Morgunblaðið - 17.12.1999, Side 76

Morgunblaðið - 17.12.1999, Side 76
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Æ. FOLKIFRETTUM var vikur Diskur ; Flytjundi j Úígefandi Ij 1. 2 Jólaplatan ; Ýmsir j Baugur 2. 7 Sögur 1980-1990 ; Bubbi j íslenskir tónar 4. 4 Dans gleðinnar-Bestu lögin ; Viihjálmur Vilhjálmsson: íslenskir fónar 5. 2 Silver bells ! The Platters ! Bellevue 3. 2 Bestu jólalög Björgvins ; Björgvin Halldórsson ! íslenskir tónar 7. 4 Pottþétt Jól 2 I Ýmsir ! Poftþétt 6. 9 Pottþétt Jól 1 Ýmsir ! Pottþétt 8. 3 Út Um Græna Grundu ; Ýmsir ! íslenskir tónar 11. 3 Séð og heyrt | Pálmi Gunnarsson ! ísenskir tónar 41. 5 Christmas Party I Boney M. ! BMG 94. 1 Christmas Album j Elvis Presley jBMG 10. 4 Ultimate Collection ! Cat Stevens ! Universal 9. 3 Jólasveinor einn og ótta ! Ýmsir jSpor 17. 3 11 Jólalög ■ ýmsir j Skífon 27. 2 Christmas with the stars 1 j ýmsir j Bellevue Ent. 34. 2 Christmos with the stors 2 ■ ýmsir j Bellevue Ent. 50. 2 Christmos with the stars 3 ! ýmsir j Bellevue Enf. 13. 3 Jólolögin ; Ellý S Vilhjálmur jSpor 14. 12 Romanza j Andrea Bocelli j Universal : 12. 3 Verkstæði Jólosveinonna j Ýmsir !Spor | Unnið af PricewaterhouseCoopers í samstarfi við Samband hijómplötuframleiðenda og Morgunblaðið. Litlar breytingar JÓLAPLÖTUR eru áberandi á safnlistanum Gamalt og gott þessa vikuna eins og í síðustu viku. Sög- ur Bubba og Bestu lög Vilhjálms Vilhjálmssonar eru í 2. og 3. sæti n.mkringdar jólaplötum, en Jóla- platan er í efsta sætinu eins og í síðustu viku. Silfurbjöllur Platters hækka sig um sæti milli vikna og Bestu jólalög Björgvins lækka sig um tvö sæti milli vikna. Safnplata Pálma Gunnarssonar með vinsæl- ustu lögum hans gegnum tíðina er í 9. sæti og hækkar sig um tvö sæti milli vikna. En heildarsvipur listans er eins og áður sagði jóla- legur og má gera því skóna að landsmenn spili jólalögin mikið núna þegar aðeins sjö dagar eru til jóla. A NYJUSTU plötu George Michael, „Songs From the Last Century“, flytur hann þekkt lög sem hafa verið í uppáhaldi hjá hon- um í gegnum tíðina. Titill plötunnar vísar í væntanleg ái'þúsundamót og er því George að taka ofan fyrir liðnum tíma. Þegar platan kom út í byrjun desember náði hún platínu- sölu í Bretlandi á aðeins örfáum dögum. Á Tónlista vikunnar fer platan beint í 5. sætið fyrstu vikuna á lista. Georgios Kyriacos Panayitou George Michael fæddist í norður- hluta Lundúna 25. júní árið 1963 og var gefið nafnið Georgios Kyriacos Panayiotou. Hann kynntist vini sín- um, Andrew Ridgeley, í skóla og þeirstofnuðu hljómsveitina The Ex- ecutive árið 1981. Þegar þeir gerðu sér ljóst að framtíð þeirra væri bet- ur borgið tveimur en með hljóm- sveitinni fæddist dúettinn Wham! Söngkonur á toppnum SELMA Björnsdóttir heldur efsta sæti Tónlistans fimmtu vikuna í röð og greinilegt að nýja platan hennar „I Am“ hefur fallið í kramið hjá ís- lenskum hlustendum. Stórsöngkon- an Celine Dion er í öðru sæti með bestu lög sín af liðnum áratug auk sjö nýira laga, en hún á sér tryggan aðdáendahóp hérlendis. Nýja Pott- þétt 18-platan er í þriðja sætinu og Islandslög 4 í því fjórða. Tvær nýjar plötur koma inn á listann og fara geyst, en það eru þeir Álftagerðis- bræður úr Skagafírði með Bræðra- lög sem er í 5. sæti listans. George Michael kemur einnig nýr inn á list- ann með uppáhaldslög sín á plötunni Songs From the Last Century, en umfjöllun um kappann er að fínna hér á síðunni. íslensku rappararnir í Quarashi hækka sig um fjögur sæti milli vikna og Pottþétt 1999 kemur ný inn á listann og fer í 12. sætið. Fé- laginn Glanni Glæpur kemur einnig nýr inn á listann og er í 25. sæti. Nr. j var vikurj Diskur Flytjandi jÚtgefandi TTT" 5 j 1 Am Selma : Spor 2. j 4. 