Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 68
68 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Blús Bigs
Bills
Big Bill Blues, ævisaga Bigs Bills
Broonzys. Yannick Bruynoghe tók
saman, Da Capo Press gefur út. 1992.
176 síður. Kostar 10 dali og 95 sent.
WILLIAM Lee Conley Broonzy,
sem kallaður var Big Bill Broonzy,
er einn fremsti blússöngvari sög-
unnar. Hann fæddist í Scott í Miss-
issippi í ágúst 1893, að eigin sögn,
en Í898 að sögn tvíburasystur
hans, og lést í Chieago um miðjan
ágúst 1958. Ferill hans spannar allt
frá því nútímablúsinn fæddist í
Chicago á fjórða áratugnum í það
að hann var enduruppgötvaður af
bleiknefjum á sjötta áratugnum.
Það er lán áhugamanna um tónlist
að Big Bill skráði ævisögu sína sem
síðan var gefin út á bók, kallast Big
Bill Blues og er með eftirminnileg-
ustu ævisögum tónlistarmanna
sem um getur.
Big B01 lifði ævintýralegu lífi frá
því hann fór að vinna fyrir sér sem
leiguliði á átjánda ári, tíndi baðm-
ull og vann myrkranna á milli. Þeg-
ar þurrkasumar eyðilagði uppsker-
una fór hann að vinna í kolanámu
en ævintýraþráin rak hann áfram,
hann keypti sér gítar og gerðist
farandsöngvari.
A þeim árum sem Big Bill var að
hasla sér völl í Chicago voru litir að
fínna upp nýtt tónlistarform, byggt
á gömlu, borgarblús sem átti eftir
að geta af sér sálartónlist og rokk.
Hann rekur þá sögu ekki nákvæm-
lega í bók sinni, sem hann skrifaði í
bréfaformi til djassgagnrýnandans
Yannicks Bruynoghes, en segir
sögur frá ævi sinni, af mönnum
sem hann kynntist, ævintýrum sem
þeir rötuðu í og hvernig það var að
vera litur maður á fjórða og fimmta
áratugnum. Saga Bigs Bills er laus
við alla tilfínningasemi, hann er
löngu kominn yfír alla beiskju, en
beitir iðulega háði til að draga upp
mynd af óréttlætinu. í frægu lagi
hans syngur hann um það hve lit-
arhátturinn skipti miklu máli: „If
You’re White / You’re All Right / If
You’re Brown / Stick Around / But
If You’re Black / Get Back, Get
Back.“
Big Bill var afbragðs gítarleik-
ari, frábær söngvari og lipur laga-
smiður. Hann var og séður í fjár-
málum, áttaði sig snemma á því að
miklu skipti að skrá höfundarrétt
laga og þannig skráði hann vel á
þriðja hundrað laga á aldarfjórð-
ungi. I eftirmælum um sjálfan sig
sem hann skrifaði í tilefni af bók-
inni, sem kom út þremur árum áð-
ur en hann lést, segir svo: „Þegar
þið skrifið um mig segið ekki að ég
hafí verið djassöngvari. Ekki segja
að ég hafi verið tónlistarmaður eða
gítarleikari. Segið bara að Big Bill
hafí verið þekktur blússöngvari og
spilari ... hann var glaður þegar
hann datt í það og fór á kvennafar.
Ölum blússöngvurum líkaði við
hann, þótt sumir þeirra hafí stund-
um orðið afbrýðisamir, en þá
keypti Big Bill viskifiösku og allir
fóru aftur að hlæja og syngja."
Árni Matthíasson
NYJASTA BQK JOE MCGINNISS VEKUR DEILUR
Brenndur, en getur
ekki forðast eldinn
EFTIR að hafa tekist á
við Richard Nixon, Ted
Kennedy, Green Beret-
morðingjann Jeffrey
MacDonald og harðorða
bandaríska gagnrýnend-
ur voru illdeilur það síð-
asta sem rithöfundurinn
Joe MicGinniss var á
höttunum eftir þegar
hann settist niður við að
skrifa síðustu bók sína,
„The Miracle of Castel di
Sangro“, bók um knatt-
spyrnu í litlu ítölsku
bæjarfélagi.
En illdeilur fylgja
McGinniss og því ekki
nema von að knattspyrn-
an yrði honum jafn þung
í skauti og sljórnmálin,
enda síst færri sem hafa
meiningar í boltanum en
í stjórnmálum. Nú stend-
ur McGinniss frammi
fyrir kæru fyrir meið-
yrði og fær hótanir frá
frammámönnum knatt-
spyrnuliðsins í Castel di
Sangro.
