Morgunblaðið - 26.05.1999, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Sarajevo 1999
16.-28. maí
Nr. Nafn Stig |l 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Vinn. Röð
1 Peter Leko 2694H % 'h 'h 'h 'h 1 0 3,5 5.-7.
2 Alexander Morozevic 2723 14 'h % 0 0 1 1 3,5 5.-7.
3 Jan H. Timman 2670 'h 'h 0 0 0 0 0 1 10.
4 Michael Adams 2716 'h 'h 1 1 0 1 K 4,5 3.-4.
5 Evgenv Bareev 2679 'h 1 1 'h 'h 1 'k 5 1.-2.
6 Gary Kasparov 2812 1/2 1 'h 1 'h 1 1/2 5 1.-2.
7 Nigel D. Short 2697 0 0 'h 0 1 'h 2,5 8.
8 Veselin Topalov 2700 1 1 0 'h 'h 'h 0 3,5 5.-7.
9 Ivan Sokolov 2624 0 1 0 'h 0 0 'h 2 9.
10 Alexei Shirov 2726 1 0 1 'h ’/2 'h 1 ■ 4,5 3.-4.
Kasparov sigrar
Morozevich í
Sarajevo
SKAK
Sarajevo
BOSNÍA 99
16.-26. maí 1999
TVEIMUR umferðum er nú
ólokið á hinu geysisterka stóiTneist-
aramóti í Sarajevo. Skemmst er frá
því að segja að Kasparov, sem byrj-
aði mótið fremur rólega, hefur náð
þremur vinningum úr síðustu fjór-
,..um umferðum og leiðir nú mótið
ásamt Evgeny Bareev. Hafa þeir
báðir fimm vinninga af sjö mögu-
legum. Morozevich virtist ætla að
koma á óvart á mótinu og var hann
einn efstur eftir þrjár umferðir með
tvo og hálfan vinning af þremur
mögulegum. Ekki tókst honum þó
að fylgja góðri byrjun eftir og eftir
tvö jafntefli og tvær tapskákir,
gegn Bareev og Kasparov, situr
hann nú í 5.-7. sæti með þrjá og
hálfan vinning. Úrslit 7. umferðar
urðu þessi:
Gary Kasparov - Alexander Morozevich 1-0
Evgeny Bareev - Jan H. Timman 1-0
Michael Adams - Alexei Shirov Vt-'k
Veselin Topalov - Ivan Sokolov 'ft-'h
Nigel D. Short - Peter Leko 0-1
I áttundu og næstsíðustu umferð
sem tefld var í gær, þriðjudag,
mættust:
Alexei Shirov - Ivan Sokolov
Michael Adams - Evgeny Bareev
Peter Leko - Veselin Topalov
Alexander Morozevich - Nigel D.
Short
Jan H. Timman - Gary Kasparov
Minningarmótið um Capablanca
Enski stórmeistarinn Anthony
Miles sigraði á 34. minningarmót-
^ inu um Capablanca sem haldið var
dagana 7.-22. maí í Havana á Kúbu.
Hann fékk 814 vinning af 13. í 2.-4.
sæti urðu Suat Atalik, Lazaro
Bruzon og Julio Becerra Rivero all-
ir með 8 vinninga.
Rohde sigrar Rebel
Bandaríski stórmeistarinn Mich-
ael A. Rohde átti ekki í vandræðum
með að leggja skákfomtið Rebel að
velli í kappskák sem tefld var í
gegnum ICC skákþjóninn á laugar-
daginn.
Þetta var fyrsta skákin í mánað-
arlegri keppni sem höfundur Rebel,
Ed Schröder, hyggst gangast fyrir.
_ AJlir stórmeistarar sem hafa áhuga
rá að tefla eina skák við Rebel geta
haft samband við Schröder. Fyrir
sigur fær stórmeistarinn $500 að
launum og $250 fyrir jafntefli.
Eftir góða frammistöðu Rebel
gegn Anand síðastliðið sumar töldu
margir að möguleikar Rohde væru
litlir. Reyndar sigraði Anand Rebel
með 114 vinningi gegn 14 í kapp-
skákunum, þótt Rebel hefði betur í
skákum með styttri tímamörkum.
