Morgunblaðið - 17.12.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.12.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 288. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Friðarfundur fsraela og Sýrlendinga Viðræðum haldið áfram * • íjanuar Wahington, Arab Saiim. AP, AFP. SAMNINGAMENN ísraela og Sýr- lendinga komust í gær að samkomu- lagi um að friðarviðræðum þjóðanna yrði fram haldið þriðja janúar á næsta ári. Bill Clinton Bandaríkja- forseti tilkynnti ákvörðunina í Was- hington þar sem tveggja daga friðar- viðræðum ríkjanna lauk í gær. „Við verðum nú vitni að nýju upp- hafi að tilraunum til að koma á víð- tækum friði í Mið-Austurlöndum,“ sagði Clinton. Ekki kom fram í máli forsetans hvar viðræðurnar yrðu haldnar eða hversu lengi þær myndu standa yfir. UtanríkisráðheiTa Sýrlands, Farouk A1 Sharaa, sagði í gær að Sýrlend- ingar stefndu að því að ná samkomu- lagi fyrir lok næsta árs. Lítið spurðist út um gang við- ræðnanna en hermt er að meðal ann- ars hafi verið rætt um tímaáætlun í sambandi við afhendingu Israela á Gólan-hæðum. Gólan-hæðirnar hafa verið helsta deiluefni þjóðanna allt frá því að Israelar hemumu þær árið 1967. Óttast var að ræða sýrlenska ut- anríkisráðherrans við setningarat- höfn viðræðnanna á miðvikudag hefði spillt upphafí þeima en sá ótti mun ekki hafa verið á rökum reistur. Al-Sharaa, sem neitaði við athöfnina að taka í hönd Baraks, krafðist þess í ræðu sinni að Israelar skiluðu öllu því landsvæði sem þeir hefðu tekið af Sýrlendingum í ófriði. Hann sagði einnig í ræðunni að ísraelar bæru einir ábyrgð á deilum ríkjanna. Israelar lögðu fram formlega kvörtun vegna ræðu Al-Sharaa áður en viðræðurnar hófust í gær en Davíð Levy, utanríkisráðherra Isra- els, sagði síðar um daginn að vel hefði farið á með samninganefndun- um. Sagði hann að samningamenn hefðu jafnvel slegið á létta strengi í viðræðunum. Tuttugu börn særast í árás Israela Tuttugu börn særðust í sprengju- árás Israela á búðir Hizbollah- skæruliða í Líbanon í gær. Sprengj- ur lentu nálægt barnaskóla með fyrrnefndum afleiðingum og sögðu talsmenn skæruliða að árásinni yrði svarað í sömu mynt. Að minnsta kosti þrjú barnanna, sem voru á aldrinum 9-15 ára, voru alvarlega slösuð en önnur höfðu hlot- ið skurði af völdum sprengju- og glerbrota. Skólinn hefur fjórum sinnum áður orðið fyi-ir sprengjuár- ás og árið 1991 létust sjö börn í slíkri árás. Fjórtán ára gamall skólapiltur hreinsar glerbrot af borði sínu eftir sprengjuárásina í Líbanon í gær. Svara gagnrýni NATO Brussel, Grosní. AP, AFP. RÚSSNESKA utamíkisráðuneytið sendi í gær frá sér mjög harðorða yf- irlýsingu í kjölfar gagnrýni NATÓ á stríðsreksturinn í Tsjetsjníu. I loka- ályktun fundar utanríkisráðherra NATO í Brussel eru hótanir Rússa í garð óbreyttra borgara í héraðshöf- uðborginni Grosní fordæmdar. Einnig segir að hernaðaraðgerðir þeirra séu ekki samrýmanlegar þeim skuldbindingum sem Rússland hafi tekið á sig sem meðlimur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE), Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins. „Yfirlýsingin frá NATO-ráðinu er merkingarlaus, óviðunandi og sið- ferðilega röng ef haft er í huga hverj- ir höfundar hennar eru,“ sagði í yfir- lýsingu rússneska utanríkisráðu- neytisins. Telur ráðuneytið Vesturlöndum ekki stætt á því að gagnrýna Rússa eftir loftárásir þeirra í Kosovo. „Rússnesk innan- ríkismál eru ekki, geta ekki verið og munu ekki verða rædd á alþjóðavett- vangi, síst af öllu við NATÓ.“ Chris Patten, sem fer með utan- ríkisviðskiptamál innan fram- kvæmdastjórnar Evi’ópusambands- ins (ESB), lýsti í gær áhyggjum ESB af stríðinu í Tsjetsjníu og til- kynnti að til athugunar væri að end- urskoða viðskiptasamninga við Rússa. Hann bætti við að hann hygð- ist taka málið upp við Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands, á fundi G-8 ríkjanna sem nú stendur yfir í Berlín. Deilur hafa staðið yfir um nokkra hríð vegna meintra van- efnda Rússa á samningunum. ■ Rússneskar/27 A Aætlanir um samruna Telia og Telenor fóru út um þúfur í gær Astæðan sögð vera ólík túlkun samningsins Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. FYRIRHUGAÐUR samruni síma- fyrirtækjanna Telia og Telenor fór í gær út um þúfur með því að stjórn- völd í