Morgunblaðið - 09.01.2000, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.01.2000, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli Finnur Ingólfsson hefur dregið sig út úr argaþrasi stjórnmálanna og tekið til starfa sem bankastjóri Seðlabanka íslands. Pólitíkin ekki þess virði FINNUR Ingólfsson, ný- ráðinn seðlabankastjóri, nefnir kyrrstöðuna sem rofín var í uppbyggingu orkufreks iðnaðar og breytingar og hagræðingu á íslenska fjármála- markaðnum þegar hann er beðinn um að greina frá þeim málum sem upp úr standa á tæplega fímm ára starfsferli hans sem iðnaðar- og við- skiptaráðherra. Finnur segir að margir ráðherrar og ríkisstjómir hafi án árangurs reynt að byggja upp stóriðju á ís- landi. Kyrrstaðan hafí verið rofm með stækkun álversins í Straum- svík og samningum um byggingu ál- vers N'orðuráls á Grundartanga. Síðan hafí komið sala á hluta af eign ríkisins í Islenska járnblendifélag- inu á Grundartanga og stækkun þess fyrirtækis og loks samninga- viðræður um byggingu álvers á Reyðarfírði. „Þessir samningar ollu straumhvörfum í íslensku efnahags- lífí. Þjóðhagsstofnun hefur staðfest að þriðjungur af efnahagssveiflunni frá árinu 1995 er til kominn vegna Finnur Ingólfsson segir að stjórnmálabar- áttan hafí verið að breytast og meira sé um að ráðist sé að persónum einstakra for- ystumanna í stað þess að takast á um mál- efni. Hann segist hafa fengið sinn skammt á síðasta kjörtímabili. Þegar þetta hafí haldið áfram í kosningabaráttunni og formaður Framsóknarflokksins orðið fyrir per- sónulegum árásum hafi hann farið að velta því fyrir sér hvort pólitíkin væri þess virði að sitja undir þessu. Helgi Bjarnason ræddi við Finn um helstu verkefni hans í stjórnar- ráðinu og ástæður þess að hann hætti af- skiptum af stjórnmálum. framkvæmda á sviði orkufreks iðn- aðar. Stóriðjan er því lykillinn að því að við komumst út úr þeirri kreppu sem við vorum í,“ segir Finnur og bætir því við að orkusala til nýrrar stóriðju hafi einnig lagt grunn að lækkun almenns orku- verðs til landsmanna. Finnur telur að undirbúningur Fljótsdalsvirkjunar sé í góðum far- vegi. Hann segir að það sé mikill vilji af hálfu beggja aðila, Norsk Hydro og íslenskra stjórnvalda, að láta verkefnið verða að veruleika. Samþykkt Alþingis um framhald framkvæmda hafí verið mikilvægt skref sem styrkt hafí samnings- stöðu Islendinga. Finnur segist hafa trú á því að samningar takist. Samn- ingar um raforkusölu verði væntan- lega erfiðasta málið á undirbúnings- tímanum. Hann segir að það liggi fyrir að ekki verið samið um sölu á raforku nema að Landsvirkjun fái verulegan arð af viðskiptunum og samningurinn verði í samræmi við þau markmið sem eigendur Lands- virkjunar hafa sett sér, meðal ann- ars um arðsemi og að unnt verði að lækka raforkuverð í landinu. „Þegar ég kom að þessum málum á árinu 1995 stóðu menn í þeim erf- iðu sporum að vera með Blöndu- virkjun svo til ónýtta. Við þurftum því að selja umframorkuna og ég tel að við höfum náð góðum samningum þrátt fyrir erfiða samningsstöðu. Þá, eins og ávallt áður, sýndi aðeins einn erlendur fjárfestir áhuga á að kaupa af okkur raforku til nýrrar stóriðju. Nú er þetta landslag breytt. íslenskur fjármagnsmar- kaður er orðinn það öflugur að ís- lensk fyrirtæki geta í ríkari mæli tekið þátt í uppbyggingu stóriðju- vera. Norsk Hydro hefur vissulega áhuga á að