Málið snýst um
sært stolt
Kæran á hendur
McGinniss er að hluta byggð á
því að í bók hans er ýjað að fyr-
irfram ákveðnum úrslitum í
nokkrum knattspyrnuleikjum,
en McGinniss telur þó að aðal-
ástæða kærunnar sé að for-
stöðumaður liðsins hafi ekki
kunnað að meta lýsinguna á sér
og liðinu í bókinni. „Eg held að
þetta mál snúist eingöngu um
sært stoIt.“
McGinniss telur ekki ósenni-
legt að hans bíði fangelsi á Ital-
íu og segir að staða sín þar
væri mjög slæm þar sem
ítölskukunnáttan sé af skornum
skammti. „Það er eins og vera
fyrir rétti á annarri plánetu,"
sagði McGinniss í samtali við
fréttastofu Reuter. „Eg get
ekki einu sinni lesið
ákæruna og þar af leið-
andi ekki brugðist við
ásökunum. Þegar ég
hafði samband við
bandaríska sendi-
ráðið sögðu þeir
það eitt að ef ég
yrði fangelsað-
ur myndu
JOE McGinniss brosir út að eyrum þrátt
fyrir yfirvofandi dómsmál.
þeir sjá til þess að ég fengi
tvær máltíðir daglega."
Les hvorki Dante
né kæruna
McGinniss sagði að hann
hefði reynt að ráða ítalskan
lögmann í Sulmona, þar sem
rétthöldin munu fara fram, en
sá vart talað orð í ensku og
vildi þar að auki fá 10 þúsund
dollara fyrir kostnaði áður en
hann hafði gert nokkurn skap-
aðan hlut í
málinu.
„Ég geri
mér
enga
grein
fyrir
—. umfangi
eða alvöru
þessa máls,“
segir
McGinniss.
McGinniss segist
ítrekað hafa beðið
um að fá sakargiftir
skráðar á blað á ensku
en beiðni hans
hafi verið
hunsuð.
. - , ■ „Það eina
í’ sem ég skil
úr kærunni er
að réttarhöld
verði einhvern tíma í
október. Þrátt fyrir að ég
hafi umgengist ítalska
PAOLO Rossi var settur í hátt í
tveggja ára leikbami fyrir að vera
meðsekur í mútumáli á Ítalíu. Þegar
hann kom úr leikbann-
inu var hann valinn í
ítalska landsliðshópinn
og varð markahæstur á
HM á Spáni árið 1982.
knattspyrnumenn í stutt-
an tíma þýðir það ekki
að ég geti lesið Dante.“
Rithöfundurinn segist
ekki geta forðast mála-
reksturinn með því að
halda sig frá Italíu, því
síðar á árinu er búist við
honum til að kynna bók-
ina. „Knattspyrna er
hitamál á Itahu, en ef ég
hefði vitað um fyrirfram
ákveðna sigra í ítalska
boltanum og ekki sagt
frá því í bókinni væri ég
jafn óheiðarlegur og
þeir sem standa að baki
slíkum hrossakaupum.“
Alltaf verið
umdeildur
Það vakti mikla at-
hygli í Bandaríkjunum
þegar McGinniss á sinum
tíma neitaði einnar millj-
ónar dollara fyrirfram-
greiðslu fyrir að skrifa
bók um O.J. Simpson
málið, en hann hafði
fylgst með málinu í rúmt
ár en komst að þeirri
niðurstöðu að málið væri
of eldfimt. Því finnst
honum kaldhæðnislegt
að bók um knattspymu veki
þessar deilur.
„Þetta em launin fyrir að
segja sannar sögur um raun-
veralegar persónur. Sífellt
minna er skrifað í þeim dúr
vegna ægivalds lögfræðinga og
lesenda sem hafa orðið skilyrt-
an smekk sem fenginn er úr
spjallþætti Ophrah Winfrey.
Þeir sem skrifa bækur sem
tengjast lífinu í dag halda sig
flestir, því miður, á afar ömgg-
um velli þar sem ekkert getur
orkað tvímælis. Ég skrifa al-
gerlega óháð því hvernig við-
tökumar verða.“
Víst er að bækur McGinniss
hafa ætíð vakið viðbrögð, allt
frá því hann skrifaði „Selling
of the President 1968“ um það
hvernig Richard Nixon notaði
auglýsingar til að komast í
forsetastólinn að bókinni „Fa-
tal Vision" um Green Beret-
morðingjann Jeffrey MacDon-
ald.
