Morgunblaðið - 20.01.2000, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 20.01.2000, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 61 MINNINGAR I ÞÓRDÍS MA TTHÍASDÓTTIR + Þórdís Matthías- dóttir fæddist á Patreksfirði 7. ágúst 1918. Hún lést 11. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Stein- unn G. Guðmunds- dóttir, f. 5.8. 1894, d. 27.6. 1967, og Matthías Pétur Guðmúndsson, f. 22.2. 1888, d. 8.7. 1964. Þórdís var þriðja í röð tólf systkina. Þau eru: Olgeir Haukur, f. 5.11. 1914, d. 19.8. 1928; Ás- mundur, f. 30.8. 1916, d. 21.5. 1994; Málfríður Jóhanna, f. 7.6. 1920; Guðmundur Kristinn, f. 14.6. 1923, d. 7.8. 1939; Áslaug, f. 14.9. 1924, d. 16.12. 1997; Inga Lára, f. 20.6. 1926, d. 5.1. 1998; Olgeir Haukur, f. 7.8. 1928; Erna Helga, f. 27.6. 1930; Jón, f. 20.8. 1931; Hallgrímur, f. 7.11. 1932; Lárus, f. 6.12. 1933, d. 4.7. 1935. Þórdís giftist 11. janúar 1941 Bjarna Sveinssyni, múrara- meistara, f. 25.5. 1915, d. 22.3. 1991. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Guðlaugur Bjarna- son, f. 2.12. 1940, d. 18.2. 1988. Eiginkona hans var Hrefna Her- mannsdóttir, þau slitu samvistir. Áður átti hann eina dóttur, Heið- rúnu Hlín, eiginmaður hennar er Hannes Siggason, eiga þau tvo syni. 2) Steinunn, f. 27.8. 1944. Eiginmaður hennar er Gunnlaug- ur Fjólar, eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn. 3) Matthías, f. 24.7. 1946, fyrri kona hans var Sonja Einarsdóttir, eignuðust þau tvær dætur. Seinni kona Matthíasar er Sonja Ej-fjörð og eiga þau tvö börn. 4) Áslaug, f. 15.2. 1948, eiginmaður hennar er Brandur Sigurðsson. Eiga þau eina dóttur og áður átti Áslaug soninn Guðjón Steingrímsson. Áslaug og Brandur eiga fjögur barnabörn. 5) Ólafur Sveinn, f. 26.8. 1952, eiginkona hans er Lára Öfjörð Guðmundsd. Eiga þau tvær dætur. 6) Rut, f. 17.7. 1954, sem var ættleidd af systur Þórdísar, Málfríði, og eigin- manni hennar, Sigurði Olafssyni. Rut ólst upp í Vestmannaeyjum. Fyrri maður Rutar var Olafur Sigurjónsson, eiga þau þrjá syni og eitt barnabarn. Seinni maður hennar er Bjarni Sigurðsson. Útfor Þórdísar fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Móðirmín. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notíð, finn hvað allt er beiskt og brotíð, burt er víkur aðstoð þín elsku góða mamma mín. - Allt sem gott ég hefi hlotíð, hefir eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víia og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. - Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærustu blysin þín. Flýg ég heim úr 5arlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. - okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Ámi Helgason.) Kveðja frá bömum þínum. Að eilífðarljósi bjarma ber Sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, Það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Að leiðarlokum leitar hugurinn til baka er ég kynntist Þórdísi fyrst. Það var á þeim tíma er ég var að kynnast dóttur hennar, Steinunni, og varð ég tíður gestur á heimili þeirra á Hraunkambi 9. Seinna flutti ég inn á heimili Þórdísar og þar vor- um við Steinunn í tæp tvö ár og með okkar fyrsta barn í sex mánuði. Okk- ar fyrsta íbúð var stutt frá heimili Þórdísar og var því mikill samgang- ur á milli heimila okkar. Samband eiginkonu minnar við móður sína var einstakt og byggt á gagnkvæmri væntumþykju