Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ómar
Vinna við gatnagerð
UNNIÐ er að gatnagerð við Hvammsveg í Kópavogi stjórinn þungt hugsi á meðan félagi hans athugaði
um þessar mundir. Þegar myndin var tekin beið gröfu- lagnir í götunni.
Ný þýðingaþjönusta hefur verið
sett á stofn á Austurlandi
Viðvörunar-
kerfi fældi
í burtu inn-
brotsþjófa
INNBROTSTILRAUN var gerð í
söluturninn Spesíuna við Iðnbúð í
Garðabæ um klukkan tuttugu mín-
útur yfir fjögur í fyrrinótt og telur
lögreglan að viðvörunarkerfi hafi
fælt innbrotsþjófinn eða -þjófana í
burtu áður en tókst að stela vörum.
Dyr söluturnsins höfðu verið
spenntar upp og við það fór í gang
viðvörunarkerfi. Innbrotsþjófurinn
eða -þjófarnir komust inn og náðu
að róta til í söluturninum en hurfu
fljótlega á braut og voru farnir
þegar lögreglu bar að 3-4 mínútum
síðar. Skemmdir reyndust minni-
háttar og enginn liggur undir grun
vegna verknaðarins.
Seint í ágúst á síðasta ári var
gerð tilraun til innbrots að nætur-
lagi í sama söluturn, en þá var einn
maður handtekinn.
-----*-+-4---
Fjárhagsáætlun
Norður-Héraðs
Há framlög
til skólamála
Vaðbrekku, Jökuldal - Fyrstu um-
ræðu um fjárhagsáætlun Norður-
Héraðs er lokið. Tekjuliður áætl-
unarinnar er upp á 80 milljónir.
Þar af er reiknað með 65% til
fræðslumála sem er nokkuð hátt
hlutfall en virðist vera svipað í
mörgum dreifbýlishreppum. Til
sorp og frárennslismála er áætlað
að fari 12%. Til yfirstjórnar sveit-
arfélagsins 12%. Til félags- og
heilbrigðismála 5% og þá eru eftir
6% til framkvæmda.
Egilsstaðir. Morgunblaðið.
ÞÝÐINGAÞJÓNUSTAN Lingua
hefur tekið til starfa á Egilsstöðum.
Þjónusta Lingua felst, auk þýð-
inga, í túlkun, frumtextagerð og
prófarkalestri á ensku, þýsku og ís-
lensku.
Eigandi Lingua er Philip Vogler,
þýskættaður Bandaríkjamaður,
sem búsettur hefur verið á íslandi
síðan árið 1978. Philip er með BA-
gráðu í ensku, MA-gráðu í almenn-
um bókmenntum, nám í uppeldis-
og kennslufræðum, leiðsögumanns-
nám og hlaut Fullbrightstyrk til
þýskunáms. Philip rak um árabil
Útileikhúsið. Hann hefur starfað
sem menntaskólakennari á Egils-
stöðum og sinnir nú, auk þýðinga-
þjónustunnar, vistvænni ferðaþjón-
ustu og leiðsögn. Hann er um
þessar mundir við nám í ferðamála-
fræðum við Háskóla Islands, gegn-
um fjarnám, en fjarvinnsla og raf-
ræn netsamskipti eru helstu
boðleiðir Lingua. I því sambandi
má geta þess að Lingua þróar nú
samskipti við erlenda aðila vegna
heimasíðusmíða, en áætlað er að
þær verði hluti af starfsemi Lingua
í framtíðinni.
Hundaræktar-
félag íslands
Vilja upplýs-
ingar um
hundana á
Armótum
HUNDARÆKTARFÉ LAG íslands
hefur skrifað sýslumanninum í Rang-
árvallasýslu bréf þar sem óskað er
eftir upplýsingum um hvemig um-
önnun og aðbúnaði hunda, í eigu
bóndans á Armótum, sé háttað, en
þar var 45 hrossum fargað í síðustu
viku vegna langvarandi hirðuleysis.
Samkvæmt skrám félagsins á
bóndinn sex ættbókarfærða hunda og
er talið að þar séu einnig nokkrir
hvolpar. Hundaræktarfélagið spyr
sýslumann hvemig staðið verði að að-
gerðum komi í Ijós að hundarnir sæti
illrl meðferð og býðst félagið til að að-
stoða við endurfóstrun verði talið að
þeir þurfi á nýjum heimilum að halda.
-------------
Hraðakstur í
hlýindunum
LÖGREGLAN á Selfossi stöðvaði
fimmtán bílstjóra vegna hraðaksturs í
nágrenni Selfoss í gær. Sá sem hrað-
ast ók mældist á 128 kflómetra hraða
á klukkustund og tveir á 123 kQó-
metra hraða.
