Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ BRIDS Umsjón Ariiúr G. Ragnarsson Guðmundur Agústs- son kjörinn forseti Bridssambands * bjömssonar. Með honum spiluðu Kjartan Ólason, Óli Þ. Kjartansson og Garðar Garðarsson. Lokastaðan: Gunnar Guðbjðrnsson 135 Heiðar Sigurjónsson 117 Grethe Iversen 116 Næsta keppni er fjögurra kvölda barómeter. Spilararar eru beðnir að mæta hálftíma fyrr en venjulega þ.e. kl. 19.30. Islands FIMMTUGASTA og fyrsta árs- þing BSÍ var haldið 17. okt. sl. Á þingið mættu fulltrúar frá 15 félögum víðsveg- ar af landinu. Kristján Kiistjánsson, sem hefur verið forseti BSÍ í fjög- ur ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og voru honum þökkuð góð og óeigingjöm störf í þágu bridshreyfingarinnar. Guðmundur Ágústs- son var kjörinn forseti en með honum í stjóm eru Þorlákur Jónsson, Ljósbrá Baldursdóttir, Ólafur Steinason, Sig- tryggur Sigurðsson, ísak Öm Sigurðsson og Anton Haraldsson. I varastjórn eru Erla Sig- Guðmundur Ágústsson urjónsdóttir, Sveinbjöm Eyjólfsson og Páll Þórsson. Helstu viðfangsefni þingsins vom lagabreytingar og fræðslumál, en mikill hugur er í mönnum að gera átak í bridskennslu, m.a. í skóla- kerfinu, og mættu 17 manns á nám- skeiðið „Lærðu að kenna bridge“, sem haldið var daginn fyrir þingið. Yngsti stórmeistarinn varð Islandsmeistari Sigurbjörn Haraldsson varð Is- landsmeistari í einmenningi um sl. helgi. Hann er yngsti stórmeistari í brids á Islandi frá upphafi, aðeins 20 ára, en þeim áfanga náði hann í mars sl. Alls tóku 84 þátt í mótinu. Bridsfélag Suðurnesja NU er hraðsveitakeppninni lokið með sigri sveitar Gunnars Guð- Bridsfélag Reyðarfjarðar og Eskifjarðar Nú er vetrarstarf BRE hafið og er spilað á þriðjudags- kvöldum kl. 20 í Mel- bæ, félagsheimili eldri borgara á Eskifirði. Þegar era búnar tvær umferðir af fimm í aðaltvímenningnum með þátttöku 12 para og era spiluð 3 spil milli para. Önnur umferð í að- altvímenningnum var spiluð þriðjudags- kvöldið 19. október og er staða efstu manna að loknum tveimur umferðum á þessa leið. Aðalsteinn Jónsson - Gísli Stefánsson 49 Magnús Ásgrímsson 38 32 Birgir Jónsson Jóhanna Gísladóttir - Vigfús Vigfússon Asgeir Metúsalemss. - Kristján Kristjánss. 32 Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Fjögurra kvölda barometer tví- menningur hófst sl. miðvikudag og var þátttaka viðunandi eða 14 pör. Spiluð vour 6 spil milli para og er staða efstu para þessi: Karl G. Karlss. - Gunnl. Sævarss. o.fl. 37 Amar Amgrímss. - Gunnar Sigurjónss. 28 Víðir Jónsson - Karl Einarsson 22 Garðar Garðarsson - Oli Þór Kjartanss. 15 Önnur pör hafa ekki skor yfir meðalskor. Spilað er í félagsheimili bridsspil- ara við gamla Sandgerðisveginn. Spilamennskan hefst kl. 19,30. Keppnisstjóri er Þórður Reimars- son. Eru rimlagardínurnar óhreinar! Víi hreinsum: Rimlo, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld. Setjum afrafmagnandi bónhúö. Sækjum og sendum ef óskað er. ^jtt tsekaúJjreinsunin Sóiheimor 35 • Síml: 533 3634 • OSMs 897 3634 TOPPTILBOÐ Verð 1.995,- Tegund: 73180 Litir: Svartir og dökkbláir Stærð: 36—42 Verð áður Tegund:73272 Litur: Svartur Stærð: 36—42 Verð áður J Póstsendum samdægurs T oppskórinn VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212 í DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þakkir til Stefáns ÞAR sem ég sat með fjar- stýringuna og hoppaði yfir hinar ýmsu sjónvarpsrásir rak ég augun í myndir af íslenskri náttúru og sleppti skiptitakkanum um