Morgunblaðið - 22.10.1999, Page 4

Morgunblaðið - 22.10.1999, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsetinn í höll Friðriks mikla Borgarblöðin fjalla um Norður- ljósin yfír Berlín Berlín. Morgunblaðið. ÓLAFUR Ragnar Grímsson for- seti hélt síðdegis í dag brott frá Berlín eftir að hafa heimsótt Potsdam fyrr um daginn og skoðað Sanssouci, höll Friðriks mikla Prússakeisara. Manfred Stolpe, forsætisráðherra Brand- enborgar, tók á móti Ólafi Ragn- ari í Cecilienhof þar sem leiðtog- ar Vesturveldanna héldu í lok heimsstyrjaldarinnar síðari ráð- stefnu, sem siðan hefur verið kennd við Potsdam. Stolpe bauð forsetanum ásamt fylgdarliði, þar á meðal Ingi- mundi Sigfussyni, sendiherra ís- lands í Berlín, og Valgerði Vals- dóttur, konu hans, til hádegis- verðar. Fór vel á með Stolpe og Ólafi Ragnari og ræddu þeir með- al annars stöðu mála í Evrópu. Síðar í gær kvöddu sendi- herrahjónin Ólaf Ragnar og Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra á Tegel-flugvelli í Berlín. Ólafur Ragnar var staddur hér í Berlín ásamt þjóðhöfðingj- um hinna Norðurlandanna fjög- urra í tilefni af vígslu sendiráðs- bygginga Norðurlandanna og sameiginlegrar byggingar á einni lóð. Mikið hefur verið Ijall- að um þennan atburð í fjölmiðl- um hér og hefur bæði verið tekið til þess að einstætt sé að fimm rfki taki sig saman um að reisa sendiráð og eins þess að senni- lega hafí ekki verið jafn margt kóngafólk verið saman komið í borginni frá því hér ríkti siðast keisari. Dagblöð hér settu myndir frá vígslunni á forsíðu og yfir mynd af þjóðhöfðingjunum á blaðinu Der Tagesspiegel var yfírskrift- in „Með hatta í stað kórónu“, en inni í blaðinu var fyrirsögnin „Athöfn fyrir nýja tíma“. Virtist ekki laust við að sumir Berlínar- búar hefðu orðið fyrir vonbrigð- um þegar hvorki brá fyrir kór- ónum né veldissprofum. I frétt blaðsins Berliner Morg- enposter vitnað í ræðu forseta Islands við vígsluathöfnina á •miðvikudag í löngu máli og í Der Tagesspiegel segir að hann hafi talað einstaklega góða þýsku. Bæði blöðin vitna einnig í Mar- gréti Danadrottningu, sem talaði við athöfnina í krafti þess að enginn þjóðhöfðingi á Norður- löndum hefur verið lengur við Morgunblaðið/Reuters Þjóðvcrjurn fannst athyglisvert að norrænu drottningarnar báru hatta en ekki kórónur. Á myndinni eru Mar- grét II Danadrottning og Sonja Noregsdrottning. völd, og sagði í því síðarnefnda að vart hafí mátt greina hreim í ræðu hennar. I Der Tagesspiegel kemur fram að meðal gesta við athöfn- ina hafí verið Rut Brandt, ekkja Willys Brandts, fyrrverandi kanslara og borgarstjóra Berlín- ar. Brandt fæddist í Noregi og segir að hún hafi ljómað og þótt athöfnin frábær, en sendiráðs- byggingarnar standa við sömu götu og herráð Norðmanna þar sem hún fékk vinnu 1947 fyrst eftir að hún kom til borgarinnar. í blaðinu BZ gat að líta fyrir- sögnina „Norðurljós yfír Berlín" og hófst grein blaðsins á því að aðallinn með blátt blóð í æðum og óbreyttir borgarar hefðu mátt norpa saman í kuldanum við athöfnina. + ____________________ •• Halldór Asgrímsson og Vollebæk funda um málefni Evrópuráðsins og OSE Dæmi um