Morgunblaðið - 11.08.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 39
HELGI
BJARNASON
+ Helgi Bjarnason
fæddist á Prest-
hólum í Núpasveit
9. október 1925.
Hann varð bráð-
kvaddur á Húsavík
28. júlí síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Húsavík-
urkirkju 6. ágúst.
Nú er Helgi Bjama-
son, mágur minn, allur.
Það er sjónarsviptir að
honum. Við vorum
samferðamenn og vinir
í rúm íimmtíu ár. Helgi var einn af
þeim mönnum sem skilja mikið eftir
sig. Hann var svo mikill á velli,
þrekmikill, kjarkmikill, kátur,
skemmtilegur og aðlaðandi að fáa
hef ég hitt sem áttu þessa kosti alla
í svo ríkum mæli.
Eg kynntist Helga þegar hann og
Jóhanna, systir mín, voru tekin sam-
an og farin að búa á Ásgarðsvegi 15
á Húsavík. Það hús byggði Helgi yf-
ir foreldra sína og systkini þegar
hann var um tvítugt og þótti með
ólíkindum að svo ungur maður færð-
ist svo mikið í fang. Þar hófu þau Jó-
hanna búskap og bjuggu þar æ síð-
an. Þangað var gott að
koma. Helgi var stór-
huga og fór tO Dan-
merkur árið 1955 til að
láta smíða fiskibát, sem
hann gaf nafn eftir
móðurafa sínum, Helga
Flóventssyni.
Gunnar Bjarnason
hrossaræktarráðu-
nautur fæddist á Húsa-
vík og ólst þar upp á
stóru heimili þar sem
gestkvæmt var. Hann
segir svo í æviminning-
um sínum um Helga
Flóventsson: „I vina-
hópnum var svo meðal annars Helgi
Flóventsson sem var mikill bóhem
og frábær skemmtikraftur. Eg
komst fljótt á þá skoðun, sem ég hef
ekki farið ofan af síðan, að Helgi
hafi verið mesti leikari í heimi.“
Helgi Bjamason var líka frábær
sögumaður, söngmaður og leikari
og efaðist enginn um að það sækti
hann til afa síns. Þegar hann lék
Skugga-Svein á sviði á Húsavík féll
hann beint inn í hlutverkið. Stærð-
in, krafturinn, mikilúðlegt andlitið
og svipbrigðin, ásamt drynjandi
röddinni, sýndi mönnum Skugga-
Svein Ijóslifandi.
GUÐRÚN
ÓLAFSDÓTTIR
+ Guðrún Ólafs-
dóttir fæddist í
Ásgarði í Hvamms-
hreppi í Dalasýslu
9. maí 1906. Hún
lést í St. Frans-
iskusspítalnum í
Stykkishólmi 31.
júlí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru, Jakobína Sig-
mundsdóttir, f. 5.
febrúar 1876, d. 2.
janúar 1960, og
Ólafur Einarsson, f.
3. desember 1867,
d. 7. mars 1942.
Systkini Guðrúnar eru: María, f.
10. maí 1904, d. 5. sept 1962,
Sigmundur, f. 20. des. 1907, d.
13. janúar 1973, Sigurbjörg, f.
3. ágúst 1910, og Sigurður, f. 6.
mars 1913.
Hinn 25. júlí 1926 giftist Guð-
rún Ellert Jóhannessyni, f. 26.
júlí 1904, d. 17. sept. 1977. Böm
þeirra em: Kristjana
Ingibjörg, f. 16. maí
1926, maki Magnús
Ó. Jónsson, Bene-
dikta Anna, f. 20.
ágúst 1927, d. 17.
febr. 1928, Láms
Kristinn, f. 20 sept.
1928, d. 13. janúar
1956, Jóhanna Guð-
ríður, f. 14. sept.
1931, d. 19. aprfl
1993, maki Finnbogi
Ólafsson, Ólafur
Agnar, f. 17. ágúst
1934, maki Ingibjörg
Björgvinsdóttir,
Ingimar Hólm, f. 21. okt. 1940,
maki Sigurrós Berg Sigurðar-
dóttir, Olöf Þórey, f. 22. jan.
1948, maki Páll Guðmundsson.
Guðrún stundaði húsmóður-
og sveitastörf.
