Morgunblaðið - 22.10.1999, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
UR VERINU
Kolmunnaveiðar íslenskra skipa
Hólmaborg
slær metið
_____________________MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Foreldrar svissneska drengsins, Andreas og Beverly Wiithrich, á fréttamannafundi í Sviss á miðvikudag.
Ellefu ára drengur sakaður um sifjaspell
Fluttur á brott af heim-
ilinu í handjárnum
The Daily Telegraph. Washington.
ÞAÐ er skammt stórra högga á
milli á kolmunnaveiðunum. A
þriðjudag landaði Börkur NK 1.700
tonnum í Neskaupstað eftir að hafa
landað 400 tonnum í Færeyjum í
sama túr, Beitir NK landaði 1.200
tonnum í Neskaupstað í fyrrakvöld
en í nótt var Hólmaborg SU vænt-
anleg til Eskifjarðar með fullfermi,
2.000 tonn, og er það met hjá ís-
lensku skipi eftir einn túr. Þor-
steinn EA kom einnig með full-
fermi, 1.000 tonn, til Neskaupstað-
ar í gær en hann landaði 1.000
tonnum í Færeyjum um helgina.
Haukur Björnsson, útgerðar-
stjóri hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarð-
ar hf., sagði að veiðin hefði verið
mun líflegri í þessum túr hjá
Hólmaborginni en áður. Skipið
kom með liðlega 1.000 tonn til
Eskifjarðar 11. október sl. en land-
aði í Færeyjum í túrnum á undan.
„Þetta var líflegri veiði og betri og
jafnari hol,“ sagði Haukur. „Hann
var í sex eða sjö daga að veiðum en
það koma alltaf daprir dagar inn á
milli.“
Veiðin datt aftur niður
Um 20 tíma sigling er frá Eski-
firði á miðin við Færeyjar en í gær-
kvöldi voru sjö íslensk skip í kant-
inum norðan við Færeyjar og ekk-
SAMKOMULAG milli íslands,
Færeyja, Noregs, Rússlands og
Evrópusambandsins um veiðar úr
norsk-íslenzka síldarstofninum á
árinu 2000 var undirritað í Þórs-
höfn í Færeyjum í gær. Samkvæmt
því verður heimilt að veiða
1.240.000 tonn af sfld úr þessum
stofni á næsta ári, en það er um
50.000 tonna samdráttur. Sam-
drátturinn kemur niður á þjóðun-
um í sama hlutfalli og hlutdeild
þeirra í veiðunum er. Hlutur okkar
skerðist um það bil um 8.000 tonn.
I samkomulaginu er jafnframt
gert ráð fyrir því að draga úr veið-
um frá og með árinu 2001 með því
að taka upp aflareglu, sem kveður
á um að lægra hlutfall veiðistofns-
ins verði þá tekið en nú er gert.
Miðað við að veiðistofninn sé nú 10
til 11 milljónir tonna þýðir breytta
aflareglan að leyfilegt verður að
veiða um 200.000 tonnum minna en
ella. Sé miðað við 202.000 tonna
kvóta okkar á þessu ári nemur
skerðingin á hlut okkar um 29.000
tonnum árið 2001.
Norðmenn
fá mest
Aflinn skiptist þannig að í hlut
Islands koma 194.230 lestir, í hlut
Færeyja 68.270 lestir, í hlut Nor-
egs 712.500 lestir, í hlut Rússlands
160.200 lestir og í hlut Evrópusam-
bandsins 104.800 lestir.
Reglur um aðgang aðila að lög-
sögu hvers annars til veiða úr sfld-
arstofninum eru óbreyttar frá því
sem verið hefur. Islenzk skip mega
áfram veiða allan sinn hlut í lög-
sögu Færeyja og færeysk skip all-
an sinn hlut í lögsögu Islands. Eins
og í ár mega íslenzk skip veiða sinn
hlut í Jan Mayen-lögsögunni en
norsk skip mega veiða 138.500 lest-
ir í íslenzku lögsögunni. íslensk
ert hafði veiðst í sólarhring. „Þetta
hefur aldrei farið eins neðarlega og
nú,“ sagði Guðlaugur Jónsson,
skipstjóri á Óla í Sandgerði AK, við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Óli í Sandgerði landaði um 1.000
tonnum á Seyðisfirði á mánudags-
kvöld og er kominn með um 15.000
tonn á árinu. „Við vorum rétt að
byrja aftur en svona er þetta,“
sagði Guðlaugur. „Það var góð
veiði í nokkra daga en það er daga-
munur á þessu.“
Kolmunnaveiðin hefur verið
dræm undanfarna mánuði en held-
ur hefur ræst úr henni að undan-
förnu um 30 til 40 mflur fyrir norð-
an og norðaustan Færeyjar. Hins
vegar hefur verðið ekki verið mjög
hátt eða um 5.000 krónur fyrir
tonnið.
