Morgunblaðið - 20.01.2000, Síða 39

Morgunblaðið - 20.01.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 39 LISTIR FRABÆR TANGÓ Á LA BUENOS AIRES TÓNLIST Geislaplötur Astor Piazzolla Astor Piazzolla: Primavera Porte- no, Verano Porteno, Otono Porte- no, Invierno Porteiio, Revoluciona- rio, Oblivion, Libertango, Le Grand Tango og Milonga en Re. Flytjend- ur: Izumi Tateno Trio: Auður Haf- steinsdóttir (fiðla), Bryndís Halla Gylfadóttir (selló), Izumi Tateno (pianó). Heildartími: 50’07. Útgáfa: Firebird - King Record Company, Japan KICC 286. Dreiflng: Japis. TÓNLISTIN er alþjóðleg, það sannast svo ekki verður um villst þegar hlustað er á þennan íslensk- fínnsk-japanska disk með argen- tínskri tónlist! Auðvitað geta allir hljóðfæraleikarar spilað nóturnar sínar - hvaðan sem þær eru nú upprunnar - en það er hreint ekki sjálfgefið að tónlistin skili sér á sannfærandi hátt til hlustandans. Það gerir tónlistin svo sannarlega á þessari framúrskarandi fínu plötu frá tríói sem nefnist Trio Izumi Tateno en hljóðritunin var gerð í Finnlandi í febrúar s.l. Tríó- ið er að tveimur þriðju hlutum skipað Islendingunum Auði Haf- steinsdóttur fiðluleikara og Bryn- dísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara. Izumi Tateno er Japani sem starfað hefur i Finnlandi um árabil og skýrir það ef til vill áhuga hans á að hljóðrita geislaplötu með tangótónlist. I Finnlandi er nefni- lega sterk hefð fyrir tangódansin- um og myndast hefur þar í landi afar sérkennilegt fyrirbrigði sem er hinn finnski tangó. En hér er leitað til upprunans, Argentínu, og lögin níu sem eru á plötunni eru öll úr smiðju eins þekktasta tangótón- skálds Argentínumanna, Astors Piazzolla (1921-1992). Þetta eru allt afar grípandi lög, tilfinningarík og ástríðuþrungin, skaphitinn er mikill - þarna er heitt og sveitt. Og ekki fer á milli mála að tangóinn er dauðans alvara. Þótt dansarnir séu flestir svipaðir að uppbyggingu og virki keimlíkir við fyrstu kynni þá eru þeir það alls ekki þegar betur er að gáð. Hver um sig hefur sín ótvíræðu sérkenni sem gerir hlust- unina að fjölbreyttri upplifun sem verður ekki eitt augnablik þreyt- andi eða tilbreytingalaus. Hér eru allir dansarnir leiknir af tríóinu í heild sinni nema lokalögin tvö. Diskurinn hefst á fjórum árs- tíða-„portenos“ (pórteno = frá Buenos Aires): Primavera- (vor), Verano-(sumar), Otono- (haust) og Invierno- (vetur) Portenos. Þetta eru grípandi lög með mikilli stíg- andi en flest hafa þau þó hljóðlátan millikafla. Otono Porteno er sér- lega tilkomumikið og seiðandi og eiga þær Auður og Bryndís þar glæsilega einleiksspretti. Lagið Revolucionario er nokkuð sérstakt, tónmálið er frjálslegt og impróvís- erandi og hljómagangur á stundum nýklassískur. Lokadansinn Mil- onga in Re fyrir fiðlu og píanó er hægari og blíðlegri en hinir dans- arnir. Þetta er óhemjufallegt lag og afburðavel leikið af þeim Auði Hafsteinsdóttur og Izumi Tateno. Le Grand Tango fyrir selló og pía- nó er viðamesta verkið á plötunni og er sennilega þekktasta tónsmíð Piazzollas. Samleikur Bryndísar Höllu og Izumi Tatenos er feikna- góður,þetta er