Morgunblaðið - 11.08.1999, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Öll umferð í Grafarvog um Gullinbrú vegna lokunar Víkurvegar
Umferðin gengið
skínandi vel
Morgunblaðið/Eiríkur P.
GATNAMÓTIN við Víkurveg eru nú lokuð vegna
breikkunar á Vesturlandsvegi.
Grafarvogur
UMFERÐ til og frá Grafar-
vogshverfi hefur gengið að
mestu snurðulaust fyrir sig
eftir að Víkurvegi var lokað
við Vesturlandsveg á mánu-
dagsmorgun. Samkvæmt
upplýsingum frá umferðar-
deild lögreglunnar í Reykja-
vík um miðjan dag í gær hef-
ur Gullinbrúin haft vel undan
að bera umferðina frá Halls-
vegi og Strandvegi og gengið
skínandi vel.
í gærmorgun urðu tveir
smávægilegir árekstrar við
Gullinbrú sem orsökuðu
biðraðir í stutta stund á með-
an ein akreinin lokaðist. Að
sögn Sigurðar I. Skarphéðins-
sonar, gatnamálastjóra
Reykjavíkurborgar, á lokun
Víkurvegar ekki að valda um-
talsverðum töfum á umferð,
svo framarlega sem ekki
verða óhöpp á veginum.
Framkvæmdum við Gullin-
brú er að mestu lokið nú þeg-
ar brúin hefur verið tvöfölduð
og umferð komin á fjórar
akreinar. Ýmiss konar frá-
gangur er eftir í kringum
brúna og utan með götunni
austan og vestan megin. Þá er
eftir að setja upp hljóðskerma
og reiknar gatnamálastjóri
með að þeim framkvæmdum
ljúki í haust. Þær aðgerðir
eiga þó að valda lágmarks-
truflun á umferð, að sögn Sig-
urðar.
„Við höfum einnig haldið að
okkur höndunum með þennan
frágang núna til þess að valda
ekki frekari truflunum nú
þegar Víkurvegur er lokaður
vegna framkvæmda við Vest-
urlandsveg,“ sagði Sigurður.
Hann reiknar ekki með að
loka þurfi brúnni að einhverju
leyti vegna frágangsverka þar
í haust.
Hjáleið lokuð
almenningi
Hægt er að komast af Vest-
urlandsveginum í Grafarvogs-
hverfið með því að aka gömlu
heimtröðina að rannsóknar-
stöðinni við Keldnaholt, sem
liggur út á Vesturlandsveg. í
dag er aðkoman að stöðinni
frá Víkurvegi. Að sögn Sig-
urðar skoðaði Vegagerðin
gaumgæfilega þann mögu-
leika að opna þá leið og setja
þar upp ný gatnamót og um-
ferðarljós á Vesturlandsvegi.
Þegar málin voru skoðuð
hafi menn hins vegar fundið
út að of kostnaðarsamt yrði að
gera ný bráðabirgðagatnamót
sem einungis ættu að vera op-
in í 13 daga. Þar að auki var
talið að umferðaröryggi yrði
ekki fullnægjandi. Þegar ljós
eru færð til skapar það ætíð
slysahættu fyrstu dagana á
meðan fólk er að kynnast nýju
ljósunum og slíkt væri ekki
forsvaranlegt fyrir hálfan
mánuð, að sögn Sigurðar.
Þessi hjáleið er því lokuð al-
menningi, en lögregla og
slökkvilið hafa hins vegar
þann möguleika að nota veg-
inn í neyð. Hann er lokaður af
með borðum sem þessir aðilar
geta keyrt niður ef með þarf.
Samkvæmt upplýsingum frá
umferðardeild lögreglunnar
höfðu þessir borðar verið
slitnir niður á mánudaginn og
því greinilegt að einhverjir
hafa svindlað sér þá leið.
Borðarnir hafa verið settir
upp aftur og fengið að vera í
fiiði, enda er svæðið lokað.
