Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 4& + Magnús Magn- ússon fæddist á Akranesi 18. febrú- ar 1909. Hann lést í Sjúkrahúsi Akra- ness 12. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Magnús Magnússon, f. 1876, d. 1949, og Guðrún Símonardóttir, f. 1888, d. 1965. Bjuggu þau á Sönd- um á Akranesi. Systkinin voru 13 og var Magnús elst- ur þeirra, þá Aðal- heiður, f. 1910, d. 1926, Ragn- hildur Sigríður, f. 1912, d. 1930, Helga Margrét, f. 1914, d. 1994, Guðbjörg, f. 1916, d. 1995, Ragnheiður, f. 1920, d. 1989, Eggert, f. 1921, d. 1988, Mar- grét, f. 1922, d. 1990, Hallgrím- ur, f. 1924, Ásta, f. 1925, Aðal- heiður, f. 1926, Sigurður, f. 1930, d. 1993, og Ragnar, f. 1931. Magnús ól allan sinn aldur á Akranesi, að mestu á Sanda- torfunni. Hann var húsa- og skipasmiður og vann við skipa- Kveðja frá Þorgeiri & Ellerti hf. I dag er gerð frá Akraneskirkju útför Magnúsar Magnússonar skipasmíðameistara sem kenndur var við Sanda á Akranesi. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Símonar- dóttir og Magnús Magnússon á Vestri-Söndum, en hann var nafn- togaður bátasmiður. Magnús ólst upp í stórum hópi systkina og var elstur þeirra. Hann hefur eðlilega fylgst náið með störfum föður síns og rétt honum hjálparhönd við báta- smíðarnar. En hvemig sem því hef- ur verið farið lagði sonurinn fyrst fyrir sig húsasmíði en hóf síðan nám í skipasmíði undir handleiðslu Eyj- ólfs Gíslasonai'. Magnús var svo bráðger í sínu fagi að hann var orð- inn verkstjóri í skipasmíðum og við- gerðum áður en formlegum náms- tíma lauk. Hann var yfirverkstjóri hjá Dráttarbraut Akraness um ára- bil og stjómaði þar daglegum verk- um auk þess sem hann gerði upp- drætti að mörgum tréskipum, sem smíðuð vora undir hans stjórn. Magnús var á yngri áram þátttak- andi í íþróttum og varði mark Knatt- spymufélags Akraness við góðan orðstír, en hann sýktist af berklum og dvaldi á Vífilsstöðum um nær tveggja ára skeið. Mörgum áram síðar tóku veikindin sig upp aftur og hann dvaldi á Vífilsstöðum í eitt ár. Meðan á síðari dvöl hans stóð á Víf- ilsstöðum gerði hann m.a. uppdrætti að allstóram báti, Sigrúnu AK, er smíðaður var á Akranesi. Fljótlega eftir heimkomuna frá Vífilsstöðum hóf Magnús störf á tæknideild Þorgeirs & Ellerts hf., sem stofnað var með sameiningu Dráttarbrautar Akraness og Vél- smiðjunnar Þorgeir & Ellert sf. Vann Magnús við gerð uppdrátta að stálskipum og náði mikilli leikni í þeim störfum, sérstaklega í gerð stálteikninga. Magnús var við þessi störf til 82 ára aldurs og skilaði miklu ævistarfi. Magnús Magnússon var sérstak- lega fær og verklaginn smiður og framúrskarandi duglegur maður. Fagleg þekking hans var traust, enda kenndi hann um árabil fag- teikningu skipasmiða í Iðnskóla Akraness. Hann var vandaður mað- ur til orðs og æðis, sem gaf sig ekki að masi heldur sinnti störfum sínum af kostgæfni. Eftirlifandi eiginkona Magnúsar Magnússonar er Guðmunda Stef- ánsdóttir og börn þeirra era þrjú. Eg færi þeim öllum innilegar sam- úðarkveðjur og votta minningu Magnúsar Magnússonai- virðingu mína. Þorgeir Jósefsson, framkvæmdastjóri Þorgeirs & Ellerts hf. smíðar í rúm 50 ár hjá sama fyrirtæk- inu, Þorgeiri og Ell- ert hf. Hinn 14. des. 1946 kvæntist Magnús eftirlifandi eigin- konu sinni, Guð- mundu Stefánsdótt- ur frá Skipanesi í Leirársveit, f. 1926, og eignuðust þau þrjú börn. Þau eru: 1) Magnús skipa- smiður á Akranesi, f. 1948, unnusta Halla Bergsdóttir kennari, f. 1948. Börn hans og Margrétar Markúsdóttur eru Berglind, f. 1976, og Þóra, f. 1980. 