í einu orði sagt eld- glóandi spilamennska. Libertango er einnig nokkuð þekkt lag (getur verið að dægurlagasöngkonan Grace Jones hafi komist á vin- sældalistann með þetta lag fyrir 10-15 árum?). Sérkennilega óró- legt lag sem endar eiginlega „upp í loft“. Hljóðfæraleikur þremenning- anna á plötunni er framúrskarandi og það sem mest er um vert er að þeim tekst að samsama sig alger- lega tónlist Piazzollas, framandi tónmáli sem svo fátt á skylt með tónlistarumhverfi okkar. Það finnst mér mikið afrek. Bæklingurinn með diskinum er sérkapítuli sem best er að hafa sem fæst orð um - hann er á jap- önsku! Til allrar guðslukku má þó greina nöfn listamannanna, tón- skáldsins og lagaheitin. En eigin- lega finnst mér að maður geti kraf- ist meira - þótt diskurinn sé að því er mér er tjáð aðeins ætlaður fyrir Japansmarkað. Hljóðritunin hefur tekist ein- staklega vel, jafnvægið milli hljóð- færanna er eins og best verður á kosið og hljóðmyndin öll afar eðli- leg og skýr. Svona á að hljóðrita kammermúsík. Þetta er ómissandi plata fyrir alla tangófíkla og fólk sem er for- vitið að kynnast öðruvísi tónlist. Valdemar Pálsson á heima Heimskautasög’ur HÚSASMIDJAN Sími 525 3000 • www.husa.is BÆKUR Ínúítasögur KAJAK DREKKHLAÐINN AFDRAUGUM Höfundur: Lawrence Millman. Sig- fús Bjartmarsson islenskaði. Bjart- ur, Reykjavík 1999.157 bls. Á ÖNDVERÐUM níunda áratugn- um ferðaðist Lawrence Millman um Grænland og Kanada til að safna saman þeim Inúítasögum sem hér birtast. Hann er því ekki eiginlegur höfundur bókarinnar Kajak drekk- hlaðinn af draugum heldur frekar eins konar ritstjóri eða ábyrgðarmað- ur. Millman leitaði víða fanga, bæði ferðaðist hann mikið og svo trúði hann því að hver sem er gæti búið yfir merkilegri sögu. Lesanda verður þó fljótlega Ijóst að hér er ekki um reynslusögur einstaklinga að ræða heldur eru sögumar birtingarmyndir sameiginlegs menningararfs Ínúíta, sögur sem Millman segir að hafi varð- veist kynslóð fram af kynslóð í munn- legri geymd. í inngangi segir ennfremur að þessi bók hafi að geyma „langar og áður ósagðar sögur; hálfgleymdar sögur; smáskrýtlur af nábúunum; og meira að segja fáeinar lengri og merkilegri goðsagnir." Þessi lýsing nær ágætlega utan um þá óhefluðu og óðu sagnaflóru sem hér er að finna en goðsögubragur umlykur þó stærri hluta verksins en þama er gefið til kynna. í fyrstu sögunum er sköpun ýmissa náttúrufyrirbrigða lýst, svo sem sólar og mána, vindanna, sjávar- dýranna og konunnar. Að greint sé frá sköpun konunnar í sama kafla og segir frá því hvemig skögultennur rostunga urðu til úr stirðnuðu hori er reyndar lýsandi fyrir stöðu kvenna í sagnaarfi Ínúíta. Endurtekið þema er matarleit og veiðiferðir. Hungursneyð blasir sífellt við þeim sem sagt er frá og vel stað- sett öndunarop á ísnum er fundur sem er gulls ígildi. En ef í harðbakk- ann slær og um aðra kosti er ekki að velja em sögupersónumar ekki endi- lega mótfallnar því að taka sér mannakjöt til munns og em eiginkon- umar þá það fyrsta sem lendir á pönnunni. Bömin það næsta. Flestar em sögumar stuttar, nokkrar aðeins örfáar línur, eins og sagan af veiðimanninum