Morgunblaðið - 22.10.1999, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 22.10.1999, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÖLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK Frestur til að skila inn þátttökutilkynningum vegna kaupa á FBA rann út í gær Upplysingar ekki g’efnar um þátttakendur í bili ÞATTTÖKUTILKYNNINGAR bárust vegna kaupa á 51% hlut ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins en ekki er upplýst hversu margar bárust eða hverjir eiga aðild að þeim. „Það verður farið yfir þetta núna af hálfu framkvæmdanefndar um einkavæðingu og ákveðins hóps sem var skipaður til þess í því skyni og það má gera ráð fyrir því að niðurstöður þeirrar skoðunar liggi fyrir fljótlega eftir helgi. Hvort þessir aðilar uppfylli þá skilmála sem sett- ir voru fyrir sölunni," sagði Hreinn Loftsson, for- aður framkvæmdanefndar um einkavæðmgu, iegar frestur á skilum þátttökutilkynninga rann út í gær. Framkvæmdaaðili sölunnar hefur tilnefnt Hrein Loftsson, hrl., Jón Sveinsson, hrl., og Brynjólf Sigurðsson prófessor, til að fara yfir þátttökutilkynningarnar. Að sögn Jóns Sveinssonar hæstaréttarlög- manns er óeðlilegt að upplýsa hverjir þeir aðilar eru sem skiluðu inn þátttökutilkynningum. Ekki sé Jjóst hvort þeir uppfylli skOyrðin og ef þeir geri það ekki sé ekki rétt að segja hverjir þeir séu tO að mynda ef þeir detti jafnvel út. „Það mun vænt- anlega liggja íyrir fljótlega eftir helgi hveijir þessir aðilar eru í smáatriðum," segir Jón. Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Reykjavíkur og stjórnarformaður Kaup- þings hf., segir að hvorki sparisjóðirnir né Kaup- þing hafi tOkynnt þátttöku í útboðinu. Að sögn Guðmundar var ætlunin að taka þátt en fallið var frá því í gær eftir að ýmsir möguleikar höfðu ver- ið kannaðir. „Við einfaldlega fundum ekki niður- stöðu í málinu sem við töldum að við gætum un- að. Þetta er flókið mál og stórt og mikil áhætta tekin ef menn telja sig ekki vera með í hendi lausn á öllum málum sem upp kunna að koma. Okkar niðurstaða var sú að við værum ekki komnir nægjanlega langt innan þess tímafrests sem gefin var til að botna þau mál.“ I gær námu viðskipti með hlutabréf FBA 46,5 mOljónum króna á Verðbréfaþingi Islands og hækkaði gengi þeirra um 3,3%, úr 2,69 í 2,78. ■ Ekki gefið upp/22 Gerð snjó- flóðavarna- garðs hafín •Neskaupstað - Nýverið voru hafn- ar framkvæmdir við gerð snjó- flóðavarnagarðs í fjallinu ofan við miðbæinn í Neskaupstað. Kostnaður er áætlaður 240 milljónir króna. Sá hluti garðsins sem að fjallinu snýr mun verða um 17 metra hár en garðurinn allur verður 400 metra Iangur. Einnig verða reist- ar 10 svokallaðar keilur, 10 metra háar, ofan við garðinn og eru þær hugsaðar til að brjóta upp hugsan- legt snjóflóð áður en að það nær að sjálfum vamargarðinum. -------------- Leikskóla- v kennarar sýknaðir í Félagsdómi FÉLAGSDÓMUR kvað upp dóm í gær í máli launanefndar sveitarfé- laga gegn Félagi íslenskra leikskóla- kennara. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að uppsagnir leikskóla- kennara hjá Árborg í sumar væru ekki ólöglegar. En leikskólakennar- ar sögðu upp störfum með lögbundn- um uppsagnarfresti vegna óánægju með launamál. Launanefnd sveitarfélaga sótti málið fyrir hönd Arborgar og hélt því fram að uppsagnir leikskóla- kennaranna hefðu verið skipulagðar fjöldauppsagnir og því brot á friðar: skyldu á gildistíma kjarasamnings. í friðarskyldu felst að aðilum kjara- samnings er á samningstímabili óheimilt að standa að vinnustöðvun til þess að knýja á um breytingar á ákvæðum kjarasamnings. Þessu er hafnað í niðurstöðu dómsins á þeim forsendum að þeir einstaklingar sem sögðu störfum sínum upp séu ekki «iðilar að kjarasamningi heldur stétt- íirf'élag þeirra. Segir meðal annars í dómnum að uppsagnir einstakra fé- lagsmanna á ráðningarsamningum einar og sér geti því ekki talist brot á friðarskyldu. Einnig er því hafnað í dómsúrskurði að stéttarfélag leik- skólakennaranna hafi með nokkrum hætti komið að uppsögnunum. Úr- urði Félagsdóms er ekki hægt að írýja. afr Unnið við gerð snjóflóðavarnagarðs í Neskaupstað. