Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 52
-32 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Mannfólkið njóti vafans
EINU viðbrögðin til
að stöðva fólksstraum-
inn sem flykkist á höf-
uðborgarsvæðið er að
byggja risaálver á
Austfjörðum, það
stærsta í Evrópu. Mik-
il er hugmyndafátækt-
in hjá ráðamönnum.
Nú er það álver, áður
voru það refabú og lax-
eldi. A Islandi eykst sí-
fellt bilið á milli annars
-H'egar þeirra sem mega
og eiga og hins vegar
Jóns og Gunnu. Ekki
þrífast allir á því að
selja verðbréf og kvóta
og litlar líkur eru á að
margar konur verði framkvæmda-
stjórar í risaálveri við Reyðarfjörð
með útsýni yfír Hólmana sem eru
friðlýstir sem náttúruvætti.
Heyrst hefur frá landshornum að
lífeyrissjóðirnir eigi að fjármagna
ævintýrið. Þar á bæ hefur kvisast út
um hreinsanir og uppsagnir hjá líf-
eyrissjóðum og verkalýðsforystu
Austurlands til að tryggja að þar
reynist enginn óþægur ljár í þúfu.
A Austfjörðum vantar sárlega
.^jölbreytta atvinnu en ekki eina
lausn sem gleypir allt rafmagn sem
hægt er að framleiða í náinni fram-
tið og er því dragbítur ó aðra at-
vinnuuppbyggingu.
Þetta fyrirtæki tek-
ur allt of stóra tolla af
hálendisperlum Islend-
inga sem Landsvirkjun
hefur fengið frítt hjá
íslensku þjóðinni.
Ferðamenn koma ekki
til Austfjarða til að
skoða risaálver eða
gruggug gervilón með
skurðum og háspennu-
línum.
Lögformlegt um-
hverfísmat
í upphafi skyldi end-
irinn skoða. Mér létti
þegar ég sá athuga-
semdir skipulags-
stjóra: „Athuga þarf svæðið þar sem
fyrirhugað álver verður staðsett
með tilliti til aurskriðna." Það er að
segja undir Hólmatindi þar sem
risaálver er á pappírum. Hólmatin-
dur er yfir 1000 metrar á hæð. Ég
gekk oft þama um hlíðar Hólmat-
inds því að sem unglingur vann ég á
sumrin við heyskap á þessu fallega
svæði. Mér varð þá oft starsýnt á
stórgrýtisurðir sem fallið höfðu víða
með skriðum niður eftir lækjar-
skorningum úr Hólmatindinum
langleiðina niður í fjöru. Nú síðast í
haust féllu aurskriður á þessu svæði
og tepptist vegurinn á milli Eskifja-
rðar og Reyðarfjarðar á nokkrum
Óbyggðirnar
Tökum höndum saman
og friðlýsum öræfín
norðaustan Yatnajök-
uls, segír Ólöf Stefania
Eyjólfsdóttir.
stöðum. Það er von að menn séu
hræddir og að farið sé með þetta
sem feimnismál.
Það er von mín að skipulagsstjóri
fái frið til að ljúka lögformlegu um-
hverfismati og leggi einnig hag-
fræðilegt mat á arðsemi álversins,
þess stærsta í Evrópu og allra
virkjananna á hálendinu í kjölfarið
svo að þjóðin sitji ekki uppi með
kostnað upp á 200 milljónir við gerð
varnargarða til varnar aurskriðum í
Hólmatindi eins og varnargarðamir
á Siglufirði kostuðu. Því að risaál-
verið nær yfir svo gífurlega breitt
svæði þvert undir skorningum í
Hólmatindinum. Veðurfarsbreyting-
ar vegna hækkunar á hitastigi í loft-
hjúpi jarðar hafa átt sér stað sem
valda aukinni úrkomu og meiri lík-
um á aurskriðum og snjóflóðum sem
hafa tekið sinn toll af þjóðinni.
Stafalogn er oft í Reyðarftrði svo
dögum skiptir, því að fjörðurinn er
þröngur og umluktur háum fjöllum.
Skipulagsstjóri hefur einnig til at-
hugunar mengun sem gæti safnast
þar upp og orðið hættuleg heilsu
íbúanna. Umhverfisráðherra er nið-
ursokkinn við að rannsaka „kam-
fylu“-bakteríur í kjúklingum. Verð-
ugt verkefni væri líka fyrir
umhverfisráðherra að huga að því
að böm Reyðarfjarðar og Eskifja-
rðar fái að njóta vafans og þeirra
heimahagar verði ekki gerðir
óbyggilegir vegna mengaðs and-
rúmslofts.