Varðstjóri lögreglunnar sagði að
bensínfótur ökumanna hefði líklega
þyngst vegna hins góða veðurs sem
verið hefur á Suðurlandi síðustu daga.
Þá hélt Selfosslögreglan áfram eft-
irliti með bifreiðum sem ekki hafa
verið færðar tfl skoðunar allt síðast-
liðið ár. Ýmist hafa númer verið klippt
af 15 bifreiðum eða eigendum þeirra
gefinn viku frestur til að ráða bót á
vanrækslu sinni. Vegna þessa vora
höfð afskipti af sama fjölda bfla í gær.
Rætt um NATO á ráðstefnu Samtaka um vestræna samvinnu
V eitir okkur
vernd hvað
sem á dynur
AFSTAÐA stjórnmálaaflanna á ís-
landi til Atlantshafsbandalagsins,
NATO, var meðal þess sem rætt var
um á stuttri ráðstefnu Samtakanna
um vestræna samvinnu og Varð-
bergs á Hótel Radisson Sögu á
þriðjudag en þar héldu framsögu
þau Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra, Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, Þórunn Svein-
bjarnardóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, og Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra. í upphafi fund-
arins var vakin athygli á því að yfir-
lýstur andstæðingur Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, Steingímur J.
Sigfússon, héldi ræðu á fundi sam-
taka sem í kalda stríðinu stóðu með
NATO. Var haft á orði að þetta væri
til marks um breytta tíma og að um-
ræddur félagsskapur væri vettvang-
ur fyrir umræður um utanríkismál
og lifði góðu lífi þrátt fyrir endalok
Kalda stríðsins. Steingrímur sagði
vegna þessara ummæla að samtök
hernámsandstæðinga lifðu einnig
góðu lífi. Sagði hann sömuleiðis frá
því að hann hefði vart fengið frið fyr-
ir helstu fjölmiðlum landsins er það
fréttist að hann myndi halda ræðu á
þessum fundi. „Ég hafði ekki áttað
mig á því að þetta myndi þykja
heimssögulegur atburður enn þann
dagídag."
Björn Bjarriason var fyrsti ræðu-
maður ráðstefnunnar og kvaðst hafa
haldið fram þeirri skoðun, og taldi
að hún ætti við gild rök að styðjast,
að varnarsamningur íslands og
Bandaríkjanna vasri ein af megin-
ástæðum þess að Islendingar hefðu
ekki sótt um aðild að Evrópusam-
bandinu. „Ég er þeirrar skoðunar að
það sem olli því að Svíþjóð, Austur-
ríki og Finnland ákváðu að gerast
aðilar að Evrópusambandinu á sín-
um tíma en ekki að halda áfram að
semja um aðild að Evrópska efna-
hagssvæðinu hafi m.a. verið hrun
Sovétríkjanna." Sagði hann að við
hrun Sovétríkjanna hefðu þessar
þjóðir fengið tækifæri til að tengjast
stærri heild og skapa sér nýja her-
stöð í samvinnu við ríkin í Vestur-
Evrópu. „Nú eru þessi ríki þátttak-
endur í því að skilgreina öryggis-
hagsmuni Evrópu og skilgreina
hlutverk ESB í öryggismálum.Við
íslendingar höfðum ekki neinn slík-
an hvata í sjálfu sér til þess að
breyta um stefnu við hrun Sovétríkj-
anna. Við þurftum ekki að nota tæki-
færið til þess að breyta um stefnu í
öryggis- og varnarmálum af því við
höfðum aðildina að NATO. Við höfð-
um varnarsamninginn við Bandarík-
in sem tengir okkur með ákveðnum
hætti inn í öryggiskerfi miklu stæn-i
heildar, öryggiskerfi sem veitir okk-
ur vernd hvað sem á dynur og hvað
sem verður og gerist í austurhluta
Evrópu.“ Kvaðst hann ennfremur
þeirrar skoðunar að mikilvægi varn-
arsamningsins væri ef til vill meira
nú en nokkru sinni fyrr. „Hann
skiptir okkur meira máli þegar við
metum stöðu okkar í samfélagi þjóð-
anna heldur en áður og það á ég ekki
einungis við þá vernd sem hann veit-
ir okkur heldur það pólitíska gildi
sem samningurinn hefur.“
Sameinuðu þjóðirnar
verði kjölfestan
Steingrímur J. Sigfússon hefur
lengi haldið því fram að Sameinuðu
þjóðirnar ættu að verða kjölfestan í