Rohde er hins vegar enginn viðvan-
ingur þegar kemur að því að tefla
við tölvur og hefur einstaklega gott
•'*"'iag á þeim. Það er því lærdómsríkt
fyrir væntanlega andstæðinga
Rebel að sjá hvaða aðferðum hann
beitti til að ná fram sigrinum.
Rohde valdi mun skynsamlegri
leið í byrjuninni heldur en t.d. Ka-
sparov valdi í skákum sínum gegn
Deep Blue. Hann tefldi óhræddur
byrjun sem margoft hefur verið
^tefld og skákin fylgdi þekktum leið-
um fram í 12. leik. Tilfellið er að sú
byrjunarþekking sem byggð hefur
verið upp í skákinni er afar haldgóð
og í raun mjög sjaldgæft að skák-
forrit finni einhverjar gloppur í
henni.
Þegar byrjunarbókunum sleppti
kom í ljós að Rohde hafði mun betri
skilning á stöðunni sem upp kom
heldur en Rebel. Rohde taldi að
Rebel væri kominn með tapað tafl
upp úr 20. leik. í 26. leik gat Rohde
gert út um skákina, en kaus þess í
stað rólegri leik sem tryggði honum
áframhaldandi stöðuyfirburði.
Hann sagðist ekki hafa haft tíma til
að reikna flækjurnar til enda og því
kosið einfaldari leið, þótt hún væri
ekki sú sterkasta. Varla er að efa
að Rohde hefði gefið sér tíma til að
skoða málið betur ef andstæðingur-
inn hefði ekki verið tölva. Gegn
tölvum er hins vegar algjör nauð-
syn að forðast tímahrakið, því það
hefur reynst mörgum stórmeistar-
anum skeinuhætt eins og t.d. kom í
Ijós í viðureign Junior skákfomts-
ins og ísraelska ólympíuliðsins.
Meistaramót Skákskólans
Dagana 27.-30. maí verður
Meistaramót Skákskóla íslands
haldið í sjötta sinn.
Mótið verður að venju haldið í
húsnæði skólans að Faxafeni 12 í
Reykjavík. Allir nemendur skólans
hafa þátttökurétt.
Alls verða sjö umferðir. Fyrstu
þrjár umferðirnar verða atskákir
en þær fjórar síðustu kappskákir. I
atskákunum fær hvor þátttakandi
hálftíma til að ljúka skákinni. I
kappskákunum er umhugsunartím-
inn 114 klst. á 35 leiki og síðan hálf-
tími til að klára. Teflt verður eftir
Monrad- eða svissnesku kerfi.
Mótið verður bæði reiknað til at-
og kappskákstiga.
Meistari Skákskólans hlýtur veg-
legan farandbikar ásamt kostnaði
við þátttöku á alþjóðlegu móti er-
lendis. Vandaðar skákbækur eru í
verðlaun fyrir 2.-5. sæti. Einnig
verða veitt aldursflokkaverðlaun,
tvenn verðlaun fyrir bestan árang-
ur í hópi 14 ára og yngri og tvenn
fyrir keppendur í hópi 10 ára og
yngri. Auk þess verða tvenn verð-
laun veitt fyrir bestan árangur
stúlkna.
Teflt verður sem hér segir.
1. umf. Fimmtud. 27.5. kl. 20
2. umf. Fimmtud. 27.5. kl. 21
3. umf. Fimmtud. 27.5. kl. 22
4. umf. Föstud. 28.5. kl. 20
5. umf. Laugard. 29.5. kl. 10
6. umf. Laugard. 29.5. kl. 16
7. umf. Sunnud. 30.5. kl. 10
Sigurvegari á síðasta meistara-
móti var Jón Viktor Gunnarsson.
Skákmót á næstunni
Tilkynningar um skákmót og
aðra viðburði sendist til umsjónar-
manna skákþáttar Morgunblaðsins.
Tölvupóstfangið er dadi@vks.is.
Einnig má senda annað efni og at-
hugasemdir við skákþættina á
sama póstfang.
27.5. Meistaramót Skákskólans
29.5. S.í. Aðalfundur
30.5. Hellir. Kvennamót
4.6. Skákþing Hafnarfjarðar
7.6. Hellir. Atkvöld
9.6. Boðsmót T.R.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
SVEIT Reykjavíkur sigraði með miklum yfirburðum í kjördæmamóti Bridssambands íslands, sem fram
fór á Akureyri um síðastliðna helgi.
