Morgunblaðið - 11.08.1999, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Fjórði rússneski forsætisráðherrann rekinn á einu og hálfu ári
Til marks um hnigmm
og örvæntingu Jeltsíns
Þótt fylgi Borís Jeltsíns hafí hrunið, gamlir
bandamenn hafí yfírgefíð hann í hrönnum
og honum sé kennt um efnahagsþrenging-
arnar í Rússlandi telur forsetinn sig geta
haft áhrif á stjórnmálaþróunina í landinu á
næstu öld með því að velja eftirmann sinn.
Raunin virðist hins vegar vera sú að stuðn-
ingur Jeltsíns sé til bölvunar en ekki bless-
unar fyrir rússneska stjórnmálamenn.
BORÍS Jeltsín vék Sergej
Stepashín úr embætti for-
sætisráðherra á mánudag
án nokkurra útskýringa,
tilnefndi Vladímír Pútín, fyrrver-
andi njósnara KGB í Þýskalandi, í
embættið og kvaðst vona að hann
yrði kjörinn næsti forseti landsins.
Þótt Jeltsín hafi rekið fjóra forsæt-
isráðherra á einu og hálfu ári hefur
það ekki leitt til neinna meiriháttar
stefnubreytinga eða alvarlegra til-
rauna til að blása lífí í efnahaginn
og leysa hin fjölmörgu vandamál
landsins.
Þess í stað hefur Jeltsín lagt of-
uráherslu á að halda völdunum og
skjóta andstæðingum sínum ref fyr-
ir rass. í þessari pólitísku refskák
hefur forsetinn nánast alltaf farið
með sigur af hólmi. Rússneska þjóð-
in hefur hins vegar nánast alltaf
beðið ósigur. Pólitíska umræðan í
Rússlandi hefur iðulega snúist um
hver sé í náðinni hjá forsetanum og
hver ekki. Málefnaleg umræða um
efnahagsmál er hins vegar sjaldgæf
þessa dagana.
„Örvæntingarfull leit Jeltsíns að
eftirmanni er ástæða brottvikning-
ar Stepashíns,“ sagði rússneski
Komdu og sjáðu hvað
við getum gert
fyrirþig. Sérsmíðað
eða staðlað.
Ótal möguleikar.
ehf.
Umboös- og heildverslun
Nethyl 3-3a -112 Reykjavík
Sími5353 600- Fax5673609
SSEinfalt í uppsetningu
SS Skrúfufritt
BSmBÍrtsarnan
stjómmálaskýrandinn Andrej
Pjontovskí.
Jeltsín einangrast
Fylgi forsetans meðal Rússa hef-
ur verið innan við 10% allt þetta ár,
ef marka má skoðanakannanir, og
helstu forsetaefnin hafa reynt að
halda sig í eins mikilli fjarlægð frá
Jeltsín og mögulegt er. Einangrun
forsetans virðist aukast með hverj-
um deginum sem líður.
Jeltsín er orðinn 68 ára og sökum
vanheilsu heldur hann sig megnið af
árinu utan Kremlar. Hann dvelur
oftast í bústað sínum í skógi vestan
við Moskvu og hittir þar aðeins fá-
mennan hóp ráðgjafa og vina sem
hefur verið kallaður „Fjölskyldan",
með skírskotun til mafíunnar á
Sikiley.
Áður en Jeltsín varð forseti var
hann vanur að ferðast með strætis-
vögnum og lestum til að blanda geði
við Rússa og honum var gefið að ná
til almennings. Núna virðist hann
hins vegar úr tengslum við brauð-
strit milljóna Rússa sem urðu fyrir
barðinu á efnahagskreppunni.
Þá sjaldan sem Jeltsin kemur
fram í sjónvarpi talar hann óeðli-
lega hægt, þagnar oft í miðri setn-
ingu og margir sjónvarpsáhorfend-
ur hafa hann að athlægi.
Jeltsín virðist telja að hann geti
haft áhrif á niðurstöðu forsetakosn-
inganna á næsta ári þrátt fyrir vís-
bendingar um hið gagnstæða.