stund. Þarna var á ferðinni 3. þáttur af níu um sögur af landinu. Hann Stefán Jón Hafstein sér um þættina og vil ég þakka honum frá- bært framlag. Hann gaf mér nýja sýn. Eg átta mig á því núna hvað ég hef ver- ið með brenglað viðhorf gagnvart landsbyggðinni. „Landsbyggðarpakkið" eru Islendingar eins og ég. Við eigum það sameigin- legt að búa á lítilli eyju með kraftmikla sál og óbilandi trú á sjálfum okk- ur. Eg var einhvern veginn búin að skipta þessu í „þau“ og „við“ án þess að gera mér grein fyrir þvi. Þökk sé þættinum „Sögur af landi“ sem hefur stillt mig í fókus og sé ég mun fleiri möguleika en áður. Stefán, takk fyrir að taka ábyrgð á starfi þínu og miðla sannri fegurð Is- lands beint inn í stofu til okkar. Bettý Gunnarsdóttir, nemi við Kennara- háskóla íslands. Það fækkar á landsbyggðinni FÓLK hefur flutt burt af landsbyggðinni þótt það sé í tryggri vinnu. Dæmi er um að menn á frystitogur- um, þar sem tekjurnar ættu að vera allsæmilegar, hafi farið í land, flutt til suðvesturhornsins, þangað sem fólkið sogast. Orsak- irnar geta verið margvís- legar. Má þar nefna hár kyndingarkostnaður, hátt vöruverð, samgöngur ekki nógu tryggar, læknisþjón- usta sums staðar ekki við- unandi. Fiskvinnslan of einhæf. Það mætti gera meira af því að fullvinna í neytendapakkningar. Svona mætti lengi telja. Ef þarf nú þegar að flytja inn erlent vinnuafl til fisk- vinnslunnar, halda menn þá að það þurfi ekki erlent vinnuafl til að vinna í álveri á landsbyggðinni? Fólk fer ekki út á land í hærri hús- hitunarkostnað, hærra vöruverð. Verði reist álver á Reyðarfirði, virkjað í Fljótsdal, verður þetta þó nokkur kostnaður hjá Landsvirkjun sem þeir velta svo út í raforkuverð til landsmanna til að greiða niður ódýrt raf- magn til stóriðju. Halda menn svo að það verði auð- velt að lokka fólk út á landsbyggðina ef húshit- unarkostnaður á eftir að hækka umtalsvert um ókomna framtíð? Bara þetta framantalda segir okkur að raforkufrekur iðnaður á Reyðarfirði verður kannski ekki sú vítamínsprauta sem sumir halda. Ef reisa ætti stór- iðju annars staðar en á Reyðarfirði held ég að sumir þeir sem styðja það í dag væru á móti því. Gunnar G. Bjartmarsson. Sjúkraskýrslur á glámbekk ÞAÐ er sannarlega ámæl- isvert að sjúkraskýrslur skuli hafa legið á glám- bekk á Heilsuverndarstöð- inni. Það er hins vegar enn ámælisverðara að fólk skuli með löglegum hætti geta grandskoðað skatta- skýrslur og árstekjur ann- arra. Rétturinn til persónu- leyndar varðandi heilsufar og fjármál er viðurkennd- ur í stærstum hluta hins siðmenntaða vestræna heims og brot gegn honum getur leitt til þungra sekta. Komi nágranna mínum við hvað ég hef í tekjur, því má ég ekki vita hvort hann hafi gyllinæð? Moshe Erlendur Okon, afbrotafræðingur. Dýrahald Fress í óskilum GUÐRÚN hafði samband við Velvakanda og vildi láta vita af því að hjá henni væri fressköttur í óskilum. Guðrún giskaði á að hann væri 2-3 ára gamall. Hann er svartur og brunbrönd- óttur, með hvíta bringu og hvíta sokka. Einnig er hann með gat í vinstra eyra. Upplýsingar í síma 565 6972 eftir kl. 16 á dag- inn. SKAK Umsjún Margeir l’élursson leik gegn pólska lands- liðsmanninuni M. Kam- inski (2520) 37. Hg8+! _ Kxg8 38. Dg5+ og svartur gafst upp því hann er mát í næsta leik. STAÐAN kom upp í pólsku deildakeppn- inni í ár. Svartur var að leika 36. _ Hc8 _ e8? Hann átti að reyna 36. Dd8 í stað- inn. Lítt þekktur meistari R. Sokolowski (2255) hafði hvítt og átti Hvítur mátar í þriðja leik HOGNI HREKKVISI // ~ftann er mefr barfcaí>ó/gu og umc/gQnj." Víkverji skrifar... VÍKVERJA finnst í sjálfu sér ekkert athugavert við að menn eigi stóra jeppa. Ef þeim finnst gaman að eiga þannig bíla er það þeirra mál en ekki annarra. Eigend- urnir þurfa að greiða meira í sam- eiginlega sjóði en við vegna dísil- skatts eða mikillar bensíneyðslu þegar þeir hreyfa þessi þungu tæki. Við hin, á venjulegri farartækjum, högnumst því óbeint. Oft er ekkert annað en hræsni og öfund að baki þegar verið er að gera gys að jeppaeigendum sem nær aldrei fari út fyrir malbikið. Með því að beisla ímyndunarafl og mann- skilning er hægt að skilja að vissan um að geta keyrt ótroðnar slóðir er það sem gerir jeppana spennandi, ekki endilega að viðkomandi eigandi gefi sér oft tíma til þess. En þeir sem nýta sér tækin og fara út fyrir almannavegi bera líka mikla ábyrgð. Sögumar af stórjeppavæddum rjúpnaskyttum sem lögreglan á Egilsstöðum kvart- ar undan era ófagrar. Hálendið er viðkvæmt og þegar menn leyfa sér að spæna upp jarðveginn á 35 tommu mödderum (þetta er stafað svona í bOatímaritum) er fjandinn laus. Þá er verið að valda skemmd- um á náttúranni sem tekið getur aldir fyrir hana að laga. Vonandi verður tekið á þessum málum í sjónvarpsfréttatímum. Myndir af svona framferði era oft- ast áhrifaríkari en orð og Víkverji er viss um að í fæstum tilfellum er um að ræða vísvitandi skemmdar- fýsn heldur hugsunarleysi og van- þekkingu. XXX NÚ ER íslensk brauðgerð búin að færa út kvíarnar og kaupa hlut í bandarísku bakaríi í Boston. Útrásin er hafin og miðað við fram- farimar í brauðgerð hér heima síð- ustu áratugina kemur fréttin ekki á óvart. íslenskir bakarar kunna sitt fag. En þeir sem eins og Víkverji dagsins ólust upp á aðeins þrem brauðtegundum, franskbrauði, normalbrauði og rúgbrauði, sjá fyr- ir sér að hægt verði að flytja út gamlar hefðir. Er ekki alltaf verið að tala um að finna þurfi erlendis afmarkaða hópa með sérþarfir? „Gömlu brauðin bila síst,“ segir gamait máltæki. Margir þola ekki vandann sem alltof fjölbreytt fram- bóð veldur, þeir verða stressaðir og vilja fá einhverja til að taka svona ákvarðanir fyrir sig. Vflcverji leggur til að reynt verði að markaðssetja hugmyndina á bak við gömlu Mjólk- ursölu-búðimar með gömlu brauð- unum þrem. Kannski mætti taka alla aðra sérvisku sem við höfum nú aflagt, eins og sjónvarpslausa fimmtudaga, bjórsölubann og fleira og setja allt saman í einn pakka. Hann myndi henta vel þeim sem era að verða hálfvitlausir yfir öllu þessu óþolandi vali, öllum tilboðun- um frá símafyrirtækjum um sér- stakan afslátt ef hringt er til Suður- pólsins klukkan þrjú að nóttu, magnafslátt á tannkremi ef keypt eru 200 kíló og svo frv. XXX G VÍKVERJI er enn við þjóð- legu hefðimar og útrásina. Er rétt sem honum sýnist að draugar séu að verða vinsælt efni í Hollywood-myndum á ný og getur verið að sívaxandi umfjöllun um Is- land á erlendum vettvangi eigi þar einhvem þátt? Skoðanakannanir hér sýna yfirleitt að meirihlutinn trúi á drauga og við vísum kannski enn veginn í þessu sem öðra. En líklega er rétta skýringin tískusveifla hjá liðsmönnum erlenda afþreyingariðn- aðarins sem verða stöðugt að fmna nýjar aðferðir til að skemmta okkur. Víkverji bendir samt á að íslensk- ir draugar, mórar og skottur, hljóti sumir að geta orðið gott viðfangs- efni í kvikmyndum og bendir sér- staklega á Þorgeirsbola og Irafells- móra í því sambandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.