Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 63
______BRÉF TIL BLAÐSINS_
Maðkurinn í mysunni
Frá Brynjari Ármannssyni:
HVERNIG gengur á vígstöðvun-
um; herra Davíð?
Eg minnist þess hér fyrir
nokkrum árum að einhverjir ráða-
menn hér á landi töluðu um að Is-
land skyldi skapa sér nafn sem boð-
beri friðar. Það höfðaði ákaflega
sterkt til mín og í einhverjum
barnaskap stóð ég í þeirri trú að við
værum sannarlega friðelskandi
þjóð.
Því varð ég fyrir miklum von-
brigðum er ég áttaði mig á raun-
veruleikanum en hann varð mér
fullkomlega ljós er ég horfði á for-
sætisráðherra okkar Islendinga í
beinni útsendingu frá Washington
þar sem leiðtogar NATO-ríkjanna
héldu uppá 50 ára afmæli Atlants-
! hafsbandalagsins. Ekki þótti herra
Davíð það leiðinlegt er hann fékk
klapp frá valdamestu mönnum
heims íyrir að segja nokkur vel val-
in orð til heiðurs hinu „stökk-
breytta" afmælisbarni.
Mig hryllti við, því þarna þótti
mér sem Davíð væri að færa
skrattanum þjóðarsál íslendinga.
I mínum augum var veislan ekki
I annað en samkoma þar sem illa
þroskaðir valdamenn fógnuðu því
að hafa náð þeim merka árangri að
breyta varnarbandalagi í árásar-
bandalag.
Fyrsta fórnarlambið höfðu þeii'
þegar valið þ.e.a.s. hin stríðshrjáða
Júgóslavía Milosevic lá vel við
höggi því almenningsálitið á Vest-
urlöndum var honum mjög í óhag.
Enginn var búinn að gleyma of-
beldinu er hann hafði beitt hina
| „saklausu“ Bosníumenn og enginn
| efaðist um djöfulleg áform hans
gegn hinum „saklausu" Kosovo Al-
bönum.
Fróðlegt væri að vita hvort herra
Davíð hafi fundið til hins fullkomna
valds er hann ásamt öði'um NATO
höfðingjum kvað upp dauðadóminn
yfir hinni serbnesku þjóð.
Eg á erfitt með að trúa að herra
I Davíð sé enn sannfærður um ágæti
I loftárásanna eftir að hafa fylgst
| með þeim nú í tvo mánuði þar sem
| stríðsvélin hans hefur engu áorkað
öðru en að breyta slæmu innanrík-
ismáli í stórkostlegar hörmungar og
eyðileggingu þar sem NATO virðist
eingöngu hugsa um eigin hag og
engan iðrunarvott er að sjá á tals-
niönnum NATO þegar þeir
sprengja „óvart“ upp saklaust fólk
jafnvel fólkið sem þeir þykjast vera
að vernda, þeir segja bara „það er
1 bara eðlilegt að nokkrir deyi þegar
i'eynt er að bjarga mörgum“ og svo
reyna þeir auðvitað að kenna Ser-
bunum um „óhappið", gott dæmi
um ásetning NATO var þegar þeir
sprengdu sjónvarpsstöð Serba
ásamt þulum og fijrðunardömu en
eins og talsmenn NATO sögðu þá
var sjónvarpstöðin ásamt starfs-
niönnum hennar hernaðarlegt skot-
mark vegna þess að þaðan komu
Á »,lygar“ en sannleikurinn er hinns
vegar sá að NATO óttast sannleik-
ann en ekki lygar, stærstu lygarnar
* hafa nefnilega komið frá NATO.
Nokkrum dögum eftir að loftárás-
irnar hófust fullyrti NATO að Ser-
bar hefðu tekið Ibraham Rugova af
lífi en það var náttúrulega hauga-
lygi ætluð til að auka andúð Vestur-
landabúa á Serbum. Sannleikurinn
er að mínu viti sá að jarðvegurinn
fyrir þesaar ái'ásir NATO var und-
irbúinn í upphafi Bosníustríðsins
þegar allmenningsálitinu var snúið
gegn Serbum með skipulögðum lyg-
um að stórum hluta. Hver man ekki
eftir sögum af hópnauðgunum og
fangabúðum sem myntu á dauða-
búðir nasista það voru rneira að
segja sýndar myndir frá slíkum
búðum í fréttatímum hér sem ann-
ars staðar á Vesturlöndum, fólk
fylltist hryllingi yfir þeim og fyrir-
litning á Serbum var orðin almenn
en fæstir vita að þessar myndir
héldu ekki íyrir stríðsglæpadóm-
stólnum í Hague frekar en sögur af
hópnauðgunum, myndii'nar reynd-
ust nefnilega falsaðar rétt eins og
gervihnattamyndir af fjöldagröfum.