hreina sam- keppni milli stofnananna Berlín. Morgunblaðið. BEIN samkeppni milli Evrópuráðs- ins og Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu og leiðir til að koma í veg fyrir hana var efni fundar, sem Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra og Knut Vollebæk, utanríkis- ráðherra Noregs, héldu á miðviku- dag. Halldór, sem nú er formaður ráðherranefndar Evrópuráðsins, og Vollebæk, sem nú er formaður ráðherranefndar Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu, notfærðu sér að þeir voru báðir staddir í Berlín vegna vígslu norrænu sendi- ráðanna til að funda um málefni stofnananna, sem þeir eru í forsæti hjá. Halldór sagði að tilgangurinn „Aðalatriðið hlýtur að vera að ná árangri, en ekki hver stendur fyrir því“ hefði fyrst og fremst verið að fara yfír samstarf Evrópuráðsins og ÓSE. „Það er ljóst að á mörgum sviðum eru þessar stofnanir að gera svipaða hluti,“ sagði Halldór. „Það hafa komið upp dæmi um hreina samkeppni á milli þeirra og það er afar þýðingarmikið að koma í veg fyrir slíkt. Báðar þessar stofnanir eru að vinna að mann- réttindum og bættu lýðræði. I Evr- ópuráðinu liggur grundvöllurinn, það er að segja reglurnar, lagara- mminn, dómstóllinn. Hjá Öryggis- og sammvinnustofnun Evrópu er meira um margvíslega framkvæmd eins og í eftirliti og að fylgja eftir margvíslegum málum og koma inn í átök og sundurlyndi. Það er nátt- úrulega alveg ljóst að fínna þarf ákveðin landamæri á milli þessara stofnana. Þess vegna höfum við í okkar formennsku reynt að gera meira af því að sameina kra'ftana, vera saman í verkefnum og Norð- menn hafa unnið með okkur i því og verið okkur sammála." Hann sagði að þetta ætti til dæmis við um stöðugleikaáætlun- ina fyrir Balkanskaga þar sem verkefni Evrópuráðsins og ÖSE blönduðust að nokkru leyti saman: „Því að aðalatriðið hlýtur að vera að ná árangri, en ekki hver stend- ur fyrir því.“ Halldór sagði að menn hefðu nú áhyggjur af því hvað hægt gengi í Kosovo og hvað stöðugleikaáætl- unin hefði farið hægt af stað. Gefnar hefðu verið út miklar yfir- lýsingar um framkvæmd og mikl- ar væntingar skapaðar á þessu svæði og nú væri farið að gæta óþreyju vegna þess að fólki fynd- ist að efndir væru ekki í samræmi við orð. Kónga- fólk, for- setar... og einn keisari Berlín. Morgunblaðið. ÞJÓÐHOFÐINGJAR Norð- urlandanna gistu á Hótel Adlon meðan á dvöl þeirra stóð hér í Berlrn. En það var ekki nóg með að á hót- elinu væru tveir kóngar, ein drottning og tveir forsetar því að þar var einnig keis- ari. Franz Beckenbauer, fyrr- verandi landsliðseinvaldur Þýskalands og núverandi einvaldur hjá Bayern sMuenchen, var einnig á Adlon í fylgd með Alan Rot- henberg, formanni sendi- nefndar Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins (FIFA), sem var á ferð hér í Berlín til að skoða knattspyrnu- velli vegna umsóknar Þjóð- veija um að halda heims- meistarakeppnina í knatt- spyrnu árið 2004. Keisarinn Beckenbauer var því að spóka sig á finasta hóteli Berlínar í vikunni innan um hina norrænu kónga, drottningar og forseta. Hæstiréttur fellir dóm um gjald til búnaðarmálasjóðs og framleiðsluráðs Þarf