Svíþjóð og Noregi riftu samn- ingi um samrunann. Þar með er ljóst að stærsti fyrirtækjasamruni í sögu Norðurlanda hefur mistekist. „Jafnvel þótt samruninn gæti hafa verið heppilegur, þá hafa síðustu mánuðir sýnt að erfitt væri að hrinda samruna í framkvæmd," sagði Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Norðmanna, á blaðamannafundi í Ósló í gær er hann kynnti að ekkert yrði úr samruna norsku og sænsku ríkissímafyrirtækjanna. „Skjót lausn var nauðsynleg úr því sem komið var,“ sagði Bondevik. „Mér þykir miður að samruninn strandaði,“ sagði Björn Rosengren, atvinnumálaráðherra Svía, á blaða- mannafundi í Stokkhólmi, sem hald- inn var á sama tíma og fundur Bondeviks. Hann sagði að samrun- inn hefði verið heppilegur bæði út frá viðskiptalegu og pólitísku sjónar- miði, en hefði ekki tekist sökum ólíkrar túlkunar sænsku og norsku stjórnarinnar á þeim samningi sem fyrir lá. Á báðum fundunum var lesin upp sameiginleg tilkynning Bondeviks og Göran Perssons, forsætisráð- herra Svía, þar sem aðeins var sagt að samningnum yrði rift. Sökudólgs leitað I báðum löndum var ákaft spurt hver bæri ábyrgð, en ráðherrarnir voru kurteisir hvor í annars garð og létu engin hranaleg orð falla. Ros- engren var mjög gagnrýndur fyrir það er hann sagði við blaðamenn síð- astliðið haust að Noregur væri síð- asta Sovétlýðveldið. Talið er að um- mæli hans hafí ekki orðið til að bæta andrúmsloftið í samskiptum ríkj- anna. Það var hins vegar túlkun samn- ingsins sem á endanum varð til þess að samrunatilraunin fór út um þúfur. Margir hafa bent á að viðskiptaleg sjónarmið hafi hvað eftir annað orðið að víkja fyrir pólitískum og þjóðern- islegum sjónarmiðum í þessari fyrstu tilraun til að sameina tvö rík- issímafyrirtæki á Norðurlöndum. Upp úr sauð 8. desember er kom að því að stjórn fyrirtækisins ákvað með atkvæðum sænsku stjórnar- mannanna að farsímadeild hins nýja fyrirtækis yrði í Svíþjóð, en Norð- menn vildu hana til sín. I kjölfar þeirrar ákvörðunar kom í ljós að norska og sænska stjórnin túlkuðu samrunasamninginn ólíkt. Síðan þessi deila kom upp hafa hnútur flogið milli norskra og sænskra stjórnarmanna og innan forystu hins nýja fyrirtækis. Eftir því sem dagar hafa liðið og deilan orðið hatrammari hafa líkur á riftun aukist. Aukaklausu kennt um Bjöm Rosengren sagði í gær að orsök deilunnar væri sú að norska stjórnin hefði skrifað inn aukaklausu í frumvarpið um samrunann, sem samþykkt var í norska þinginu. Þar með hefðu Norðmenn bætt inn í samninginn, en síðan ekki getað vik- ið frá skilningi sínum þegar á reyndi. Hann sagðist hafa fullan skilning á athöfnum norsku stjórnarinnar, en sem sænskur ráðherra hefði hann ekki getað blandað sér í norska um- ræðu. Það sem um ræðir er að í sam- runasamningnum kveður á um að ákveðin mál sé ekki hægt að afgreiða áðeins með atkvæðum frá sænskum eða norskum stjórnarmönnum. Norska stjórnin áleit þessa grein ná til staðsetningar farsímadeildarinn- ar, sem hefði verið ólögleg, þar sem eingöngu Svíarnir í stjórninni sam- þykktu hana. Kjell Magne Bondevik sagði að sænski stjórnarformaðurinn hefði með ákvörðun sinni um staðsetningu farsímadeildarinnar sýnt að skiln- ingur hans væri annar en Norð- manna. Neitar ásökunum Berlín. AP. HELMUT Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, neitaði í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi ásökunum um að hann hefði gerst sekur um spillingu. Þetta er í fyrsta skipti sem Kohl tjáir sig opinberlega um ásak- anirnar sem eru til komnar vegna gruns um að greiðslur í leynilega sjóði flokks hans, Kristilegra demókrata (CDU), hafi haft áhrif á ákvarðanir í valdatíð hans. I viðtalinu sagðist Kohl fagna því að fá tækifæri til að greina frá sinni hlið málsins í sjónvarpi. Hann sagði að hann hefði á sex ára tímabili tekið við gjafafé í sjóði flokksins sem hefði numið 1,5-2 milljónum þýskra marka, jafnvirði um 55-75 milljóna ís- lenskra króna. Féð hafi verið notað til að styrkja stöðu flokksins í austurhluta landsins þar sem jafnaðarmenn og kommúnistar hafi haft sterka stöðu. „Ég var aldrei spilltur," sagði Kohl, „ég dró mér aldrei fé og ekkert fór inn á mína eig- in bankareikninga." MORGUNBLAÐIÐ 17. DESEMBER 1999 690900 090000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.