Morgunblaðið - 17.12.1999, Page 71

Morgunblaðið - 17.12.1999, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 71 BRÉF TIL BLAÐSINS Heimur kvikmyndanna Frá ritstjórn Lands & sona : TÍMAMÓT hafa orðið hérlendis með útkomu bókarinnar „Heimur kvik- myndanna“. Þessi þekkingarbrunnur slagar upp í símaskrána að stærð. Það er gott og sennilega óhjákvæmilegt, hérlendis hefur svo lengi vantað lyk- ilbók af þessu tagi. Tæknihlið kvik- myndagerðar og kvikmyndasýninga hefur náð alþjóðamælikvarða hjá okkur en þroskandi og dýpkandi upplýsingaefni verulega vantað. Þetta skapaði misvægi, höfundar og áhorfendur kvikmynda í öðrum lönd- um juku tengingar sínar jafnt og þétt með bókum og tímaritum en sambandsskortur okkar varð sífellt sárari. Úr þessu hafa Guðni Elísson og fé- lagar nú bætt með myndarlegum hætti. Þessi digri og vandaði lykill að sögu og innihaldi kvikmynda er kjör- gripur. Með því að taka hann í notk- un geta íslenskar kvikmyndir og sjónvarp eignast öflugri og kröfu- harðari aðstandendur og áhorfend- ur. Gæði verkanna sem og arðurinn af þeim geta aukist. Með útkomu „Heims kvikmyndanna" er lokið vissri einangrun þjóðarinnar. Hvort sem lesendur gera sér þætti bókar- innar að umræðuefni, leiðarhnoða eða ásteitingarsteinum skapar hún viðspyrnu á vettvangi umræðu og skoðanaskipta, til hliðar við dægur- hjal fjölmiðla. Þetta er alveg nauðsynlegur liður í kvikmyndamenningunni. Ritstjórn Lands & sona fagnar því að loks þegar kemur út íslensk bók um kvikmyndafræðileg efni skuli hún vera jafnfjölbreytt og metnaðar- full og raun ber vitni. Við mælum eindregið með þessu stórfellda hjálpartæki til betri tenginga, jafnt handa atvinnu- og áhugafólki í heimi kvikmyndanna. ANNA TH. RÖGNVALDS- DÓTTIR, ÁSGRÍMUR SVERRIS- SON, BJÖRN BRYNJÚLFUR BJÖRNSSON, BÖÐVAR BJARKI PÉTURSSON, HÁKON MÁR ODDSSON, ÓLAFUR H. TORFASON og, ÞORFINNUR ÓMARSSON, skipa ritstjórn Lands & sona, blaðs Félags kvikmynda- gerðarmanna. ÞP &CO ÞAKVIÐGERÐAREFNI Rutland þéttir, bætir og kætir þegar þakið fer að leka Á -ÞÖK - VEGGI - GÓLF Rutland er einn helsti framleiðandi þakviðgerðarefna i Bandaríkjunum ROOf COATINfi wa Veldu rétta efnið ■ veldu Rutland! Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 S: 553 8Í40 t 568 6100 ...*.......... Jólafatnaður Mikið úrval Kjólar, toppar og léttir jakkar VEFTA - Tískuvörur Hólagarði, sími 557 2010. -Fallegir bolir -Kvenblussur -Kvenhufur -Treflar -Hanskar tfefrl BÚÐIN | Garðatorgi, sími 565 6550. t Uelkomin til Hafnarfjarðar t ■4' r (vjikið úrval af f?Á ióla- oá fijafavöru (SKEMMAfí »/•' \ y Höfum fengið nýja sendingu af spönsku Lladro-styttunum. Glæsilegar handmálaðar pólskar jólakúlur. Fallegar vörur fyrir baðherbergið. Reykjavíkurvegi 5, sími 5550455. Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR er 300 síður og kostar 2478 krónur www.tunga.is Fasteignir á Netinu úi> mbl.is —ALLTAf= errr/-i\sA£} rjTrr Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR er 300 síður og kostar 2478 krónur www.tunga.is Ævintýri líkast , tí-/KÓNGSRÍKIÐ W. á fatnaði frá Cool Cat og Wonder Woman Kjólar, peysur, buxur, úlpur, flísfatnaður, bolir, vesti, toppar og ótal margt fleira ó verði sem ó engan s/nn líka. 50% verð ó topptískuvöru. TAKMARKAÐUR LAGER ■ Búið er búið WonderWoman Nylon jakkar kr. 1500 Polar flís skyrtur kr. 1 500 Polar flís peysur kr. 1 990 Cool Cat hettubolir kr. 1450 Fóðraðar barnabrettabuxur kr. 2990 Fóðraðar unglingabrettabuxur kr. 3490 Cool Cat Flíshanskar kr. 990 Cool Cat flístreflar kr. 990 Cool Cai húfur kr. 990 Skemmtilegir Grýlubolir kr. 500 Ótrúlegt únral aff snyrtivöram ilmvötnum og skartgripum í Kolaportinu Poffþétfur "Trendy" fatnaður frá Hollandi rri æ\ Hvað? Wonder Woman, Cool Cat og fleira H ~ E 17. Des. kl. 12:00-18:00 18.-19. Des. kl. 11:00-21:00 20.-22. Des. kl. 12:00-21:00 Þorláksmessa kl. 12:00-23:00 Ótrúlegt úrval af kulda- og spari- skom a goðu verði Ótrúlegt úrval af efnum í gardínur, borðdúka og SSW*.-* miimfl'i'B-frflflJ Iík«st Markaðstorg KOLAPORTIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.