Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
í SVEITAKEPPNI er
ekki svo alvarlegt mál að
gefa út 200 fyrir bút, sem
andstæðingarnir eiga
hvort sem er. En ef
keppnisformið er tvímenn-
ingur (eða einmenningur),
þá er talan 200 ávísun á
tæran botn í slíkum spil-
um. Islandsmeistarinn í
einmenningi, Sigurbjörn
Haraldsson, hélt að það
yrðu örlög sín í þessu spili,
en baráttugleðin hafði
teymt hann upp í þrjú
hjörtu yfir tveimur spöð-
um:
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður A 7432 V 52 ♦ 9742 * G87
Vestur Austur
A KDG865 A 109
V73 V D1064
♦ 86 ♦ ÁD5
* ÁK6 * 10942
Suður AÁ VÁKG98
♦ KG103 *D53
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði Pass 1 grand 2 iýörtu
2 spaðar Pass Pass Dobl*
Pass :i björtu Pass Pass
Pass
Sigurbjörn var í suður
og doblaði tvo spaða til út-
tektar. Norðri leist ekki á
að melda þrjá tígla á tvist-
inn fjórða og valdi frekar
hjartalitinn á tvo hunda.
Sigurbjörn mátti teljast
heppinn að sleppa við
doblið, en eigi að síður leit
út fyrir að hann myndi
fara a.m.k. tvo niður.
Vestur kom út með
laufásinn og Sigurbjörn lét
drottninguna undir til að
f^yggja sér innkomu á gos-
ann. I öðrum slag skipti
vestur yfir í spaðakóng, og
Sigurbjörn svaraði í þriðja
slag með laufi í átt að gos-
anum. Vestur tók á kóng-
inn og spilaði spaða. Sem
var einmitt það sem Sigur-
björn var að vona, því
hann ætlaði sér að fá fimm
slagi á tromp. Hann
trompaði, fór inn í borð á
laufgosa og spilaði tígli.
Austur dúkkaði og Sigur-
björn fór upp með kóng-
inn. Tók síðan á hjartaás
og spilaði tígli. Vestur gat
tekið tvo slagi á ÁD í tígli,
en varð svo að spila laufi
eða trompi. Hann valdi
laufið. Sigurbjörn tromp-
aði með níu og spilaði síð-
asta tíglinum. Austur varð
að trompa og spila frá D10
í hjartanu. Sigurbjörn lét
gosann og tryggði sér
þannig átta slagi. Einn
niður (mínus 100) var góð-
ur árangur í NS, því það
vinnast 2-3 spaðar í AV,
sem gefur 110-140.
Með morgunkaffinu
Árnað heilla
^/\ÁRA afmæli. í dag,
I V/fóstudaginn 22. októ-
ber, verður sjötug Anne
Marie Steinsson, Meltröð 6,
Kópavogi. Eiginmaður
hennar er Aage Steinsson.
Hún tekur á móti ættingjum
og vinum í Gullsmára 13,
Kópavogi, kl. 18 í dag.
A /\ÁRA afmæli. í dag,
4rUfóstudaginn 22. októ-
ber, verður fertug Iljördis
Björg Bjarnadóttir. Hún er
búsett í Danmörku en er
stödd hér á landi í tilefni af-
mælisins.
fT /\ÁRA afmæli. í dag, föstudaginn 22. október, verður
e/Ufimmtugur Sigurður Guðmundsson, skipulagsfræð-
ingur, forstöðumaður byggðaþróunarmála í Þjóðhagsstof-
un. Eiginkona hans, Steinunn K. Árnadóttir, nær sama
áfanga 24. febrúar nk. Þau hjónin halda upp á afmælin í
vinahópi í hlíðum Himalajafjallgarðsins í Nepal og þangað
geta aðrir vinir og vandamenn sent þeim hugskeyti af þessu
tilefni.
Ljósmyndast. Signðar Bachmann.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. júlí í Háteigs-
kirkju af sr. Pálma Matthí-
assyni Helga Sigurbjarna-
dóttir og Gunnar Már
Gunnarsson. Heimili þeirra
er að Bólstaðarhlíð 29,
Reykjavík.
Ljósmyndast. Sigrfðar Bachmann.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 14. ágúst í Laugar-
neskirkju af sr. Bjarna
Karlssyni Olga Sigurðar-
dóttir og Halldór Másson.
Heimili þeirra er að Laug-
arnesvegi 104, Reykjavík.