Fyrir viku höfðu íslensk skip
landað um 111.000 tonnum af
kolmunna á Islandi auk þess sem
erlend skip höfðu landað um 9.000
tonnum. 11 verksmiðjur höfðu tek-
ið við aflanum og þar af fjórar með
mikinn meirihluta. SR-mjöl hf. á
Seyðisfirði hafði fengið um 32.000
tonn, Sfldarvinnslan hf. í Neskaup-
stað um 24.000 tonn, Hraðfrystihús
Eskifjarðar hf. um 23.000 tonn og
Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði
um 19.000 tonn.
skip mega veiða 8.700 lestir í lög-
sögu Noregs.
Það nýmæli felst í samkomulag-
inu að ákveðið var að lrá og með
árinu 2001 skuli nota aflareglu sem
miðast við fiskveiðidánarstuðulinn
0,125 í stað 0,15 sem verið hefur
viðmiðunin undanfarin ár. „Þetta
er mikilvægt skref til að draga úr
hættu á hruni stofnsins og tryggja
jafnari veiði á komandi árum. Aðil-
ar urðu ennfremur sammála um að
grípa til enn strangari veiðitak-
markana, ef ástand stofnsins gæfi
tilefni til, að mati Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins,“ segir í sameigin-
legri frétt frá utanríkis- og sjávar-
útvegsráðuneytinu.
Þessi aflaregla þýðir í raun að
leyft verður að taka lægra hlutfall
úr stofninum en nú er gert. Nú-
gildandi regla heimilar að veidd
séu um 14% af veiðistofninum, en
samkvæmt þeii-ri nýju lækkar
þetta hlutfall niður í um 12%. Eins
og áður segir verður munurinn um
200.000 tonn miðað við að veiði-
stofninn sé um 10 milljónir tonna.
Hlutur allra skerðist
um 14%
Samkvæmt upplýsingum fiski-
fræðinga er nokkuð síðan stórir ár-
gangar hafa komið inn í norsk-ís-
lenzka síldarstofninn og engir slík-
ir eru á leið inn. Það er því fyrirsjá-
anlegt að með sama veiðiþunga
mun stofninn minnka hratt. Vegna
þess er gripið til framangreindra
veiðitakmarkana. Þær þýða að
miðað við stöðuna nú lækkar hlut-
ur allra um rúmlega 14%. Sé miðað
við hlut okkar um 202.000 tonn á
þessu ári og sama veiðistofn árið
2001 en 12% aflareglu skerðist
hlutur okkar um 29.000 tonn og
hlutur annarra þjóða í sama hlut-
falli.
MAL ellefu ára drengs, sem var
fluttur á brott af heimili sínu í
handjárnum eftir að hafa verið sak-
aður um sifjaspell gagnvart systur
sinni, hefur vakið miklar deflur í
Bandaríkjunum og Sviss.
Drengurinn, Raoul að nafni, var
tekinn höndum fyrir skömmu, eftir
að nágrannar fjölskyldu hans í
Colorado-ríki í Bandaríkjunum til-
kynntu lögreglu að þeir hefðu séð
hann þukla á fimm ára gamalli
systur sinni er þau voru að leik í
garðinum fyrii' framan hús þeirra.
Var Raoul fluttur á brott í hand-
járnum og mun hann dvelja á fóst-
urheimili meðan á rannsókn máls-
ins stendur.
í yfirheyrslum neitaði drengur-
inn því að hann hefði áreitt systur
sína á óviðurkvæmilegan hátt, og
SJÁLFSTÆÐI er úrelt huginynd
sem ekki kemur lengur til greina
fyrir Quebec, að sögn Bernards
Landrys, aðstoðai’fylkisstjóra í
Quebec í Kanada. Þess í stað ætti
kanadíska ríkisstjórnin að ganga til
samninga við Quebec um myndun
félagsskapar í stíl við Evrópusam-
bandið. Fréttastofan Canadian
Press (CP) hafði þetta eftir Landry.
Þessi félagsskapur myndi fela í
sér viðurkenningu á fullveldi
Quebec. Flokkur aðskilnaðarsinna,
Parti quebecois, situr að völdum í
fylkinu, og hefur formaður flokks-
ins, Lucien Bouchard, látið að því
liggja að áður en langt um líði verði
efnt til almennrar atkvæðagreiðslu í
fylkinu um aðskilnað frá Kanada.
Samkvæmt skoðanakönnunum fer
stuðningur við aðskilnað þó
hraðminnkandi.
