Morgunblaðið - 11.08.1999, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Forráðamenn „Rauða hersins“ hafa gefíst upp á að bjarga rekstri fyrirtækjanna
Þrjú fyrir-
tæki í gjald-
þrotaskipti
KETILL Helgason, framkvæmda-
stjóri Rauðsíðu á Þingeyri, Rauð-
felds á Bíldudal og Rauðhamars á
Tálknafirði, lagði í gær inn beiðni
um gjaldþrotaskipti fyrirtækjanna
fyrir Héraðsdómi Vestfjarða.
Vinnsla hefur legið niðri í þeim síð-
an í byrjun júní sl. en undanfamar
vikur hafa þau verið í greiðslu-
stöðvun meðan eigendur hafa
reynt að safna auknu hlutafé til að
bjarga þeim frá gjaldþroti.
Vonlaust dæmi
Málefni fyrrnefndra fyrirtækja,
„Rauða hersins" svonefnda, hafa
verið í brennidepli síðan í vor þeg-
ar starfsmenn hættu að fá greidd
laun. Þá kom fram að forsvars-
menn Rauða hersins höfðu treyst á
stuðning Byggðastofnunar en fyr-
irtækið fékk ekki lán þar sem það
uppfyllti ekki skOyrði stofnunar-
innar. Aftur var látið reyna á málið
hjá Byggðastofnun í liðnum mán-
uði en án árangurs.
„Stjórnarformaðurinn lagði til á
stjómarfundi á mánudag að farið
yrði í gjaldþrot og um annað var
ekki að ræða í stöðunni, þetta var
vonlaust dæmi,“ sagði Guðmundur
Franklín, einn fjögurra eigenda
Rauða hersins, við Morgunblaðið í
gær. Hann sagði að allt hefði verið
reynt til að afstýra gjaldþroti en
forsendur fyrir áframhaldandi
starfi hefðu brugðist þar sem ekki
hefði fengist lán frá Byggðastofnun
og því hefði ekki verið hægt að
safna auknu hlutafé.
„Ég reyndi allt sem ég gat en
var ekki tilbúinn að tapa meiri pen-
ingum,“ sagði Guðmundur. „Hins
vegar er ég tilbúinn að skoða aðra
möguleika," bætti hann við og gaf
til kynna að hann gæti vel hugsað
sér að koma með einhverjum hætti
að stofnun nýs fiskvinnslufyrirtæk-
is á Þingeyri. Hann hefði samt ekki
rætt það formlega.
V*
vERNDUM
LAUGARDAIINN
VERNDUM
LAUGARDALINN
Stofnfundur samtakanna Verndum Laugardalinn verð-
ur haldinn í Ásgarði, Glæsibæ (áður Danshúsið), í dag
miðvikudaginn 11. ágúst, kl. 18.00.
ALLIR VELKOMNIR!
Samtökin munu hafa það að markmiði að koma í veg fyrir fyrirhuguð
byggingaráform í austurhluta Laugardalsins.
Ástæður:
• Laugardalurinn er virkasta útivistar- og íþróttasvæði borgarinnar.
• Nú þegar er sú aðstaða sem þar hefur verið byggð fullnýtt.
• Ekkert annað sambærilegt útivistarsvæði er að finna í hjarta
borgarinnar.
• Fyrir liggur að Reykjavíkurborg og höfuðborgarsvæðið munu
stækka mikið á næstu árum og það kallar á enn meiri ásókn að
Laugardalnum.
• Fyrirhugaðar byggingar breyta Laugardalnum úr því að vera
grænt svæði í atvinnusvæði. Sú atvinnustarfsemi kemur í veg
fyrir að Laugardalurinn fái að vaxa í takt við fjölgun borgarbúa og
auknar áherslur á útiveru og hreyfingu.
• Með því að breyta Laugardalnum í atvinnusvæði mun vegurinn í
gegnum hann einnig breytast í mikla umferðargötu. Það mun eitt
og sér hafa afar neikvæð áhrif á alla aðra starfsemi á svæðinu.
Það er aðeins til einn Laugardalur og okkur ber skylda til að vernda
hann fyrir komandi kynslóðir.
Sýnum samstöðu og mætum á stofnfund samtakanna í dag miðviku-
dag kl. 18.00 í Ásgarði, Glæsibæ (áður Danshúsið).
Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu samtakanna:
www.Iaugardalurinn.is
Engin áform
um að
breyta
bensíngjaldi
ENGIN áfoi-m eru uppi um að
breyta bensíngjaldi að sögn Geirs H.
Haarde fjármálaráðherra enda kalli
slíkt á lagabreytingar.
„Miðað við þær upplýsingar sem
ég hef eru tekjur af bensíngjaldi á
fyrri hluta ársins heldur undir áætl-
un,“ segir Geir.
Á hvern lítra bensíns leggst 28,60
króna bensíngjald auk 97% vöru-
gjalds. I fjárlögum var áætlað að
vörugjaldið skilaði í-íkissjóði 1.975
milljónum króna á þessu ári. Fyrstu
sex mánuði ársins innheimtust hins
vegar aðeins 726 milljónir króna.
Geir Magnússon, framkvæmda-
stjóri Olíufélagsins hf., segir að
gróft áætlað fari 70% af bensínverði
til neytenda til hins opinbera. Félag
íslenskra bifreiðaeigenda hefur
skorað á stjórnvöld að lækka vöru-
gjald á bensínverði, sem er 97%,
vegna mikilla hækkana sem orðið
hafa á bensínverði á þessu ári.
------------------
Sumar-
páskar verða
árið 2000
Á NÆSTA ári verða svokallaðir
„sumarpáskar" en þá ber páska svo
seint upp á að skírdagur og sumar-
dagurinn fyrsti falla saman en
páskadagur verður 23. apríl.
„Sumarpáskar verða að meðaltali
á 16 ára fresti en það er engin regla
á því,“ segir Þorsteinn Sæmundsson
stjörnufræðingur. Sumarpáskar
verða því um 6 sinnum á öld og geta
jafnvel verið aðeins síðbúnari
þannig að páskadag ber upp á 25.
apríl. Að sögn Þorsteins urðu sum-
arpáskar síðast 1984 og þá var
páskadagur 22. apríl.
-----♦♦♦-----
Andlát
KRISTINN
REYR
KRISTINN Reyr rithöfundur lést
9. ágúst sl. á 86. aldursári. Kristinn
fæddist í Grindavík 30. desember
1914, sonur Ágústu Árnadóttur og
Péturs Jónssonar sjómanns.
Kristinn tók próf frá Verslunar-
skóla íslands 1935 og starfaði sem
verslunarmaður í Reykjavík frá
1929 til 1937. Hann var forstöðu-
maður Sjúkrasamlags Keflavíkur
1943 og kennari við Iðnskólann í
Keflavík 1945-1946. Hann stofnaði
Bókabúð Keflavíkur 1942 og var eig-
andi hennar og framkvæmdastjóri
til 1962. Hann starfaði sem rithöf-
undur frá 1965.
Kristinn kvæntist Margréti Jústu
Jónsdóttur. Þau skildu. Margrét
Jústa lést árið 1969.
Kristinn var höfundur fjölda leik-
rita, ljóða og laga. Hann hlaut viður-
kenningu frá Rithöfundasjóði RÚV
1974, Rithöfundasjóði íslands 1976
og 1983 og frá Fjölíssjóði 1992.
Hann var á listamannalaunum frá
1976. Kristinn lætur eftir sig tvö
uppkomin börn.