nýju öryggisgæslukerfi í heiminum
og ítrekaði hann þá skoðun sína á
fundinum. Kvaðst hann m.a. sjá fyr-
ir sér að í þeirri heimsmynd væru
engir herir í öðru landi, þ.e. allir
þjóðarherir ættu að vera innan
landamæra sinna eigin ríkja þannig
að allar herstöðvar hvar sem væri í
heiminum myndu hverfa. „I grunni
verði um að ræða varnarlið innan
eigin landamæra en að alþjóðlega
öryggisgæslan verði á hendi stofn-
ana eins og Sameinuðu þjóðanna eða
svæðisbundinna stofnana eins og
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu, ÖSE.“ Þá lagði hann
áherslu á mikilvægi þróunarsam-
vinnu og friðsamlega lausn deilu-
mála og sagði að í þessu framtíðar-
skipulagi sem gæti verið komið á
árið 2050 væri Island að sjálfsögðu
herlaust og hlutlaust land.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing-
maður Samíylkingarinnar, sagði
m.a. að ekki væri víst að NATO-að-
ildin yrði í nánustu framtíð það
„tromp á hendi íslenskra stjórn-
valda í samskiptum við umheiminn
sem hún hefur verið á liðnum ára-
tugum.“ Benti hún í því sambandi á
að nýjustu fréttir frá Noregi
hermdu að stjórnvöld hefðu þegar
hafist handa við að skilgreina nýja
stöðu í öryggis- og varnarmálum
landsins. Sama verkefni blasti við
hér á landi. „Staða íslands í samfél-
agi þjóðanna er að breytasta og flest
bendir til þess að þróun mála í
Evrópu á næstu árum og áratugum
verði með þeim hætti að smáríki á
vesturhjara álfunnar verði ekki mik-
ill áhrifavaldur í þeirri þróun nema
að pólitískar ákvarðanir séu teknar
um annað. Sá tími er einfaldlega lið-
inn að við getum leyft okkur að horfa
næsta gagnrýnislaust á framvindu
mála austan hafs og vestan í trausti
þess að ávallt verði tekið tillit til sér-
stöðu lands ogþjóðar. Útkjálkapólit-
íkin sem ég vil kalla svo er ekki far-
sæl leið inn í nýja öld. Tryggja
verður hagsmuni okkar með opnari
huga og víðtækari samvinnu en
hingað til á alþjóðlegum vettvangi
með það að markmiði að rödd ís-
lands sé rödd friðar og mannrétt-
inda.“
Siv Friðleifsdóttir sagði í fram-
sögu sinni ljóst að NATO myndi
áfram gegna mjög mikilvægu hlut-
verki í framtíðinni „varðandi það að
ná fram friði í heiminum," eins og
hún orðaði það. Sagði hún mikilvægt
að íslendingar væru áfram í banda-
laginu. Um varnarsamninginn sagði
Siv að það mætti vel vera að hann
hefði að einhverju leyti haldið Is-
lendingum utan ESB eða alltént
frestað að einhverju leyti umræðum
okkar um þau mál. „En ég tel alveg
ljóst að við verðum fyrr en seinna að
taka hér djúpa umræðu um Evrópu-
sambandsmálin og ég hlakka mjög
til þess að fá skýrslu utanríkisráð-
herra sem verið er að taka saman
um stöðu íslands gagnvart Evrópu í
framtíðinni. Mér skilst að hún eigi
að draga fram stöðuna eins og hún
er í dag, þannig að við getum átt
dýpri umræðu um þá þróun, pólit-
íska þróun sem er að verða í Evrópu
og hvemig við snúum okkur í þeim
málum í framtíðinni."
Að loknum framsöguerindunum
kom m.a. fram að nokkrir fundar-
menn töldu afstöðu Samfylkingar-
innar gagnvart NATO ekki nógu
skýra og spurði Kjartan Magnús-
son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, Þórunni að því hver af-
staða Samfylkingarinnar væri
gagnvart aðild að NATO. „í Sam-
fylkingunni eru samankomnir nokk-
uð óh'kir stjórnmálaflokkar þegar
skoðuð er utanríkismálastefna
þeirra hin gamla,“ sagði Þórunn og
hélt áfram. „Við höfum hins vegar
ráðist í það verkefni að hanna nýja
utanríkisstefnu sem hentar nýrri
öld. A dagskrá hennar er ekki að
ganga úr NATO, það er alveg skýrt
og hefur verið skýrt síðan við settum
fram okkar stefnuskrá á liðnu ári.“