Morgunblaðið - 11.08.1999, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 1999 21
VIÐSKIPTI
Minnkandi fram-
Alusuisse-Lonza í viðræðum við Pechlney og Alcan álfyrirtækin
Rætt um mögu-
leika á samruna
a surali 1 kjol-
far sprengingar
Gæti þýtt
hækkun
álverðs
SPRENGING sem olli því að Kaiser
Aluminum varð að loka súrálsverk-
smiðju sinni í Louisiana snemma í
júlí, gæti haft áhrif til hækkunar á
álverði næstu 12 mánuði, að því er
fram kom í The Wall Street Journal í
síðustu viku.
Sprengingin varð í verksmiðju
sem framleiðir eina milljón tonna af
súráli, en það er notað til álfram-
leiðslu. Ekki hefur verið tilkynnt um
hvenær eigi að opna verksmiðjuna
aftur en talið er að hún verði lokuð í
að minnsta kosti 6 mánuði.
Sem stendur er nægilegt framboð
á súráli til álbræðslu í heiminum en
vegna sprengingarinnar er óttast að
skortur myndist á súráli á næstu
mánuðum. Það gæti þýtt minnkun
framboðs á áli og þar af leiðandi
hækkun á álverði auk þess sem það
getur komið í veg fyrir áætlanir um
aukna álframleiðslu til að svara auk-
inni eftirspurn eftir áli.
Að sögn Hrannars Péturssonar,
upplýsingafulltrúa íslenska álfélags-
ins, er ekki tilefni til að ætla að
skortur á súráli eða hækkun á verði
þess muni hafa áhrif á ISAL.
„Við kaupum allt okkar súrál frá
sama aðilanum, sem er í Gove í
Astralíu og samningar um verð eru
gerðir langt fram í tímann. Reyndar
tengjast þeir þróun á markaði hverju
sinni en stuttar sveiflur hafa ekki
bein áhrif þar á, að minnsta kosti
ekki mikil. Þetta hefur í raun engin
áhrif hjá okkur nema að þær verði til
langs tíma.“
Um hækkun á álverði segir
Hrannar að spár um verð, ýmist upp
á við eða niður á við séu oft býsna
fjarri sannleikanum.
„Markaðurinn er að mörgu leyti
fremur ófyrirsjáanlegur og erfitt að
spá fyrir um hvað verður. Stundum
þegar spáð er hækkandi verði þá
lækkar það og öfugt. Þessa dagana
er verðið á bilinu 1.400 til 1.450 doll-
arar á tonnið. Það telst nú ekki vera
hátt verð miðað við undanfarin ár en
í vetur var það í algjöru lágmarki,
undir 1.200 dollurum á tonnið“, segir
Hrannar Pétursson.
Kaup Deutsche
Telecom á 0ne20ne
Netþjónusta
um farsíma
ÞÝSKA símafélagið Deutsche Tel-
ekom hefur ákveðið að kaupa breska
farsímafélagið 0ne20ne fyrir 8,4
milljarða punda. I kjölfarið hefur
verið tilkynnt að hlutabréf í hluta af
farsíma- og netþjónustudeildum fyr-
irtækisins verði sett á markað, að því
er fram kemur á fréttavef BBC.
Stjórnarformaður DT, Ron
Sommer, sagði ekki ljóst hvenær af
þessu yrði en markmiðið væri að afla
fjár til að mynda alþjóðlegt fjar-
skiptafyrirtæki. Sommers sagði til-
ganginn einnig að hluthafar gætu
borið gengi fyrirtækisins saman við
önnur fyrirtæki á sama markaði.
Fjárfesting DT í One20ne er
stærsta alþjóðlega yfírtaka félagsins,
sem hyggur jafnvel á fleiri. Þrátt
fyrir að samruni DT og Telecom
Italia hafí ekki heppnast á sínum
tíma, hefur Sommer ekki gefið risa-
fyrirtæki á sviði fjarskipta í Evrópu
upp á bátinn, og hefur hið spænska
Telefonica verið nefnt í því sam-
bandi. Sommers leggur þó áherslu á
að DT vilji nú fyrst og fremst bjóða
viðskiptavinum sínum aðgang að
Netinu um farsíma. Eftir kaupin á
One20ne eru áskrifendur á vegum
fyrirtækisins um 11 milljónh'.