Margir telja að tilraun hans til að
koma Pútín í forsetaembættið sé
dæmd til að mistakast. Jafnvel þótt
forsetinn nyti vinsælda meðal þjóð-
arinnar væri ólíklegt að það dygði
til að svo líttþekktur kerfiskarl næði
kjöri.
Forsætisráðherraembættið ætti
að gefa Pútín ýmis sóknarfæri og
beina kastljósi fjölmiðla að honum
en ekki er víst að það leiði til póli-
tískra vinsælda.
„Fjölskyldan" óttast ákærur
Rússnesk dagblöð voru á einu
máli um að meginmarkmiðið með
Dráttarbeisli
AP
BORIS Jeltsín bar sig mannalega í gær, daginn eftir að hann rak for-
sætisráðherra úr embætti í flmmta sinn á sautján mánuðum .
FORSÍÐUR dagblaðanna í Rússlandi voru í gær undirlagðar af um-
fjöllun um nýjustu stjómvaldsaðgerðir Jeltsíns. Vakti brottrekstur
ríkisstjórnar Sergejs Stepashíns undmn og reiði í Rússlandi.
brottvikningu Stepashín væri að
vemda hagsmuni Jeltsíns og „Fjöl-
skyldunnar". „Rekinn vegna fjöl-
skylduvandamála,“ var t.a.m. aðal-
fyrirsögn dagblaðsins Sevodnja.
Blöðin segja að Jeltsín sé mjög
umhugað að tryggja að næsti for-
seti snúist ekki gegn „Fjölskyld-
unni“ eftir kosningamar og veiti
henni friðhelgi. í „Fjölskyldunni“
eru meðal annars Tatjana Djatsjen-
ko, dóttir Jeltsíns, Alexander Volos-
hín, skrifstofustjóri forsetans, og
kaupsýslumennimir Borís Berezov-
skí og Roman Abramovitsj.
Jeltsín og ráðgjafar hans eiga á
hættu að verða sóttir til saka, meðal
annars fyrir að beita skriðdrekum
til að kveða niður uppreisn þing-
manna árið 1993. Dóttir forsetans
og Berezovskí óttast einnig að þau
verði ákærð fyrir spillingu. Sak-
sóknarar hafa t.a.m. rannsakað
Pantaðu núna
» 555 2866
Kays - Argos - Panduro
B.Magnússon
Fax 565 2866 • bm@vortex.is
hvort Berezovskí hafi misnotað fé
rússneska flugfélagsins Aeroflot.
Hefur áhyggjur af nýja
kosningabandalaginu
Mörg rússnesku dagblaðanna
sögðu að brottvikning Stepashíns
hefði verið tilefnislaus. „Hann af-
rekaði ekkert á 80 daga valdatíma
sínum, en auðvitað gerði hann ekki
heldur neitt af sér,“ sagði Novije
Izvestia.
Dagblaðið Kommersant rakti óá-
nægju Jeltsíns til þess að Stepashín
hefði ekki tekist að koma í veg íyrir
kosningabandalag Föðurlandsflokks
Júrís Lúzhkovs, borgarstjóra
Moskvu, og Alls Rússlands, hreyfing-
ar leiðtoga helstu héraða landsins.
„Martröð Kremlveija varð að
veruleika; Föðurlandið sameinaðist
Öllu Rússlandi," sagði blaðið um
myndun bandalagsins á miðvikudag-
inn var. „Stepashín reyndist ekki að-
eins um megn að hindra þetta. Þegar
Kremlveijar gerðu að lokum örvænt-
ingarfulla tilraun til að tryggja að
Stepashín yrði leiðtogi þessa banda-
lags hopaði hann og tilkynnti að
hann myndi ekki ganga í neinn
stjórnmálaflokk.“
Kommersant sagði að Anatolí
Tsjúbajs, fyrrverandi ráðgjafi
Jeltsíns, hefði lagst gegn brottvikn-
ingunni á fundi á fimmtudaginn var
og henni hefði því verið frestað.
