Morgunblaðið - 20.01.2000, Síða 54

Morgunblaðið - 20.01.2000, Síða 54
, í54 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Jóla-, líknar- o g styrktar- merki 1999 Jóla- og styrktarmerki 1999. FRIMERKI Jðl 1999 Jólamerki Barnauppeldissjóðs Thorvaldsensfélagsins, Framtíð- arinnar á Akureyri, Rotaryklúbbs Hafnarfjarðar, Líknarsjóðs Lionsklúbbsins Þórs, Ung- mennasambands Borgarfjaröar, Kaþólska safnaðarins, Neistans - styrktarfélags hjartveikra barna, Rauða kross íslands og Hins ísienska biblíufélags. AÐ vanda hefst fyrsti þáttur nýs árs með fréttum af jóla- og líknar- merkjum liðinna jóla. Hefur Bolli Davíðsson í Frímerkjahúsinu sem fyrr látið þættinum flest þessara merkja í té og jafnframt ýmsar upplýsingar um þau. Eins og fram kemur í fyrirsögn, hefur nú verið bætt við hana orðinu styrktarmerki. Er það gert vegna þess, að æ fleiri samtök eru að fara inn á þá braut að gefa út merki til nota á jólapóst til þess að afla fjár til margvíslegrar góðgerðar- eða styrktarstarfsemi. Er því ekki ófyrirsynju, þótt nú sé farið að nota orðið styrktarmerki. Af sjálfu sér leiðir, að það orð á reyndar við um öll þau merki, sem út hafa komið fyrir hver jól allar götur, síðan Thorvaldsensfélagið reið á vaðið með sín jólamerki árið 1913. Vitaskuld hafa jólamerki þessa gamalkunna félags ævinlega verið styrktarmerki. A jaðri þeirrar 12 merkja arkar, sem félagið gaf út fyrir þessi jól, stendur eimitt: Allur ágóði rennur til veikra barna. Ég hef oft látið í Ijós áhyggjur yfir harðnandi samkeppni á þess- um markaði, bæði innbyrðis milli góðgerðarfélaga og svo ekki síður við sjálfan Póstinn, sem gefur út sérstök jólafrímerki, en þau hljóta auðvitað að keppa við sjálf jóla- og líknarmerkin. Að ég tali nú ekki um nýliðin jól, þegar Pósturinn hleypti 13 jólasveinum á kreik með frí- merkjum sínum. Leizt mér í sann- leika ekki á blikuna, hvorki fyrir Póstinn né líknarfélög landsins. En hér hefur mér skjátlazt. Rífandi sala varð í jólasveinum Póstsins og þeir munu næstum hafa horfið af markaði. Áhugi erlendra safnara reyndist mikill og þá ekki sízt á hin- um sérkennilegu búningum þeirra og látbragði. Vafalaust hefur þetta hvort tveggja stuðlað mjög að sölu þessara sérstæðu og skemmtilegu frímerkja. Þrátt fyrir áhyggjur mínar um aukna samkeppni, sem yrði til þess að dreifa kröftum líknarfélaga um of, virðast aðrir vera fullir mikillar bjartsýni. í fyrra komu út níu merki frá sjö félögum, en merkjum fjölgaði verulega að þessu sinni, ekki síður en hjá Póstinum. Var þess vegna úr mörgu að velja fyrir þá, sem halda enn þeim góða sið að senda vinum og kunningjum jóla- og nýársóskir. Að því er ég hef fregnað gáfu níu félög eða samtök út merki að þessu sinni. Tvö þeirra senda jafnvel margar gerðir, svo að merkin urðu óvenjumörg, sem safnarar verða að ná í söfn sín. Telst mér til, að þau séu alls 34, og er engan veginn víst, að hér hafi öll kurl komið til grafar. Thorvaldsensmerkið verður að venju fyrst í röðinni, enda hefð þess langelzt meðal jólamerkja okkar. Merki þetta nefnist Móðir og barn, og höfðar það nafn einmitt til þess verkefnis, sem það á að styrkja og nefnt var hér framar. Guðlaug Halldórsdóttir textíllista- kona hefur hannað merkið. Er merkið mjög fallegt og stílhreint. - Þá gaf Kvenfé- lagið Framtíðin á Akureyri út sérlega fallegt merki, mynd af logandi kerti á skál, skreyttri jólatrésgrein. - Rotaryklúbbur Hafnarfjarðar gaf merki með íslenzku vetrar- landslagi, þar sem sjá má sauðkindur krafsa í snjóinn eftir stráum og svo einnig snjó- tittlinga^ í ætis- leit. - Á merki Lionsklúbbsins Þórs er mynd af kirkjunni á hin- um sögufræga stað, Keldum á Rangárvöllum. - Ungmenna- samband Borg- arfjarðar gaf enn út merki með mynd af Álftaneskirkju á Mýrum, sem reist var 1904. Hafa þá birzt á merkjum sambandsins myndir af alls 13 kirkjum í Mýra- og Borgarfjarð- arsýslum. Hófst þessi útgáfa 1987 með mynd af Borgarneskirkju. - Kaþólski söfnuðurinn sendir af sama látleysi og áður merki sitt með óbreyttri teikningu frá fyrri árum, en nýju ártali. Styrktarfélag hjartveikra barna, Neistinn, gefur í fyrsta skipti út verulega fallegt jólamerki. - Rauði kross Islands bætir heldur betur við safn jólamerkja, því að hann sendi félagsmönnum sínum jóla- kveðju með alls 18 merkjum með mismunandi myndefni. Fylgja hér einungis tvö sýnishorn. Myndirnar eru eftir Brian Pilkington og hafa allar nema ein birzt áður í bókinni Englajól. Merkin eru mjög falleg og lýsa jólastemmningunni frá mörgum hliðum. - Þá bættist Hið íslenska biblíufélag í hópinn og sendi „aðventugjöf til félaga sinna og velunnara í fyrsta skipti í ár,“ eins og það er orðað með jólakveðj- unni. Þar segir, að jólamerkin hafi félagið fengið frá danska Biblíufé- laginu. „Þau eiga að minna okkur á jólaguðspjallið og lofsöng englanna á jólanótt." Danskur listamaður, Judy Marie Bonnesen, hannaði þessi sérstæðu jólamerki. Hverju þeirra fylgir viðhengi með hluta af jólaguðspjallinu, þannig að það er allt á einni örk, sem í eru níu merki. Örkin er hinn eigulegasti safngrip- ur sem heild, en hér fylgir aðeins eitt merki með viðhengi. Framlag þeirra, sem keyptu þessi merki, rann til kaupa á barnabiblíum til barna í afskekktum héruðum Síb- eríu. Að endingu birti ég hér til nokk- urs fróðleiks skiptingu merkja á jólapósti til venjulegs heimilis fyrir þessi jól. Jólabréfin voru alls 56. Af þeim voru einvörðungu jólafrí- merki á 31 bréfi eða 55,36%, 13 bréf með Rauða kross merki til viðbótar eða 23,21%, tvö bréf með Thor- valdsen eða 3,58%, eitt með Biblíu- félaginu eða 1,79%, eitt með Neist- anum eða 1,79%. Loks voru almenn frímerki á 4 bréfum eða 7,14%, vél- stimpluð á 3 eða 5,34% og gúm- stimpill á einu bréfi eða 1,79%. Að sjálfsögðu er þetta ekki einhlít við- miðun, en hún getur samt verið nokkur vísbending um notkun frímerkja einvörðungu og svo aftur á móti styrktarmerkja samhliða frímerkjum. í þessu dæmi voru frímerki á 62,50%, en svo með styrktarmerkjum til viðbótar 30,37%. Þannig var tæpur þriðj- ungur með einhvers konar jóla- merkjum og bróðurparturinn af þeim frá Rauða krossinum. Jón Aðalsteinn Jónsson Útsala á yfirstærðum fyrir stórkostlega menn 40% afsláttur aðeins í Herragarðinum Laugavegi 13, dagana 20. til 22. janúar. fierm GARÐURINN -klæðirþigvel LAUGAVEGI13 www.lyngvik.is sími: 588 9490 Ármann H. Benediktsson, lögg. fasteignasali, GSM 897 8020 Geir Sigurðsson, lögg. fasteignasali, GSM 896 7090 Jón Guðmundsson, sölustjóri, GSM 897 3702. lyngviK Fasteignasala - Síöumúla 33 Félag Í^fösteignasala Opið virka daga frá kl. 9-18, sunnudaga frá kl. 12-14 VANTAR 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir austan Kringlumýrarbrautar. NÝTT - ÁLFTANES Erum með í sölu raðhús, 160 fm. V. 9,4 m. Parhús 160— 200 fm. V. frá 10,650 m. Húsin eru á tveimur hæðum með inn- byggðum bílskúr og skilast í júní 2000, fokheld og frágengin að utan. Frábær staðsetning við sjávarsíðuna, glæsilegar eignir. Ath. Einnig erum við með til sölu lóðir fyrir einbýlishús. Traustur byggingaraðili. ÍAV (1097)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.