Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurnóvember 1999næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    2829301234
    567891011

Morgunblaðið - 21.11.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.11.1999, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999 MORGUNB L AÐIÐ Borö- eðd veggsími Borð- eðd veggsími Borðsími Topcom Deskmaster 123 Telia Vigor Borðsími m/skjá Borðsími m/númerdbirti, 90 rtúmer ásdmt ddgsetningu og klukku Logger Nova Númerdbirtir. 30 númer ásdmt ddgsetningu og klukku Telia Delphi 20 Sdmbyggt íaxtæki og sími, A4 pdppír Doro Petit Smásími - ótrúlegd tftill — Doro Prismd Trdustur veggsfmi Doro Extrd Plus Borðsími m/stórum tökkum Númerdbirtir, 120 númer ásdmt ddgsetningu og klukku www.simi.is/simdr Þjónustumiðstöðvar Símans um land allt. Safnaðarstarf Tómasarmessa í Breiðholtskirkju ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar Tómasarmessur efnir til þriðju messunnar á þessu hausti í Breið- holtskirkju í Mjódd sunnudagskvöld- ið 21. nóvember kl. 20. Tómasarmessan hefur vakið at- hygli víða um lönd á undanfórnum áram og eru slíkar messur jafnan fjölsóttar og hefur svo einnig verið hér. Messan hefur vakið mikla ánægju þeirra sem þátt hafa tekið og virðist hafa unnið sér fastan sess í kirkjulífí borgarinnar. Óspart hefur verið hvatt til þess að áfram erði haldið á sömu braut. Því hefur verið ákveðið að slík messa verði haldin reglulega á komandi vetri, síðasta sunnudag í mánuð, þótt nú sé gerð þar undantekning á, þar sem síðasti sunnudagur í nóvember er einnig 1. sunnudagur í aðventu. Það er von okkar sem að messunni stöndum, að þær góðu móttökur sem Tómasar- messan hefur hlotið hingað til gefi tóninn um framhaldið og að hún megi áfram verða mörgum til blessunar og starfi íslensku kirkjunnar til eflingar. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbúningi og framkvæmd Tómasarmessunnar og er það yfir 30 manna hópur, bæði leikmenn og prestar, sem standa að hverri messu. Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf íyrir 10-12 ára mánudag kl. 17. Friðrikskapella. Kyrrðarstund í há- degi á morgun, mánudag. Léttur málsverður í gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. Laugarneskirkja. Morgunbænir mánudag kl. 6.45. Mánudagskvöld kl. 20.12 spora hópurinn. Neskirkja. TTT, 10-12 ára starf, mánudagkl. 16. Kirkjukór Neskirkju æfir mánudag kl. 19. Nýir félagar velkomnir. Fótsnyrting á vegum Kvenfélags Neskirkju mánudag kl. 13-16. Upplýsingar í síma 551 1079. Mömmumorgnar alla miðvikudaga kl. 10-12. Seltjarriarneskirkja. Æskulýðsfélag- ið kl. 20-22. Árbæjarkirkja. Kirkjuprakkarar, 7-9 ára, kl. 16-17 á mánudögum. TTT-starf 10-12 ára, kl. 17-18 á mánudögum. Eldri deild æskulýðsfé- lagsins kl. 20-22. Yngri deild Æsku- lýðsfélagsins kl. 20-22. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum kl. 17-18. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk á mánudögum kl. 20-22. Bænastund og fyrirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bænaefnum í kirkjunni. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkjunni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir unglinga 13-15 ára ki. 20.30 á mánu- dögum. Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Um- sjón dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Seljakirkja. KFUK fundir á mánu- dögum. Kl. 17.15 stelpustarf á vegum KFUK og kirkjunnar fyrir 6-9 ára og kl. 18.30 fyrir 10-12 ára. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Unglinga- kór á mánudögum kl. 16.30-18.30. Æskulýðsfélag mánudag kl. 20-22. Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðsstarf yngri deild kl. 20.30-22 í Hásölum. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel- komnir. Hvammstangakirkja. KFUM og K starf kirkjunnar mánudag kl. 17.30 á prestssetrinu. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 11 barnaguðsþjónusta. Framtíðar- landið afhent eftir samveruna, en það er bókargjöf Landakirkju inn á hvert heimili í Eyjum þar sem 4-10 ára börn búa. Kl. 14 messa með altaris- göngu. Fermingarbörn lesa lexíu og pistil. Framtíðarlandið afhent eftir messu, en það er bókargjöf Landa- kirkju inn á hvert heimili í Eyjum þar sem 4-10 ára börn búa. Kaffisopi eftir messu. Kl. 20.30 æskulýðsfund- ur í safnaðarheimilinu. Fínir leiðtog- ar. Mán.: kl. 20 vinnufundur Kvenfé- lags Landakirkju. Fríkirkjan Vegurinn. Fjölskylduhá- tíð kl. 11. Komum saman og fógnum í húsi Drottins. Léttar veitingar seldar eftir samkomuna. Samkoma kl. 20. Högni Valsson prédikar. Allir hjart- anlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Hinrik Þorsteinsson, forstöðumaður í Kirkjulækjarkoti. Almenn samkoma kl. 16.30. Lofgjörðarhópurinn syng- ur, ræðurmaður G. Theodór Birgis- son, forstöðumaður á Akureyri. Allir hjartanlegga velkomnir. Mánudagur: Marita-samkoma kl. 20. Hvammstangakirkja. KFUM og K starf kirkjunnar mánudag kl. 17.30 á prestssetrinu. Akraneskirkja. Mánudagur: Fundur í æskulýðsfélaginu í húsi KFUM og K kl. 20. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Á morgun, mánudag: Unglingadeild KFUM & K kl. 20 fyrir 13 ára og eldri. Lágafellskirkja. Mánudagur: Kirkju- krakkar - starf fyrir 7-9 ára börn frá kl. 17.15-18.15. Húsið opnað kl. 17. Umsjón Þórdís. Víkurprestakall í Mýrdal. Ferming- arfræðsla á mánudögum kl. 13.45. HAGSTOFA ÍSLANDS - ÞJÓÐSKRÁ Er löghcimili yðar rétt skráð í þjóðskrá? Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. desember. Mikilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá. Hvað er lögheimili? Samkvæmt lögheimilislögum frá árinu 1991 er lögheimili sá staður, þar sem maður hefur fasta búsetu. Hvað er föst búseta? Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómslundum sínum, hefur heimil- ismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að Iög- heimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma. Hvað er ekki föst búseta? Dvöl frá heimili um stundarsakir t.d. vegna orlofs, vinnu- ferða og veikinda er ekki breyting á fastri búsetu og þar af leiðandi ekki breyting á lögheimili. Sama gildir t.d. um dvöl í gistihúsum, sjúkrahúsum, heimavistarskólum og fangelsum. Hvenær og hvar skal tilkynna flutning? Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má tilkynna flutning beint til Hagstofu íslands — Þjóðskrár eða lögregluvarðstofu í Reykjavík. Tilkynn- ingar skulu vera skriflegar á þar til gerðum eyðublöðum. Hagstofa íslands - Þjóðskrá Skuggasundi 3, 150 Reykjavík, sími 560 9800, bréfsfmi 562 3312.

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: Morgunblaðið B - Sunnudagur (21.11.1999)
https://timarit.is/issue/132324

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

Morgunblaðið B - Sunnudagur (21.11.1999)

Aðgerðir: