Morgunblaðið - 11.08.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 25
Eistneskt
skart
MYIVDLIST
Listhus Ófeigs
Skólaviiríiustfg
MÁLMSMÍÐI - SEX
EISTLENDINGAR
Sýningin er opin á verslunartíraa.
Til 18. ágúst.
AF ÞEIM löndum sem teljast til
fyrrverandi austantjaldslanda hafa
íslenskir listamenn haft mest sam-
skipti við Eystrasaltslöndin og eitt-
hvað hefur verið um að listamenn
héðan hafi farið til Eistlands, Lit-
háen og Lettlands til að sýna. En
sem betur fer hafa íslendingar
sömuleiðis fengið heimsóknir lista-
manna frá þessum löndum, sem eru
okkur enn framandi. í Listhúsi
Ofeigs er hópur sex eistneskra lista-
manna og handverksfólks, sem
saman reka gallerí þar í landi. Þau
hafa tekið með sér fjöldann allan af
munum sem teljast til skartgripa-
smíði eða málmsmíði. Margir hverj-
ir eru munirnir frjálslega unnir, þar
sem hugmyndaflugið hefur fengið
að leika sér, óheft af sjónarmiðum
skartgripaverslunar. Eistlending-
arnir sex eru þau Arseni Mölder,
Anne Roolaht, Julia-Maria Pihlak,
Harvi Varkki, Andrei Balashov og
Kerttu Vellerind. Auk þess sýnir
Harvi Varkki tússteikninagar og
skissur og litlar fígúrur skornar í
sandstein, sem hann hefur unnið
hér á landi.
Á undanfömum misserum hefur
verið talsvert af sýningum á skart-
gripasmíði, m.a. eftir fólk sem er
nýútskrifað og hefur komið fram
með nýstárlegar nálganir við efni
og form. En það er mjög athyglis-
vert að sjá hvemig Eistlendingamir
hugsa greinilega eftir öðram braut-
um en tíðkast og þar ríkja fagur-
fræðileg sjónarmið af allt öðram
toga en við eigum að venjast af
skandinavískri hönnun. Þau viða að
sér efni, formi, myndum og táknum
úr ýmsum áttum og leita óspart í
sögulegan og menningarlegan bak-
grunn. Þau era greinilega ekki eins
upptekin af hreinleika og einföldun,
eins og vill oft einkenna skandinav-
íska hönnun. Það er því allrar at-
hygli vert fyrir áhugafólk um málm-
smíði og skartgripahönnun að
kynna sér hugarheim Eistlending-
anna á þessu sviði.
Gallerf Listakot
Laugavegi 70
GRAFÍK
ÁINE SCANNEL,
JÓHANNA SVEINSDÓTTIR
Opið virka daga kl. 10-18.
Laugardaga 10-16. Til 18. ágiíst.
í SÝNINGARRÝMI Gallerís
Listakots á Laugavegi sýna tvær
grafíklistakonur verk sín. Irsk lista-
kona, Áine Scannell, sýnir 20 verk,
sem era að meginstofni ætingar. En
hún blandar einnig samklippum og
öðram aðskotahlutum saman á
myndfletinum, sem era þar að auki
sumar hverjar í nokkram hlutum.
Það er því nokkuð frjálslega farið
með tæknina og sömuleiðis er
myndefnið af ýmsum toga. Rauði
þráðurinn í gegnum sýninguna er
þó kvenfígúran, í mjög stílfærðri
mynd. Meðgangan, móðurhlutverk-
ið og upphaf nýs lífs, er greinilega
uppsprettan að myndheimi hennar,
sem er í senn sundurlaus, brothætt-
ur og dulur.
Á sama stað sýnir Jóhanna
Sveinsdóttir fimmtán ætingar, og
mun þetta vera fjórða einkasýning
hennar. Myndirnar eru af tvennu
tagi. Flestar byggjast á lauslegum
en frekar ómarkvissum æfingum
með áferð og tækni, þar sem saman
fara gróf áferð og ógreinileg lands-
lagsmótív. Jóhönnu tekst betur upp
í fimm ætinga myndröð, „Víddir“,
sem eru einfaldar og stílhreinar
mjmdir, byggðar upp á djúpum blá-
um fleti, með hvítum útlínum lands-
lagsforma, sem laðar fram víðáttu
og þögn í vetrarkyrrðinni.
