Morgunblaðið - 22.10.1999, Síða 26

Morgunblaðið - 22.10.1999, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Horfur í friðarumleitunum á N-írlandi ekki bjartar Nýjar vísbendingar um undirbúning hryðjuverka Nyerere borinn til grafar ANNA Bretaprinsessa ásamt , Daniel Arap Moi, forséta Keriýa, í gær við útfor Julius Nyerere, fyrsta forseta Tanzaníu. Nyerere var jarðsettur í Dar es Salaam, stærstu borg landsins og var fjöldi tiginna fulltrúa frá öðruni ríkjum viðstaddur. Forsetinn fyrrverandi lést úr hvítblæði á sjúkrahúsi í London fyrir viku. Hann lagði grundvöll að sósíalísku efnahagskerfi í Tanzaníu á sjöunda áratugnum og þykir það almennt hafa reynst illa. Efnahagur grannríkisins Kenýa er til dæmis mun öflugri en þar hafa menn meira treyst á markaðsbúskap. ILL'Á hoffði fýrir fnðafumleituh- um á Norður-írlandi í gær, eftir að Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, sagði að málamiðlunarvið- ræður um framkvæmd friðarsam- komulags myndu ekki leiða til neins og lögregla fann nýjar vís- bendingar um starfsemi vopnaðra öfgamanna í hópi lýðveldissinna. Lögregla í írska lýðveldinu handtók níu fullorðna karlmenn og 14 ára ungling, eftir að hafa fundið sérsmíðuð vopn í neðanjarðarhýs- um á sveitabæum norðan við Dyfl- inni, ekki langt frá landamærunum að Norður-írlandi. Vopn fínnast í neðanjarðarhýsum Á sama tíma og sérsveitir írsku lögreglunnar gerðu skyndihúsleit í byggingunum sem þar sem vopnin var að fínna lýsti yfirmað- ur lögreglunnar á N-írlandi áhyggjum af því að ný bylgja hryðjuverkaárása öfgamanna í röðum lýðveldissinna væri í vændum. „Ég tel að við stöndum núna frammi fyrir mjög mikilli ógn, og það frá nokkrum hliðum," sagði Sir Ronnie Flanagan, yfirmaður Norður-írsku lögreglunnar, Royal Ulster Constabulary (RUC), í RBC-sj óvar ps vi ðtali. „Mesta hættan eins og er stafar augljóslega frá óháðum öfga- mönnum lýðveldissinna. Við erum í litlum vafa um að þeir eru núna að undirbúa hryðjuverkaárás." Athyglin beinist að hinum „Sanna IRA“ Irska lögreglan lagði einnig hald á herriffil, stóra vélbyssu, skammbyssu og skotfæri í því sem hún segir að sé rannsókn sem sé í gangi á öfgahópum. Áhlaupið er talið tengjast rannsókn á at- höfnum hins svokallaða „Sanna IRA“, klofningshóps úr írska lýð- veldishernum (IRÁ). Hópurinn er mjög andsnúinn vopnahléi því sem IRA lýsti yfir fyrir tveimur árum. Oryggismálasérfræðingar telja, að liðsmenn hins „Sanna IRA“ séu að skipuleggja sig á ný eftir að hafa lýst því yfir að þeir væru hættir ofbeldisaðgerðum í kjölfar þess að þeir bönuðu 29 manns í bílsprengju í bænum Omagh á N- Irlandi í ágúst í fyrra. Adams, sem fer fyrir stjórn- málaarmi IRA, styður friðarum- leitanirnar, en ummæli hans í New York, þangað sem sáttasemjarinn George Mitehell boðaði deilendur, vörpuðu skugga á vonir manna um að takast myndi að ná sáttum um framkvæmd friðarsamkomulagsins frá í fyrra, sem kennt er við Föstu- daginn langa. Reuters Megawati Sukarnoputri er vinsælasti stjórnmálamaður Indónesíu Varaforsetaembættið