ekki að greiða framleiðslugj öid HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað bónda á Norðurlandi, sem hefur lát- ið slátra dilkum í sláturhúsi, en selt afurðirnar heima hjá sér, af kröfum Framleiðsluráðs landbúnaðarins um greiðslu búnaðarmálasjóðs- gjalds, að meðtöldu gjaldi í Bjarg- ráðasjóð, og greiðslu á framleiðslu- ráðsgjaldi. Bóndanum ber hins veg- ar að greiða neytenda- og jöfnunar- gjald vegná áranna 1994 og 1995. Bóndinn hefur verið með sauð- fjárbúskap í nokkur ár, en ekki not- ið beingreiðslna vegna þess. Dilkum er slátrað í sláturhúsi, en bóndinn tekur afurðimar heim og selur sjálfur það sem ekki er notað til heimilisins. Framleiðsluráð land- búnaðarins krafði bóndann um greiðslu búnaðarmálasjóðsgjalds auk bjargráðasjóðsgjalds, fram- leiðsluráðsgjalds, og neytenda- og jöfnunargjalds vegna heimtekins lambakjöts, fyrir árin 1994 og 1995. I dómi Hæstaréttar kemur fram, að búnaðarmálasjóðsgjaldið var ekki aðeins reiknað af því verði sem stjórnvöld höfðu ákveðið að millilið- ir að smásöludreifingu ættu að greiða framleiðendum, heldur einnig af beingreiðslum til framleið- enda. Þar sem bóndinn naut ekki beingreiðslna var þessi innheimta talin ólögmæt, sem og innheimta bjargráðasjóðsgjalds, sem var eins reiknað. Hvað varðaði álagningu fram- leiðsluráðsgjaldsins fyrir árið 1994 taldi Hæstiréttur að skattlagning- arheimild 25. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum samrýmdist ekki 40. og 77. gr. stjómarskrárinnar, sem leggja bann við því að fela stjórn- völdum að ákveða skatt, breyta honum og afnema, með svo almenn- um hætti sem gert var í búvörulög- unum, þar sem ráðherra var heimil- að að kveða á um innheimtu fram- leiðslugjaldsins og mátti gjaldið vera mishátt eftir tegundum. Hvað varðaði álagningu fram- leiðsluráðsgjaldsins fyrir árið 1995, en þá hafði 25. gr. laga nr. 99/1993 verið breytt með lögum nr. 124/1994, taldi Hæstiréttur að óheimilt hefði verið að telja bein- greiðslur til framleiðanda til heild- söluverðs við ákvörðun gjaldstofns. Heimilt að ákveða gjald- stofninn með þessum hætti Varðandi greiðslu neytenda- og jöfnunargjalds sagði Hæstiréttur, að skilja yrði 3. tl. 4. gr. laga nr. 45/1971 um Stofnlánadeild landbún- aðarins, landnám, ræktun og bygg- ingu í sveitum, sbr. 1. gr. laga nr. 41/1982, þar sem kveðið var á um viðmiðunarverð við útreikning gjaldsins svo, að almenni löggjafínn hefði ákveðið gjaldstofninn almennt þannig, að einnig yrði miðað við beingreiðslur, án tillits til þess hvert verð einstakir framleiðendui’ | fengju í raun. Hæstiréttur sagði löggjafanum hafa verið heimilt að ákveða gjaldstofninn með þessum ? hætti enda erfítt að afla upplýsinga um hvaða verð hver framleiðandi fengi fyrir framleiðslu sína þegar eins háttaði til um hann og bónd- ann. Hæstiréttur taldi því þessa ákvörðun gjaldstofnsins ekki brjóta gegn jafnræðisreglu 65. gi\ stjórn- arski-árinnar. Bóndinn var því sýknaður af greiðslu búnaðamálasjóðsgjalds og framleiðsluráðsgjalds, en dæmdur til þess að greiða neytenda- og jöfn- unargjald vegna áranna 1994 og 1995.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.