Morgunblaðið - 17.12.1999, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Mikil viðskipti með hlutabréf Landsbanka og; Búnaðarbanka
Skiptar skoðanir á
verðgildi bankanna
Mikil viðskipti hafa verið með hlutabréf í
Landsbankanum á Verðbréfaþinffl Islands
undanfarna daga þrátt fyrir að nú standi yf-
ir sala á 15% hlut ríkisins í Landsbankanum
og Búnaðarbankanum. Mun minni viðskipti
hafa verið með Búnaðarbankann á VÞI en í
báðum bönkunum eru viðskiptin á mun
hærra gengi en í útboðinu.
VERÐBRÉFASÉRFRÆÐINGAR
nefna umframeftirspum og skiptar
skoðanir markaðsaðila á verðgildi
bankanna sem skýringar á þeim
miklu viðskiptum sem átt hafa sér
stað með hlutabréf Landsbankans
og Búnaðarbankans á Verðbréfa-
þingi íslands undanfarið. Viðskiptin
hafa verið á umtalsvert hærra gengi
en í útboðunum sem lýkur í dag.
Sérstaklega er um hlutabréf í
Landsbankanum að ræða en í gær
námu viðskipti með bankann 31,7
milljónum króna á Verðbréfaþingi
íslands og hækkuðu þau um 1,7%.
Lokaverð þeirra var 4,23 sem er
11,3% hærra en í hlutafjárútboðinu.
Lítil viðskipti voru hins vegar með
bréf Búnaðarbankans í gær og var
lokagengi þeirra 4,32 sem er það
sama og það var á miðvikudag og er
um 5% hærra en útboðsgengi.
Sérfræðingarnir virtust sammála
um að ekki bæri á kennitölusöfnun
vegna hlutafjárútboðanna enn sem
komið væri en ekki verða gefnar
upplýsingar um þátttöku í útboðun-
um fyrr en þeim er lokið, að sögn
aðstandenda útboðanna.
Hlutafjárútboð bankanna fer
fram í tvennu lagi, með almennri
áskrift og tilboðsfyrirkomulagi þar
sem lágmarksgengi er 3,8 í Lands-
banka en 4,1 í Búnaðarbanka.
Lágmarksfjárhæð í tilboðssölu er
270 þúsund að nafnverði í Lands-
bankanum og 250 þúsund í Búnað-
arbankanum. Hámark er 55 milljón-
ir króna að nafnverði í
Landsbankanum og 35 milljónir í
Búnaðarbanka.
Góð afkoma og samrunatal leiðir
einnig til verðhækkunar
Tryggvi Tryggvason, forstöðu-
maður markaðsviðskipta á Við-
skiptastofu Landsbankans, segir
töluverð viðskipti hafa verið með
hlutabréf í Landsbankanum undan-
farið á nokkuð hærra gengi en í al-
menna hluta útboðsins, bæði áður
og eftir að útboðsgengið var ákveð-
ið. „Þetta skýrist einfaldlega af
framboði og eftirspurn en eftir-
spurn hefur verið mikil eftir bréfum
í bönkunum, ekki síst í Landsbank-
anum,“ segir Tryggvi og nefnir að
góð afkoma bankanna og tal um
samrunaog hagræðingu stuðli einn-
ig að hækkandi verði.
„Landsbankinn er næststærsta
félagið að markaðsverði á hluta-
bréfamarkaðnum og vegur mjög
þungt í Urvalsvísitölunni en ein-
göngu 15% af hlutabréfunum hafa
verið í umferð.
Það má því gera ráð fyrir að
hlutabréf í Landsbankanum vanti
inn í ýmis söfn hjá stærri fjárfestum
eins og lífeyrissjóðum og hluta-
bréfasjóðum og hið sama má segja
um Búnaðarbankann," segir
Tryggvi.
Hann segir útboðsgengið ekki
breyta neinu um þá staðreynd að
umframeftirspurn er til staðar og
viðskiptin sem hafa átt sér stað á
Verðbréfaþingi undanfarið gefi vís-
bendingu um eftirspurnina. „Þrátt
fyrir að gengi á bréfum Landsbank-
ans sé 3,80 í almenna hlutanum má
gera ráð fyrir að gengið í tilboðs-
hlutanum verði annað og niðurstað-
an úr honum komi til með að hafa
meiri áhrif á framhaldið. Flestir
gera sér grein fyrir að það er tiltölu-
lega lítið sem hver fær í sinn hlut á
þessu lága gengi í almenna hluta út-
boðsins og það má búast við að
gengið í tilboðshlutanum verði í ná-
grenni við viðskipti sem verið hafa á
markaði," segir Tryggvi.
