Morgunblaðið - 10.06.1999, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BJÖLLUSVEIT Suðurhlíðarskóla lék tvö lög við skólaslitin.
Suðurhlíðar-
skóla slitið
SUÐURHLÍÐARSKÓLA var slitið
í níunda sinn mánudaginn 31. maí.
Skólinn, sem áður hét Bamaskóli
Aðventista, hóf starfsemi sína árið
1928.
í tilkynningu frá skólanum kem-
ur fram að 51 nemandi stundaði
nám við Suðurhlíðarskóla í vetur í 1.
til 9. bekk. „Eins og gefur að skilja
verður andrúmsloftið heimilislegt
með þessum nemendafjölda þar
sem allir þekkja alla, bæði kennarar
og nemendur, og hefur því verið
leitað nokkuð eftir að koma í skól-
ann nemendum sem orðið hafa fyrir
einelti í fjölmennari skólum,“ segir í
fréttatilkynningu.
Við skólaslitin lék bjöllusveit
skólans undir stjórn Steinunnar
Theódórsdóttur, tónmenntakenn-
ara, og yngstu nemendumir fluttu
frumsaminn ballett við Blómavals-
inn úr Hnetubrjótnum undir stjóm
kennaranna Sigrúnar Lilju Jóns-
dóttur og Árdísar Orradóttur.
Suðurhlíðarskóla var við þetta
tækifæri afhent viðurkenning fyrir
sigur í keppninni „Femur á grænni
grein“, en nemendur skólans hafa
skolað og safnað fernum frá því
Mjólkursamsalan hvatti fólk fyrst
til að gefa fernum framhaldslíf. Pá
em kassar í hverri skólastofu undir
pappír sem fara á í endurvinnslu.
ÚTSKRIFTARHÓPURINN ásamt Hirti Guðnasyni skólastjóra.
Fyrsta útskrift
Margmiðlunarskólans
MARGMIÐLUNARSKÓLANUM
var slitið í fyrsta sinn laugardag-
inn 5. júní sl. Tólf nemendur út-
skrifuðust.
Nemendurnir hafa í vetur öðl-
ast þekkingu á grafískri hönnun,
skönnun, tölvuumsjón, hljóð-
vinnslu, vefsíðugerð og mynd-
bandagerð. Þeir hafa lært á ýmis
forrit, s.s. FreeHand, Photoshop,
3D Studio Max, QuarkXPress,
SoundEdit, Cubase, DreamWea-
ver, Director, Flash og Premier.
Þá hefur hópurinn fræðst um
Netið sem framtíðarfjölmiðii,
ISDN-tengingar, höfundarrétt,
vörumerkjavemd, siðfræði í upp-
lýsingaiðnaði nútímans og gerð
margmiðlunarefnis frá hugmynd
til dreifingar geisladisks.
Nemendurnir heimsóttu og
kynntu sér margmiðlunarfyrir-
tæki, hljóðver og fylgdust með
upptöku og þáttagerð fyrir sjón-
varp. Tuttugu kennarar, bæði er-
lendir og innlendir, komu að
kennslu við skólann.
Lokaverkefni nemenda vora
vefsíður og margmiðlunardiskar.
Hjörtur Guðnason skólastjóri
segir hópinn þann fyrsta hér á
Iandi sem hefur gagngert verið o'i
menntaður til að vinna marg- ;pj
miðlunarefni næstu aldar. Nú
stendur yfír skráning í skólann
fyrir næsta vetur.
.5
Dýfðu í 1000 eyja sósu á mbl.is, leik þar sem þú getur unnið miða
ffyrir tvo með súpu og brauði á leikritið 1000 eyja sósu eftir Hallgrím
Helgason eða kvöldverð fyrir tvo í Iðnó við Tjörnina.
Um þessar mundir frumsýnir Hádegisleikhús Iðnó 1000 eyja sósu,
nýtt leikrit eftir Hallgrím Helgason. í verkinu kynnumst við Sigurði
Karli sem er ævintýramaður í íslensku viðskiptalífi.
Taktu þátt í leiknum, það er aldrei að vita!
Hmbl.is
—ALLTAf^ e/TTH\SA£> NÝTl
Iþróttaskor Kennaraháskóla
Islands á Laugarvatni
Tímamót í
íþróttamenntun
32 ÍÞRÓTTAKENNARAR braut-
skráðust frá íþróttaskor Kennara-
háskóla Islands á Laugarvatni 29.
maí.
Þetta var sfðasta brautskráning
íþróttakennara samkvæmt lögum
um íþróttakennaramenntun frá
1972. Með Iögum frá 1. janúar
1998 var nýr háskólj, Kennaraskóli
Islands, stofnaður. fþróttakenn-
aramenntun, sem hefur verið
tveggja ára nám, fellur nú undir
starfsvið hins nýja skóla og lengist
um eitt ár. Nám í íþróttafræði er
nú komið á háskólastig, en kennsla
mun áfram fara fram á Laugar-
vatni.
Þennan sama dag tók mennta-
málaráðherra Björn Bjarnason
fyrstu skóflustunguna að nýjum
nemendagörðum á Laugarvatni.
Ákveðið hefur verið að byggja allt
að 24 hjónaíbúðum á næstu þrem-
ur árum. Byggingarfélag náms-
manna mun sjá um byggingu þess-
ara garða en stefnt er að því að
fyrstu 8 íbúðirnar verði tilbúnar 1.
september árið 2000.
Morgunblaðið/Sigrún Harpa
BJÖRN Bjarnason mennta-
málaráðherra tekur fyrstu
skóflustunguna að nýjum nem-
endagörðum.
>(Örttustö(fin
□OiTDTOaO
SterkargarðplÖnturíúrvali, I
skjólltelti, skðgmkt og dektirplimtm.
ypíi aUii! Olirwi fMi RÍL tld) tóiJ
satwiíi <emm) u
Hugsaðu um húðina
er frábært á
sjúkrahúsinu
og enn
vheima!
Fæst í flestum apótekum
Dreifmg T.H. Arason sf.,
fax/sími 554 5748 og 553 0649