5 j All The Way-A Decade Of Songs Celine Dion : Sony 3. ! 2. 3 ! Pottþétt 18 Ýmsir : Pottþétt 4. j 3. 6 ! Íslandslög 4 Björgvin H. og fteiri j Skífan 5. ! Ný 1 j Bræðralög Álftagerðisbræður j Álftagerðisbr. 6. ! Ný 1 j Songs From The Last Century George Michael ; emi 7. j 11. 7 j Xeneizes Quarasbi j Japís 8. j ó. 9 j 12. ágúst 1999 Sólin Hans Jóns Míns j Spor 9. j 7. 3 j Jabdabadú Ýmsir : Spor 10.1 5. 3 j S&M Metallica : Universal 11.: 9. 27 : Ágætis byrjun Sigurrós jSmekkleysa 12.! Ný 1 jPoftþétf 1999 Ýmsir j Pottþétt 13.! 19. 5 j Herbergi 313 Land og Synir jSpor 14. j 16. 2 j Sacred Arias Andrea Bocelli j Universal 15. j 13. 23 j Baby One More Time Britney Spears j EMI 16.; 14. 19 j Sogno Andrea Bocelli ; Universol 17.; 20. 7 j Love In The Time Of Science Emiliana Torrini : ET Hljómplötui 18.: 22. 4 : Dönsum Geirmundur Valtýsson: Skífan 19. i 10. 11 ; These Are Special Times Celine Dion ! Sony 20.; 15. 13 : Pottþétt 17 Ýmsir j Pottþétt 21.: 72. 4 ! Pottþétt popp Ýmsir ■ Pottþétt 22.; 8. 1 j Invincible Five j BMG 23. j 17. 4 j Issues (Limited Edition) Korn j Sony 24.j Ný 3 j Guitar Isiancio Guitar Islancio j Polarfonio 25. j 23. 1 j Glanni glæpur Ýmsir i Latibær ehf 26.; 40. 4 j Deep Inside Póll Óskar : Pop 27.: 25. 8 : Reload Tom Jones : V2 28.! 18. 8 : Supernatural Santana : BMG 29.: 26. 26 ! Californication j Red Hot Chili Peppers j Warner 30.: 3 ; Huqar Ró Friðrik Karlsson j Vitund Tóniistinn er unninn of PiicewaterhouseCoopers fyrir Sambandhljómplötuframleiðanda og Morgunbloðið í somvinnu við eftirtaldarverslanir: Bókval Akureyri, Bónus, Hagknup, Japís Brautorholti, Jopís Kringlunni.Japís Laugarvegi, Músík og Myndir Austurstræti, Músík og Myndir Mjódd.Samtónlist Kringlunni, Skífan Kringlunni, Skífan laugorvegi 26. Selma Björnsdóttii' topp tíu- listann Bret- landi. Sumarið 1984 gaf George út sólóskífuna „Careless Whispei'" og þá varð ljóst að hans vegur var vegur sólósöngvarans. Platan seldist eins og heitar lumm- ur og lagið er eitt mest spilaða lag níunda áratugarins í Bretlandi, en lagið samdi George aðeins 17 ára að aldri. Önnur sólósmáskífa George, „A Different Corner“ varð einnig mjög vinsæl og ljóst var að lífdagar Wham! yrðu ekki langir þrátt fyrir miklar vinsældir dúettsins. Þeir hættu samstarfi á toppi ferilsins og héldu eftirminnilega tónleika á Wembley-leikvanginum fyrir fram- an 72 þúsund áheyrendur. Hver smellurinn á fætur öðrum Árið 1987 varð George Miehael fyrsti hvíti söngvarinn til að syngja dúett með sálardrottningunni Arethu Franklin þegar þau sungu „I Knew You Were Waiting" og fór lagið beint á toppinn úti um allan heim. Á sama tíma var George að undirbúa fyrstu stóru plötuna sína sem sólósöngvari og þegar „Faith“ kom út í nóvember 1987 fór hún beint á toppinn bæði í Evrópu og Bandaríkjunum og seldist í meira en 15 milljónum eintaka. „Faith“ fékk Grammy-verðlaunin sem besta plata ársins og George var hlaðinn verðlaunum, sem besti söngvari ár- sins,_besti listamaðurinn í sálartón- list. í kjölfar