og umhyggju. Þórdís tengdist mér strax vináttu- og tryggðarböndum sem héldust alla ævina. Þórdís ólst upp á kreppuár- unum þegar flestir áttu varla til hnífs og skeiðar og hún kom frá bammörgu heimili þar sem þau systkinin þurftu snemma að taka til hendinni. Mér er það minnisstætt hvað Þórdís gat gert mikið úr litlu þó að efnin skorti á hennar heimili þar sem hún var ein fyrirvinna með fimm börn á sínu framfæri. Hún var hógvær en stolt og gat látið að sér kveða og sætti sig aldrei við annað en að vera vel til höfð enda var hún glæsileg kona. Minningamar sækja fram í hugann, dýrmætar minningar um ótal góðar samverustundir bæði í gleði og sorg. Þórdís var um margt sérstæð kona. Hún átti dug og þrautseigju í ríkum mæli og öll hennar skaphöfn einkenndist af um- hyggju fyrir bömum sínum og þeirra fjölskyldum. Allt vol og víl var henni ekki að skapi. Hún var góð amma og fylgdist vel með framgangi barnabama og langömmubama sinna og nú um þessi jól, þótt orðin væri fársjúk, þá mátti hún ekki til annars hugsa en þau fengju jólagjaf- ir frá sér. Henni þótti sælla að gefa en þiggja. Þórdís hafði yndi af að ferðast og fór hún nokkrar ferðir til barna sinna í Svíþjóð og Kanada sem þar bjuggu. Ég minnist þess er hún fór með okkur hjónunum til Italíu 1984 og nú síðastliðið sumar er við fóram til Egilsstaða í brúðkaup bróður- dóttur hennar og hvað hún hafði mikla ánægju af þeirri ferð. Þórdís átti íbúð á Hjallabraut í tuttugu og eitt ár og var heimili hennar alla tíð mjög smekklegt og hreinlegt. Hún var snillingur í matargerð sem og handavinnu og má þess meðal ann- ars sjá glöggt vitni í sumarhúsi okk- ar hjóna „Hreiðrinu", þar sem hann- yrðir hennar gleðja augað. Þar var Þórdís tíður gestur hjá okkur og mun ég sakna þess að sjá hana ekki sitja á veröndinni í sumarsólinni að sauma eða prjóna. Þórdís keypti sér íbúð á Miðvangi árið 1997 og gerði hana mjög fallega og flutti þar inn, en eftir fyrstu nótt- ina er hún var að búa um rúmið datt hún og brotnaði illa og þurfti að gangast undir aðgerð. Batinn var hægur, en hún dvaldi á heimilum dætra sinna meðan hún var að jafna sig og dugnaður hennar kom henni til sæmilegrar heilsu og naut hún sín vel í íbúðinni sinni eftir það. Þórdís varð fyrir miklu áfalli er hún missti son sinn, Guðlaug, árið 1988, 47 ára gamlan, en hann var búsettur í Kan- ada. Þrátt fyrir mótlæti og ástvina- missi auðnaðist henni að sjá vonir sínar rætast í góðum bömum og þau sýndu henni mikla umhyggju í veik- indum hennar. Þegar litið er yfir far- inn veg má segja að Þórdís hafi verið hamingjukona og ævi hennar endur- speglaði stolt og umhyggju fyrir börnum sínum. Eftir lifir minningin um mæta og góða tengdamóður sem ég mun geyma. Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson. Elsku amma. Mig langar að kveðja þig með ör- fáum orðum. Það er skrýtið til þess að hugsa að þú sért horfin á braut, þú sem hefur verið svo stór hluti af mínu lífi. ÖII mín æskuár tengjast minningum af þér og núna hin síðari ár leið varla sá dagur að ég hitti þig ekki. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að eyða með þér síðustu jól- unum, þó að þér hafi ekki liðið sem best. Þú varst alltaf svo góð við alla og undir þér vel þótt ýmislegt bját- aði á. Ég er þér þakklát hvað þú varst alltaf góð við Sturlu, son minn, þú varst alltaf að gauka einhverju að honum. Ég mun aldrei gleyma því þegar við töluðum um klæðnað og glæsileg föt, þar áttum við sameigin- legt áhugamál. Nú þegar þú ert far- in, elsku amma, mun ég geyma um þig dýrmætar minningar með sökn- uði. Hjartkæra amma, far í friði, fóðurlandið himneskt á, þúsundfaldar þakkir hljóttu þínumlitluvinumfrá. Vertu sæl um allar aldir alvaldshendifalinver, inn í landið unaðsbjarta englar Drottins fylgi þér. (Höf.ók.) Kveðja, Silja Rún. Elsku besta amma, það er sárt að þú skulir ekki lengur vera meðal okkar. Alltaf var gaman að koma til þín á Hjalló. Þá var dregið fram allt það besta, heimabakaðar kökur, kleinur og ekki síst pönnukökurnar sem vora ómissandi í öllum veislum og af- mælum. Þú vildir alltaf allt fyrir okkur gera og hvað mér, dótturdótt- ur þinni, þótti gaman að fá að skoða fallegu hlutina í skartgripaskríninu þínu og eins að fá að skoða í klæða- skápinn þinn því þú áttir svo fín föt. Seinna eignaðist þú yndislega íbúð við Miðvang sem þú fékkst ekki að njóta sem skyldi. Þegar barnabarna- bömin komu varst þú óþreytandi við að prjóna og hekla handa þeim. Við eigum eftir að sakna þess að sjá þig ekki þegar við komum til mömmu og pabba og eins þegar eitthvað er um að vera í fjölskyldunni því þú varst fastur punktur í tilveranni. Elsku amma nú ertu komin á nýj- an og góðan stað þar sem þér mun líða vel. Guð geymi þig. Heba og Guðjón. Elsku amma, eða öllu heldur amma á Hjalló eins og við nefndum þig alltaf, þó svo að þú byggir ekki lengur á Hjallabrautinni heldur varst þú flutt á Miðvanginn og þar varst þú búin að koma þér svo vel fyrir, allt svo snyrtilegt og fínt hjá þér. En því miður fékkst þú ekki að njóta þess nógu lengi að vera þar, þú varst búin að vera mikið veik á spíta- lanum en þó héldum við alltaf í þá von að þú kæmir aftur heim. Þau vora ekki svo ófá skiptin sem þú sast heima hjá mömmu og pabba og féll þér þá aldrei starf úr hendi. Þú vai'st þá ávallt með einhverja handavinnu, heklaðir teppi eða prjónaðir lopa- sokka á bamabarnabörnin þín eða að þú stóðst í eldamennsku og bak- aðir pönnukökur með kaffinu. Alltaf varstu jafn glæsileg og vildir alltaf vera í nýjustu tísku. Elsku besta amma, við vonum að þú munir hafa það sem allra best hjá æðri máttar- völdum sem munu varðveita þig, því að þú átt það svo sannarlega skilið. Farþúífriði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þérnúíylgi, hans dýrðarímoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kristín Fjóla og Bjarni Þór. í dag kveðjum við Þórdísi Matt- híasdóttur sem lést á St. Jósefsspít- ala Hafnarfirði, eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Þórdís fæddist á Pat- reksfirði 7. ágúst 1918 og var þriðja elsta þeirra tólf systkina, en níu náðu fullorðinsáram. Þórdís giftist Bjarna Sveinssyni frá Hafnarfirði 11. janúai- 1941. Bjarni lést árið 1991. Þórdísi kynntist ég fyrir um það bil 30 árum þegar náinn vinskap- ur fjölskyldu minnar við Steinunni, Gunnlaug og fjölskyldu hófst. Iðu- lega var Þórdís á heimili þeirra þeg- ar mig bar að garði, og var ætíð gam- an að tala við hana um allt það sem bar á góma. Hún var mikil dugnað- arkona og ósérhlífin. Vann hún ætíð mikið utan heimilis á sinni lífsleið. Hannyrðakona var hún afburða og liggja eftir hana margir fallegir munir, bæði heklaðir, prjónaðir og útsaumaðir. Þórdís hafði yndi af að ferðast. Var ég svo lánsöm að ferðast með