Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 35

Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 35 ERLENT * Ovænt samstarf Einingar og kommúnista í dúmunni Talið geta styrkt for- setaframboð Javlinskís Vladímír Putin, settur forseti Rússlands (t.h.), heilsar Gennadí Sel- eznjov, forseta dúmunnar, neðri deildar þingsins, fyrir fund þeirra um verkaskrá þingsins í Kreml í gær. Moskvu. AFP, AP. ÓVÆNT samstarf Vladímírs Pút- íns, setts forseta Rússlands, og kommúnista í dúmunni, neðri deild þingsins, hefur vakið óánægju með- al margra þingmanna, jafnt stuðn- ingsmanna sem andstæðinga Pút- íns. Margir þingmenn velta því nú fyrir sér hvort þetta séu fyrstu al- varlegu mistök Pútíns frá því hann komst til valda og hægrimenn sögðu að samstarf hans við komm- únista gæti orðið til þess að nokkr- ir mið- og hægriflokkar sameinuð- ust á bak við framboð Grígorís Javlinskís, leiðtoga Jabloko-flokks- ins, í forsetakosningunum 26. mars. „Aðeins einn maður stendur uppi sem sigurvegari eftir þessa upp- ákomu - Grígorí Javlinskí," sagði Stanislav Govorúkhín, atkvæða- mikill þingmaður Föðurlandsins- Alls Rússlands, bandalags Jevgenís Prímakovs, fyrrverandi forsætis- ráðherra, og Júrís Lúzhkovs, borg- arstjóra Moskvu. „Þetta er í fyrsta sinn sem raunhæft tækifæri gefst til að bjóða sig fram gegn Pútín og eitthvert vit er í slíku framboði." Skiptu með sér embættum í dúmunni Flokkur Pútíns, Eining, samdi á bak við tjöldin um að styðja komm- únistann Gennadí Seleznjov sem var endurkjörinn þingforseti á fyrsta fundi nýja þingsins í fyrra- dag. Þingmenn flokkanna tveggja skiptu einnig með sér formennsku í flestum nefndum dúmunnar. Um hundrað þingmenn gengu út úr þinghúsinu til að mótmæla sam- komulaginu áður en gengið var til atkvæða um embættin og mættu ekki á þingfund sem haldinn var í gær. Þeirra á meðal voru allir þing- menn Föðurlandsins-Alls Rúss- lands, Jabloko-flokksins og Banda- lags hægriaflanna, auk nokkurra þingmanna úr flokknum Héruð Rússlands. Júrí Lúzhkov lýsti samkomulagi kommúnista og Einingar sem ein- ræði meirihlutans og einu af „fyrstu merkjunum um alræði bol- sévíka". „Ruddalegur meirihluti, sem traðkar á minnihlutanum, hef- ur verið myndaður í dúmunni." Þingforsetinn reyndi að gera lítið úr deilunni og bað andstæðinga sína að „taka ósigrinum með reisn“. Slíðra sverðin fyrir kosningarnar Kommúnistar eru enn stærsti flokkurinn í dúmunni en staða þeirra veiktist verulega vegna góðs árangurs Einingar og fleiri flokka í þingkosningunum í desember. Kommúnistar eru því mjög fúsir til samstarfs við stjórn Pútíns og at- kvæðagreiðslan í fyrradag bendir til þess að hún líti ekki lengur á þá sem alvarlega ógn. Pútín hefur náð miklu forskoti á Gennadí Zjúganov, leiðtoga komm- únista, ef marka má skoðanakann- anir. Nokkrir rússneskir fjölmiðlar sögðu í gær að með samkomulag- inu við Einingu hefðu kommúnistar gefið til kynna að þeir myndu halda að sér höndum í komandi kosning- um og framboð Zjúganovs yrði að- eins táknrænt. „Leiðtogar komm- únista samþykktu að spara kraftana í kosningabaráttunni - láta líta út fyrir að Pútín sé ekki eini kosturinn - og það réð úrslit- um um þá ákvörðun Kremlverja að semja við kommúnista,“ sagði dag- blaðið Sevodnja. Leita nýrra vina og „lærimeistara“ Nokkrir rússneskir fréttaskýr- endur töldu að Pútín hefði samið við kommúnista til að koma í veg fyrir að einn af hættulegri keppi- nautum hans yrði kjörinn forseti dúmunnar, sem er fjórða valda- mesta embættið í landinu. Aðrir töldu að Pútín hefði ákveð- ið að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá umbótasinnum eins og Anatolí Tsjúbajs, sem stjórnaði umdeildum tilraunum til að koma á efnahags- umbótum í Rússlandi eftir hrun Sovétríkjanna. Tsjúbajs lýsti yfir stuðningi við forsetaframboð Pút- íns í síðasta mánuði en segja má að það hafi verið bjarnargreiði þar sem hann er illa þokkaður meðal rússneskra kjósenda. „Kenningar Tsjúbajs - pólitískar jafnt sem efnahagslegar - hafa gengið sér til húðar. Við leitum nú að nýjum lærimeisturum," hafði dagblaðið Vremja eftir embættis- manni í Kreml. Reynt að ná samstöðu um Javlinskí Aðrir telja hins vegar að Pútín hafi orðið á mistök því samkomu- lagið virðist hafa orðið til þess að hann missti stuðningsmenn. Sergej Kíríjenko, leiðtogi Bandalags hægriaflanna, tilkynnti að flokkur- inn myndi stofna sérstakt sam- starfsráð með Jabloko-flokknum, Föðurlandinu-ÖUu Rússlandi, og Héruðum Rússlands. Ráðið kom saman í gær og Kíríjenko sagði að það myndi ákveða hvort flokkarnir myndu styðja forsetaframboð Javlínskís. „Meðan vopnabræður Pútíns leita nýrra vina og lærimeistara vænkast hagur hugsanlegra and- stæðinga hans,“ sagði Vremja. „Eftir atburðina [í fyrradag] virðist framboð gegn Pútín ekki lengur vera svo fráleit hugmynd.“ Prímakov tilnefndur formlega Jevgení Prímakov hafði sóst eftir embætti þingforseta en dró fram- boð sitt til baka fyrir atkvæða- greiðsluna til að mótmæla sam- komulagi Einingar og kommúnista. Prímakov, sem var vinsælastur rússneskra stjórnmálamanna áður en Pútín tók að sópa að sér fylgi, hefur ekki enn tilkynnt hvort hann gefi kost á sér í forsetakosningun- um. Stuðningshópur tilnefndi hann fonnlega sem forsetaefni í gær, en ekki var vitað hvort hann hyggst fallast á tilnefninguna. Aus>furvöllur Hvort sem leið þín liggur á Austurvöll eða Austurland; upp á hálendið eða upp íBreiðholterHonda CR-Vrétti ferðafélaginn. Honda CR-V er vel búinn og sprækur sportjeppi á mjög hagstæðu verði og sameinar bestu kosti jeppa og borgarbíls. XlilJiill JBLJunL - betri bíll Vatnagörðum 24 ■ Sími 520 1100 ■ www.honda.is Akranes: Bílver s1„ slmi 431 1985. Akurayri: Höldur hf„ slmi 461 3000. Egilsstaðir: Blla- og búvólasalan hf., slmi 471 2011. Keflavik: Bílavík, simi 421 7800. Vestmannaeyjar: Bllaverkstæðið Bragginn, slmi 481 1535.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.