stökk- bretti í æðsta valdastólinn Jakarta. Reuters. ÞRÁTT fyrir ættgöfgi er Megawati Sukarno- putri, hinn nýkjömi varaforseti Indónesíu, óvenjulegur fulltrúi lýðræðishreyfingarinnar í fjórða fjölmennasta ríki heims. Megawati er dóttir Sukarnos, helzta leiðtoga sjálfstæðihreyfingar Indónesa og fyi-sta forseta landsins eftir að það hlaut sjálfstæði undan ný- lendustjórn Hollendinga fyrir 54 árum, og nýtur hún enn í dag góðs af vinsældum hans. Hún er fjögurra barna móðir og hefur oft virzt þykja sú mikla athygli sem að henni hefur beinzt óþægi- leg. Indónesíska þingið kaus hana í gær í embætti varaforseta, eftir að hún hafði daginn áður tapað óvænt í sjálfu forsetakjörinu fyrir múslímaleið- toganum Abdurrahman Wahid. Stuðningsmenn Megawati tóku ósigur hennar í forsetakjörinu óstinnt upp og efndu víða til óeirða í kjölfarið, þrátt fyrir að hún skoraði á þá að sýna stillingu. Var óttast að óeirðirnar kynnu að fara úr bönd- unum ef hún hefði líka tapað í varaforsetakosn- ingunum. Vinsældir Sukarno-nafnsins skiluðu flokki Megawati sannfærandi kosningasigri í þing- kosningum í júní sl., og í skoðanakönnunum hef- ur ítrekað komið fram að helmingur kjósenda að minnsta kosti vildi helzt sjá hana setjast í for- setastólinn. Vinsældir duga ekki til En almenningsvinsældir Megawati og kosn- ingasigurinn í þingkosningunum nægðu ekki til að tryggja henni forsetaembættið, sem hin- ir 700 fulltrúar á æðstu löggjafarsamkundunni kjósa. 500 þeirra eru kjörnir þingmenn, 200 eru tilnefndir af hernum og öðrum stofnunum ríkisins. Kosningasigurinn í júní dugði flokki hennar ekki til að ná ráðandi stöðu á þinginu. Megawati varð því að reiða sig á stuðning Reuters . Megawati Sukarnoputri sver embættiseið sem varaforseti Indónesíu í þinginu í Djakarta í gær. fleiri flokka á þinginu til að tryggja sér for- setaembættið. En hún hikaði við að gangast inn á pólitísk hrossakaup í þessu skyni, og saup seyðið af því með því að Wahid, sem hafði verið í hópi bandamanna hennar, bauð sig sjálfur fram og tryggði sér fleiri atkvæði þing- fulltrúa en hún. Vinsældir hennar eru rótgrónastar meðal al- múgafólks - íbúa fátækrahverfa í stórborgum, atvinnulausra, láglaunaverkafólks, námsmanna. Sem varaforseti hins heilsuveila Wahids er fast- lega búizt við því að hún eigi eftir að gegna meira en formlegu hlutverki. Kjör hennar er talið líklegt til að hjálpa til við að róa ástandið úti um alla Indónesíu. I góðri aðstöðu til að taka við „Sumir stjórnmálaskýrendanna hafa sagt að það sé ekki sterkasta hlið Gus Dur [eins og Wa- hid er almennt kallaður] að sjá um hið daglega stjórnsýsluamstur. Ég myndi ekki segja að Megawati væri sterk í því heldur, en með tilliti til stuðnings almennings [við stjórnvaldsaðgerð- ir] er þetta bezta niðurstaðan," hefur Reuters eftir Adrian Vickers, sérfræðingi í málefnum Indónesíu við Woolongong-háskóla í Ástralíu. „Þar sem Gus Dur er heilsuveill er þetta h'ka góð ákvörðun vegna þess að með henni er Megawati komin á beinu brautina að því að verða næsti forseti. Ég held