Klaustri forsjá eins og
undanfarin ár. Hún lék her með
Signýju Sæmundsdóttur sex
sönglög og eitt utan dagskrár við
ýmist þýzka eða frönska texta eft-
ir píanósnillinginn mikla Franz
Liszt, sem eins og Chopin er mun
ókunnari fyrir sönglagasmíðar hér
um slóðir fyrir en önnur verk sín,
þó nú sé að vísu heldur meir farið
að bera á söngvum Chopins en áð-
ur var. Má e.t.v. álykta, að gífur-
legt söngtónleikaframboðið hér-
lendis sé loks farið að leita aðeins
út fyrir dagfarsviðfangsefni úr
hirzlum Schuberts og Schumanns,
og ber að fagna aukinni fjöl-
breytni. Lögin voru mörg falleg,
oft svolítið þjóðlagakennd en að
öðru leyti ýmist í frönskum eða
þýzkum ljóðastfl, og sum þeirra
m.a.s. með fyrirboðaávæning um
síðar til kominn impressjónisma
Debussys, eins og Ihr Glocken von
Martin. Voru þessar sjaldheyrðu
perlur dável og samtaka fluttar af
þeim stöllum. Þar áður léku Gunn-
ar Kvaran og Peter Máte hin víð-
kunnu Fantasíustykki eftir
Sehumann af heitri tilfinningu og í
allgóðu jafnvægi, þó að glymjandi
kirkjunnar styrkti heldur píanóið -
einkum bassasvið þess - á kostnað
sellósins.
Lokaatriði tónleikanna var hið
kunna „Anda“-tríó Beethovens
Op. 70 nr. 1 fyrir fiðlu, selló og pí-
anó frá árinu 1808 og tileinkað
Marie Erdödy greifynju. Verkið
er líkt og Razumowsky-strengja-
kvartettamir frá „heróíska" mið-
skeiði tónskáldsins; mun
virtúósískara en eldri verk Beet-
hovens í sömu grein, og að sögn er
þar jafnar ritað fyrir öll hjóðfærin
en áður, þar sem píanóið hafði
ótvíræða forystu. Tríó Reykjavík-
ur lék mjög vel. I. þáttur var
kraftmikill, reimt var yfir drunga-
legum II. þættinum sem auknefni
verksins (runnið frá öðram en höf-
undi sjálfum) á sérstaklega við, og
hinn eldfjörugi lokaþáttur var víða
glæsilegur í þétt tvinnuðum sam-
leik tríósins við mikið píanóflúr í
liprum höndum Peters Máté.
Ríkarður Ö. Pálsson
Vinsælu gatakortin
eru upplögö í sumar.
15 eða 24 gata kort
Arskortin alltaf í boði
staðgreidd eða í áskrift
opnir jazztímarfyriralla
jsb góður staður fyrir konur
Morgunblaðið/ Karl Á. Sigurgeirsson
ÖNNUR hljómsveita Tónlistarskóla A.-Hún.
Tónlistarskóli V-Hún.
þrjátíu ára
Hvammstanga. Morgunblaðið.
TÓNLISTARSKÓLI Vestur-Hún-
vetninga varð þrjátíu ára á þessu ári.
I tilefni afmælisins hélt skólinn
lokatónleika í Félagsheimfli
Hvammstanga. I máli skólastjórans,
Elínborgar Sigurgeirsdóttur, kom
Lagerlausnir
Brettarekkar - Smávöruhillur
- Innkeyrslurekkar o.fl.
Lagerkerfi sem uppfylla staðla
(INSTfl, German Standard o.fl.)
Hagstætt verð - Hagstæð lausn
PÖfnasmiðjan
Verslun Háteigsvegi 7 - sími 5111100
Verksmiðja Flatahrauni 13 - slmi 555 6100
fram að 108 nemendur stunduðu
nám við skólann á líðandi skólaári.
30 nemendur luku stigsprófi frá 1.-4.
stigi. Aðrir nemendur þreyttu árs-
próf.
Kennt er á hefðbundin blásturs-
hljóðfæri, rafmagnsgítar og bassa,
píanó og hljómborð, harmonikku,
trommur og önnur ásláttarhljóðfæri.
Einnig hefur skólinn boðið upp á
söngtíma. Við skólann er starfandi
lúðrasveit, undir stjóm Hjálmars
Sigurbjörnssonar, og tvær hljóm-
sveitir, undir stjórn Guðmundar
Hólmars Jónssonar. Skólinn heldur
árlega nemendatónleika, um jól og á
vorin, og auk þess mánaðarlega tón-
leika fyrir nemendur og foreldra.
Aðrir kennarar auk skólastjóra eru
Ólöf Pálsdóttir, Helgi S. Ólafsson og
Ingibjörg Pálsdóttir og einnig Hin-
rik Oliversson, sem er stundakenn-
ari. Skólinn hefur alla tíð haft aðal-
starfstöð á Hvammstanga en einnig
er kennt í Laugarbakkaskóla, í Vest-
urhópsskóla og Barnaskóla Staðar-
hrepps. í tilefni afmælisins gaf skól-
inn út fréttabréf, sem sent var á öll
heimili sýslunnar. Þar var óskað eft-
ir stuðningi héraðsbúa við endurnýj-
un hljóðfæra við skólann. í vetur
barst skólanum höfðingleg gjöf, raf-
gítarar, bassi, magnarar og trommu-
sett, frá velunnara skólans.
Söngnámskeið verður haldið í vor,
hefst það 26. maí og stendur í tvær
vikur. Kennari verður Ingveldur
Hjaltested.
V