Landry er formaður nefndar á
vegum fýlkisstjórnarinnar sem
kanna á hvernig hægt sé að gera
viðhorf aðskilnaðarsinna nútíma-
legra. Bouchard sagði í vikunni að
félagsskapur við Kanada væri nauð-
synlegur ef Quebec yrði fullvalda.
„I ljósi þess hvernig heimurinn er í
dag er einsýnt að við verðum að
hafa efnahagsleg tengsl við og sam-
eiginlega grunnþætti með kanadísk-
um félögum okkar,“ hafði CP eftir
honum.
sagðist aðeins hafa verið að hjálpa
henni að pissa. Fjölskylda hans
flúði til Sviss eftir að félagsráðgjaf-
ar höfðu látið að því liggja að einnig
ætti að taka systur hans þrjár frá
foreldrunum. Skildu þau eftir
svohljóðandi yfirlýsingu hjá lög-
fræðingi sínum fyrir brottförina:
„Lög og regla hafa verið numin úr
gildi í Colorado."
Drengurinn er bæði með banda-
rískt og svissneskt ríkisfang, en
hann gæti átt yfir höfði sér tveggja
ára vist í unglingafangelsi, verði
hann fundinn sekur.
Tugþúsundir
undirskrifta
Málið hefur vakið mikla reiði í
Sviss, en það komst í hámæli eftir
að svissneska dagblaðið Blick sagði
Fyrir fjórum árum munaði innan
við einu prósenti að aðskilnaðar-
sinnar hefðu betur í atkvæða-
greiðslu í Quebec. Meii-ihluti íbúa
fylkisins er frönskumælandi, og að-
skilnaðarsinnar segja að menning-
arlegri sérstöðu Quebec sé of
þröngur stakkur skorinn í kanad-
íska fylkjasambandinu.
sögu fjölskyldunnar og tók upp
hanskann fyrir drenginn. Nú hafa
tugþúsundir manna í Sviss skrifað
undir bænaskjal um að Raoul verði
leystur úr haldi, og síminn hefur
ekki þagnað í svissneska utanríkis-
ráðuneytinu vegna kvartana
hneykslaðra Svisslendinga.
„Fyrir tíu árum var saklaus
„læknaleikur" álitinn fullkomlega
eðlilegur,“ sagði meðal annars í
umfjöllun Blick. „I dag skilgreina
saksóknarar hann sem ofbeldis-
glæp. Tíu og ellefu ára gömul börn
eru sett í fangelsi vegna þess að
óraunsæir lögfræðingar fá sínu
framgengt."
Svissnesk yfirvöld munu bíða
þangað til réttarhöld hefjast áður
en tekin verður ákvörðun um að-
gerðir vegna málsins.
En það eru ekki allir aðskilnaðar-
sinnar sammála Landry. Maxime
Barakat, sem einnig situr í nútíma-
væðingamefndinni, segir sjálfstæði
alls ekki úrelta hugmynd. „En ég
tel að félagsskapur sé ekki skilyrði
fyrir sjálfstæði," sagði hann. „Fé-
lagsskapur er einungis tilboð sem
gert verður í kjölfar fullveldis."
Kjarnavopn verði
áfram í Evrópu
AP. Róm.
TALSMENN stjórnvalda í
Hollandi og á Ítalíu sögðu í gær
að Evrópuríkin þyrftu að hafa
áfram nokkurt magn banda-
rískra kjarnorkuvopna í álfunni
til að treysta öryggi Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, og efla frið
í Evrópu.
Þegar hafðar eru í huga „þær
hættur sem steðja að ríkjum
NATO duga hefðbundin vopn
ekki ein til að fæla menn frá
árás,“ sagði ítalski embættismað-
urinn Carlo Scognamiglio í
skýrslu til öldungaráðs þingsins.
Ummælin stangast á við það sem
umhverfisráðherra landsins hef-
ur sagt en hann telur óþarft að
vopnin séu lengur í Evrópu þar
sem kalda stríðinu sé lokið.
Arjen Lekkerkerker, talsmað-
ur hollenska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði kjarnorkuvopn gegna
mikilvægu hlutverki I að tryggja
sameiginlegt öryggi Evrópu-
þjóða.
Skýrt hefur verið frá því í
Bandaríkjunum að bandarísk
kjamorkuvopn séu varðveitt í
sex Evrópurfkjum NATO; Belg-
íu, Þýskalandi, Grikklandi,
Hollandi, Tyrklandi og á Ítalíu.
Samið um norsk-íslenzku sfldina
Heildarafli skerð-
ist um 50.000 tonn
Frekari veiðitakmarkanir árið 2001
Sjálfstæði ekki lengur
á dagskrá í Quebec
Toronto. Morgunblaðiö.