Mannréttindi og
frumbýlisréttur
Við látum okkur koma við eyðingu
regnskóga í Brasilíu og Borneo.
Við fylltumst kvíða og vanmætti
þegar Rússar hugðust fyrr á öldinni
breyta farvegi tveggja stærstu fljóta
Síberíu, Yenisey og Ob til suðurs.
Enn fremur fyllumst við vandlæt-
ingu vegna útrýmingar dýrategunda
í öðmm álfum. Hvað með hreindýr
og fugla og gróður á hálendi Is-
lands? Við höfum samúð með frum-
byggjum sem sviptir hafa verið
veiðilendum forfeðranna en hver era
viðbrögð á vora landi heima fyrir?
Hvernig er frambyggjaréttur
Jóns Jónssonar, sjómanns, tryggður
til að róa til fiskjar? Eða Gunnu fisk-
verkakonu sem unnið hefur í frysti-
húsinu í 30 ár þegar kvótinn er seld-
ur og fluttur til vinnslu annars
staðar? Hvernig fer fyrir afkomend-
um Jóns og Gunnu í þessum sjávar-
þorpum þegar þeim eru allar bjargir
bannaðar og verða að greiða til
sægreifanna 70% leiguskatt á hvert
kíló sem fæst upp úr sjó? Varðar
okkur eitthvað um það?
Verða íbúum Sögueyjunnar búin
sömu örlög og Azteka og Inka í Suð-
ur-Ameríku? Er það vilji Austfirð-
inga að drekkja einstæðum gróður-
vinjum, „hálendisþjóðgarði Islands",
fyrir erlenda álfursta?
Kyoto-bókunin og dýr
raforka til heimila
Verður þjóðin látin borga háar
fjárhæðir vegna aukinnar mengunar
Ólöf Stefanía
Eyjólfsdóttir
sökum stóriðju á íslandi í Kyoto-
samningi þjóða á nýrri öld? Sú
spurning verður sífellt áleitnari
hvort raforka hækki svo í kjölfarið
til hins almenna neytanda þegar
menn tala um að raforkan verði seld
langt undir kostnaði til stóriðju?
Dýr raforka og dýrar neysluvörur
ásamt kvótasukki, þetta þrennt telja
landsbyggðarmenn helstu ástæður
fyiir straumi fólks á suð-vestur-
hornið. Til dæmis er svartolía notuð
við bræðslu og skipsflotinn notar
frekar svartolíu við löndun sem er
ódýrara heldur en að kaupa raforku
við bryggjur. f stærstu blöðum
landsins birtast dag hvem greinar
um ástand sjávarbyggðanna og mót-
mæli gegn fórnum hálendisdjásna
sem aldrei koma til baka. Afleiðing
af skammsýni og aðgerðaleysi
stjórnvalda. Þjóðin er orðin langeyg
eftii- því að kosningaloforð ráða-
manna verði efnd og fyrirheitin
fögra um sátt við þjóðina og landið.
Þjóðgarður
á Austurlandi
Tökum höndum saman og friðlýs-
um öræfin norðaustan Vatnajökuls
með Eyjabakka, einstæða fossa og
landsvæðið kringum Snæfell, sem er
fegurst fjalla og stolt Austurlands.
Þjóðgarður sem er nú þegar ein-
stæður í okkar heimsálfu og þótt
víðar væri leitað. Leggjum okkar af
mörkum til að spoma við þynningu
ósonlagsins yfir norðurhveli jarðar.
Verðum vörslumenn meðal þjóða en
ekki eyðingaröfl. Þá getum við verið
stolt af því að vera íslendingar og
getum horft framan í afkomendur
okkar í upphafi nýrrar aldar.
Styðjum baráttu Umhverfisvina
um að þjóðarlög séu virt í umhverf-
ismálum á íslandi. Hafið samband
við skrifstofu Umhverfisvina í síma
533 1180.
Höfundur er húsmóðir
og Austfirðingur.
J?
BAÐSTOFAN
GLÆSILEG SÉRVERSLUN MEÐ ALLT I' BAÐHERBERGIÐ
BÆJARLIND 14 > KÓPAVOGI • SÍMI 564 57 OO
FUSAR’HREINL/ETIST/eKI-BAÐINNRÉTTINGAR.