Morgunblaðið - 22.10.1999, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.10.1999, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Trevanian snýr aftur með vestra Hönnun í fortíð, nútíð og framtíð Morgunblaðið/Sverrir Frá vinstri á myndinni eru Reyer Kras, Anniken Thue, Volker Al- bus, Aðalsteinn Ingólfsson og Paul Thompson. ERLEIVDAR BÆKUR V e s t r i ATVIKIÐ VIÐ TUTTUGU- MÍLUR „INCIDENT AT TWENTY-MILE" eftir Trevanian. St. Martin’s Paper- backs 1999. 343 síður MAÐUR er nefndur Trevanian. Það er ekki hans raunverulega nafn heldur nafn á glæpasagnarithöfundi sem vakti talsverða athygli á átt- unda áratugnum fyrir hressilegar spennusögur en einhverjar þeirra vora m.a. þýddar á íslensku. Má þar nefna fyrstu bókina, Mannaveiðar eða „The Eiger Sanction", sem Clint Eastwood kvikmyndaði með góðum árangri. Það hefur aldrei orðið opin- bert hver Trevanian er, hann mun eiga heimili í Baskahéruðum Frakk- lands, en hann virtist hætta ritstörf- um íyrir eins og fimmtán árum síðan eftir að hann sendi frá sér bók sem hann kallaði „Shibumi“. Svo gerðist það eins og upp úr þurru árið 1998 að út kom ný skáldsaga eftir hann, sem hann nefndi Atvikið við Tutt- ugumílur eða „Incident at Twenty- Mile“, og er glettilega vel saminn og gisþa frambærilegur vestri. I nýju bókinni býr Trevanian til bæði forsögu og eftirmála sögunnar og kemur fram í eftirmálanum að þetta verði hans eini vestri og að hann hafi langað til þess að búa til eitthvað nýtt úr hinum alkunnu vestraklisjum. Þá á hann við karakt- era eins og byssuglaða barnungann, berklaveika fjárhættuspilarann, hóruna með gullhjartað, hinn heim- spekilega þenkjandi búðareiganda, útnáraprestinn, óspjölluðu meyjuna, utangarðsmennina og útlagann sem ríður inn í bæinn og hleypir öllu í bál og brand. Það verður ekki annað sagt en að Trevanian takist frábær- lega ætlunarverk sitt. Atvikið við Tuttugumílur kom ný- lega út í vasabroti hjá St. Martin’s útgáfunni og er stór og miki] saga um námabæ sem kallast Tuttugu- mflur og má muna fífil sinn fegri, það mannlíf sem orðið hefur eftir í bæn- um þegar mestur blóminn er farinn af honum og þá menn sem þvælast til hans í óvissum eða illum tilgangi. Sagan er þrælskemmtileg aflestrar, hún er á sinn hátt tregafull, grimmi- leg og vægðarlaus í ofbeldislýsing- um sínum, persónusköpunin er sterk og það safn persóna sem Trevanian býr til úr bæjarbúum sprettur ljósl- ifandi fram af síðum bókarinnar og heldur athygli manns algerlega í gegnum 340 þéttskrifaðai’ síður. Hún er skopleg á köflum, kaldhæðn- isleg, sorgleg og síðast en ekki síst spennandi en það er nokkuð sem alltof margar spennusögur dagsins skortir mjög. Segja má að atburðir sögunnai’ séu að miklu leyti séðar með augum unglingspflts sem vesöldin hefur sent á þennan stað. Hann heitir Matthew og vill láta öðrum líka við sig. Þess vegna lýgur hann eins og hann má þar til hann er orðinn allt í öllu í námabænum og jafnvel þegar geðsjúkur morðingi kemur ásamt tveimur liðsmönnum sínum til bæj- arins tekst honum að vingast við hann. Morðinginn, Lieder að nafni (að einhverju leyti orðinn til fyrir áhrif frá Thomas Hairis), hefur sloppið úr fangelsi í Laramie og hef- ur ekkert nema illt í hyggju í náma- bænum og það kemur fljótt í ljós þegar hann mætir þangað. Eina von bæjarbúa verður Matthew litli, sem á skelfilega fortíð að baki, kom í bæinn með heimatilbúna haglabyssu á bakinu og á það til að loka sig frá umheiminum þegar eitthvað veru- legtbjátará. Fjöldi annarra persóna kemur við sögu og eftir því sem maður les lengra inn í bókina því kærari verður hún manni. Formálinn og eftirmál- inn em tfl þess að auka á tilfinninga- legt gildi hennar. Enn er ekki vitað hver Trevanian er og lfldega skiptir það engu máli ef hann bara heldur áfram að senda frá sér svona fínar sögur. STAÐA hönnunarsafna í nútíð og framtíð var