Morgunblaðið - 24.07.1999, Blaðsíða 1
165. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hassan Marokkó-
konun&fur látinn
Rabat. Reuters.
Þetta varð til að bæta
samskipti konungs við
bandaríska og evr-
ópska ráðamenn, sem
höfðu gagnrýnt mann-
réttindabrot hans en
stutt fjölflokkakerfið
og fi'jálsa hagkerfið í
landinu. Nokkrir tugir
pólitískra fanga eru
enn í haldi, flestir
þeirra íslamskir and-
stæðingar konungsins.
Hassan var mikil-
vægur milligöngumað-
ur í friðarumleitunum í
Miðausturlöndum og
samband hans við leið-
toga Israels leiddi til
friðarsamkomulags
Egypta og Israela
1978. Hann kom einnig
á tengslum milli
HASSAN Marokkókonungur og sonur hans, Sidi °& 'srae*s ar'
Mohammed ríkisarfi. le '
Mótmælin í Kína
Herjað
á Falun
Gong
Peking. Reuters, AFP, AP.
KÍNVERSKAR öryggissveitir
handtóku um tvö hundruð manns
sem mótmæltu banni yfirvalda við
starfsemi hreyfingarinnar Falun
Gong á Torgi hins himneska friðar í
Peking snemma í gær. Kínversk
dagblöð fóru hörðum orðum um
hreyfinguna, sem iðkar aðallega
íhugun og andlegar æfingar, og sök-
uðu leiðtoga hennar um að afvega-
leiða og misnota fylgismenn sína.
Þá sökuðu yfirvöld hreyfinguna
um að hafa í hyggju að valda óeirðum
í landinu sem leitt gætu til uppreisn-
ar gegn yfirvöldum, en í yfirlýsingu
leiðtoga Falun Gong, Lis Hongzhis,
segir að hópurinn hafi engin pólitísk
markmið. Sagði hann að árásir yfir-
valda á fylgismenn Falun Gong gætu
orðið til þess að vantrú á ríkisstjóm-
inni skapaðist meðal almennings.
Þúsund hermenn á varðbergi
Allt að þúsund hermenn Alþýðu-
hersins voru á varðbergi á Torgi
hins himneska friðar í gær og
hundruð öryggisvarða voru víðsveg-
ar um borgina. Var Torgi hins
himneska friðar lokað eftir hand-
tökuna en síðar um daginn var það
opnað ferðamönnum.
Fólk safnaðist saman víðsvegar í
Peking til að mótmæla en skammt
frá Beihai-garðinum vora um eitt
hundrað menn handteknir. Þúsund-
ir meðlima Falun Gong hafa verið
handteknar frá því á þriðjudag er
þær reyndu að mótmæla, á friðsam-
legan hátt í þrjátíu borgum í Kína,
handtöku um hundrað leiðtoga
hreyfingarinnar.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Wateh í New York hvöttu til
þess í vikunni að ríkisstjómir heims
gripu til aðgerða til að mótmæla
harðræði og mannréttindabrotum
yfirvalda gegn meðlimum sértrúar-
safnaða.
■ Hugleiðsla og heimspeki/22
Kennedys
minnst
VINIR og vandamenn Johns F.
Kennedys yngra og eiginkonu
hans, Carolyn Bessette Kennedy,
komu saman í kirkju í New York í
gær til að votta minningu þeirra
virðingu sína. Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti var á meðal 315
gesta, sem voru viðstaddir minn-
ingarathöftiina.
Athöfnin fór fram í Kirkju
heilags Thomas More á Manhatt-
an. Edward Kennedy öldunga-
deildarþingmaður og eiginkona
hans, Victoria Reggie, kveðja hér
prest eftir að athöfninni lauk.
NEBOSJA Pavkovic, hershöfðingi
þriðju herdeiidar júgóslavneska
hersins, lýsti því yfir í gær að hann
styddi Slobodan Milosevic Júgó-
slavíuforseta heils hugar. Taldi
hann ennfremur að Júgóslavíuher
hefði fullan rétt til þess að hlutast
til um mál í Kosovo-héraði ef stjóm-
völd í Júgóslavíu teldu að Samein-
uðu þjóðiraar sinntu ekki öryggis-
skuldbindingum sínum í héraðinu.
Pavkovic, sem stýrði þeirri her-
deild júgóslavneska hersins er hörfa
þurfti frá Kosovo eftir að átökunum
í Júgóslavíu lauk, sagði í viðtali við
AFP í gær að sambandsríkið áskildi
sér rétt til að senda hersveitir til
héraðsins ef þurfa þætti.