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Yfirlýsing frá bandaríska varnar- málaráðuneytinu Island var ekki á list- anum NAFN íslands var ekki að finna á skjali sem hefur að geyma nöfn landa þar sem kjarnorkuvopn voru geymd á tímum kalda stríðsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá bandaríska varnarmálaráðu- neytinu. I yfirlýsingu varnarmála- ráðuneytisins segir: „Sem íyrr hvorki staðfestum við né neitum fullyrðingum um stað- setningu kjarnorkuvopna á einstökum stöðum. Við höfum átt ítarlegar við- ræður við íslensk stjórnvöld um það hvort bandarísk kjamorkuvopn hafi nokkru sinni verið staðsett á Islandi og þá meðal annars með tOliti tO nýbirtrar greinar í The Bulletin of Atomic Scientists og vangaveltur þar að lútandi. Hvað varðar samantektina um geymslu og staðsetningu kjamorkuvopna, sem rætt er um í BAS viljum við leggja áherslu á að vangaveltur í greininni um að kjarnorku- vopn hafi verið staðsett á ís- landi eru rangar. Þótt við ætl- um okkur ekki að skýra frá þeim nöfnum sem felld voru út úr skjalinu þegar það var birt samkvæmt bandarískum upplýsingalögum þá er stað- reyndin sú að orðið sem var fellt burt var ekki „Island", heldur nafn á allt öðrum stað.“ ■ Staðurinn í/2 Frumvarp til fjáraukalaga lagt fram á Alþingi Einum milljarði varið til reksturs sjúkrahúsanna í FRUMVARPI til fjáraukalaga fyrir árið 1999, sem lagt var fram á Alþingi í gær, er gert ráð fyrir að einum milljarði króna verði varið til reksturs sjúkrahúsanna í Reykjavík. Útgjöld ríkissjóðs aukast samkvæmt frumvarpinu um tæplega 5 milljarða króna. Alls er lagt til að fjárheimild heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytis verði aukin um 2.973,7 millj- arða króna og þar af er gert ráð fyrir rúmlega 1 milljarðs aukafjár- veitingu til sjúkrahúsanna. Er sótt um aukna fjárheimild til handa Ríkisspítulum upp á 560,5 milljónir króna og 500,5 milljónir til handa Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Aætlaður uppsafnaður rekstrarhalli spítal- anna vegur hér þyngst, eða um 411 milljónir króna í tilfelli Rflrisspít- ala, og um 287 milljónir króna í til- felli Sjúkrahúss Reykjavíkur. Betri afkoma ríkissjóðs I frumvarpi til fjáraukalaga er ennfremur lagt til að fjárheimild menntamálaráðuneytis verði aukin um 991,6 milljónir króna og vegur þar þyngst umframkostnaður Há- skóla Islands, en sótt er um 341,3 milljónir króna vegna hans. Loks er sótt um 610,4 milljóna króna aukafjárveitingu fyrir dóms- og kirkjumálaráðuneytið, þar af er óskað eftir aukafjárveitingu að fjárhæð 122,8 mOljónir króna til Lögreglustjóraembættisins í Reykjavík. I endurskoðuðum áætlunum fjár- málaráðuneytisins er gert ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 1999 verði talsvert betri en fjárlög ársins gerðu ráð fyrir. Er áætlað að tekju- afgangur verði 7,5 milljarðar króna í stað 2,4 milljarða og að lánsfjár- jöfnuður verði 20,5 milljarðar í stað 16,7 milljarða króna. Fram kemur í athugasemdum fjáraukalagafrumvarpsins að fyrir- hugað sé að bætt afkoma ríkissjóðs verði notuð til að greiða niður skuldir og tO að styrkja stöðu ríkis- sjóðs með öðrum hætti. Tekjur ríkisins á árinu verða, skv. áætlun fjármálaráðuneytis, 194,8 milljarðar króna en skv. fjárlögum var ekki gert ráð fyrir að þær yrðu nema 184,8 milljarðar. Þessi hækk- un er rakin nær alfarið til hærri tekna og meiri umsvifa í efnahags- lífinu en búist var við í lok síðasta árs. Sérstaklega hafa tekjuskattar einstaklinga og félaga skOað meiru en áætlað var eða um 4,6 mOljörð- um. Gjöld ríkisins eru jafnframt meiri en áætlað var, 187,3 milljarðar í stað þeirra 182,4 mOljarða króna sem áætlað var í fjárlögum. Hins vegar er sótt um nokkru hærri fjár- heimildir en nemur áætluðum út- gjöldum á þessu ári, eða 5,5 mdlj- ai'ða króna, og stafar mismunurinn af því að í fjáraukalagafrumvarpinu er sótt um heimddir vegna fyrri ára sem þegar eru komnar fram í ríkis- reikningi 1998. Er þar um að ræða uppsafnaðan rekstrarhalla stofn-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.