útgáfunnar fór George í „Faith“-tónleikaferðina og söng í Japan, Ástralíu, Evrópu og Banda- ríkjunum. Árið 1990 vai' George kominn með efni á aðra stóra plötu og byrj- aði að gefa út smáskífuna „Praying For Time“ af plötunni yListen Without Prejudice: Vol. 1“. Á henni kvað við nýjan tón hjá George. Textarnir voni persónulegri og tónlistaráhrif komu frá sjöunda ára- tugnum og einnig úr djassi og blús. Platan fór í toppsætið í Bretlandi og nokkur laganna urðu vinsæl á smá- skífulistunum bresku. George var þegar í hugum margra búinn að ávinna sér sess sem einn besti söngvari níunda áratugarins. Söngvari sem frægir söngvarar, sem höfðu verið í sviðsljósinu mun lengur, höfðu mikinn áhuga á að syngja með. Samhliða plötunni gaf George út ævisögu sína „Bare“ sem hann skrifaði í félagi við Tony Parsons. Sérstakur þáttur var gerður um hann í Bretlandi sem sýndi að hann var kominn til að vera. í nóvember 1991 söng George dúettinn „Don’t Let the Sun Go Down Me“ með átrúnaðargoði sínu frá æsku, Elton John. Lagið vai'ð geysivin- sælt og fór í fyrsta sæti vinsælda- lista um allan heim, en öllum ágóða lagsins var varið til líknarstarfa fyr- ir alnæmissmituð börn. Stuttu síðar kom út stór plata, „Red Hot and Dance“ sem var gefín út til styrktar alnæmissjúklingum og sungu á henni listamenn á borð við Ma- donnu og Seal, en George var með einu nýju lög plötunnar, þrjú tals- ins. Eitt þeirra, „Too Funky“ varð geysivinsælt og eitt mest spilaða lag ársins 1992, en fatahönnuðurinn Thierry Mugler sá um hönnun myndbandsins sem gefíð var út samhliða laginu, og George leik- stýrði sjálfur. „Five Live EP“ fór á topp breska listans um þriggja vikna skeið árið 1993 en þar söng George dúetta með Queen og Lisu Stansfíeld m.a. frá Freddie Mercury Tribute-tón- leikunum. Sama ár átti George í úti- stöðum við Sony-útgáfufyrirtækið sem hann sagði ekki vilja sam- þykkja hans stefnu í tónlistinni en fyrir rétti var George gert að standa við samning sinn við fyrir- tækið. Leikurinn endurtekinn? Engin stór plata með eingöngu lögum George hafði nú komið út í dálítinn tíma en George spilaði víða og vakti sjónvarpsútsending af flutningi hans á laginu „Jesus To A Child“ fyrir framan Brandenborg- arhliðið í Berlín mikla athygli. Erj- urnar við Sony stóðu enn yfír en um mitt árið 1995 lauk samstarfi þeirra og George gerði samninga við Virg- in Records og SKG Music, fyrirtæki Steven Spielbergs og fleiri í Banda- ríkjunum. „01der“ kom út hjá Virg- in 1996 og seldist í stóru upplagi úti um allan heim. Á plötunni eru lög eins og „Jesus To A Child“, „Fast- love“ og „Spinning the Wheel“ sem öll nutu mikilla vinsælda. George var valinn besti breski tónlistar- maðurinn af MTV í Bretlandi árið 1996. Fjögurra laga plata hans, „You Have Been Loved“, fór beint í annað sæti breska listans. Útgáfa á vinsælum lögum Wham! var gefín út 1997 og fóru þá gömul lög þeirra félaganna að heyrast aft- ur í útvarpinu víða. „Ladies and Gentlemen: The Best of George Michael“ kom út í fyrra og var í efsta sætinu í Bretlandi í átta vikur um síðustu jól og langt fram á þetta ár var platan í efstu sætum listans, enda hefur hún náð margfaldri pla- tínusölu. Allt bendir til þess að kappinn eigi eftir að endurtaka leik- inn í lok þessa árs miðað við viðtök- ur „Songs From the Last Century".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.