Reykvíkingar unnu
kjördæmamótið af
miklu öryggi
BRIDS
Hótel KEA Akurcyri
KJÖRDÆMAMÓT
BRIDSSAMBANDS
ÍSLANDS 1999
Átta landshluta keppni þar sem
hver landshluti sendi fjögur lið. -
22.-23. maf
SVEIT Reykjavíkur sigraði með
miklum yfirburðum í kjördæma-
mótinu, sem fram fór á Akureyri
um sl. helgi. Sveitin hlaut samtals
510 stig eða um 73 stig að meðaltali
úr umferð sem þýðir að hver leikur
sveitarinnar vannst að jafnaði með
rúmlega 18 stigum. Þetta er frábær
árangur sem gerir sigurvonir ann-
arra sveita að engu.
Eftir fyrri dag keppninnar var
staða annaiTa sveita mun vænlegri
en þá var forysta Reykvíkinga að-
eins um 20 stig og mótið opið. Hins
vegar strax í fyrsta morgunleiknum
fór öll spenna úr mótinu og helztu
andstæðingarnir, sveitir Norður-
lands eystra og Reyknesingar, gátu
ekki klekkt á firnasterku liði
Reykvíkinga og úrslitin voru ráðin.
Meistararnir frá í fyrra, Norður-
land eystra, höfnuðu í öðru sæti í
mótinu með 449 stig, Suðurland
varð í þriðja sæti með 446,
Reyknesingar fjórða sæti með 436
og Austurland í fimmta sæti með
396.
FRÁ skólaslitum Iðnskólans í Hafnarfirði.
GUÐJÓN Ingvi Stefánsson og Jón Ágúst Guðmundsson voru efstir
í tvímenningsútreikningnum á Akureyri.
í Butlerútreikningi mótsins sigr-
uðu Vestlendingarnir Guðjón Ingvi
Stefánsson og Jón Agúst Guð-
mundsson með skorina 1,22. Þórð-
ur Bjömsson og Bemódus Krist-
insson Reykjanesi urðu í öðra sæti
með 1,10 og Sverrir Armannsson
og Sveinn Rúnar Eiríksson
Reykjavík þriðju með 1,09.
Mjög vel var staðið að öllu móts-
haldinu. Bæjarfulltrúinn og brids-
spilarinn Þórarinn B. Jónsson bæði
setti mótið og sleit því en formaður
Bridsfélags Akureyrar og Brids-
sambands Norðurlands, Stefán Vil-
hjálmsson, hafði yfirumsjón með
mótinu og andlegu léttmeti sem
fram var borið bæði í bundnu og
óbundnu máli en það var í gæða-
fiokki A ef svo má að orði komast.
Keppnisstjóri var Isak Örn Sig-
urðsson og hafði hann í nógu að
snúast en einhver taugatitringur
var í mönnum báða dagana. Spurn-
ingin er hvort hryssingurinn í veðr-
inu hafi náð inn í hús hótelsins og
myndað óróa í mannskapnum en
auðséð var þegar ekið var heimleið-
is upp Öxnadalinn að veðrið fór illa
í hrossin sem þeystu um hóla og
velli með miklum rassaköstum.
Altjent þá var of mikið að gera hjá
keppnisstjóranum ólíkt því þegar
margir þessara sömu spilara mæta
í undankeppni íslandsmóts og and-
rúmsloft er mun þjálla.
Arnór G. Ragnarsson
SKÓLASLIT Iðnskólans í Hafn-
arfírði fóru fram fimmtudaginn
20. maí í Frímúrarahúsinu í
Hafnarfirði. Við skólaslitin voru
brautskráðir 53 nemendur af
ýmsum brautum.
Hæstu einkunnir á burtfar-
arprófi iðnnema hlutu Kolbrún
Hákonardóttir hársnyrtinemi
Iðnskóla Hafn-
arfjarðar slitið
og Sigurður Jónsson húsa-
smiðanemi en hæstu einkunn
hönnunarnema hlaut Anna
Málfríður Jónsdóttir.-Nýbygg-
ing skólans við Flatahraun er
komin vel á veg og verður
væntanlega tekin í notkun í
haust.
Nemendur halda sýningu á
verkum vetrarins í Apótekinu í
Hafnarborg. Sýningin var opnuð
laugardaginn 22. maí og stendur
hún til 30. maí.