Morgunblaðið - 09.01.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 2000 55
Góð
mvndbönd
FÓLK í FRÉTTUM
Hamingja / Happiness ★★★'/2
Afdráttarlaus og gráglettin
frásögn af misóhamingjusömu
fólki sem hefur sínar jákvæðu og
neikvæðu hliðar. Þessi hamingju-
snauða kvikmynd Todd Solondz
hefur hneykslað marga.
Hringiðan / Hurlyburly ★ ★★
Ahugaverð, heimspekileg kvik-
mynd gerð eftir samnefndu leik-
riti. Hentar þeim
vel sem leita ein-
hvers annars en
dæmigerðra af-
þreyingarkvik-
mynda. Sean
Penn á stórleik.
Plunkett og
Macleane /
Plunkett and
Maeleane ★★'/>
Gamaldags
ræningjasaga
með nútímalcgu
ívafi og galsa-
fengnum húmor.
Robert Carlyle og
Jonny Lee Miller eiga skemmti-
legan samleik.
Börn himnanna / Bacheha-Ye
aseman ★★★
írönsk kvikmynd sem segir
einfalda sögu og bregður upp ein-
lægri mynd af tilveru samheld-
innar fjölskyldu í fátækrahverfí í
Teheran. Ljúf og yndisleg send-
ingfrá fjarlægu heimshorni.
Illur ásetningur / Cruel Int-
entions ★ ★ '/a
Nútímaútgáfa af frönsku 18.
aldar s káldsögunni Hættuleg
kynni (Le Liaisons dangereuses)
gerist í umhverfi vellauðugra
Manhattan-búa. Greinilega ætluð
fyrir ungdóm sm arka ðin n en er
áhugavcrð sem slík.
Vefurinn / The Matrix ★★★★
Með athyglisverðari kvik-
myndum sem hafa skilað sér úr
hringiðu Hollywood-iðnaðarins
síðustu ár. Listileg blanda af
kraftmiklum hasar og heimspeki-
legum veruleikapælingum. Stíll,
útlit og tæknibrellur vekja aðdá-
un.
10 atriði í fari þínu sem ég
hata /10 things I hate about you
★★%
Óvenju góð
unglingamynd
sem sver sig í ætt
við Glórulaus
(Clueless). Sagan
byggist lauslega
á verki Shake-
speares Skassið
tamið og býður
upp á hnyttin og
vel útfærð sam-
töi. Hinir ungu
leikarar sýna að
þeir eru ekki ein-
ungis snoppufríð-
ir heldur búa líka
yfír hæfíleikum. Prýðis skemmt-
un sem ristir þó ekki djúpt.
Þrjár árstíðir / Three Seasons
★★★
Gullfallegt kvikmyndaverk
sem segir frá iífsbaráttu nokk-
urra persóna í Ho Chi Minh borg
(áður Saigon) í Víetnam.
Leikurinn / The Match ★★ '/2
Bráðskemmtileg og vel gerð
fótboltamynd sem lýsir ástum og
örlögum íbúa ískoskum smábæ.
Ástkær / Beloved ★★%
Dálítið mistæk kvikmyndun á
mögnuðu skáldverki Toni Morri-
son sem fjallar um þjáningar
þrælahaldsins í Bandaríkjunum
og eftirköst þess. Myndin gæti þó
orðið þolinmóðum áhorfendum
áhrifarík upplifun.
Harveit Keitel
AP
Nú mega allir sem vilja í Banda-
ríkjunum framleiða dúkkur og
diska og hvaðeina með mynd
Díönu prinsessu,
Díana
er allra
MINNIN G ARS J ÓÐUR Díönu prins-
essu heitinnar hefur tapað dóms-
máli í Bandaríkjunum sem snerist
um einkarétt sjóðsins til að nota
ímynd prinsessunnar á ýmsum
varningi, myndum o.s.frv. Niður-
staða málsins kemur Franklin
nokkrum Mint til góða því nú getur
hann haldið áfram að framleiða
óáreittur dúkkur sem líkjast Díönu
og aðra muni, s.s. skrautdiska með
mynd hennar á.
íþróttir á Netinu
mbl.is
e/r7Hlí40 /VK77"
Allir þátttakendur fá Möppu með myndum af
sér og auglýsingu með sér til eignar.
Skráning er hafin i slma
552-8012 eða www.eskimo.is
Allir þátttakendur fá eskimo models boli ,
kynningarmöppu, viðurkenningarskjal og
óvæntan glaðning frá Sebastian & Wella.
Auk þess að komast á skrá fyrir
sjónvarpsauglýsingar.
Fyrirsætu & framkomunámskeið 1
• Innsýn í fyrirsætustörf
• Förðun
• Umhirða húðar og hárs
• Undirbúningur fyrir myndatöku
• Tískusýningarganga
• Myndataka (18 myndir sv/hv)
• Tóvaksvarnarfræðsla
• Videomyndir
• Starfandi fyrirsætur koma í heimsókn
• Tjáning
• Námskeiðið endar með stórri tískusýngu
| Fyrirsætu & framkomunámskeið 2
Námskeið fyrir stúlku/sem sótt hafa fyrirsætur og framkomunámskeið 1
• Þjálfun í framkomu fyrir framan sjónvarpsmyndavélar
• Auglýsingaleikur
• Stflisti gefur ráð með fataval
• Réttindi og skyldur á vinnumarkaði / Fulltrúi frá VR
• Leikstjóri kemur í heimsókn
• Upptaka á auglýsingu með hverjum og einum.
• Mataræði
• Útlitsbreytingar skoðaðar í tölvu, nýr háralitur ofl.
• Námskeiðlð endar með sýningu á auglýsingum
þátttakenda fyrir foreldra og vini
Leiðbeinandi:
Lilja Nótt
Leiðbeinandi:
Ingibjörg Stefánsdóttir