Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 33
_________UMRÆÐAN________
Staðreyndir um Fram-
kvæmdasjóð fatlaðra!
LANDSSAMTÖK-
IN Þroskahjálp héldu
fund fyrir skömmu.
Ein af ályktunum
fundarins voru mót-
mæli við því að tekjur
Framkvæmdasjóðs
fatlaðra yrðu skertar í
fjárlögum ársins 2000.
Af því tilefni vil ég
rifja eftirfarandi upp.
Framkvæmdasjóð-
ur fatlaðra hefur það
verkefni að kosta upp-
byggingu úrræða fyrir
fatlaða svo sem sam-
býla og dagvistarhús-
næðis. Ennfremur
styrkir hann úrbætur í aðgengis-
málum að opinberum byggingum.
Framkvæmdasjóðurinn hefur sam-
kvæmt lögum tekjur af erfða-
fjárskatti. Eftir því sem uppbygg-
ingu miðaði í úrræðum fyrir
fatlaða óx þörfin fyrir rekstrarfé,
en tveggja ára rekstur sambýlis
getur kostað sem svarar upphaf-
legum byggingarkostnaði. Þegar
kom fram á þennan áratug var far-
ið að taka fé úr Framkvæmdasjóði
og nota það til rekstrar. Árið 1994
voru framkvæmdapeningar sjóðs-
ins skertir um 25% og var þá frarn-
kvæmdafé hans 240 milljónir. A
fjárlögum fyrir 1995, en þau voru
undirbúin af Guðmundi Arna og
Rannveigu, var ákveðið að skerða
framkvæmdafé sjóðsins um 40%
og taka til rekstrar. Framkvæmda-
fé varð þá 192 milljónir. I fjárlög-
um 1996 var uppsetningu breytt,
þannig að létt var af Fram-
kvæmdasjóði að fjármagna rekstur
og það fé sem í hann rann fór til
framkvæmda, en það voru 154 mil-
ljónir. Erfðafjárskattstofninn var á
móti skertur og rann einungis hluti
hans í Framkvæmda-
sjóð en reksturinn var
alfarið fjármagnaður
úr ríkissjóði.
Framkvæmdafé
1997 var 165 milljónir,
1998 205 milljónir og
1999 235 milljónir. I
fjárlagafrumvarpi fyi'-
ir árið 2000 eru Fram-
kvæmdasjóði ætlaðar
235 milljónir eða 43
milljónum hærri upp-
hæð en rann til fram-
kvæmda á fjárlögum
1995 en þau fjárlög
undirbjuggu kratar
eins og áður sagði.
Stórhækkun til málefna
fatlaðra
Þegar ég tók við félagsmálaráð-
uneytinu 1995 hafði verið ákveðið
að verja til málefna fatlaðra 1.872
milljónum.
I frumvarpi til fjárlaga ársins
2000 er ætlað til málefna fatlaðra
3.457 milljónir. Það er hækkun um
1.585 milljónir eða 85% í mála-
flokknum. Hækkun til búsetu
(rekstrar sambýla og frekari lið-
veislu) síðan 1997 er 74%.
Nefnd er ég skipaði til að gera
tillögur um hvernig mætti eyða
biðlistum í úrræði fatlaðra hefur
skilað áliti og mun biðlistum verða
eytt á 7 árum. Unnið er eftir þeirri
áætlun og verða tekin í notkun 5
sambýli í Reykjavík og 5 á Reykja-
nesi á þessu ári og því næsta en á
þessum svæðum er þörfin fyrst og
fremst fýrir úrræði.
Rétt er að geta þess að í seinni
tíð höfum við í auknum mæli tekið
húsnæði á leigu fyrir búsetuúrræði
enda er það skjótvirkari leið til að
svara þörfinni en að byggja frá
Fatlaðir
Pað eru mikil öfugmæli,
segir Páll Pétursson,
að tala um að málefni
fatlaðra hafí orðið
fyrir skerðingum
þar sem hækkunin
hefur verið 85%.
grunni.
Erfðafjárskattur er sveifluk-
enndur tekjustofn og árlegar
tekjur af honum fara eftir því hve
mörg og stór dánarbú koma til
uppgjörs hverju sinni. Markaðir
tekjustofnar til sérstakra verkefna
eru enda að hverfa í ríkisrekstrin-
um.
Þótt hluti erfðafjárskatts hafi að
ákvörðun Alþingis með árlegum
ákvæðum í bandormslögum runnið
í ríkissjóð, þá hefur ríkissjóður
skilað þeim upphæðum margföld-
um til málefna fatlaðra. Peningar
til rekstrar teknir úr Fram-
kvæmdasjóði eru engu betri en
peningar til rekstrar teknir úr rík-
issjóði.
Málefnum fatlaðra hefur verið
veittur algjör forgangur varðandi
málaflokka félagsmálaráðuneytis-
ins. Það eru mikil öfugmæli að tala
um að málefni fatlaðra hafi orðið
fyrir skerðingum þar sem hækkun-
in hefur verið 85% þann tíma sem
ég hef farið með félagsmálaráðun-
eytið.
Höfundur er félugsmáluráðherra.
Páll Pétursson
UNDANFARNA
daga hafa birst grein-
ar á vegum Hjarta-
verndar. í greinunum
kemur fram hverjir
eru helstu áhættu-
þættir hjarta- og æða-
sjúkdóma. Þekking
okkar á þessum þátt-
um byggist á vísinda-
legum rannsóknum.
Rannsóknum sem
bæði leiða nýtt í ljós
og oftar en ekki stað-
festa það sem áður
hefur verið vitað. Allir
þekkja skaðsemi reyk-
inga en með rannsókn-
um á borð við þær sem
Hjartavernd framkvæmir er hægt
að sanna það með óyggjandi hætti.