efniviður málþings sem haldið var á dögunum í tengslum við nýstofnað Hönnunarsafn Islands. Fræðimenn og forstjórar er- lendra hönnunarsafna vora meðal frummælenda á þinginu og komu þar fram mörg áhugaverð atriði sem hafa ber í huga varðandi hlut- verk hönnunarsafna. Meðal frammælenda var Annik- en Thue, forstöðumaður hönnunar- safnsins í Osló. Hún rakti m.a. það breytilega hlutverk sem hönnunar- safnið í Osló hefur gegnt í gegnum tíðina. Thue sagði t.d. að safnið, sem á 125 ára afmæli um þessar mundir, hefði upphaflega fengið það háleita hlutverk að endurmóta og bæta smekk almennings. Hún vakti síðan máls á þeirri spurningu að umdeil- anlegt væri hvort ætla mætti hönn- unarsafni slíkt hlutverk í dag, þegar sífellt væri leitað nýrra leiða í list- sköpun og fagurfræðin ein væri ekki höfð að leiðarljósi. _ Hönnunarsafninu í Ósló var þó einnig ætlað það hefbundna hlut- verk að varðveita áhugaverða þætti norskrar hönnunar - muni sem legðu áherslu á sérstöðu landsins, til að mynda við veggteppa- og silf- urmunagerð íyrri alda. Val á að byggja á gæðum „Eitt meginhlutverk safnsins hefur þó verið að safna munum sem þykja einstakir sökum gæða sinna,“ sagði Thue og kvað verðmætamat og áherslur safnsins engu að síður hafa verið breytilegar í gegnum tíð- ina. Sýning samtímamuna vekti t.d. alltaf spurningar um hve lengi þeir teldust hluti samtíðar og hvenær þeir yrðu hluti fortíðar og sögu. „Það era þó gæði gripanna í eigu safnsins sem verða að teljast aðal hvers hönnunarsafns," sagði Thue við viðstadda og hvatti forráðamenn Hönnunarsafns Islands til að vera óhræddir við að velja og hafna mun- um á grandvelli gæða. Thue hvatti aðstandendur safns- ins þá ekki síður tfl að gæta sín á magni safnmuna, en að hennar mati er munafjöldi hönnunarsafnsins í Osló, um 45.000 gripir, of mikið. „Það sem hafa ber þó í huga um- fram aðra þætti við uppbyggingu Hönnunarsafns Islands, er að þar á að byggja safn íslenskrar hönnun- arsögu.“ Aðrir frammælendur málþings- ins, sem fram fór í Fjölbrautarskóla Létt og TOIVLIST Salurinn EINSÖNGSTÓNLEIKAR Sönglög eftir Bellini, Pál ísólfsson, Schubert, Wolf, Debussy og Ravel. Elín Huld Árnadóttir sópran; Will- iam Hancox, píanó. Þriðjudaginn 19. október kl. 20:30. SÓPRANSÖNGKONAN Elín Huld Arnadóttir, sem lauk fram- haldsnámi úr Trinity College of Music í fyrravor, „debúteraði” á söngtónleikum í Tónlistarhúsi Kópavogs á þriðjudagskvöldið var. Dagskráin var afar skemmtileg áheymar, þótt ekki væri mótuð af mikilli dramatík, heldur dvaldi mest á lýrískum nótum. Hér gat að heyra ljóðræn einsöngslög og „ar- íettur“ af ýmist rómantískum, imp- ressjónískum eða þjóðlagaleitum toga. Þau vora vel valin og mörg þeirra fremur fáheyrð hér um slóð- ir. Það var og meðverkandi til að ljá tónleikunum heilsteypt yfirbragð, að flest framlög hvers tónskálds um sig vora heilir og óstyttir ljóða- flokkar, og væri vert ef fleiri söngv- arar tækju sér það til fyrirmyndar eftir föngum við dagskrárgerð. Fyrst vora þrjár smáaríur eftir Vincenzo Bellini úr safninu „Sei ar- iette“; þekktust þeirra líklega Mal- inconia, ninfa gentile sem Gunnar Guðbjömsson söng á óperatónleik- um í vor með Sinfóníuhljómsveit- inni. Þrátt fyrir titilinn kallar pían- ósatzinn á ákveðna dansandi sem tíð rúbatí flytjenda drógu óþarflega mikið úr. Hinir meistaralegu Söngvar úr Ljóðaljóðum, eini ljóða- flokkur Páls Isólfssonar, voru næstir á blaði, og þar á eftir Lieder der Mignon, hinn vandaði flokkur Schuberts við ljóð Goethes sem skáldjöfurinn leggur í munn stúlk- unnar munaðarlausu í skáldsögu hans Wilhelm Meisters Lehrjahre. Söngur Elínar Huldar var fremur til hlés í þessum fyrri hluta, enda inntak laganna sem fyrr sagði ekki tilefni stórátaka. Nærgætin og allt að því hlédræg túlkun hennar áttí samt víða vel við, kannski einkum í lögum hinnar umkomulausu Mign- on, þó að jafnvel