Andri Sveinsson, forstöðumaður
fyrirtækjaráðgjafar markaðsvið-
skipta hjá Búnaðarbankanum-Verð-
bréfum, segir augljóst að einhverjir
telji núverandi gengi hagstætt og
vilji því kaupa bréf. „Þeir hinir sömu
telja eflaust að erfitt verði að fá
nægilegt magn í útboðunum. Þetta
gefur vísbendingu um að verðið í til-
boðsfyrirkomulaginu verði hærra,“
segir Andri. „Hver einstaklingur
getur að hámarki óskað eftir
250.000 krónum að nafnverði í al-
menna hluta sölunnar. Ef aðilar
vilja kaupa stærri hlut í bönkunum
en leyft er, verða þeir að taka þátt í
til boðshlutanum, safna kennitölum
eða eiga viðskipti á Verðbréfaþingi.
Fjárfestar leitast ávallt við að kaupa
á eins hagstæðu gengi og mögulegt
er. Þeir aðilar sem eru að kaupa
bréf, hljóta að telja að það gengi
sem boðið er á Verðbréfaþingi nú,
sé lægra en þeir geti keypt á í til-
boðshlutanum eða með kennitölu-
söfnun,“ segir Andri.
Menn vænta kapphlaups
um brófin
Þórður Pálsson, sérfræðingur hjá
greiningardeild Kaupþings, segir
mikil viðskipti með Landsbankann í
fyrradag að öllum líkindum skýrast
af skiptum skoðunum um verðgildi
hans. „Einhver hefur séð ástæðu til
að selja á meðan aðrir telja framtíð-
arhorfurnar bjartari og hafa því
keypt. Viðskipti á markaði hvíla á
mismunandi skoðunum, töluverðar
vangaveltur hafa verið að undan-
íomu um samruna á banka og hefur
Landsbankinn sem er stærsti banki
landsins verið í brennidepli í þeim
umræðum. Það er mat margra að
verðgildi bankans geti aukist við
slíkan samruna og því ýtir umræða
sem þessi enn frekar undir skiptar
skoðanir og þar af leiðandi frekari
viðskipti. Það að menn skuli hafa
verið tilbúnir að greiða hærra verð
fyrir bankann á markaði en í boði er
í útboðinu gefur til kynna að menn
vænta kapphlaups um bréfin. Slíkt
kapphlaup, ef af því verður, getur
þrýst verðinu upp og ef hlutirnir
sem til sölu eru dreifast þar að auki
til margra í útboðinu mun það auka
viðskiptakostnaðinn af því að safna
þeim saman og geta þær væntingar
því réttlætt hærra verð,“ segir
Þórður.
Hann segir ekki loku fyrir það
skotið að kennitölusöfnun kunni að
fara af stað þegar líður að lokum út-
boðsins en í fyrri útboðum hefur
kennitölusöfnun yfirleitt farið seint
af stað. „Ég tel líklegra að kenni-
tölusöfnun verði í Landsbanka en
Búnaðarbankanum vegna þess lyk-
ilhlutverks sem hann mun gegna í
hagræðingu á íslenska fjármála-
markaðinum en ég tel verðið betra á
Búnaðarbankanum og hann að
ýmsu leyti meira spennandi fjárfest-
ingarkost vegna þeirrar arðsemi
sem hann hefur náð,“ segir Þórður.
Hann segir það valda nokkurri
óvissu hversu mikil aukning verður
á hlutafé í umferð á skömmum tíma
þótt það leiki ekki vafi á að markað-
urinn geti tekið við hlutafénu. „Nú
eru í boði 1.435 milljónir króna að
markaðsvirði í Búnaðarbankanum
til almennings með áskriftafyrir-
komulagi en viðskipti með bankann
á Verðbréfaþingi það sem af er ári
eru 634 milljónir króna. í Lands-
bankanum eru 2.090 milljónir króna
í boði með áskriftarfyrirkomulagi en
viðskipti með bankann á þinginu
hafa verið 1.190 milljónir króna það
sem af er árinu,“ segir Þórður.
„Snöggt framboð kann að valda
ójafnvægi og lækka verðið til
skamms tíma. Þeir sem ætla að
kaupa í bönkunum eiga því fyrst og
fremst að líta á það sem langtíma
fjárfestingu og að mínu mati eru
báðir bankarnir ágætis langtíma
fj árfestingarkostir."
Óvarlegt að gera ráð fyrir áfram-
haldandi góðum árangri
Hvað varðar verðlag bankanna nú
segir Þórður óvarlegt að gera ráð
fyrir jafngóðum árum hjá bönkun-
um á næstunni og verið hefur. „Það
er vert að hafa í huga að verðmæti
banka er mjög viðkvæmt fyrir al-
mennum skilyrðum í hagkerfinu.