að flestir yrðu mjög sáttir við það,“ sagði hann. Uppgangur Megawati í stjórnmálum Indónesíu hefur verið skjótur. Lítið var vitað hvað í henni byggi sem stjórnmálamanni þar til árið 1996, þegar herstjórn Suhartos tókst að svipta hana formannshlutverkinu í Lýðræðis- flokki Indónesíu, sem þá var minnsti flokkurinn af þeim þremur sem heimilt var að eiga fulltrúa á þingi á Suharto-árunum. Þegar hinn útvaldi arftaki Suhartos, B.J. Habibie, lét undan þrýst- ingi og heimilaði nýjum stjórnmálaflokkum að starfa í landinu, stofnaði Megawati til klofnings- framboðs frá Lýðræðisflokknum og þegar öðr- um flokkum en Golkar-flokknum, stjómarflokki Suhartos, var loks gert kleift að bjóða fram með raunverulega lýðræðislegum hætti í júní sl. varð flokkur hennar stærstur. Ný stjórn í Portúgal ANTONIO Guterres, forsætis- ráðherra Portúgals og leiðtogi Sósíalistaflokksins sem sigraði í þingkosning- unum sem fram fóru fyrr í mánuðinum, skipaði nýja ríkisstjórn í gær. Mesta athygli við ný- skipun minni- hlutastjórnar Guterres vakti val hans á Joaquim Pina Moura í embætti fjármála- og efnahagsmálaráð- herra, en hann sat áður á þingi fyrir kommúnista. Hann er nú meðal nánustu samheijum Guterres og var efnahagsmála- ráðherra í fráfarandi stjóm. Með því að sameina þessi tvö ráðu- neyti á hendi eins ráðherra er ætlunin að sýna að nýja stjórnin leggi mikla áherzlu á samhæf- ingu efnahagsstefnunnar. Þing- menn sósíalista era einum færri en dygði til hreins meirihluta. Tékkneskir kommúnistar á uppleið SAMKVÆMT niðurstöðu nýrr- ar skoðanakönnunar eru komm- únistar, sem vilja taka aftur upp miðstýrt hagkerfi, vinsælasti stjórnmáiaflokkur Tékklands. Mælist fylgi við hann nú, tíu ár- um eftir að Tékkar brutust með „flauelsbyltingunni" undan oki kommúnismans, 21%, en Borg- aralegi lýðræðisflokkurinn (ODS), sem er hægi'a megin við miðju og hefur verið stærsti flokkurinn fram að þessu, hrap- ar niður í 17%. Hefur samdrátt- ur í efnahagslífi Tékklands ýtt undir vinsældir kommúnista. Pólitískar aug’lýsing’ar bannaðar ÖLDUNGADEILD ítalska þingsins samþykkti í gær löggjöf sem bannar pólitískar auglýsing- ar í sjónvarpi. Ríkisstjómin lagði fram frumvarp þessu aðlútandi í ágúst sl„ eftir að stjómarand- staða hægrimanna, sem fjöl- miðlabaróninn Silvio Berluseoni fer fyi-ir, vann mikið fylgi í kosn- ingum til Evróppþingsins og til sveitarstjóma á Ítalíu. Mál „Rauðu ömmunnar“ í athugun BREZKIR saksóknarar hafa á ný tekið til við að rannaka mál hinnar 87 ára gömlu Melitu Norwood, sem játað hefur af sjálfsdáðum að hafa stundað njósnir fyrir Sovétríkin. Brezki innanríkisráðherrann Jack Straw tjáði þinginu þetta í gær. Elztu risa- eðluleifarnar KJÁLKABEIN tveggja forn- eðla á stærð við kengúru, sem fundust á Madagaskar nýlega, eru hugsanlega elztu risaeðlu- leifar sem fundizt hafa á jörðinni fram að þessu. Sögðu vísinda- menn í gær að fyrstu vísbend- ingar um aldur leifanna bentu til að eðlurnar hefðu lifað fyrir um 230 milljónum ára.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.