Uutaaq sem er reyndar svo stutt að hægt er að hafa hana hér eftir í heild sinni: „Ung- um veiðimanni sem Uutaaq hét varð einu sinni á sú slysni að gleypa oddinn af skutli sínum. Þetta olli nokkmm þjáningum því oddurinn ýttist í inn- yfli hans. Hann greip þá til þess ráðs að reka við í átt að náhvelavöðu. Skaust skutuloddurinn þar með úr rassi hans og í gegnum hjörtu allra náhvelanna. Uutaaq var eftir það hylltur sem mesti veiðimaður í heimi. Hann óð líka beinlínis í kvenfólki það sem hann átti eftir ólifað.“ Frásögnin af Uutaaq er reyndai- í léttari kantin- um, myrkari sögur er líka að finna þar sem eitt algengasta stef hinna íjöl- mörgu, en keimlíku, sagna er kúgun og valdbeiting. Níðst er á minnimátt- ar í hverri sögunni á fætur annarri, hvort sem það em böm, undirmáls- fólk eða konur og virðist það alltaf eiga að vera jafnskondið. Samfélagið sem sagnimar lýsa er grimmt og svo sem ekki ýkja aðlað- andi en það í sjálfu sér er enginn ljóð- ur á bókinni. Hinn nútímalegi blær sem Millman Ijáir sögunum með því að rita þær í slangurkenndu talmáli og einkennileg hótfyndni sem vel gæti verið viðbót samtímasögumanna, rýr- ir gildi þeirra hins vegar mjög. Mill- man tekur reyndar fram að sögumar hafi ekki verið þýddar með nákvæmni að leiðarljósi heldur læsileika og það að koma inntakinu til skila. En vandi bókarinnar liggur einmitt í togstreitu milli forms og innihalds. í eðli sínu er goðsagan myndhverfing sem birtir djúpbyggingu þeirrar menningar sem hún sprettur úr, en sú merking- arvídd Ínúítasagnanna þurrkast út í kæruleysislegu, jafnvel fyllerís- kenndu, andrúmslofti bókarinnar. Af sumum sagnanna er hægt að brosa, eins og þeirri af veiðimanninum Uuta- aq, fleiri em þó nauðaómerkilegar og enn aðrar hálfógeðfelldar. Björn Þór Vilhjálmsson 0] Electrolux • Ryksuga • 1600W • Inndraganleg snúra • Fylgihlutageymsla • Ofnæmissía • Mjög hljóðlát ^49GL 'ALSA með Carlos If áföstudags-^~—^ jk kvoldum Simar 551 5103 1 5 og 551 7860 Olga sýnir í Galleríi Nema hvað OLGA Pálsdóttir opnar sýn- ingu á morgun, fóstudag, kl. 18 í Galleríi Nema hvað á Skóla- vörðustíg 22c. Meginþema sýningarinnar era manneskjan, miðpunktur tilverannar og frjáls leikur með form mannslíkamans. Sýningin er opin frá fimmtu- degi til sunnudags kl. 14-18. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 30. janúar. Allir velkomnir. Hilluplan fyrir lausar vörur og bitar fyrir vörubretti. Þunga- vörurekkar Trygg gæði - Gott verð! ISO9001 Öryggis- og gæðastaðlar " 4 Einfalt f uppsetningu Skrúfufrftt Smellt saman f allar áttir Umboðs- og heildverslun Nethyl3-3a-110Reykjavík Sími53 53 600- Fax5673609 Tilboð 25% afsláttur fimmtudag - sunnudags I Herraskór Stærðir 40-47 Verí nð 4.995,- Teg. 2U7. Utur svartur Stærðir 40-45 Jíuið úðui 5.9957 Verí nó 4.495,- Teg. 783027. Utur svartur Stærðir 40-45 Jluið liðui 5.9957 Yerð nú 4.495,- Takmarkað magn STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN DOMUS MEDICA við Snorrobrout - Reykjovík Sími 551 8519 KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Reykjovik Sími568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.