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
UMFERÐ yfir Gullinbrú hefur gengið vel þrátt fyrir lokun Víkurvegar.
Myndin er tekin um miðjan dag í gær.
Framkvæmdum við breikkun Vesturlandsvegar við Vfkurveg miðar vel
Sex mánuð-
um á undan
áætlun
Grafarvogur
FRAMKVÆMDUM við
breikkun Vesturlandsvegar
miðar vel áfram og stefnir
verktakinn, Háfell ehf., á að
ljúka framkvæmdum í nóvem-
ber næstkomandi, sex mánuð-
um á undan áætluðum verk-
lokum.
Ásamt breikkun vegarins
um tvær akreinar er unnið að
gerð undirganga undir veginn.
Eiður Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Háfells, segir að
samið hafi verið við Vegagerð-
ina um að ljúka framkvæmd-
um í nóvember. „Ráðgert var
að opna veginn 15. júní árið
2000 en við áætlum að skila af
okkur verkinu í nóvember
næstkomandi,“ segir Eiður.
Mikil samgöngubót
Framkvæmdir hófust í maí
síðastliðnum. Á milli 20 og 30
manns vinna við verkið. Veg-
urinn er breikkaður á um 1,5
km kafla, rétt austan Víkur-
vegar að Suðurlandsvegi. „Eg
held að þetta hljóti að eiga eft-
ir að verða mikil samgöngubót
því þetta er sá vegarkafli sem
kvartað hefur verið hvað mest
yfir hér á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir Eiður.
Háfell vann einnig að
breikkun Gullinbrúar inn í
Umferðareyjar
lækkaðar
Gardabær
VEGAGERÐIN vinnur
nú að því að lækka um-
ferðareyjar á Hafnarfjarð-
arveginum. Grasið hefur
verið rifið af og síðan er
tyrft á nýjan leik. Tilgang-
urinn með lækkun um-
ferðareyjanna er að forð-
ast vandkvæði sem verða
þegar snjóar á veturna og
snjóinn skefur í skjóli af
eyjunum.
Umferðareyjarnar hækka
með tímanum vegna þess
að slitið af veginum, mal-
bik, salt og ryk, berst upp
á eyjarnar þegar göturnar
eru ruddar á veturna. Þar
að auki fýkur fínt ryk og
sest í grasið. Grasið vinnur
sig í gegnum þetta og yfír-
borðið hækkar. Vegagerð-
in hefur því gripið til þess
ráðs að lækka eyjarnar og
var þetta einnig gert á
Miklubrautinni fyrra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
Grafarvogshverfið. Eiður seg-
ir að þetta hafí kannski ekki
verið vinsælustu verkin frá
sjónarmiði vegfarenda en þeir
hafa þó ekki steytt göm við
starfsmenn Háfells.
Háfell bauð 207 milljónir
króna í verkið.
FRAMKVÆMDIR standa nú
yfir við breikkun Vestur-
landsvegar. Neðst á mynd-
inni má sjá gatnamótin við
Víkurveg sem verða lokuð í
hálfan mánuð vegna fram-
kvæmdanna. Efst á myndinni
sést hjáleiðin ofan við Graf-
arholt, en þar fyrir neðan er
unnið að gerð mislægra
gatnamóta.
Farfugla-
heimilið
stækkað
Laugardalur
BORGARSTJÓRN hef-
ur samþykkt að breyta
deiliskipulagi við Sund-
laugarveg 34 þar sem nú
er farfuglaheimili við
tjaldstæðið í Laugardal.
Breyting á skipulaginu
miðar að því að breyta
lóðinni úr útivistarsvæði
til sérstakra nota í at-
hafnasvæði.
Tilgangurinn með
þessari breytingu er að
gera kleift að byggja við-
byggingu við farfugla-
heimilið til stækkunar
þess. Um lóðina gilda
þeir sérskilmálar að þar
verði ekki gert ráð fyrir
annarri starfsemi en
gistiheimili, ski-ifstofum
og þjónustu við útivistar-
svæðið í Laugardal.