Morgunblaðið - 10.06.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999 37
_______________LISTIR
LÍKAMINN M
OGRÝMIÐ Wm
MYIVPLIST
llafnarborg,
Hafnarfirði
LJÓSMYNDIR
JOHN R. JOHNSEN
, Til 28. júní. Opið miðvikudaga til
mánudaga frá kl. 12-18.
Aðgangur 200 krónur.
HEFÐI Edgar Degas fæðst 100
árum síðar en hann gerði er ekki
útilokað að hann hefði farið eins að
og ljósmyndarinn John R. Johnsen
og myndað ballerínur sínar í stað
þess að mála þær. í sjálfu sér er
útkoman svipuð. Með hreyfingum
sínum og stellingum má kalla það
að ballerínan Mette Bodtcher fangi
rýmið sem hún sveiflar sér í undir
Arabíska dansinum úr Hnotubrjót
Tsjaikovskís.
I tilefni af sýningunni tróð Bpd-
tcher upp á fjölum Þjóðleikhússins
tvö kvöld í byrjun mánaðarins
ásamt hópi ballettdansara úr Kon-
unglega danska ballettnum, svo
hér er um meiriháttar kynningu að
ræða á hinni ungu stjörnu, enda
hefur danska sendiráðið haft veg
og vanda af viðburðinum ásamt
Hafnarborg.
Frómt frá sagt er hér á ferðinni
óvenjuleg og einkar athyglisverð
sýning sem fyllir salina tvo á fyrstu
hæð, Sverrissal og Apótekið. Stór-
ar og smáar ljósmyndir - svart-
hvítar - fylla salina og skiptast
myndimar í tvo meginflokka. í
fyrri flokknum leikur ljósmyndar-
inn sér með líkama ballerínunnar á
alsvörtum bakgrunni, en í hinni
myndröðinni ráða gráir og stór-
korna fletir svo bakgrunnurinn
kemur í ljós.
Fyrri flokkurinn er bæði
dramatískari og dýnamískari, enda
eykur sortinn í bakgrunninum
mjög á spennuna í myndunum.
Kroppur Bpdtcher birtist eins og
elding út úr myrkrinu í þöndum og
kröftugum stellingum, sem oftar
en ekki er erfitt að skilja hvemig
ballettmærin nær, því líkaminn
virðist vera kominn út yfir öll
anatómísk lögmál. Þannig er hrein
unun að skoða vinding og snúning
Mette Bpdtcher í mörgum mynd-
anna, því það liggur við að maður
trúi vart stellingunni, svo fullkomið
vald hefur hún á líkamshreyfingum
sínum.
Stundum verður staðan að
hreinu afskræmi. Axlirnar virðast
ekki hlýða neinum venjulegum
hreyfilögmálum, hvað þá að þær
séu samhverfar. Handleggimir
birtast því stundum eins og krækl-
ur út úr trjábol og hælar verða eins
og stúfar sem misst hafa rist og
tær. Þá er sem Bodtcher geti undið
sjálfa sig eins og tusku og snúið
hverjum líkamshluta þveröfugt við
hinn næsta.
En þegar öll kurl koma til graf-
ar er það andlit ballerínunnar
sem hertekur rýmið. Tjáningin,
sársaukinn og einbeitnin í svip
Bodtcher gefa öllu líkamsspilinu
og svarta holrýminu þann trú-
verðugleik sem ella mundi týna
sér út í myrkur og tóm. Það eru
einmitt svipbrigðin sem sjaldnast
skila sér af sviðinu sjálfu sökum
farða og fjarlægðar. Þau John R.
Johnsen og Mette Bodtcher hafa
að þessu leyti fundið nýjan flöt á
list sinni, eins og sjá má í af-
bragðsgóðri sýningarskránni þar
sem þau taka höndum saman við
hönnuðinn Peter Gyllan, dans-
fræðinginn Anne Flindt Christen-
sen og arkitektinn Henrik Steen
Moller.
Halldór Björn Runólfsson
Hádegisflugtak
STEFÁN Karl Stefánsson smellpassaði inn í hlutverkið,
segir m.a. í dómnum.
LEIKLIST
Hádegisleikhúsið
1000EYJA SÓSA
eftir Hallgrím Helgason. Leikstjóri:
Magnús Geir Þórðarson. Leikari:
Stefán Karl Stefánsson. Leikmynd og
búningur: Snorri Freyr Hilmarsson.
Lýsing: Kjartan Þórisson. Tónlist:
Ólafur Björn Ólafsson. Hljóðhönnun:
Hrannar Ingimarsson. Hljóðfæraleik-
ur: Ólafur Björn Ólafsson, Óskar
Guðjónsson og Stefán Karl Stefáns-
son. Iðnó, 9. júní.
HÁDEGISLEIKHÚSIÐ í Iðnó
frumsýndi í gær lOOOeyja sósu
eftir Hallgrím Helgason og var
hér um að ræða annan af þremur
leikþáttum sem unnu í verðlauna-
samkeppni Iðnó í fyrra þar sem
markmiðið var að fá fram stutta
einþáttunga sem hentuðu fyrir-
fram gefnu formi Hádegisleik-
húss. Verk Hallgríms fellur vel að
forminu. Þetta er einleikur karl-
manns sem staddur er í flugvél á
leið til útlanda og flétta verksins
byggist í kringum eintal hans -
eða öllu heldur hálft samtal - og
látbragð.
