Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 49
UMRÆÐAN
Hvað kostar
hávaði?
Hávaðinn
Árið 1910 sagði hinn þekkti læknir
og vísindamaður Robert Koch, sem
rannsakaði m.a. orsakir svefnleys-
is: „Þeir dagar koma að fólk þarf
að berjast við hávaða eins og pest-
ina.“
Hér á landi er langvarandi há-
vaði og afleiðingar hans frekar nýtt
vandamál og sumar hliðar þess Úk-
lega óþekktir fyrir marga, en svo
er ekki í stærri borgum erlendis. I
Bandaríkjunum er hávaði það um-
hverfisvandamál sem er eykst hvað
hraðast og jafnframt það umhverf-
isvandmál sem almenningur lætur
sig mest varða þar í landi.
Umferðarhávaði er mældur í
desíbelum (dBA). Hvað er nú það?!
Til þess að gefa lesandanum hug-
mynd um það, þá er 1 dBA minnsta
breyting sem mannlegt eyra getur
numið, en aðeins með því að bera
saman tvö hljóðstig strax hvort á
eftir öðru, 5 dBA breyting heyrist
greinilega og 10 dBA breyting
greinist sem helmingun eða tvö-
fóldun hljóðsins. Myndin sýnir há-
vaðastig frá þekktum uppsprett-
um.
Dæmi um hljóð-
stig í dBA
Hávaðinn kemur víða úr um-
hverfi okkar, t.d. frá skemmtistöð-
um, nágrönnum, vinnuvélum, bif-
hjólum, flugvélum og bflum.
Umferðinni fylgir bæði heilsu-
sjjillandi loft- og hávaðamengun.
Arið 1994 voru 116 þúsund bflar á
Islandi, 5 árum síðar (apríl 1999)
eru þeir orðnir 144 þúsund eða
rúmlega 24% fleiri.
Það hversu hátt hljóðstig reikn-
ast frá umferð er kjörið að taka
Miklubraut sem dæmi, með árs-
dagsumferð 1996 (við Rauðagerði)
um 58.000 bfla, 3,5% þunga umferð
og jafnan 60 km/klst hámarks-
hraða. Samkvæmt reiknilíkani
verður jafngildis-hljóðstigið 71
dBA í 10 m og verður í 140 m fjar-
lægð 55 dBA, miðað við enga
skermun og gróið land á milli
brautarinnar og athugunarstaðar.
Þumalputtaregla er að tvöföldun
fjarlægðarinnar gefur 3 dB minni
hávaða en tvöföldun umferðar-
þungans eykur hins vegar hávað-
ann um 3 dB.
Kostnaðurinn
Árið 1997 kom út skýrsla hjá
embætti Borgarverkfræðings sem
hét „Hljóðvist við umferðargötur".
í skýrslunni var áætlað (með til
þess gerðum reiknilíkönum) hvert
væri hljóðstig við íbúðarhús vegna
umferðarhávaða. Þar fékkst að
2.170-2.290 búðir væru með hljóð-
stig yfir 65 dBA (engin gildi yfir 65
dBA fengust austan Elliðaáa). Er-
lendis (t.d. í Noregi, Danmörku og
Englandi) hafa verið gerðar marg-
ar kannanir á sambandi fasteigna-
verðs og umferðarhávaða. Almennt
sýna niðurstöðurnar að ef hljóð-
Umhverfismál
Með því gefa sér að
meðal fasteignaverð sé
10 milljónir, segír
Björgvin Þorsteinsson,
fæst að fasteignaverð
íbúðarhúsa sé nú sam-
tals um 2,5-3,4 millj-
örðum króna lægra en
ef hljóðstigið væri
skv. viðmiðunargildinu
55 dB(A).
stigið fer yfir 55 dB(A) fellur fast-
eignaverðið um ca 1% á dB yfir 55
dBA. Með því að nota niðurstöður
skýrslu Borgarverkfræðings og
gefa sér að meðal fasteignaverð sé
10 milljónir, fæst að fasteignaverð
viðkomandi íbúðarhúsa sé nú sam-
tals um 2,5-3,4 milljörðum króna
lægra en ef hljóðstigið hefði verið
skv. viðmiðunargildinu 55 dBA. Við
þessa upphæð má svo bæta öllum
þeim sem eiga íbúðarhús þar sem
hljóðstigið er á milli 55
og 65 dBA, en sá fjöldi
var ekki áætlaður í
skýrslunni.
Fasteignaverð er
auðvitað eins og annað
háð framboði og eftir-
spum, og kostnaður-
inn að ofan því breyti-
legur.