innan slíks þröngs ramma hefði mátt tefla fram fleiri litbrigðum en gert var. Textafram- burðurinn var skýr og fallegur í töluvert kröfuhörðum lögum Páls, þar sem söngkonan komst furðuvel frá nokkrum erfiðum hæðarstökk- um, t.a.m. í I hvílu minni um nótt. Hinn að jafnaði tillitssami og flos- Garðabæjar, vora þau Paul Thomp- son, forstjóri Design Museum í London, Volker Albus, prófessor við Háskólann fyrir hönnun í Frankfurt, Reyer Ki’as, forstöðu- maður hönnunardeildar Stedelijk- safnsins í Amsterdam, og Aðal- steinn Ingólfsson, listfræðingur og umsjónannaður Hönnunarsafns Is- lands. látlaust mjúki undirleikur brezka píanist- ans virtist þar aftur á móti nokkuð stirður hjá öðru, en náði sér þó aft- ur á strik í síðasta lagi flokksins, Hvað er það sem kemur úr heið- inni? Síðust fyrir hlé birtist svo létt- asta hliðin á hinum annars njörvaða Hugo Wolf með þrem stuttum sönglögum, er tókust allvel, bui’tséð frá fyrsta laginu, In dem Schatten meiner Locken, sem var framan af svolítið ósamtaka milli söngs og leiks. I seinni hluta voru fyrst sex æskulög eftir Claude Debussy við ljóðaperlur Verlaines, „Ariettes oubliées", sem þegar lofa meista- rann verðandi í litríkri meðferð píanós og sönglínu. Má eiginlega telja undranarefni hvað þau heyr- ast hér sjaldan, hvað þá í heild. Það var eins og ofurljóðræn tónlist Debussys, og kannski líka franski textinn, kæmu söngkonunni meira á skrið en það sem á undan gekk, því söngurinn varð hér töluvert meira streymandi en áðm’, og þrátt fyrir nokkrar stirðar hánótur í síð- asta laginu, Spleen, var margt ág- ætavel sungið, t.a.m. hið heillandi II pleure dans mon coeur og valhopp- andi gáskafulla lagið um tréhest- ana, Cheveaux de Bois. Enn betur var gert í hinum fimm lindartæra „grísku“ lögum Ravels, Cinq mél- odies populaires greques, þar sem létt og látlaus nálgun flytjenda hæfði viðfangsefninu sérlega vel. Söngrödd Elínar Huldar virtist henta ágætlega lagavali kvöldsins, þótt varla kæmi fyrir sem fullmótuð enn sem komið er. Þó að brjóst- tónasviðið - sem manni heyrist því miður oft vanrækt hjá íslenzkum ljóðasöngvuram - hljómaði fallegt og óþvingað virtist hæðin enn eiga smávegis eftir í að ná opnum og af- slöppuðum blæ. Inntónun var hins vegar oftast til fyrirmyndar góð, enda söngurinn í heild fremur vai’- færinn; að vísu stundum á kostnað textatúlkunar. Undirleikur Will- iams Hancox bar með sér, að hér fór þaulreyndur samleikspíanisti, þó að Ljóðalög Páls hefðu eflaust þolað meiri yfirlegu. Tónleikaskrárfrágangur Salar- ins hefur eftir þessu tilfelli að dæma tekið markverðum framförum, þar sem nú má finna stuttar en gagn- orðar upplýsingar um verkin (að vísu að Bellini slepptum) og með- fylgjandi textahefti með þýðingum. A móti kemur loftræstisuð, sem enn er greinanlegt á hljóðlátustu augnablikum. Og eitt lítið(?) atriði enn: sætin hallast fullmikið fram! Ríkarður Ö. Pálsson Arnaldur Indriðason SIEMENS Haust-Búhnykkur! Siemens uppþvottavél SE 34200 Ný þvottavél frá Siemens WM 54060 Sannkölluð hjálparhella í eldhúsinu. Einstaklega hljóðlát og sparneytin. Fjögur þvottakerfi, tvö hitastig (nauðsynlegt fyrir viðkvæmt leirtau), fjórföld ftæðivörn með Aqua-Stop. Þetta er uppþvottavél eins og þúviltnafahana. ^ Á þessu fína verði núna: ^ 49-900 Ur. stgr. Berðu saman verð, gæði og þjónustu! Umboösmenn um iand allt! Þvottavél eins og allir vilja eignast! • Algjör nýjung: Sérstakt krumpuvarnarkerfi • Tekur 6 kg • Óvenjustór lúga • 15 þvotta- og sérkerfi • 35 mínútna hraðkerfi • 1000sn./mín. • Allar innstillingar mjög auöveldar • Glæsileg hönnun • Vélin er algjörlega rafeindastýrð • Þvottavirkniflokkur A • Orkuflokkur A • Mjög þýðgeng og hljóðlát þvottavél __ Á frábæru kynningarverði: * stgr. 4 4SMITH& “^NORLAND Nóatúni 4 • 105 Reykjavík Sími 520 3000 • www.sminor.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.