Morgunblaðið - 22.10.1999, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
50% fímmtugra kvenna eiga á hættu beinbrot af völdum beinþynningar
Vaxandi vandamál
í vestrænum löndum
Ólafur Ólafsson, formaður
Beinverndar, og Óskar H.
Gunnarsson, formaður mark-
aðsnefndar mjólkuriðnaðarins,
undirrita samstarfssamning
Beinverndar og Islensks
mjólkuriðnaðar í Perlunni.
og í vestrænum þjóðfélögum væri
mun stærri hópur fólks sem ekki
fengi fullnægjandi magn D-
vítamíns heldur en kalks, og þar
væri Island engin undantekning.
Hún benti einnig á að prótein og
matarsalt í því magni sem íslend-
ingar neyta þess auki útskilnað á
SAMSTARFSSAMNINGUR milli
Beinvemdar og Islensks mjólkur-
iðnaðar var undirritaður í Perlunni
s.l. miðvikudag á alþjóðlegum bein-
verndardegi. Með samningnum,
sem gerður er til þriggja ára, ger-
ist íslenskur mjólkuriðnaður
stuðningsaðili Beinverndar og er
markmið samstarfsins að benda á
beinþynningu sem eitt stærsta
heilsufarsvandamál 21. aldarinnar.
I kjölfar samningsins verður
hrundið af stað kynningarátaki
undir yfírskriftinni „hollusta styrk-
ir bein“ og hefur þegar komið út
samnefndur bæklingur.
Beinþynning heijar í ríkari mæli
á konur en karla. I erindi dr. Gunn-
ars Sigurðssonar prófessors á há-
degisverðarfundi í tilefni bein-
verndardagsins í gær kom fram að
um helmingslíkur væm á því að
fimmtug kona ætti eftir að hljóta
framhandleggsbrot, hryggsúlubrot
eða mjaðmarbrot, eitt eða fleiri.
Beinbrot af völdum beinþynningar
yrðu við lítinn eða engan áverka,
sem gerðist ekki með eðlileg bein.
Brot af þessu tagi væru fátíðari
meðal karlmanna en færi fjölgandi
með árunum, að sögn Gunnars.
Kalkneysla
misjöfn milli kynja
Bryndís Eva Birgisdóttir nær-
ingarfræðingur sagði að mataræði
væri mikilvægur þáttur í forvörn-
um gegn beinþynningu og
kalkskortur í uppvexti yrði til þess
að hámarks beinþéttni næðist ekki,
en þétting beina á yngri árum
minnkaði líkur á brotum síðar á
ævinni. Hún sagði að könnun
Manneldisráðs frá 1990 hefði sýnt
að meðalneysla á kalki væri mjög
misjöfn meðal kynja. Tíundi hver
karlmaður fengi þrefaldan ráðlagð-
an dagskammt af kalki en um
fjórðungur kvenna fengi minna en
sem svaraði ráðlögðum skammti.
Bryndís Eva sagði að kalk nýtt-
ist ekki í líkamanum án D-vítamíns
Unnið að gerð íslenskrar sjón-
varpsmyndar um Heyerdahl
VERIÐ er að leggja lokahönd á
gerð sjónvarpsmyndar sem byggð
er á löngu viðtali við Thor Heyer-
dahl þegar hann var staddur hér-
lendis á síðasta ári í boði forseta
íslands. f viðtalinu drepur Heyer-
dahl m.a. á heimildagildi Islend-
ingasagna, hugsanlegan uppruna
norrænna manna í Asjerbædsjan
við Kaspiahaf, svo og möguleika á
því að staðfesta þann uppruna
með DNA-rannsóknum.
Gísli Pálsson mannfræðingur
og Hákon Oddsson kvikmynd-
gerðarmaður standa að sjón-
varpsmyndinni sem verður um 30
mfnútna löng. Að sögn Gísla verð-
ur myndin væntaniega frumsýnd
snemma á næsta ári í tengslum
við uppákomur í sambandi við ár-
þúsundamótin og í tilefni af vest-
urferðum norrænna manna á mið-
öldum.
Þegar viðtallð átti sér stað í
fyrra var Heyerdahl ekki kominn
með heimildirnar úr skjalasafni
Páfagarðs í hendur en fjallar í
myndinni að mestu um hugsanleg-
an uppruna norrænna manna í
austurvegi. „Thor segir aðeins frá
því í myndinni hvernig hann
komst á sporið í sambandi við
hugsanlegan uppruna norrænna
manna í Aserbædsjan og leggur
fram rök sín fyrir þeirri skoðun.