ALUSUISSE-Lonza, móðurfélag
íslenska álfélagsins, hefur að und-
anförnu átt í viðræðum við tvö af
stærstu álfyrirtækjum heims, Alc-
an í Frakklandi og Pechiney í
Kanada, um hugsanlega samein-
ingu þessara fyrirtækja, sam-
kvæmt fréttatÚkynningu frá
AluSuisse sem gefin var út í gær.
Ef af samrunanum verður, mun
nýtt sameinað fyrirtæki verða
stærsti álframleiðandi heims. Þetta
yrði einnig í fyrsta skipti sem þrí-
hliða samruni milli fyrirtækja
beggja vegna Atlantsála yrði að
veruleika. „Þetta er ekkert sem
kemur á óvart, enda hefur það ver-
ið yfirlýst markmið fyrirtækisins að
stækka,“ segir Hrannar Pétursson,
upplýsingafulltrúi íslenska álfé-
lagsins. „Þegar slitnaði upp úr við-
ræðum við þýska fyrirtækið Viag í
vetur héldu forráðamenn Alusuisse
því á lofti að þeir væru enn opnir
fyrir viðræðum við önnur fyrirtæki
í greininni. Það er þó allt of
snemmt að segja til um hvort af
sameiningu þessara þriggja verður,
enda er ferlið bara rétt að fara af
stað.“ Hrannar segir að ef af sam-
einingu verður muni það ekki hafa
áhrif á starfsemi álversins í
Straumsvík, enda hafi reksturinn
gengið vel að undanförnu.
„Verksmiðjan hér er mjög full-
komin og við höfum þess vegna
ekki áhyggur af því að samruni
muni bitna á okkur, ef af honum
verður.“ Miklar hræringar hafa
verið í áliðnaði í heiminum síðustu
árin og hefur viðleitni til að hag-
ræða og sameina rekstur verið
áberandi meðal fyrirtækja í grein-
inni. Af fyrirtækjunum þremur sem
nú eiga í viðræðum er Pechiney
stærst með veltu upp á 9,8 millj-
arða dollara á ári, sem samsvarar
um 715 milljörðum íslenskra króna.
Velta Alcan nemur um 570 milljörð-
um króna, en velta Alusuisse nem-
ur um 420 milljörðum, að því er
fram kemur á vefsíðu CNN.
Gengi hlutabréfa í Alusuisse-
Lonza og Pechiney hækkuðu nokk-
uð í gær eftir að fréttir af samein-
ingarviðræðum bárust
Fyrirfmmgreiðsla
Þeir sem kaupa eða hefja byggingu á íbúðarhúsnæði til eigin nota 1999 og síðar
geta sótt um fyrirframgreiðslu vaxtabóta. Umsóknareyðublöð ásamt upplýsinga-
bæklingi liggja frammi hjá skattstjórum, bönkum og sparisjóðum. Eyðublaðið má
einnig sækja á upplýsingavef ríkisskattstjóra, rsk.is. Umsókn skal senda skatt-
stjóra í því umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili.
Vaxtabætur verða greiddar fyrirfram ársfjórðungslega,
fjórum mánuðum eftir lok hvers ársfjórðungs.
Fyrirframgreiðsla vegna 2. ársfjórðungs,
þ.e. vegna vaxtagreiðslna fyrir tímabilið apríl, maí
og júní 1999, verður greidd út 1. nóvember n.k.
Umsókn um fyrirframgreiðslu vegna annars
ársfjórðungs þarf að hafa borist skattstjóra
eigi síðar en 16. ágúst n.k.
Allar nánari upplýsingar veita
skattstjórar og ríkisskattstjóri
RSK
• KISSK-V