2) Guðmunda Magnea, leiðbeinandi, f. 1950, gift Sæ- mundi Hafsteini Jóhannessyni sveitarstjóra í Vík í Mýrdal, f. 1950. Börn þeirra: Magnús Orri, f. 1974, Jóhanna Friðrika, f. 1980, og Guðmundur Óli, f. 1987, d. 1988. 3) Guðríður Ólaf- ía bókari í Reykjavík, f. 1955. títför Magnúsar fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku afi. Okkur langai- til þess að minnast þín með nokkram orðum og hve góður þú varst okkur. Eftir að við fluttumst frá Skaganum komum við í heimsókn mánaðarlega og alltaf tókst þú á móti okkur með þínum mikla hlýleika og góðvild. Alltaf varst þú til staðar ef eitthvað bjátaði á, alveg sama hve lítið það var, og náðir þú fljótt að láta okkur gleyma því og hafðir alltaf góðai- sögur að segja okkur. Við tölum nú ekki um spilastokkinn sem aldrei var langt undan. Þú varst yndislegur og hafð- ir til að bera mikinn persónuljóma. Nú ert þú farinn og viljum við þakka þér fyrir þær undursamlegu minningar sem munu sitja djúpt í hjarta okkar um alla tíð. Minning þín lifir. Berglind og Þóra. Elsku afi. Nú þegar komið er að kveðjustund þá sækja að mér ljúfar minningar um þig. Eg minnist þess þegar ég var lítill drengur í heim- sókn hjá þér og ömmu að ég hljóp alltaf upp í rúm til ykkar á morgn- ana m.a. til að fá cheerios, coco puffs og rúsínur í glas í rúmið. Gönguferðirnar vestur í kletta til að veiða hornsfli voru ófáar og alltaf varst þú til í að spila við mig og ótrúlega oft var það ég sem vann og fékk þar að auki að spila eins mikið og ég vildi. Mikið óskaplega er erfitt að kveðja þig. En ég er einstaklega ríkur að hafa þekkt þig. Ég kem til með að minnast þín alla ævi sem góðhjartaðs og gefandi manns. Þú hefur a.m.k. gefið mér mjög margt. Elsku amma, guð gefi þér styrk í sorginni. Þinn afastrákur, Magnús Orri Sæmundsson. Kæri afi. Þær eru ófáar stundim- ar sem ég hef eytt með þér hér við hefilbekkinn uppi á háalofti. Hér urðu til ýmsir gripir sem þú hjálp- aðir mér við að smíða með lagni þinni og nákvæmni. Þegar ég kom í heimsókn var ég alltaf uppfull af hugmyndum um hvað ég gæti nú smíðað hjá afa. Spennan var gífur- leg, að fá að hlaupa á móti þér þeg- ar þú labbaðir heim úr skipasmíða- stöðinni að loknum vinnudegi og til- kynna þér nýjustu hugmyndirnar með æsingi og fá á móti þetta ró- lyndislega og glettna bros sem alltaf einkenndi þig. Þrátt fyrir veikindi þín fékk maður alltaf þetta bros og einnig þegar ég kvaddi þig í síðasta sinn. Þá sendir þú mér bros- ið og ég gat ekki annað en brosað á móti. Þessar hugmyndir mínar gátu verið frá litlum bátum og upp í fín- ustu barbie-innréttingar sem und- antekningarlaust urðu að veraleika undir þinni stjórn. Ég minnist þess alltaf hve laginn þú varst og allt var gert af mikilli hugsun og nákvæmni. Ég vildi alltaf rampa þessu af, saga, negla og pússa, helst allt á sömu sekúndunni. Vinnubrögð þín koma oft upp í huga minn núna þegar ég sit og prjóna, sauma eða vinn annað sem þarfnast þolinmæði og lagni og þá reyni ég að hægja á mér og sé fyrir mér hve hlutimir urðu alltaf fallegir hjá þér. Þegar árin liðu fór stundunum með þér á