Morgunblaðið - 17.12.1999, Síða 27

Morgunblaðið - 17.12.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 27 ERLENT Rrissneskar hersveitir verða fyrir miklu mannfalli í Grosní Rússar neita því að hermenn hafi ráðist inn í borgina Grosní, Moskvu. Reuters, AP, AFP, Washington Post. Reuters. Tveir tsjetsjneskir drengir safna spreki í eldinn í flóttamannabúðum í bænum Znamenskoje í Tsjetsjníu. RÚSSNESKAR hersveitir réðust inn í Grosní á skriðdrekum og bryn- vögnum í fyrrakvöld en mættu harðri mótspyrnu tsjetsjenskra skæruliða í mannskæðustu orrustunni sem háð hefur verið í borginni frá því Rússar hófu hernaðaraðgerðirnar í Tsjet- sjníu fyrir þrem mánuðum, að sögn vestrænna fréttastofa og rússneskra fjölmiðla. Rússnesk stjómvöld sögðu þó að ekkert væri hæft í þessum fréttum og þeim var lýst sem lið í áróðursherferð vestrænna leyniþjón- ustumanna gegn stjórninni í Moskvu fyrir þingkosningamar á sunnudag. Maria Eismont, fréttaritari Reut- ers, kvaðst hafa séð rúmlega hundrað lík rússneskra hermanna á vígvellin- um eftii' að um 2.000 tsjetsjenskir skæmliðar hefðu ráðist á hersveitim- ar úr launsátri um þremur kílómetr- um frá miðborg Grosní seint í fyrra- kvöld. Eismont sagði að orrustan hefði staðið í þrjár klukkustundir og skæmliðarnir hefðu beitt sjálfvirkum byssum og vélknúnum sprengjum. Fréttaritari AP staðfesti þetta og kvaðst hafa talið 115 lík rússneskra hermanna á stóm torgi nálægt mið- borginni. Hann sagðist einnig hafa séð flök sjö skriðdreka og átta bryn- vagna, sem notaðir em til liðsflutn- inga. Fréttamenn sakaðir um „lygar“ Þetta mun vera mesta mannfallið meðal rússneskra hermanna í Tsjet- sjníu frá því að Rússar hófu hernað- araðgerðirnar í september til að ganga milli bols og höfuðs á skærulið- unum. Talið er að mannfallið meðal skæmliðanna hafi verið h'tið. ígor Sergejev, varnarmálaráð- herra Rússlands, sagði þó að ekkert væri hæft í þessum fréttum. „Fréttir um að rússneskar bryndrekasveitir hafi beðið ósigur íyrir uppreisnar- mönnum á Minutka-torgi em lygar. Engir rússneskir bi-yndrekar hafa farið inn í borgina." Sergejev bætti við að herinn myndi ekki ráðast inn í Grosní fyrr en íbúar borgarinnar færa þaðan. Alexander Zdanovitsj, talsmaður rússnesku leyniþjónustunnar FSB, sagði að fréttirnar um ósigur her- sveitanna tengdust tilraunum Vest- urlanda til að koma rússnesku stjórn- inni í vanda fyrir þingkosningarnar á sunnudag. „Nú þegar kosningarnar nálgast leggja nokkur vestræn ríki mikið kapp á að færa sönnur á klaufa- skap hersins og koma þannig höggi á stjórnina," sagði Zdanovitsj. „Er- lendar leyniþjónustur hafa notað fréttaritara og gera það enn. Þetta er þaulskipulögð áróðursherferð gegn Rússlandi." Sagðir hafa verið í könnunarferð Talsmaður rússneska hersins sagði í gærmorgun að aðeins tveii' hermenn hefðu fallið í átökum síðasta sólarhringinn. Rússneska fréttastofan AVN, sem hefur getið sér orð fyrir áreiðanlegan fréttaflutning um hermál, hafði þó eftir heimildarmönnum sínum í höf- uðstöðvum hersins að 50 hermenn hefðu fallið og sjö bryndrekar eyði- lagst í orrastunni. Hermennirnir hefðu verið í könnunarferð og ekki ætlað að ráðast inn í borgina. AVN greindi síðar frá því að rússneskir embættismenn hefðu neitað því að rússneskir hermenn hefðu fallið í Grosní. Taldir hafa villst í myrkrinu Fréttaritari Reuters sagði að her- sveitimar hefðu gert árásina frá Khankala í austurjaðri Grosní, hörf- að þangað aftur eftir orrastuna og haldið áfram sprengjuárásum á borg- ina. Rússneski herinn náði Khankala á sitt vald um helgina, en þar er m.a. mikilvægur herflugvöllur. Talsmaður hersins sagði að hersveitirnar hefðu aðeins haldið áfram að styrkja stöðu sína í Khankala og ekki ráðist inn í Grosní. Fréttaritari breska útvarpsins BBC leiddi getum að því að rúss- nesku hersveitirnar hefðu villst í myrkrinu þannig að auðvelt hefði verið íyrir skæraliðana að ráðast á þá. Um 1.000 rússneskir hermenn féllu í fyrirsátri tsjetsjenskra skæra- liða í Grosní á nýársdag fyrir fimm áram, þegar rússnesk stjómvöld reyndu fyrst að bæla niður uppreisn tsjetsjneskra aðskilnaðarsinna. Rússneski herinn hefur hingað til reynt að komast hjá slíkum orrastum í Grosní þar sem þær gætu orðið til þess að almenningur í Rússlandi legðist gegn hernaðaraðgerðunum. Ólíkt stríðinu á áranum 1994-96, sem lauk með auðmýkjandi ósigri Rússa, hafa hernaðaraðgerðirnar nú mælst vel fyrir meðal almennings í Rússlandi og þær hafa orðið til þess að fylgi Vladímírs Pútíns forsætis- ráðheira hefur aukist. Eining, nýtt bandalag stuðningsmanna stjórn- valda í Kreml, hefur einnig sótt í sig veðrið að undanfömu og ljóst er að mikið mannfall meðal rússneskra hermanna í Tsjetsjmu gæti skaðað hana í kosningunum á sunnudag. Penni með fc rtíð Auðug ríki og þróunarrfki saman á fyrsta G-20-fundinum Stefnt gegn svæðisbundnum kreppum Berlín. AP. FULLTRÚAR 20 ríkja, auðugustu ríkjanna og þeima þróunarríkja, sem komin eru lengst á veg, komu saman til síns fyrsta fundar í Berlín í gær til að leggja á ráðin um nánari samvinnu í efnahags- og fjármálum. Meginefni fundarins nú, sem sótt- ur er af fjármálaráðherram og seðlabankastjóram ríkjanna, er að ákveða hvernig skuli staðið að þess- um fundum framvegis en þeir verða haldnir einu sinni á ári. Aðild að þessum nýja samráðs- vettvangi, G-20 eins og hann er kall- aður, eiga G-7-ríkin, Bandaríkiti, Japan, Þýskaland, Frakkland, Ítalía, Bretland og Kanada, og að auki Argentína, Astralía, Brasilía, Indland, Indónesía, Kína, Mexíkó, Rússland, Sádi-Arabía, Suður-Afr- íka, Suður-Kórea og Tyrkland. Evrópusambandið verður síðan með sérstakan fulltrúa auk þess sem embættismenn frá Alþjóðabankan- um og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum munu sitja fundina. Deilt um lánastefnu IMF Fulltrúarnir vora ekki allir mætt- ir til fundarins í gær þegar fyrsta deilumálið skaut upp kollinum. Lawrence Summer, fjármálaráð- herra Bandaríkjanna, ýtti því úr vör er hann lagði til, að lánastefnu Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, yrði breytt. í stað þess að standa í lang- tímalánveitingum skyldi hann að- eins koma til hjálpar þegar fjár- málakreppa riði yfir í einhverju ríki. Þjóðverjai' eru ekki fráhverfir þessu en fulltrúar Frakklands og Japans gagnrýndu tillöguna og sögðu, að IMF hefði miklu hlutverki að gegna sem langtímalánveitandi ríkja, sem ættu við erfiðleika að etja. Það voru Bandaríkjamenn, sem beittu sér mest fyrir stofnun G-20, og tilgangurinn er sá, að ríkin beri saman bækur sínar um fjármál og dragi þannig úr líkum á svæðis- bundnum kreppum eins og þeirri, sem hrjáð hefur efnahagslífið í Suð- austur-Asíu. G-7 að verða tímaskekkja G-7-ríkin standa undir 64,6% heimsframleiðslunnar þótt þar búi ekki nema 11,7% mannfólksins en framleiðsluhlutfallið í hinum ríkjun- um 13 með 53,7% mannkyns er ekki nema 22,1%. Með tilliti til þessa þótti mörgum sem fundir G-7-ríkj- anna væru að verða hálfgerð tíma- skekkja. Kringlunni Sími 568 9211 og Hótel Eddu er tilvalin jólagjöf Óskastundir á Flugleidahóteli er gjöf sem lætur óskirnar rætast. Verd frá S.200 kr. Flugleidahótelin eru: Hótel Loftleidir, Esja, Flúdir, Höfn, Hérad, Kirkjubæjarklaustur og Flughótelið í Keflavík. Sumaráning á Hótel Eddu. Verðfrá S.400 kr. Edduhótelin eru á 15 stöðum um land allt. ICIIANDAIR. HÓTELS www.lcehotel.ls • I c e h o t e I 9 I c e h o t e I. I s Upplýsingar og pantanir í síma 5050 910
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.