Morgunblaðið - 20.01.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Þorrafagnaður
Neskirkju
HINN árlegi þorrafagnaður
Neskirkju verður haldinn nk. laug-
ardag 22. janúar kl. 13. Fram verð-
ur borinn hefðbundinn þorramatur
á hlaðborði, síldarréttir og heitt
saltkjöt.
Margt verður sér til gamans gert.
Nokkur pör frá samtökunum „Kom-
ið og dansið“ sýna dans. Reynir
Jónasson marserer með nikkuna og
leikur undir fjöldasöng. Verði er
mjög stillt í hóf eða 1.400 kr. á
manninn. Þátttaka tilkynnist í síma
511-1560 milli kl. 10-12 og 16-18 til
föstudags. Allir velkomnir. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Samkoma á
Her í kvöld
SAMKOMUR samkirkjulegu
bænavikunnar halda áfram í kvöld
og verður samkoma í Herkastalan-
um í kvöld, fímmtudag 20. janúar.
Prédikun kvöldsins flytur sr.
Hjalti Guðmundsson, dómkirkjup-
restur.
Fulltrúar safnaðanna lesa ritn-
ingarorð og einnig verður mikill og
góður söngur eins og alltaf er á
samkomum á Hernum.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17.
Bústaðakirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 14-16 í safnaðarheim-
ilinu. Æskulýðsfélag Neskirkju og
Dómkirkju. Sameiginlegur fundur í
safnaðarheimili Neskirkju kl. 20.
Grensáskirkja. Mæðramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur
málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Háteigskirkja. Ljós lífsins, þagn-
aríhugun kl. 20. Taize-messa kl. 21,
fyrirbæn með handaryfirlagningu
og smurning. Tómas Sveinsson.
Langholtskirkja. Foreldra- og
barnamorgunn kl. 10-12. Söngstund
með Jóni Stefánssyni kl. 11. Svala
djákni les fyrir eldri börn. Kirkjan
er opin til bænagjörðar í hádeginu.
Endurminningahópur karla kl. 13-
15.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Kyrrðarstund kl. 12. Orgel-
leikur til kl. 12.10. Að stundinni lok-
inni er léttur málsverður í boði í
umsjá veitingahússins Asks. Sam-
vera eldri borgara kl. 14. Fyrsta
samvera á nýju ári. Dagskrá í umsjá
þjónustuhóps kirkjunnar, sóknar-
prests og kirkjuvarðar.
Neskirkja. Æskulýðsfélag Nes-
kirkju og Dómkirkju. Sameiginleg-
ur fundur í safnaðarheimili Nes-
kirkju kl. 20.
Seltjarnarneskirkja. Starf fyrir
6-8 ára börn kl. 15-16. Starf fyrir 9-
10 ára börn kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. TTT-starf fyrir
10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 16.30-
17.30.
Breiðholtskirkja. Mömmumorg-
unn á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Foreldramorgn-
ar kl. 10-12 í umsjá Fjólu Gríms-
dóttur og Bjargar Geirdal. Kl. 11.15
leikfimi aldraðra. Kl. 18 bænastund.
Fyrirbænaefnum má koma til
prests eða kirkjuvarðar í síma 554-
1620, skriflega í þar til gerðan
bænakassa í anddyri kirkjunnar eða
með tölvupósti (digranes-
kirkja@simnet.is) netfang prestsins
er: skeggi@ismennt.is
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11- 12 ára drengi kl.17-18.
Grafarvogskirkja. Foreldra-
morgnar kl. 10-12. Fræða'ndi og
skemmtilegar samvenistundir,
heyrum guðs orð og syngjum með
börnunum. Kaffisopi og spjall. Allt-
af djús og brauð fyinr börnin.
Æskulýðsstarf fyrir unglinga kl. 20-
22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar.
Starf fyrir 7-9 ára kl.16.30.
Kópavogskirkja. Samvera aldr-
aðra í safnaðarheimilinu Borgum kl.
14-16. Kyrrðar- og bænastund í
kirkjunni kl. 18. Fyrirbænaefnum
má koma til prests eða kirkjuvarð-
ar.
Seljakirkja. Strákastarf fyrir 9-
12 ára á vegum kirkjunnar og
KFUM kl. 17.30.
Ilafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrii’ ung börn og foreldra þeirra kl.
10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Op-
ið hús fyrir 8-9 ára börn ÍV onarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 22. Kaffi eftir athöfn.
Biblíulestur kl. 21.
Fríkirkjan í Hafnarfírði. Opið
hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgn-
ar kl.10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára
böm kl. 17-18.30.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 10 foreldramorgnar. Kl. 14.30
helgistund á Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja, dagstofunni, 2.
hæð. Heimsóknargestir velkomnir.
Kl. 17.30 TTT-starf 10-12 ára. Kl. 18
kyrrðar- og bænastund með Taize-
söngvum. Koma má fyrirbænaefn-
um til prestanna með fyrirvara eða í
stundinni sjálfri.
Lágafellskirkja. TTT-starf fyrir
10-12 ára börn frá kl.17-18. Umsjón
Hreiðar og Sólveig.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund
kl. 18.30.
Hvammstangakirkja. Kapella
Sjúkrahúss Hvammstanga. Helgi-
og bænastund í dag kl. 17. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
prests.
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 5i£*
Reyklaus árangur
NICORETTE
Apótekið Smáratxxgi - S. 564 5600 • Apótekið Nýkaup Mosfellsbæ - S. 566 7123
Apótekið Smiðjuvegi - S. 577 3600 • Apótekið Iðufelii - S. 577 2600 (F'
Apótekið Firði Hafnarf.-S. 565 5550«Apótekið Hagkaup Skeifunni -S. 563 5115
Apótekið Suðurströnd - S. 561 4600 • Apótekið Spönginni - S. 577 3500
Apótekið Nýkaup Kringlunni - S. 568 1600« Apótekið Hagkaup Akureyri - S.461 3920
PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 ^ Sími 562 3614
„Heilsusamlegt
mataræði á unga
aldri leggurgrunninn
að góðri heilsu"
Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir samhenginu
í heilsufari okkar. Með skynsamlegu fæðuvali frá
því móðurmjólkinni sleppir búum við í haginn fyrir
framtíð barna okkar og hreysti þeirra, alla ævi.
Beinin eru gott dæmi. Þau öðlast styrk sinn á fyrri
hluta ævinnar. Börn þurfa því nægilegt magn af
þeim efnum sem Ijá beinunum styrk. Þar skiptir
kalk höfuðmáli, en D-vítamín er einnig nauðsynlegt
til að kalkið nýtist við uppbygginguna.
D-vítamín er að finna í lýsi og ýmsum fiski.
Langmikilvægasta uppspretta kalks er hins vegar
mjólk og mjólkurvörur.
„Mjólk" er samheiti yfir alla drykkjarmjólk, nýmjólk, léttmjólk, undanrennu
og fjörmjólk. Einnig má fá kalk úr öðrum mjólkurvörum, s.s. osti og
sýrðum mjólkurvörum.
Hollusta styrkir
BEINVERND
ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR