Morgunblaðið - 17.12.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 59
UMRÆÐAN
ekki meginatriðið heldur hitt að
valdastéttir hafa alltaf haft tilhneig-
ingu til að marka sér sérstöðu á einn
eða annan hátt og umrædda hreint-
unguáherslu ber að skoða af þeim
sjónarhóli. Það var sérkenni „hálf-
danskrar" yfirstéttar á 19. öld að
marka sér sérstöðu m.a. með
dönskuskotnu skrúðmæli og öðrum
auðkennum svo sem útlenskum eft-
imöfnum. Gegn þessum útlendu
áhrifum börðust íslenskir bændur og
borgarar á sínum tíma m.a. með
hreintunguáherslu sinni á 19. öld.
Hreintunguáhersla 20. aldar er
aftur á móti ein hlið stéttabaráttu
þess tíma, þ.e. mörkun sérstöðu ís-
lenskrar borgarastéttar. Hún gerði
engan greinarmun á framburði
sunnlenskra bænda og reykvísks
verkalýðs, en undirstrikaði sérstöðu
íslenskrar yfirstéttar sem vildi vera
íslensk til orðs og æðis, upplýst og
fáguð. Hún var liður í sköpun ímynd-
ar uppvaxandi stéttar, ekki yfirlýst
árás einnar stéttar á aðrar stéttir
eða hópa tengda landshlutum eins og
Árni virðist skilja málið. Þessi þjóð-
emislega hreintungustefna hafði
miklu mun víðtækari áhrif en henni
var meðvitað ætlað og um þetta var
Hallfríður trúlega að tala í viðtalinu
á Rás 1. Hreintunguáhersla samfé-
lagsstéttar í valdastöðu á þessum
tíma þjónaði einfaldlega öðmm til-
gangi líka en þeim einum að marka
uppvaxandi yfirstétt sérstöðu. Hún
féll vel að íslenskri þjóðernishyggju
20. aldar og var ávísun á fylgi ann-
an-a stétta, m.a. í kosningum til Al-
þingis. Flámælisdæmið sem Hall-
fríður tekur í umræddu viðtali er
einmitt til marks um ófyrirséð áhrif
þeirrar hreintungustefnu sem eink-
enndi 20. öldina. ,
Málrækt er mikilvæg menningu
þjóðar, en gera ber greinarmun á lif-
andi og dauðu máli, málrækt og mál-
legri þjóðemishyggju. Lifandi mál
tekur breytingum, verður lýrir
áhrifum og mótast af tíðaranda og
úreldist. Dautt mál er andstæða lif-
andi máls. Málrækt sem tekur mið af
eðli lifandi máls er af hinu góða, en
málleg þjóðernishyggja þjónar íyrst
og fremst þjóðhverfum viðhorfum og
íhaldssemi. Markmið málræktar
þurfa ávallt að vera skýr og skyn-
samleg. I þessu sambandi má benda
á kæmleysislega notkun á hugtök-
unum „alþýðumaður“ og „alþýða
manna“. Mér segir svo hugur að „al-
þýða manna“ merki þjóðina svo til
alla. Á19. öld hentaði hugtakið vel til
að aðgreina valdsmenn frá almúgan-
um, en merkingin er ekki viðeigandi
um miðja 20. öld. Lifandi mál tekur
mið af breyttu þjóðfélagi enda skil-
greinir hið síðarnefnda það fyrr-
nefnda. Hugtakið „alþýða manna“
varpar m.ö.o. ekki ljósi á stéttaskipt-
ingu 20. aldar heldur dylur hana.
I umræðu um nýja uppvaxandi ís-
lenska yfirstétt vil ég að lokum vara
við tilhneigingunni að einfalda um-
ræðuna um of. Óljóst er t.d. hverja
Árni á við þegar hann talar um
„verðbréfahetjurnar". Er átt við
meðalgöngu- og umsýslumenn kap-
ítalsins eða þá sem hafa eigna- og
umráðarétt yfir fjármagni á formi
verðbréfa? Eða þá sem taka afdrifa-
ríkar ákvarðanir fyrir „alþýðu
manna“ á grundvelli hlutafjáreignar
annarra og í umboði þeirra?
Islensk hreintungustefna tengist
sögu þjóðskipulags, stéttaskiptingar
og stéttabaráttu. Hún þróaðist upp-
haflega í nánum tengslum við sjálf-
stæðisbaráttu þjóðarinnar og gegndi
öðru hlutverki en síðar varð á 20. öld.
í henni felst gamaldags þjóðernis-
hyggja sem á ekki neitt skylt við
málrækt. I umræðu um íslenska
tungu er mikilvægt að missa ekki
sjónar af félagslegum tengslum sem
halda henni lifandi.
Höfundur er dóseat við Háskólann á
Akureyri.
Súre&iisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Korabi olía
Laugavegi 4, sími 551 4473
Vandaðar þýskar úlpur frá
Þýsk smókingföt .........
Stuttfrakkar.............
Þýskar stakar buxur......
Ullar flauelsbuxur.......
Skyrturfrá .....
Einlit satínbindi
Silkibindi
Alullarpeysur frá
Flístreflar......
Ekki missa af jólatilboðinu okkar!
tvískipt gleraugu kr. 17.900
umgjörð og gler kr. 9.900
Sloppar frá
Náttföt frá
Ullartreflar
Húfur og hattar
Hlf ||| I Flash
Ullarjakkar
og kápur.
Margar
gerðir
Bosweel-skyrtur mikið úrval
Gæða nærföt, bolir og náttföt
Silkidamask
Bómullarfóðruð satín-
nóttföt
kr. 3.600
Bómullar- og flónel-
snóttfatnaður verð frá
kr. 2.500
Náttserlcir kr. 2.800
Síðir sloppar kr. 3 .900
Inniskór kr. 1.600
rumto
ááiur4L
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Laugavegi 4, sími 551 4473
Laugavegi 62 s. 511 6699
Njáisgötu 86, sími 552 0978,