Velkominn í hópinn
Mestar urðu þó deilurnar í
kjölfar bókarinnar um Ted
Kennedy, „The Last Brother",
og þá ekki síst fyrir að McGinn-
iss hafði blandað saman skáld-
uðum texta og „raunveruleg-
um“ í bók sem skilgreind var
sem sannsöguleg og bandarísk-
ir gagnrýnendur áttu vart
nógu sterk orð til að lýsa
hneykslun sinni. McGinniss seg-
ist ennþá fínna vonbrigðin yfír
þeim slæmu dómum. Hann seg-
ist þó ekki hafa átt í illdeilum
til frambúðar við alla sem hann
hefur skrifað um. „Þegar við
Nixon kvöddumst var þar ekki
í illu. Hann sagði við mig: „I
sambandi við gagnrýnina sem
þú ert að fá get ég aðeins sagt
eitt: Velkominn í hópinn!“
Þegar þessi ferill er hafður í
huga er ekki skrýtið að
McGinniss sé á báðum áttum
með alvöru ítölsku kæmnnar.
„Eftir að hafa verið hakkaður í
spað af Washington Post,
Boston Globe og New York
Times eftir bókina um Kenn-
edy, ætti ég virkilega að hafa
áhyggjur af þessu máli?“
Forvitnilegar bækur
'Pi': A TWIN PEAKS _
: !íl!
\ Si-CRll'
I 1 ÐiARY
. ' ■ ' - 01:Ár-
LAUR/
PALME
Sjarmerandi
skuggahliðar
„The Secret Diary of Laura Palmer".
Höfundur: Jennifer Lynch. 184 bls.
Pocket Books, New York, 1990.
ÞEIR sem voru enn ekki saddir
eftir alla Twin Peaks þættina og
kvikmynd David Lynch, Twin
Peaks: Fire Walk With me, ættu að
hafa tekið gleði sína þegar dagbók
Lauru Palmer kom út.
Ég fékk léttan sting fyrir hjartað
þegar ég komst að þvi fyrir
skömmu _að leynidagbók Lauru
væri til. Ég hugsaði með mér að
þetta gæti endað með þeim ósköp-
um að leyndinni yfír Twin Peaks
heiminum yrði svipt burt og þar
með sjarmanum. En ég vissi að ég
yrði að lesa þessa bók, sama hver
áhættan væri.
Einlæg aðdáun mín á Twin Peaks
komst sem betur fer ósködduð und-
an lestri dagbókarinnar og styrktist
meira að segja ef það er hægt. Það
er dóttir David Lynch sem skrifar
bókina, enda gæti líklega enginn ut-
an fjölskyldunnar sökkt sér jafn
djúpt í undirheima smábæjarins
skrítna. Mesta snilldin við bókina
og um leið aðalsmerki Lynch, er að
hún afhjúpar aldrei neitt til fulls og
maður er aldrei viss um hvar maður
hefur atburðarásina. Alveg eins og
áhrifín yrðu ef maður væri að lesa
raunverulega dagbók. Þá eru hugs-
anir oft hálfkláraðar og óljósar því
höfundur á ekki von á því að neinn
nema hann/hún sjálf lesi bókina.
Lynch tekst svo vel upp að maður
dettur oft inn í að finnast maður
raunverulega vera að stelast inn í
afgirtan hugarheim annairar
manneskju, þar sem maður ætti
ekki að vera en er of segulmagnað
til að sleppa því. Þegar best lætur
rennur lesandinn jafnvel saman við
Lauru Palmer sem er að lesa yfír
eigin dagbókarfærslur og hrekkur
við þegar hann sér að blaðsíða hef-
ur verið rifin úr. Ahrifamikil bók!
Laura skrifar fyrstu færsluna í
dagbókina á þrettánda afmælisdeg-
inum sínum og sver þá bókinni sinni,
sem var afmælisgjöf, algeran trúnað.
Þá þegar eru farnar að krauma vafa-
samar fantasíur undir, að því er virð-
ist, fullkomnu yfírborðinu. Laura
deilh’ einhveiju af myrkrinu með
bókinni en gefur í skyn að ýmislegt
sé aðeins fyrir hana eina. Fjölskylda
og vinh’ Lauru hverfa fljótlega í bak-
grunninn og aðrar og ófyririeitnari
verur taka þeirra stað og yfirtaka að
lokum líf hennar. Undir lok bókar er
Laura aðeins sextán ára en spilltari
en Satan sjálfur sitjandi á hrífuskafti
án þess að nokkur af hennar nán-
ustu viti af þvi. Fegurðardrottning
skólans og fyrirmyndardóttir á yfir-
borðinu en undir því eigingjam
kókaínsjúklingur sem eyðh- öílum
frítíma sínum í hópreiðar í skógin-
um.
Það er svo gott (stundum að vita
til þess hversu rriitóð við vitum ekki.
Að það liggi ekki einfaldlega allt á
borðinu fyrir framan okkur til þess
að taka það í sundur og skilgreina,
heldur séu alltaf einhverjar skugga-
hliðar sem er óvíst að við sjáum
nokkurn tíma. Þessi bók reyndist
sem betur fer handhafi slíkra
skuggahliða.
Kristín Björk Kristjánsdóttir