LJOÐABROT
GLÁMUR
JSkammdegisnótt er skuggalöng.
I skálanum Grettir aleinn vakir.
Stormurinn leiðan syngur söng.
Syndir tunghð að skýja baki. -
Skella þá högg á skála hurðu
skörp og þung, svo að gegnir furðu.
Brotna dyr, og brakar í viðum.
Bröltir innar ferleg mynd.
Hrökklast fram, svo hriktir í liðum,
hrikavaxin beinagrind.
Glóir úr auðum augnaholum,
eins og þegar deyr í kolum.
Undir Glám þá Grettir hleypur.
Glíman hefst þar h'fs og dauða.
Draugsins jafnskjótt grimmar greipur
Grettis drekka blóðið rauða.
En - þegar átti til að taka,
tóman fyrir sér hitti’ hann klaka.
En - illspár Gláms á Gretti hrinu.
Glaðan ei framar sá hann dag.
Með stillingar- og lánleysinu
lífsins gjörvöllum spillti’ hann hag.
Og Gláms að honum sjónir sóttu,
sérílagi’ er dimmdi af nóttu.
Grírnur Thomsen.
STJÖRIVUSPA
eftir Franees llrake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert umburðariyndur og
lipur gagnvart fólki en get-
ur líka látið í þér heyra ef
þér þykir ástæða til.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Taktu þig saman í andlitinu
og leitaðu eftir þeirri viður-
kenningu sem þú átt skihð
fyrir frammistöðu þína. Þá
munu efasemdir í þinn garð
gufa upp.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er svo sem gott og bless-
að að telja sig geta lesið í
hug annarra. En til að forð-
ast allan misskilning skaltu
samt ræða málið við viðkom-
andi.
Tvíburar t ^
(21. maí - 20. júní) AA
Þú þarft að leggja þig fram
um að ná samkomulagi milli
stríðandi afla. Gættu þess
bara að leggjast ekki á sveif
með öðrum aðilanum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér er nauðsynlegt að festa
alla lausa enda svo þú getir
byrjað með hreint borð. Það
er ekkert rangt við það að
skipta um skoðun.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vertu fyrst og fremst sannur
í samskiptum þínum við aðra
og gættu þess að lofa ekki
upp í ermina á þér. Farðu vel
með það vald sem þú hefur.
Mcyja
(23. ágúst - 22. september) (D$L
Það er til lítils að hafa mörg
orð um hlutina ef þeim fylgja
engar athafnir. Settu í þig
kraft og láttu svo verkin tala.
'tTTV
(23. sept. - 22. október) 4* 4*
Það getur skipt sköpum að
beita réttum aðferðum til
þess að ná árangri. Sýndu
ákveðni en vertu varkár um
leið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Til þess að öðlast viðurkenn-
ingu annarra þarftu að upp-
fylla þau fyrirheit sem þú
hefur gefið. Það ætti hins
vegar ekki að reynast þér
erfitt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) nt3
Vandamálin hverfa ekki þó
að þú sópir þeim undir tepp-
ið svo það er eins gott að
ráðast strax á þau meðan þú
hefur tækifæri til.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) <tSf
Atburðarásin mun taka öll
völd úr höndum þér ef þú
ekki stingur við fótum og
nærð stjórn á hlutunum.
Fylgdu eðlisávísun þinni.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) vitm'
Það er góð regla að vera við
öllu búinn þannig að óvænt
atvik setji ekki allt úr skorð-
um. Erfitt samtal sem þú
kvíðir mun reynast þér auð-
velt.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Gættu þess að blanda þér
ekki um of í málefni annarra
því það gæti orðið til þess að
þér verði kennt um annarra
mistök. Fylgdu innsæi þínu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
§/llsitré
Sérveralun með
iilkitré & óilkiblóm
LauQaveú 61. 1
Laugavegi 63, Vitaótíg&megin &ími 551 2040
Garðsapótek
Sognvegi 168 ♦ sími 568 0990
Kynnum nýju
vetrartískuna
frá OROBLU í
dag kl. 14-18
20%
kynningar-
afsláttur af
öllum OROBLU
sokkabuxum.
Daman auglýsir
Fallegur náttfatnaður úr satíni með
bómull að innan og „microfiber".
Fyrir konur á öllum aldri.
Sloppar úr „microfiber"
Sendum í póstkröfu
Laugavegi 32 - Sími 551 6477