háaloftinu að fækka, ég var orðin of stór fyrir barbie-leik- föngin og þú varst orðinn veikur. En þrátt fyrir að þú færir ekki með mér hingað upp síðustu árin þá fór ég. Ég var að vísu hætt að smíða en í staðinn fékk ég leyfi hjá ömmu til að fara upp á loft, með því skil- yrði að ég færi varlega í stiganum, til að gramsa í kössum fullum af gömlum fötum sem ég valdi mér úr og flutti heim, móður minni til óblandinnar ánægju eða hitt þó heldur. Mér finnst ómissandi að koma hingað upp á loft þegar ég kem á Skagann þó ekki sé nema bara til að njóta kyrrðarinnar og rólyndisins, sem hér réði alltaf i-íkjum undir þinni stjórn, og hugsa um lífið og tilveruna og hin hvers- daglegu vandamál. Afi, ég þakka þér fyrir þessar ógleymanlegu stundir og ég veit að þér líður vel núna því að þú heim- sóttir mig í síðustu andardráttunum þínum og við sofnuðum saman þetta kvöld, munurinn var sá að við vökn- uðum upp hvort í sínum heiminum. Seinna mun ég svo koma í þinn heim og þá hittumst við á ný. Bless á meðan. Þín Jóhanna Friðrika. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKARJACOBSEN, Vesturvör 27, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 20. október sl. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Magnúsdóttir og aðstandendur. ■ Ástkær faðir okkar og afi, SIGVALDI J. DAGSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 19. október. Jarðarförin auglýst síðar. Guðný B. Sigvaldadóttir, Vigdís G. Sigvaldadóttir og barnabörn. MAGNUS MAGNÚSSON + Elsku litli drengurinn okkar, ANDRI FREYR ARNARSSON, Öldutúni 2, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 25. október kl. 15.30 Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrkt- arfélag krabbameinssjúkra barna eða Barna- spítala Hringsins. Fyrir hönd aðstandenda, Arnar Smári Þorvarðarson, Kristín H. Thorarensen, Egíll Þorri Arnarsson. r~ + Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR S. ÓLAFSDÓTTIR, Strandaseli 7, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skógabær föstudaginn 15. október sl. Útförin fer fram frá kirkju Fíladelfíusafnaðarins mánudaginn 25. október kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á kristniboðssjóð Fíladelfíu. • I Kristin og Bud Farling, Kristinn, Zeke, Susan og barnabarnabörn. + VALGERÐUR HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR, Hellatúni, Ásahreppi, Rangárvallasýslu, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 15. október síðastliðinn. Útför hennar verður frá Selfosskirkju laugar- daginn 23. október kl. 13.30. Jarðsett verður í Ási. Aðstandendur. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA EINARSDÓTTIR frá Burstarfelli í Vestmannaeyjum, Dalbraut 18, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 25. október kl. 13.30. Sigurbergur Hávarðsson, Anna Ragnarsdóttir, Erna Elíasdóttir, Garðar Stefánsson, Einar P. Elíasson, Anna Pálsdóttir, Sigfús Þór Elfasson, ólafía Ársælsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför BJÖRNS SIGURÐSSONAR frá Jaðri, Skagaströnd. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigurður F. Björnsson, Margrét Haraldsdóttir, Hallbjörn Björnsson, Guðný S. Sigurðardóttir, Guðmundur Björnsson, Þórunn Bernódusdóttir, Kristfn S. Björnsdóttir, Ágúst F. Jónsson, Engilráð Guðmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.