Útför Guðrúnar fór fram frá
Stykkishólmskirkju þriðjudag-
inn 10. ágúst.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast hennar ömmu minnar sem
látin er 93 ára gömul.
Foreldrar mínir, amma og afi
bjuggu saman, fyrst í Lambanesi í
Saurbæ og síðan í Vík við Stykkis-
hólm, eða þar til ég var 14 ára
gömul. Var það yndislegur tími og
naut ég þess að alast upp með þau
á heimilinu.
Fyrstu minningarnar um ömmu
eru frá því að hún var að greiða og
flétta á sér hárið og elta litla
grenjuskjóðu út á tún til að hugga
og gera gott úr hlutunum.
Eg minnist þess líka að hafa far-
ið í messu á sunnudögum með
ömmu og að ég hafi átt fullt í fangi
með að sitja kyrr og hafa hljótt þá
stund sem messan stóð yfir.
Svo þegar ég fór að hafa svolítið
meira vit, kenndi hún mér að
prjóna og hekla, því yfírleitt hafði
hún prjónana við höndina og ekki
óalgengt að hún sæti með þá við
eldhúsborðið og læsi í bók, því fátt
vissi hún skemmtilegra en að lesa.
Einnig naut hún þess að spila og
var hvert tækifæri notað til þess og
sérstaklega ef fjölskyldan var sam-
an komin, þá yfirleitt um jólin, í
jóladagskaffinu á Skúlagötunni. Þá
var nú oft líflegt við spilamennsk-
una og silfurdósin með tóbakinu
tekin úr svuntuvasanum og látin
ganga.
Þá var ekki ónýtt að komast í
bækurnar hennar ömmu og gleyma
sér yfír þeim, en ég er ekki viss um
að mamma hafi verið eins hrifin
þegar ég átti að vera að hjálpa til
við heimilisstörfm.
Þegar amma og afi fluttust á
Skúlagötuna var ansi oft komið við
hjá þeim á leiðinni heim úr skólan-
um og eftir að ég fluttist norður
var alltaf fyrsta verkið að heilsa
upp á þau, þegar við komum í
heimsókn í Hólminn. Og alltaf var
vel tekið á móti okkur með ein-
hverjum kræsingum.
Mér þótti vænt um að fá tæki-
færi til að hafa veislukaffi fyrir
ömmu og afa á 50 ára brúðkaups-
daginn þeirra en þá var Ingimar
með þeim á ferðalagi um Norður-
land. Við hjónin, vorum rétt að
byrja búskap í eigin húsnæði.
Þetta var í eina skiptið sem afi kom
til okkar en amma kom oftast á
hverju ári meðan heilsan leyfði.
Amma kom alltaf til dyranna
eins og hún var klædd, reyndi
aldrei að sýnast önnur en hún var.
Amma, sem alltaf var hugljúf og
hlýleg var alltaf til staðar, ef henn-
ar var þörf.
Hafðu þökk fyrir allt, megi al-
góður Guð geyma þig og blessa
minningu þína.
Helga Ó. Finnbogadóttir.
Það var gott að vera með Helga
við allar aðstæður. Eg var skráður
háseti frá Færeyjum til fslands á
„Helga Flóventssyni" þegar hann
kom heim frá Danmörku haustið
1955. Þá hjálpaði Helgi mágur mér
með einfoldum ráðum að yfirvinna
sjóveiki sem hrjáði mig. Þegar hún
var að baki var ferðin til Húsavíkur
samfelld skemmtiferð.
Eg komst stundum í laxveiði með
Helga fyrir norðan. Þar var hann á
heimavelli. Þegar ég var með lax á
og komið að því að landa var Helgi
strax kominn út í ána með háf, á
svig við laxinn, og sá til þess að ekk-
ert færi úrskeiðis. Einu sinni vildi
svo til, í skollitaðri á, að háfskaftið
brotnaði þegar Helgi var að færa
háfinn undir laxinn. Fiskurinn tók
kipp um leið og losnaði af önglinum,
en Helgi sá hvað var að gerast,
beygði sig eldsnöggt niður, kom
báðum höndum undir laxinn og
vippaði honum á land.
Helgi var fiskinn á sjó og í
ferskvatni, ötul rjúpnaskytta og
reyndi aðeins fyrir sér á hreindýra-
veiðum líka. Hann var veiðimaður
að upplagi og lagði sálina í veiði-
skapinn. Það var gaman að koma úr
veiðitúr til Húsavíkur eftir vel
heppnaðan dag, með nokkra góða
laxa í skottinu á Landróver Helga.