Samkvæmt ályktun Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna númer 1244,
sem kveður á um frið í Kosovo-hér-
aði, er ríkisstjóm Júgóslavíu tryggt
fullveldi og umráð yfir eigin lands-
svæði. „Það [orðalag] jafngildir
eignarrétti," sagði Pavkovic. „Þess
vegna höfum við fullan rétt til þess
að senda hersveitir okkar inn [í hér-
aðið] og tryggja að stjómarstofnan-
ir starfi eðlilega ef við teljum að SÞ
HASSAN Marokkókonungur lést í
gær, sjötugur að aldri, skömmu eftir
að hann var fluttur á sjúkrahús. Son-
ur hans, Sidi Mohammed krónprins,
sagði að banamein hans hefði verið
hjartaáfall.
Hassan tókst að halda völdunum í
rúm 38 ár þrátt fyrir tvær valda-
ránstilraunir herforingja, nokkur
banatilræði vinstrimanna og and-
stöðu heittrúaðra múslima.
„Þegar ég kom til ríkis sagði fólk
að ég myndi ekki endast lengur en
hálft ár,“ sagði hann eitt sinn við vin
sinn, Jóhann Karl Spánarkonung.
Jafnvel andstæðingar konungsins
viðurkenndu þó stjómkænsku hans
og vinsældir meðal hinna 29 milljóna
íbúa Marokkó.
Hassan kom til ríkis árið 1961.
Uppreisnarmenn í hernum reyndu
að ráða hann af dögum 1971 og 1972
og þótti það ganga kraftaverki næst
að hann skyldi komast undan.
Vinstrimenn gerðu tilraun til að
steypa honum af stóli 1973 eftir
nokkur misheppnuð banatilræði.
Gagnrýndur fyrir
mannréttindabrot
Andstæðingar konungsins gagn-
rýndu hann fyrir harðstjórn og gróf
mannréttindabrot, svo sem illa með-
ferð á pólitískum andstæðingum sín-
um. Hann neitaði því alltaf að til
væm pólitískir fangar í landinu og
standi ekki við skuldbindingar sínar
um að tryggja öryggi borgaranna
og vemda Iandamærin."
Þá varaði Pavkovic stjómarand-
stæðinga við og sagði að her og lög-
regla myndu standa í vegi fyrir öll-
um tilraunum til að steypa Milos-
evic af stóli. „Vandinn er sá að sum-
ir leiðtogar stjómarandstöðunnar
átta sig ekki á að völd verða ekki til
á götum úti,“ sagði Pavkovic í við-
tali við Reuters í gær.
Fyrrverandi yfirhershöfðingi
krefst afsagnar Milosevics
Við annan tón kvað þjá Momcilo
Perisic, fyrrverandi yfirmanni sam-
einaðs herafla Júgóslavíu, sem leyst-
ur var frá störfum sl. ár vegna gagn-
rýni á Júgóslavíuforseta. Perisic
lýsti því yfir í gær að nauðsynlegt
væri að Milosevic hyrfi frá völdum,
ella væm „nýjar hörmungar" yfir-
vofandi. Sakaði hann stjómvöld um
að ýta þjóðinni út í stríðið við Atl-
antshafsbandalagið sem eingöngu
hefði þjónað því hlutverki að treysta
völdin og gera júgóslavneska herinn
að pólitísku stjómtæki.
kvaðst aðeins hafa látið fangelsa
„landráðamenn“.
Konungurinn varð þó við kröfu
andstæðinga sinna í byrjun áratug-
arins og íyrirskipaði að vinstrimenn
og herforingjar, sem reyndu að
steypa honum af stóli, yrðu leystir úr
haldi. Rúmlega 800 pólitfskir fangar
voru látnir lausir og 195 dauðadóm-
um var breytt í lífstíðarfangelsi.
„Núverandi valdhöfum verður
að koma frá völdum með pólitísk-
um hætti, og þjóðina á að ryðja
götu lýðræðislegra og borgara-
Hassan hafði búið
Sidi Mohammed krónprins undir að
taka við konungdómi. P’rinsinn er 36
ára og þykir að mörgu leyti ólíkur
föður sínum. Hann nam þjóðarétt við
franskan háskóla - prófritgerð hans
fjallaði um samstarf Evrópusam-
bandsins og Norður-Afríkuríkja - og
hefur getið sér orð fyrir að vera bók-
hneigður, rólyndur og mikill áhuga-
maður um nýjustu tækni.
legra [gilda], í stað haturs og of-
beldis," sagði Perisic í viðtali sem
birtist í NIN, útbreiddu vikuriti, í
gær.
Júgóslavneskur hershöfðingi lýsir yfír eindregnum stuðningi við Milosevic
Áskilja sér
rétt til íhlut-
unar í Kosovo
Belgrad. AFP, Reuters, AP.
Reuters
BELGRAD-búar skoða dreifirit sem hópur námsmanna fleygði af þök-
um húsa í borginni í gær til að hvetja fólk til að krefjast afsagnar
Slobodans Milosevic Júgóslavíuforseta.