Endurskoðuð þjóðhagsáætlun virð-
ist gefa til kynna að toppi hagsveifl-
unnar sé nú náð í bili. Til dæmis er
gengishagnaður Búnaðarbankans á
fyrstu niu mánuðum ársins 712
milljónir króna eða 61,2% af hagnaði
bankans fyrir skatt sem er vitanlega
góður árangur en erfitt verður að
leika eftir í lakara árferði," segir
Þórður.
„Það verður líka að hafa í huga að
bankarnir hafa stækkað efnahags-
reikninga sína verulega á síðustu
misserum og þótt þeir hafi lagt dug-
lega í afskriftasjóði og tekið upp ný
vinnubrögð við lánveitingar, eigum
við enn eftir að sjá hvernig þau
standast niðursveiflu," segir Þórður
að lokum.
Ekki færi á hækkunum i bráð
Heiðar Már Guðjónsson, sérfræð-
ingur hjá íslandsbanka F&M, segir
mikil viðskipti með bréf bankanna á
markaði síðustu daga lýsa mismun-
andi skoðunum markaðsaðila. „Það
þarf tvo til þegar um viðskipti er að
ræða og þeir sem selja nú, sjá ekki
fyrir sér hækkanir á næstunni. Að
mínum dómi er hæpið að til kenni-
tölusöfnunar komi þar sem ég hrein-
lega sé ekki þá aðila sem myndu
verða kaupendur að slíkum bréfum.
Forsendur eru allt aðrar nú en fyrir
ári. Gengi bankanna hefur um það
bil tvöfaldast á tímanum sem gefur
ekki færi á miklum hækkunum í
bráð. Lægra útboðsgengi en núver-
andi markaðsgengi tryggir þó þátt-
töku,“ segir Heiðar og býst við því
að margir einstaklingar sem ætla
sér að nýta skattafrádrátt vegna
hlutabréfakaupa muni taka þátt í út-
boðunum. „Enda eru bréfin í bönk-
unum fjárfesting til lengri tíma þar
sem ólíklegt er að skammtímahagn-
aður myndist. Einnig býst ég við því
að fleiri taki þátt í útboði
Landsbankans en Búnaðarbankans.
Það ræðst af því að Búnaðarbankinn
hefur verið andsnúinn hugsanlegum
sameiningum en Ijóst er að endur-
skipulagning, með fækkunum fyrir-
tækja, er framundan á fjármála-
markaði. Hagræðing af slíkri
endurskipulagningu mælist í mil-
ljörðum og því fyrr sem af samein-
ingum verður því meiri verður ábat-
inn,“ segir Heiðar að lokum.
Úrvalsvísitalan yfir 1.500
stig í fyrsta sinn
Úrvalsvísitala Verðbréfaþings
hækkaði um 1,1% í gær og fór í
fyrsta skipti yfir 1.500 stig, endaði í
1.508,8 stigum. Hefur hún hækkað
um 37,46% frá áramótum. Viðskipti
með hlutabréf námu alls 269 millj-
ónum, þar af voru mest viðskipti
með bréf Eimskipafélag íslands fyr-
ir 33 milljónir króna og hækkaði
gengi bréfanna um 1,5%.
Opið hjá EJS 2. janúar
vegna 2000-vandans
EJS-upplýsingatæknifyrirtækið
mun hafa opið sunnudaginn 2.
janúar nk. vegna hugsanlegs
2000-vanda. Guðný Benedikts-
dóttir, markaðsstjóri EJS, segir
fyi-irkomulagið eins og um venju-
legan mánudag væri að ræða og
sama gjaldskrá gildi og virka
daga.
A nýársdag verður haldið úti
bakvakt, að sögn Guðnýjar, í sam-
ræmi við sérstaka þjónustu- eða
bakvaktarsamninga við viðskipta-
vini EJS.
„Við viljum koma til móts við
viðskiptavini okkar og vera til
staðar fyrir þá á þessum tímamót-
um og ákváðum þess vegna að
hafa opið á sunnudeginum.
Starfsmenn tóku vel í þetta en
þeir fá tvo frídaga í skiptum fyrir
þessa vinnu,“ segir Guðný. Við-
skiptavinir EJS eru margar af
stærstu verslunum landsins, auk
fjármálafyi-irtækja, að sögn Guð-
nýjar. „Þeir stóla mjög mikið á
upplýsingatæknina og við viljum
styðja við bakið á þeim með þess-
um hætti.“
Hún segist ekki búast við stórá-
föllum um áramótin en undirbún-
ingur fyrirtækisins í samráði við
viðskiptavini hefur staðið síðustu
tvö ár. „Við hvetjum alla til að
prófa töívukerfi sín um áramóta-
helgina svo eðlileg starfsemi geti
hafist víðast hvar á mánudeginum
3. janúar,“ segir Guðný að lokum.
í dag er si'ðasti dagur útboðs- og tilboðssölu á 15% hlut ríkisins í Búnaðar-
bankanum og Landsbankanum