Hann segir lýsingu Ynglingasögu
furðulega sannfærandi og svo er
ákveðin orðsiíjafræði, Æsir og
Asjerbædsjan, hvort sem það nú
stenst eða ekki,“ segir Gísli.
Gísli segist bíða spenntur eftir
að sjá nákvæmlega hvaða gögn
Heyerdahl hafí undir höndum en
það komi ekki í ljós fyrr en með
útkomu bókarinnar í næsta mán-
uði. En þar rekja Heyerdahl og
sænski kortasérfræðingurinn Per
Lilleström tilgátur sínar um upp-
runa og ferðir norrænna manna á
miðöldum.
Gísli telur að tilgátur þeirra fé-
liiga, geti haft töluvert gildi lyrir
íslendinga. Þær veki upp forvitni-
legar spurningar nm uppruna
norrænna manna. „Hingað til hef-
ur farið meira púður í það hjá
okkur að spyija hvert við fórum
en ekki hvaðan við komum. Nú er
unnt að svara þessu með tiltölu-
Iega einföldum hætti; með DNA-
rannsóknum."
Nýir möguleikar með DNA-
rannsóknum
í myndinni er Heyerdahl spurð-
ur út í þennan möguleika en
DNA-rannsóknir opna nýja mögu-
leika til að svara spurningum sem
þessum, með miklu meiri ná-
kværnni en áður. „Við ættum
kannski að snúa okkur að þessu,
að rekja ættir norrænna þjóða af
meiri nákvæmni. Ef hægt er að
rekja ættir homo sapiens aftur til
Afríku einhver hundruð þúsund
ára þá eigum við að geta rakið
slóðir norrænna manna einhver
hundruð eða tvö þúsund ár.“
Þá telur Gísli árangur Heyer-
dahls hvatningu til þess að skoða
skjalasafn Páfagarðs nánar, með
kerfísbundnum hætti. „Ef Heyer-
dahl hefur, með kannski tiltölu-
lega Iitilli vinnu, komist á snoðir
um forvitnileg gögn, þá skyldi
maður ætla að með mikilli yfír-
legu fyndist hugsanlega eitthvað
meira."
Gísli bendir á að rannsóknir
Heyerdahls séu þess verðar að
vera teknar alvarlega. „Menn
skyldu ekki vanmeta Heyerdahl.
Það er fyllilega tekið mark á hon-
um í mannfræði og fornleifafræði.
Framlag hans liggur kannski fyrst
og fremst í því að hafa vakið
ákveðnar spumingar og hafa reynt
að sýna fram á fræðilega mögu-
leika, til dæmis hvað varðar sigl-
ingar iyrir þúsundum ára þvers og
kmss um heimshöfín. Hann er
þekktur fyrir að selja fram djarfar
tilgátur og freista þess með ýmsum
hætti, tilraunum og rannsóknum,
að fylgja þeim eftir.“
Morgunblaðið/Golli
Árný Helgadóttir, hjúkrunar-
fræðingur og íþróttaþjálfari,
stjórnaði upphitun og kraft-
göngu við upphaf hádegisverð-
arfundar um beinþynningu, sem
haldinn var á alþjóðlegum bein-
verndardegi í gær. Hollt matar-
æði og hreyfíng eru vörn gegn
beinþynningu, og í fararbroddi
kvennahópsins á myndinni má
sjá ráðherrana Ingibjörgu
Pálmadóttur til hægri og Siv
Friðleifsdóttur fyrir miðju.
Hún benti jafnframt á að á dvalar-
heimilum í Danmörku væri eldra
fólk látið ganga um með sérhann-
aða púða á mjöðmum og öðrum
lykilstöðum til þess að draga úr
tíðni brota og nauðsynlegt væri að
bregðast við hættunni á beinþynn-
ingu þegar í stað.
Ólafur Ólafsson, formaður Bein-
verndar, sagði að beinþynningu og
beinbrotum hefði fjölgað langmest
í velferðarlöndunum og líklega
mest á Norðurlöndunum, þar á
meðal á íslandi. Mikilvægt væri að
blása til forvarnaraðgerða af því
tilefni og það væri Beinvemd að
gera með því að halda alþjóðlegan
beinverndardag.
Morgunbl^A0*®
kalki og gætu því stuðlað að bein-
þynningu.
Bryndís Eva benti á að könnun á
mataræði skólabarna hefði leitt í
ljós að fimmti hluti unglings-
stúlkna væri í hættu á að fá of lítið
af kalki og að D-vítamín væri í
raun eina vítamínið sem skorti að
einhverju leyti í fæðu barna. Stúlk-
ur á vaxtarskeiði væru lágar í
þessu mikilvæga efni, sérstaklega
yfir vetrarmánuðina.