Rýrnun fasteigna-
verðs á öðrum húsum
en íbúðarhúsum verð-
ur líka vegna umferð-
arhávaða, t.d. skrif-
stofubygginga, skóla,
verslana og þjónustu-
staða. Einnig rýmar
notagildi fólkvanga og
útivistarsvæða og aðstæður gang-
andi og hjólandi við umferðargötur
spillist.
Sem annan samfélagslegan
kostnað má nefna sálfræðileg áhrif
vegna streitu, einbeitingartraflana
og svefntruflana, og lífeðlisfræði-
leg áhrif vegna hærri blóðþrýst-
ings, spennu og höfuðverks. Þessu
fylgir aukinn lyfjakostnaður og
hugsanlega sjúkrahúsvist. Þol
fólks gagnvart langvarandi um-
ferðarhávaða getur verið mismun-
andi en hann venst yfirleitt ekki.
Hollustuvemd Noregs (SFT)
hefur áætlað að vinnutap fólks
vegna svefntruflana geti verið á
bilinu 1-5%, þar sem hljóðstigið er
yfir 65 dB(A). Ef áætlað er að að-
eins ein vinnandi manneskja búi í
sérhverri af 2.235 íbúðunum að of-
an og að meðal mánaðarlaun séu
150.000, reiknast tapið vera á bil-
inu 40-200 milljónir á ári. Árið 1983
áætluðu Norðmenn
svefntap þjóðfélags-
ins vegna umferðar-
hávaða vera 0,17% af
vergri landsfram-
leiðslu. Miðað við spá
Þjóðhagsstofnunar
um 630 miUjarða
króna landsfram-
leiðslu 1999 telst
svefntap íslendinga
kosta rúmlega 1 millj-
arð.
Það má spyrja
hvort fasteignaverð
sé yfirleitt lægra á
hávaðasömum stöðum
en öðram. Getur verið
að sumir átti sig ekki
á þessu vandamáli
þegar þeir kaupa eða
byggja? Fólk getur
llka tapað ef það lend-
ir í því að umferðar-
hávaði og -þungi
eykst veralega meðan
það býr í húsi sínu og
þar með kann húsið
að falla í verði.
Eðlilegt er einnig
að spyrja hvort lækkað fasteigna-
verð á hávaðasömum stöðum sé yf-
irhöfuð fjárhagslegt tap fyrir sam-
félagið? Ef maður kaupir t.d. íbúð
við mikla umferðargötu, þá er hún
e.t.v. á lægra verði en í rólegu
hverfi. Þegar maður selur er hún
þá náttúralega seld á lægra verði
en ella að sama skapi.
Hver er að tapa? Það
sem hægt er að gera
er að fyrirbyggja há-
vaða og/eða bæta
hljóðvistina með að-
gerðum, og gera
þannig viðkomandi
fasteignir betri til
kaups og ívera.
Aðgerðirnar
Ef ná á árangri í að
bæta hljóðvistina er
mikilvægt að beita
réttri aðferðafræði.
Nokkar algengar að-
gerðir til minnkunar á
umferðarhávaða era
eftirfarandi (áhrif í sviga): mal-
biksgerð (2-6 dB), dekkjamunstur
(0-2 dB), gróðursvæði (2-5 dB),
hljóðmanir (5-12 dB), einangran
húss/glugga, (allt að 15 dB), bygg-
ing skerma (10-30 dB). Yfirleitt er
frekar auðvelt að lækka hávaða-
stigið um allt að 10 dB, en síðan %
fer það að verða kostnaðarsamara.
Einnig minnkar hávaðinn ef um-
ferðin hægir á sér (4 dB úr 70 í 50
km/klst), en undir 40-50 km/klst
(fólksbflar) hefur það lítið að segja
þar eð vélarhljóðið ræður þá
mestu en ekki hávaði frá snertifleti
dekkja og götu. Svo er auðvitað
bara einfaldlega hægt að beina
umferðinni annað og/eða banna
umferð stærri farartækja tíma-
bundið eins og sumstaðar er gert
erlendis.
Höfundur er umhverfiaverkfræð-
ingur á verkfræðistofunni Línu-
hönnun hf.
GENERATION
Ný SKRIFSTOFUSTÓLALÍNA
GENERATION skrifstofustólarnir gefa
sköpun nýja merkingu með sveigjanleika
og ótrúlegu úrvali af litum.
Björgvin
Þorsteinsson
liunntiH
aðeins fyrir konur
C. framleiðir ekki bara venjuleg fjallahjól
heldur líka sérstakar útgáfur af hjólum fyrir konur á
öllum aldri með sérhönnuðum hnakk og stýri. Ævilöng
ábyrgð á stelli og gaffli.
GtUPSHHT. (-< KLEIN CATEYE 5HimnnD'
Skeifunni II - Sími 588 9890 - Netfang orninn@mmedia.is Opið 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga - allar götur síðan 1925
ISfSSSM