Þá fengu þeir sem komu í heimsókn
að skoða veiðina og heyra hvemig
hefði tekist að koma hverjum laxi
um sig á land, hvað þeir væru langir
og þungir, og í kaupbæti svolítið um
það hvernig þeim sem voru á hinum
bakkanum hefði gengið.
Helgi og Jóhanna voru farsæl í
lífi sínu. Þau eignuðust fimm mann-
vænleg böm sem em mikils metin
hvert í sínu hlutverki í þjóðfélaginu.
Síðustu árin sóttu þó ýmis alvarleg
veikindi að þeim hjónum báðum, en
með aðstoð góðra lækna og barna
sinna, og með hvort annars hjálp,
tókst þeim með ólíkindum vel að
komast tfl heilsu á nýjan leik. Þegar
við hjónin komum í heimsókn til
þeirra í júnílok í sumar vom þau
svo hress og kát að eftirminnilegt
verður. Þá ræddi Helgi af miklum
áhuga um sjóminjasafn sem verið er
að koma á fót á Húsavík, en hann
lagði stofnun safnsins lið eftir að
hann var hættur öðrum störfum.
Helgi var vinsæll og vinmargur.
Það verður vinum og ættingjum
söknuður að sterk og hljómmikil
rödd hans skuli vera þögnuð. En
Helgi mun lifa lengi í minningu
þeirra sem þekktu hann.
Stefán Aðalsteinsson.
+
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur ómetanlega vináttu, hlýhug og
samúð við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengaföður, afa og langafa,
HELGA BJARNASONAR,
Ásgarðsvegi 15,
Húsavík.
Ykkar samúð er okkur mikill styrkur.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Aðalsteinsdóttir,
Aðalsteinn Helgason,
Kristjana Helgadóttír,
Bjarni Hafþór Helgason,
Helgi Helgason,
Ingibjörg Helgadóttir,
Ágústa Á. Þorsteinsdóttir,
Arnar Björnsson,
Laufey Sigurðardóttir,
Anna Guðrún Garðarsdóttir,
Halldór Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Alúðarþakkir fyrir samúð og vinarhug við
andlát og útför
SIGTRYGGS JÚLÍUSSONAR
rakarameistara,
Byggðavegi 99,
Akureyri.
Jóhanna Jóhannsdóttir,
Róshildur Sigtryggsdóttir, Baldvin Jóh. Bjarnason,
Margrét Sigtryggsdóttir, Jón A. Baldvinsson,
Sigríður Kristín Sigtryggsdóttir, Guðmundur Svanlaugsson
og fjölskyldur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og lángömmu,
INGVELDAR HALLMUNDSDÓTTUR,
Þingvallastræti 29,
Akureyri.
Kristinn Sigmundsson,
Hörður Kristinsson, Sigrún Sigurðardóttir,
Magnús Kristinsson, Birgitte Kristinsson,
Hallmundur Kristinsson, Anna Lilja Harðardóttir,
Kristinn Örn Kristinsson, Lilja Hjaltadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel írá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minning@mbl.-
is) —vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem við-
hengi.
Auðveldust er móttaka svokall-
aðra ASCII skráa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-texta-
skrár. Þá eru ritvinnslukerfin
Word og WordPerfect einnig
nokkuð auðveld úrvinnslu.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar
greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubiml og
hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í
blaðinu). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Greinarhöfundar
eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
+
Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför hjartkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
FINNS G.K. DANÍELSSONAR
fyrrverandi skipstjóra,
Víðilundi 20,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Kristnesspítala og á
hjúkrunarheimilinu Seli.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmunda Pétursdóttir,
Guðmundur Finnsson, Hallbera Ágústsdóttir,
Valur Finnsson, Arna Dóra Svavarsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, ömmu, langömmu og langalangömmu,
ELSU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Holtsgötu 35,
Reykjavík.
Guðni E. Gestsson,
Helgi Gestsson,
Guðmundur Gestsson,
Ingibjörg Gestsdóttir,
Jenný Steindórsdóttir,
Margrét Sigurðardóttir,
Árný M. Jónsdóttir,
Sólveig Daníelsdóttir,
Páll Kristófersson,
Halldór Guðmundsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.