Rannsóknir Hjartverndar hafa leitt
í ljós helstu áhættuþætti hjarta- og
æðasjúkdóma á Islandi. Niður-
stöður þessai-a rannsókna eru not-
aðar m.a. til að efla forvarnir á
þessu sviði.
Rannsóknir Hjartaverndar
Ágóðinn af sölu happdrættismiða
Hjartavemdar hefur í gegnum árin
skilað umtalsverðu framlagi til
rannsóknarstarfsemi Hjartavemd-
ar. Með afkomendarannsóknum
Hjartaverndar hefur skapast ein-
stakt tækifæri til að afla þekkingar
á tengslum ættemis við hjarta- og
æðasjúkdóma. Ekki em til nein
próf sem segja til um hverjir fá
hjartasjúkdóm eða ekki en rann-
sóknir Hjartaverndar gefa vís-
bendingu um líkurnar á því hvort
viðkomandi sé í meiri hættu en aðr-
ir til að fá hjartasjúkdóm. Rann-
sóknir Hjartaverndar
gera mögulegt að
beita forvörnum sem
byggðar eru á vísinda-
legum rannsóknum.
Með stuðningi þín-
um við happdrætti
Hjartaverndar ertu að
styðja , hjartarann-
sóknir á íslandi.
Fræðslustarfsemi
Hjartaverndar
Hjartavernd stend-
ur einnig fyrir fræðsl-
ustarfsemi. Stór liður í
starfsemi Hjarta-
vemdar er að niður-
stöður rannsókna
Hjartavernd
Þitt framlag, segir Ást-
rös Sverrisdóttir, til
fræðslu og rannsókna á
áhættuþáttum hjarta-
sjúkdóma skiptir máli.
Hjartavemdar á áhættuþáttum
hjai-ta- og æðasjúkdóma komist til
skila til almennings enda er fræðsl-
ustarfsemi samtakanna samtvinn-
uð rannsóknarstarfseminni.
Hjartavernd hefur um árabil gefið
út blaðið Hjartavernd þar sem nið-
urstöður rannsókna Hjartaverndar
eru kynntar. Einnig er athygli vak-
in á heimasíðu Hjartaverndar:
www.hjarta.is.
Hjartavernd, í samvinnu við
Manneldisráð og Krabbameinsfé-
lagið hefur gefið út matreiðslubók-
ina Af bestu lyst. Bókin hefur feng-
ið góðar viðtökur og hafa yfir 20
þúsund eintök selst.
Með stuðningi þínum við happ-
drætti Hjartaverndar ertu að
styðja fræðslustarfsemi samtak-
anna.
Fræðslustarfsemi Hjartavemd-
ar leitast við að: Gera almenningi
og yfirvöldum ljóst að hjarta- og
æðasjúkdómar valda mörgum
dauðsföllum eða ótímabærri ör-
orku.
Gera almenningi ljóst að með
heilbrigðu lífemi getum við hvert
og eitt verulega dregið úr tíðni
hjarta- og æðasjúkdóma.
Hafa áhrif á stefnumótun stjórn-
valda á sviði forvama og tækninýj-
unga í tengslum við hjarta- og æða-
sjúkdóma.
Happdrætti Hjartaverndar er
einu sinni á ári og því er mikilvægt
að vel takist til. Dregið verður á
morgun, laugardaginn 23. október.
Sala happdrættismiða stendur nú
sem hæst og fer hver að verða síð-
astur að kaupa miða. Við minnum
landsmenn á heimsenda happ-
drættismiða. Einnig er hægt að
kaupa happdrættismiða á skrif-
stofu félagsins að Lágmúla 9 og í
lausasölu. Lausasala happdrættis-
miða er í Kringlunni, Bókabúð
Grafarvogs, Lyfju Hamraborg í
Kópavogi, Bókabúð Jónasar og
Bókval Akureyri.
Þitt framlag til fræðslu og rann-
sókna á áhættuþáttum hjartasjúk-
dóma skiptir máli. Taktu þátt í
happdrætti Hjartaverndar.
Höfundur er fræðslufulltrúi Hjarta-
vcmdíir.
heitialife.is
nýr lífstíll
Rannsóknir
í þína þágu
Ástrós
Sverrisdóttir
Þetta er kortíö sem
eínfaldar allan rekstur
Mánaðarlegur reikningur og yfirlit
Öruggt kostnaðareftirlit
ia; '.’rawRjr.'*,-.;.'.' .. . __
Allur bílakostnaður ó einn reikning
Afsláttur hjá um 60 fyrirtækjum
Þú færð upplýsingar um Olískortið á www.olis.is
á bilum
nsk fram'eiðsla
úr PVC-U
yl r/H mymy//slif
án víðhalds!
Kjarnagluggar
Dalvegi 28 • 200 Kópavogi • Sími 564 4714 • Fax 564 4713
n ifÁ Helena
ij yv Rubinstein
Two Way
POWDER CAKE MAKE-llP
Nýr púðurfarði, sem nota
má þurran eða með
rökum svampi. Fljótlegur
í notkun og samlagast
húðinni fullkomlega.
KYNNING í dag og á morgun.
LÍTTU VIÐ OG FÁÐU RÁÐGJÖF.
Glæsilegur kaupauki
fylgir þegar verslað er fyrir
4.000 eða meira. Laugavegi 23 H Y G E A
Sími 511 4533 .myrtivöruverjlun
HELLUSTEYPA JVJ
Vagnhöfða 17
112 Reykjavik
Sími: 587 2222
Fax: 587 2223
Gerið verðsamanburð
Tölvupústur: sala@hellusteypa.is