>
Ar hinna
löngu
hnífa
BORÍS Jeltsín Rússlandsfor-
seti hefur rekið fjóra forsætis-
ráðherra á tæpu einu og hálfu
ári.
• Nóvember 1991: Jeltsín
skipar sjálfan sig forsætisráð-
herra til að koma á mark-
aðsumbótum.
• Júní 1992: Jeltsín tilnefnir
umbótasinnann Jegor Gajdar í
embætti forsætisráðherra.
Dúman neitar að staðfesta til-
nefninguna.
• Desember 1992: Jeltsín læt-
ur undan þrýstingi dúmunnar,
rekur Gajdar og tilnefndir
Viktor Tsjemomyrdín forsæt-
isráðherra.
• Mars 1998: Jeltsín rekur
Tsjemomyrdín, segir hann
ekki hafa komið á nógu róttæk-
um umbótum, og tilnefnir
Sergej Kíríjenko, orkumála-
ráðherra og fyrrverandi
bankastjóra, í forsætisráð-
herraembættið. Dúman hafnar
Kíríjenko tvisvar en samþykk-
ir tilnefninguna að lokum af
ótta við að Jeltsín leysi þingið
upp og boði til kosninga.
• Ágúst 1998: Jeltsín rekur
Kíríjenko vegna rússnesku fjár-
málakreppunnar. Dúman hafn-
ar því tvisvar að skipa
Tsjemomyi-dín aftur og Jeltsín
tilnefnir þá Jevgení Prímakov
utanríkisráðherra í embættið.
Tilnefningin var samþykkt með
miklum meirihluta atkvæða í
dúmunni 11. september.
• 12. maí 1999: Jeltsín rekur
Prímakov, þakkar honum fyrir
vel unnin störf en segir Rúss-
land þurfa kraftmeiri forsætis-
ráðherra. Hann tilnefnir
Sergej Stepashín innanríkis-
ráðherra í forsætisráðherra-
embættið og dúman fellst á til-
nefninguna í fyrstu atrennu.
• 9. ágúst 1999: Jeltsín rekur
Stepashín án útskýringa og til-
nefnir Vladímír Pútín. Dúman
á að greiða atkvæði um tilnefn-
inguna á mánudaginn kemur.
Átökin í Dagestan um helgina virð-
ast hins vegar hafa veikt stöðu
Stepashíns frekar.
Án flokks og
trúverðugs forsetaefnis
Kosningabandalag Lúzhkovs og
héraðsleiðtoganna stefnir að því að
ná meirihluta í dúmunni, neðri deild
þingsins, í kosningunum 19. desem-
ber og fara með sigur af hólmi í for-
setakosningunum á næsta ári.
Gengi bandalagsins ræðst að miklu
leyti af því hvort Jevgení Prímakov,
fyrrverandi forsætisráðherra, fallist
á að ganga til liðs við það og hvort
samkomulag náist um að hann verði
frambjóðandi þess í forsetakosning-
unum á næsta ári. Ef marka má
skoðanakannanir nýtur Prímakov
meira trausts en nokkur annar
stjómmálamaður í Rússlandi.
Jeltsín reyndi sjálfur að koma í
veg fyrir að kosningabandalagið
yrði myndað, m.a. á fundi með
Mintimir Shaimý'ev, leiðtoga Alls
Rússlands. Fregnir herma að for-
setinn hafi einnig reynt að fá Viktor
Tsjernomyrdín, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, til að mynda annað
bandalag með rússneskum hægri-
flokkum og frjálslyndum um-
bótasinnum. Tsjemomyrdín er
sagður hafa hafnað því.
Niðurstaða baktjaldamakksins er
sú að Jeltsín og bandamenn hans
sitja uppi með forsetaefni, sem er
ekki talið geta gert sér raunhæfar
vonir um að ná kjöri og hefur engan
stjómmálaflokk á bak við sig. Til-
nefning Pútíns ber keim af örvænt-
ingu og bendir til þess að geta for-
setans og bandamanna hans til að
hafa áhrif á atburðarásina fari ört
þverrandi.