henni, Áslaugu, dóttur hennar, og Hennýju, vinkonu okkar, til Bahamaeyja haustið 1995. Á strönd- inni sykurhvítu, þar sem pálmatrén vora til staðar, komu innfæddir á öll- um aldri og sögðu „góðan daginn, mamma, megum við sýna þér eitt- hvað skemmtilegt?" Síðan vora sett- ar hálsfestar úr skeljum og alls kon- ar heimatilbúnir fallegir hlutir í fang Þórdísar. Suma hlutina keypti hún og urðu þeir til þess að oft rifjuðum við upp þessa skemmtilegu daga á þessari fjarlægu eyju. Sem sagt, innfæddir gerðu fast- lega ráð fyrir því að þarna væri á ferð mamma með dæturnar sínar þrjár. Þórdís og Bjami áttu miklu barnaláni að fagna. Þau eignuðust sex börn, en elsti sonur þeirra, Guð- laugur, lést árið 1988, búsettur í Kanada. Var það Þórdísi og Bjarna mjög þungbært að sjá eftir syni sín- um. Þórdís var mikill vinur barna sinna og fjölskyldna. Samheldni þeirra er mikil og hafa þau annast móður sína einstaklega vel. Var hún oftast með á góðri stund heima hjá þeim, þegar eitthvað stóð til, og var hún eins og jafnaldri okkar. Það var hægt að láta allt flakka, og hló hún gjarnan að vitleysunum, en aldrei hef ég heyrt Þórdísi hneykslast, þótt efni stæðu til. Hún naut þess mjög að dvelja í sumarbústað Steinu og Gulla í Þrastaskógi, og var hún iðulega með þegar farið var í þann unaðsreit. Þar gat hún teigað í sig hreint birkiilm- andi loftið og notið kyrrðarinnar, við fuglasöng, sem einmitt þar er ein- staklega mikill. Þórdís var heilsuhraust fram á efri ár. Það sem einkum háði henni var að heyrnin var farin að dvína í miklum mæli seinni ár. Með því að , gefa sér tíma og næði var hægt að komast hjá því að hún þyrfti að verða útundan í viðræðum. Kærar þakkir, Þórdís mín, fyrir allar góðar stundir á liðnum áram. Sendi börn- um hennar og fjölskyldum, mínar innilegustu samúðarkveðjur í þeirra sorg. Birna Loftsdóttir. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, -tengda- móðir, amma og langamma, UNNUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést þriðjudaginn 18. janúar. Jaröarförin auglýst síðar. Kristinn Eysteinsson, Þórunn S. Kristinsdóttir, Halldór Melsteð, Þorgeir S. Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför móður okkar og tengdamóður, ÞÓRUNNAR VIGFÚSDÓTTUR, Skálpastöðum, verður gerð frá Lundarkirkju laugardaginn 22. janúar og hefst athöfnin kl. 13.30. Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 11.00 og frá Borgarnesi kl. 12.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er vin- samlegast bent á styrktarsjóð Dvalarheimilis aldraðra, Borgarnesi. Fyrir hönd annarra vandamanna, Guðbjörg Þorsteinsdóttir Johansson, Nils Johansson, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Kristín Þorsteinsdóttir, Valgeir Jónsson, Guðmundur Þorsteinsson, Helga Bjarnadóttir, Vigfús Önundur Þorsteinsson, Auður Sigurðardóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EILEEN ÞÓREY BREIÐFJÖRÐ, Heiðarhrauni 30b, Grindavík, verður jarðsungin frá Grindavikurkirkju föstu- daginn 21. janúar nk., kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Sverrir Vilbergsson, Elfn Þorsteinsdóttir, Pétur Vilbergsson, Bjarnfrfður Jónsdóttir, Gunnar Eyjólfs Vilbergsson, Margrét R. Gísladóttir, Theodór Vilbergsson, Sesselja Hafberg, Eyjólfur Vilbergsson, Katrín Þorsteinsdóttir, Elín María Vilbergsdóttir, Sæmundur Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.