Annar sannleikur hefur einnig verið
þagaður í hel, það voru að a.m.k
750.000 serbneskir flóttamenn sem
flúðu frá Bosníu og er stór hluti
þeirra enn heimilislaus innan Jú-
góslavíu. Enginn talar um þjóðern-
ishreinsun í því sambandi enda
myndi slíkt tal varla þjóna „mann-
úðarstefnu" NATO“. Nú fáum við
sögur af hryllingsverkum Serba
sem eru byggðar á frásögnum al-
banskra flóttamanna frá Kosovo
sem hafast við í flóttamannabúðum
NATO. Og enn er sannleikurinn vel
falinn, það talar enginn um öfgahóp
sem hreiðraði um sig í Kosovo fyrir
nokkrum árum og kallar sig Frels-
isher Kosovo sannleikurinn er sá að
þessi hópur sem nú fær stuðning
NATO er vel vopnum búinn hryðju-
verkahópur sem ber ekki síður en
Serbar ábyrgð á þeirri skálmöld
sem hefur geisað í Kosovo, enginn
vill nú tala um verk þeirra eða hvað-
an þeir hafa fengið vopnin sín þrátt
fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi
sett vopnasölubann inn á svæðið áð-
ur en hópurinn var stofnaður einnig
er það athyglisvert að umræðan um
hvernig hópurinn fjármagnar
vopnakaupin hefur verið kæfð, eng-
inn minnist á það lengur að hópur-
inn er grunaður um að tengjast aðil-
um sem standa að baki innflutningi
og dreifingu á meirihluta þess
heróíns sem er á markaði í Evrópu.
Það er risastór maðkur í mys-
unni og hann heitir NATO, hann
ber fremur nokkrum öðrum ábyrgð
á þeim harmleik sem á sér nú stað í
Júgóslavíu og ekki get ég séð með
nokkru móti að hann beri minnstu
umhyggju fyrir velferð þess fólks
er byggði Kosovo áður en hann hóf
loftárásirnar.
Ef höfðingjar NATO hafa
minnsta áhuga að koma á friði í
Kosovo þá ber þeim að láta af þeirri
fáránlegu kröfu að þeirra böðlar
stjórni friðargæslu í héraðinu.
BRYNJAR ÁRMANNSSON,
Hraunbæ 74, Reykjavík.
j/is/uiíifkm
Kynnum náttúrulegu ME
húðvörunar frá Marja Entrich
í Austurbæjarapóteki,
í dag og á morgun, frá 13-18
,fiíM
í,
ÍÖS
Náttúrulegu snyrtivörurnar frá ME hafa
marga þá eiginleika sem húðin þarfnast
til að viðhalda mýkt og raka.
Nýja Bio-línan er ómótstæðileg.
20%
KYNNINGARAFSLÁTnJ^-
- fæst nú í apótekum
Heildsöludreifing: Evroís ehf. sími 698-2188
SÖFNUNARSJDÐU R
LÍFEYRISRÉTTINDA
Ársfundur
1999
Arsfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
veráur kaldinn á Grand Hótel,
Sigtúni 38,Reykjavík, í sal sem lieitir Dalurinn,
miávikudaginn 26. maí 1999 og liefst kl. 16.00.
Dagsk rá fundarins er:
1. Flutt sk ýrsla stjómar.
2. Kynntur ársreikningur.
3. Gerá grein fyrir tryggingafræáilegri úttekt.
4. Fjárfestingastefna sjóásins skýrá.
5. Onnur mál.
Allir sjóáfélagar, jafnt greiáendur sem lífeyrisþegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar em kvattir til aá mæta á fundinn.
Stjórn
SÖFNUNARSJÓÐS LÍFEYRISR ÉTTI N D A
Leonard - Kringlan
I
1
FIAT
Ný hugsun...
* I *
ítölsk snilld, gríðarlegt pláss, ótrúlegt verð.
6 manna bíll á 1.590.000.
PALIO WEEKEND
ABS, loftpúðar, mikil veghæð
Frábær ferðabíll á 1.260.000
MAREA WEEKEND
Fallegur, rúmgóður fjölskyldubíll
á 1.550.000 ___________
Istraktor
BÍLAR FVRIR ALLA
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SÍMI 5 400 0OO
Jtt
>■