Gunnar J. Árnason
Fann teikningar
eftir Rembrandt
Deventer. Reuters.
HOLLENDINGUR sem keypt
hafði safn gamalla bóka á bóka-
markaði komst að raun um að
inn á milli bókanna var að finna
tvær teikningar eftir sautjándu
aldar málarann Rembrandt. Hef-
ur fjárfestingin því margborgað
sig, ákveði Hollendingurinn að
selja verkin.
Onnur teikninganna var mynd
af móður Rembrandts frá árinu
1631 og hin sýnir miskunnsama
Samverjann, eins og Rembrandt
hugsaði sér hann, og mun
Rembrandt hafa teiknað hana ár-
ið 1633. Staðfesti listaverkasali
að teikningarnar tvær eru eftir
meistarann sjálfan í sjónvarps-
þætti, sem helgaður er lista-
verkasöfnurum, um helgina.
Teikningarnar tvær, sem báð-
ar eru merktar Rembrandt, eru
metnar á rúma eina milljón
króna hvor, en ekki er enn vitað
hvort hinn heppni Hollendingur
hyggst selja þær. Sjálfur mun
hann hafa greitt átján hundruð
krónur fyrir bækurnar.
Þj áningarmy nstur
MYNDLIST
Listasafn ASÍ,
Gryfjunni, Ásmundarsal
MÁLVERK
BRYNIII L 1)11 II
GUIIMUNDSIlðTTIR
Til 22. ágúst. Opið þriðjudag
til sunnudags kl. 14-18.
Aðgangur 200 kr.
BRYNHILDUR Guðmunds-
dóttir sýnir um þessar mundir í
Gryfjunni í Ásmundarsal, Lista-
safni ASÍ við Freyjugötu. Upp-
sprettan að verkum hennar er í
senn þjáning og blóðtaka en
bernskuminning um slátran bland-
ast hugrenningum um krossfest-
inguna. Af því leiðir sérkennilegt
mynstur sem í fljótu bragði lítur út
eins og bólstrun en ber að skoðast
sem krossfesting á Andrésar-
krossi, en slíkur kross er exlaga í
stað þess að vera plúslaga.
I Tímæosi talar Platón um
himnasmiðinn sem græðir verald-
arsálina með því að rimpa hana
saman í Andrésarkross. Þannig átti
hann að hafa mægt æðri og lægri
heima samkvæmt ævafornri þjóð-
trú. Hvort Brynhildur hefur sökkt
sér ofan í táknspeki Forn-Grikkja
liggur milli hluta en Jung mundi
hafa sagt að væri henni ókunnugt
um hugmyndir Platóns væri hér
komin enn ein sönnunin fyrir þeirri
samfélagslegu vitund sem hann
taldi að fylgdi hverri mannvera og
opinberaðist í sameiginlegum tákn-
heimi þjóðanna, svonefndum fram-
gerðum - erkitýpum - af hverjum
FRÁ sýningu Brynhildar Guðmundsdóttur í Grylju Listasafns ASÍ.
Andrésarkrossinn væri eitt dæmi
af mörgum.
Gaman væri ef Brynhildur væri
að pæla á þessum nótum því enda
þótt hún væri fjarri því að vera eini
listamaðurinn sem hefði látið hríf-
ast af hinum umdeildu kenningum
Jungs mætti fínna í verkum henn-
ar tengsl við ýmsar merkilegar
kenningar sem áttu hug manna
fyrr á öldinni.
Þetta er orðað svona vegna þess
að án nokkurra dýpri hugmynda
heldur tilraun Brynhildar til að
fegra hið ljóta og sársaukafulla
ekki vatni með þeim aðferðum sem
hún temur sér. Svo ákaft hafa lista-
menn eftirstríðsáranna gengið í
smiðju tO þjáningarinnar og ljót-
leikans að það þarf eitthvað allt
annað og meira tO að hreyfa við
okkur en stflfærða krossfestingu
útfærða sem tíglamynstur. Sú tíð
er löngu liðin að áhorfandinn kenni
til frammi fyrir svo óræðri fram-
setningu. Listakonan þarf því að
viða að sér mun hvassara og átak-
anlegra myndmáli ef hún ætlar sér
að miðla því tfl okkar sem hún seg-
ist vildu sagt hafa.
Halldór Björn Runólfsson
Barnavagnar
Rauðarárstfg 16,
Sími 561 0120.