Sigurður Karl, eina persóna
leiksins, sem leikinn er af Stefáni
Karli Stefánssyni, er maður með
grugguga fortíð. Fram kemur í
byrjun að hann er á n.k. flótta frá
lífi sínu á Islandi, ætlar að yfir-
gefa fjölskylduna og fyrirtækið og
hefja nýtt líf í útlöndum. Persónu-
lýsing Sigurðar Karls er það sem
máli skiptir í þessari sýningu og
Stefán Karl Stefánsson smellpass-
aði inn í hlutverkið og tókst á
þeim rúmlega 20 mínútum sem
sýningin tók í flutningi að skapa
karakter sem bráðskemmtilegt
var að fylgjast með úr fjarlægð -
en fáir vildu hafa sem sessunaut
sinn í flugvél!
Þeir Stefán Karl og Magnús
Geir leikstjóri virðast jafnvel hafa
tekið mið af hinum óborganlega
karakter úr breskri kómík, „Mr.
Bean“, sem Rowan Atkinsson hef-
ur leiidð hin síðustu ár af stakri
snilld (og er reyndar mikið sýndur
í íslenskum flugvélum um þessar
mundir). Sérstaklega minntu lík-
amsbeiting og svipbrigði Stefáns
Karls á snillinginn breska og
greinilegt að Stefán Karl býr yfir
miklum hæfileikum og tækni til
skopleiks, sem hér nýttust vel. Þeir
félagar geta verið sáttir við per-
sónusköpunina að öllu leyti.
Texti Hallgríms er eins og áður
sagði byggður að mestu leyti upp
sem hálft samtal, þ.e. Sigurður
Karl talar við konu sína og barn í
símann, spjallar við sessunaut
sinn í flugvélinni og á samskipti
við flugfreyjur, en svör þeirra og
viðbrögð getum við aðeins „lesið“
út úr orðum og gjörðum hans
sjálfs. Þetta er vandmeðfarin að-
ferð en heppnast prýðilega hjá
Hallgrími. Út úr svörum og við-
brögðum persónunnar mátti lesa
heilmikið um fortíð hans sem
aldrei er sagt berum orðum í verk-
inu.
Leikmynd Snorra Freys
Hilmarssonar var snjöll og átti
sinn þátt í að skapa þá léttu
stemmningu sem einkennir þessa
sýningu. Tónlist, hljóð og lýsing
settu síðan punktinn yfir i-ið, enda
allt fagmannlega unnið.
lOOOeyja sósa er fyrst og fremst
skopleikur, ætlaður að skemmta
áhorfandanum á meðan hann gæðir
sér á súpu og brauði. Sá tilgangur
náðist: „sósan var fín“ - en súpan
hefði mátt vera meira spennandi.
Soffía Auður Birgisdóttir
Sorg og
ISEKIJH
Ferðasaga
SUMMER AT LITTLE LAVA
eftir Charles Ferguson, North Point
Press, Farrar, Strauss and Giroux,
New York. 1998 - 289 bls.
ÞAÐ kann að virðast lítið efni í
einhvers konar ferðasögu að lýsa
sumarlangri veru á ís-
lensku eyðibýli. Þetta
er þó meginefni bókar
Charles Fergusons,
Summer at Little
Lava, sem út kom
fyrir nokkru í New
York.
Kona Fergusons
hefur um langt skeið
verið unnandi ís-
lenskra fornsagna en
hann hrifist af ís-
lenskri náttúru og
fuglalífi og af ýmsum
ástæðum hefur ísland
í þeirra augum mikið
aðdráttarafl. Þau eru
Islandsvinir eins og
við nefnum þá sem margoft sækja
okkur heim. Á Islandi eiga þau
kunningja sem lána þeim eyðibýli.
Lengst af er Ferguson því í lýs-
ingu sinni einn á ferð eða með
syni sínum og konu.
Litla-Hraun í Hnappadalssýslu
er lítt þekkt og afskekkt þótt
nafnið hljómi kunnuglega. Þó
fæddist þarna Ásta Sigurðardótt-
ir skáldkona. Sögusviðið er því
fremur einmanalegt og lýsing
Fergusons nokkuð grátóna.
Greinilegt er að honum þykir ekki
mikið fara fyrir veðursæld á þess-
um slóðum. Ýmist berst hann við
vind eða regn nema hvorttveggja
sé.
Náttúran í grennd í útjaðri
Eldborgarhrauns er hrjóstrug og
harðneskjuleg, ýmist hraun, þýfi
eða mýrlendi.
náttúra
En innan þessa gráleita ramma
verksins er þó litróf tilfinninga.
Einmitt það gefur frásögninni
gildi. Ferguson hefur orðið fyrir
því áfalli úti í Bandaríkjunum að
koma að móður sinni myrtri í húsi
hennar í Pennsylvaníu.
Hann kemur til Islands með
sorgina og beiskjuna þunga sem
blý í farteskinu. Það er því
kannski sorgin fremur en veðrið
og landslagið sem
kallar fram gráa lit-
inn. Hægt og hægt
verður þó vera hans
með fuglum, vindum,
hafi, fjöru og fólki á
íslandi til að slæva
sorgina og tign lands-
ins rís hægt og hljótt í
verkinu líkt og örn
sem hefur sig til
flugs. Jafnframt
finnst lesanda eins og
léttara sé yfir höfundi
í lokin.
Ferguson er lipur
höfundur. Lýsingar
hans á mannfólki og
fuglum, ekki síst em-
inum, eru eftirminnilegar. Hér er
á ferðinni bók sem sameinar hljóð-
láta og íhugula náttúrulífslýsingu
og uppgjör við áfall og sorg.
Skafti Þ. Halldórsson
Sýningum
lýkur
Listasetrið Kirkjuhvoli,
Akranesi
SÝNINGU nemeneda úr 8., 9.
og 10. bekk Brekkubæjar-
skóla, „Vorið“ lýkur á sunnu-
dag.
Listasetrið er opið daglega
frá kl. 15-18.
Charles
Ferguson