taka þátt í uppbyggingu á Reyðarfirði en það hafa einnig fleiri aðilar, eins og til dæmis Col- umbia Ventures sem á álverið á Grundartanga. Samningsstaða okk- ar er því betri en fyrr og það eigum við að nýta okkur. Eg er bjartsýnn á að þetta gangi upp en ítreka þó þann fyrirvara sem ég hef ávallt haft, að samningum lýkur ekki fyrr en með undirritun." Breytingar á fjármálamarkaði Af verkefnum viðskiptaráðuneyt- isins er Finnur stoltastur af breyt- ingum á fjármagnsmarkaðnum og segir að það sé, eins og í stóriðjunni, mál sem aðrir hefðu viljað gera en tókst ekki að koma í framkvæmd. Hann segir að í fímmtán ár hafí ver- ið rætt um að breyta fjárfestingar- lánasjóðunum og gera úr þeim meiri verðmæti en það hafí ekki tekist vegna deilna um eignarhald. Sömu- leiðis hafí í tíu ár verið rætt um að breyta eignahaldsformi ríkisvið- skiptabankanna og koma þeim í sama rekstrarform og aðrar fjár- málastofnanir hér á markaðnum. „Þegar ég kom að þessum málum árið 1995 var ríkið allsráðandi í við- skiptabankaþjónustu hér á landi og einnig í fjárfestingarlánaþjónustu. Alþjóðastofnanir sögðu að þetta væri einn mesti veikleikinn í efna- hagslífinu og setti okkur skorður í samkeppnishæfni, þyrftum við því að losa um eignarhald ríkisins til þess að styrkja samkeppnisstöðu okkar. Þá var einnig skortur á áhættulánafé í atvinnulífinu. Það var þvi góð niðurstaða þegar sam- staða náðist um að breyta formi fjárfestingarlánasjóða ríkisins og búa til úr þeim Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. og færa 6 milljarða af eigin fé þeirra í Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins sem atvinnulífið og verkalýðshreyfingin stjórnar." Finnur segir að tekist hafi að ná góðri pólitískri samstöðu meðal þingmanna stjómarflokkanna um breytingarnar og breiðri samstöðu í þjóðfélaginu. Segist hann hafa lagt sig sérstaklega fram um að ná sátt við starfsfólk bankanna. „Um málið urðu hins vegar mjög miklar deilur milli stjómar og stjórnarandstöðu. Stjórnarandstaðan hafði uppi mjög stór orð í gagnrýni sinni, meðal ann- ars um að sjóðirnir væm svo til verðlausir og því væri rétt að setja þá inn í viðskiptabankana. Fjárfest- ingarbankinn var fljótlega metinn á 8 milljarða og er nú yfir 20 milljarða virði. Með því að láta fyrirtækið sanna sig á markaðnum og standa skynsamlega að sölu þess fékk ríkið við söluna og í arðgreiðslur um 15 milljarða króna.“ Hann segir að formbreyting ríkis- viðskiptabankanna hafi einnig tek- ist vel enda hafi hún farið fram í góðri sátt við starfsmenn bankanna. „Ég tel að þar höfum við einnig stig- ið skynsamleg skref. Um þetta urðu sömuleiðis mikil átök við stjórnar- andstöðuna en sem betur fer gengu efasemdir hennar ekki eftir. Þrátt fyrir að ríkið hafi selt af sínum hlut, það á enn um 72% í báðum bönkun- um, helst verðmæti eignar ríkisins óbreytt vegna þess að markaðsvirði þeirra eykst alltaf. Nú standa menn aftur á móti frammi fyrir nýjum skrefum þar sem hagræðing í bankakerfinu á að hafa forgang.“ Finnur segir að þessar ráðstafan- ir hafi breytt miklu á fjármagns- markaðnum. Samkeppnin sem Fjár- festingarbankinn veitir hafi leitt til þess að vaxtamunur minnkaði og kostnaðarhlutfall bankanna lækk- aði. Breytt fyrirkomulag í stjórnun ríkisbankanna hafi leitt til betri rekstar, bættrar afkomu og I »
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.