Bryndís Eva benti á að talið væri
að ef hægt væri að sjá til þess að
Evrópubúar fengju nægilega mikið
af kalki og D-vítamíni væri hægt
að draga úr beinþynningu um 50%.
Andlát
HARALDUR GÍSLASON
LÁTINN er í Reykja-
vík Haraldur Gíslason,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri. Harald-
ur fæddist 21. október
1917. Hann var sonur
Gísla Arasonar og
Magneu Sigríðar
Magnúsdóttur.
Haraldur byrjaði
ungur að starfa hjá
Ragnari Jónssyni í
Smára. Hann sá um
bókhald fyrir hann í
áratugi og var fram-
kvæmdastjóri Víkings-
prents, sem Ragnar
átti, en fyrirtækið prentaði bækur
sem Ragnar gaf út. Haraldur var
einn af stofnendum Prentmóta og
stýrði fyrirtækinu samhliða störf-
um hjá Víkingsprent. Hann var
lengi í stjóm Félag prentsmiðjueig-
enda.
Haraldur var mikill áhugamaður
um knattspyi'nu. Hann
var mikill KR-ingur og
varð m.a. íslands-
meistari með KR árið
1941. Hann var einn af
stofnendum knatt-
spyrnudeildar KR og
tók virkan þátt í starfi
hennar í mörg ár.
Hann var fyrsti for-
maður knattspyrnu-
deildar KR og sat m.a.
í hússtjórn félagsins.
Haraldur starfaði í
áratugi í Knattspyrnu-
ráði Reykjavíkur og
var um tíma í lands-
liðsnefnd Knattspyrnusambands
íslands. Haraldur var sæmdur
heiðursmerkjum KR, KSÍ; Knatt-
spyrnuráðs Reykjavík og ISÍ fyrir
störf sín fyrir íþróttahreyfinguna.
Eftirlifandi eiginkona Haraldar
er Þómnn Guðmundsdóttir. Þau
eignuðust tvö böm.
Skipun í
áfrýjunar-
nefnd kæru-
mála há-
skólanema
BJÖRN Bjamason mennta-
málaráðherra hefur skipað
áfrýjunamefnd í kærumálum
háskólanemp. í henni sitja
Ólafur K. Ólafsson sýslumað-
ur, Stykkishólmi, formaður,
skipaður án tilnefningar, Hjör-
dís Hákonardóttir héraðsdóm-
ari, tilnefnd af Samstarfsnefnd
háskólastigsins og Magnús M.
Norðdahl hæstaréttarlögmað-
ur, tilnefndur af samtökum há-
skólanema.
Áfrýjunamefndin er skipuð
til tveggja ára. Er þetta í
fyrsta sinn sem nefndin er
skipuð samkvæmt reglum nr.
73/1999 um áfrýjunarnefnd í
kæmmálum háskólanema, skv.
5. gr. laga nr. 136/1997 um há-
skóla. Með reglum þessum er
kveðið á um að ein áfrýjunar-
nefnd starfi fyrir allt háskóla-
stigið vegna kærumála há-
skólanema, en ekki sérstakar
nefndh- fyrir hvern háskóla.
Hlutverk áfrýjunarnefndar-
innar er að úrskurða í málum,
þar sem námsmenn í ríkishá-
skólum eða háskólum, sem
hlotið hafa staðfestingu
menntamálaráðherra, telja
brotið á rétti sínum varðandi:
námsmat, þ.m.t. fyrirlögn
prófa, tilhögun einkunnagjaf-
ar, skipun prófdómara, birt-
ingu einkunna, mat á náms-
framvindu, þ.m.t. rétt til end-
urtektarprófs og afgreiðslu
umsókna um skólavist þ.m.t.
tilhögun mats á námi á milli
skóla. Nefndin mun ekki end-
urmeta prófúrlausnir eða fag-
lega niðurstöðu kennara, dóm-
nefnda eða prófdómara. Mál-
um verður ekki skotið til áfrýj-
unarnefndarinnar nema kæru-
leið, skilgreind og samþykkt af
háskólaráði viðkomandi há-
skóla, hafi verið tæmd eða þrír
mánuðir liðnir frá því að kæra
var fyrst skriflega lögð fyrir
háskólaráðið.
Áfrýjunamefnd í kærumál-
um háskólanema getur með
úrskurðum sínum staðfest,
breytt eða fellt úr gildi ákvarð-
anir háskóladeilda eða há-
skólaráðs í þeim málum, þar
sem nemendur telja á rétt sinn
hallað sbr. 1. gr. Úrskurðir
nefndarinnar eru endanlegir á
stjómsýslustigi og verður
þeim ekki skotið til mennta-
málaráðherra.