Morgunblaðið - 20.01.2000, Side 66

Morgunblaðið - 20.01.2000, Side 66
66 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Dýraglens Kringiunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Grettir Smáfólk WHAT'5 THIS LI6HT FOR7 / THISIS I MV GRAMPA'S NEW CAR.. 17 HAS SELLS, ANP LI6HTS, ANP SUTTON5 FÖR EVERVTHIN6. REMINPS VOU TO FEED THE D06.. Þetta er nýi bíllinn hanns afa. Til hvers er Til að minna á að Hann er með flautu og þetta ljðs? gefa hundinum. //-/a Ijós og takka fyrir allt. Aldnir í anda Frá Guðmundi Erni Jónssyni: ÞEGAR byrjað var að bjóða upp á ókeypis framhaldsnám fyrr á öldinni var þeirri stéttaskiptingu sem þá var við lýði á Islandi eytt og synir verkamanna gátu orðið læknar og lögfræðingar. Nú hafa ungir flokks- félagar mínir komist að því að það voru mikil mistök. Þeir eyða nú megninu af kröftum sínum í að berjast fyrir mismunun og telja að aðeins sumir eigi að fá tækifæri til að spreyta sig á námi og aðeins örfáir eigi að fá tækifæri á að hefja rekstur í undirstöðu- atvinnugrein þjóðarinnar, út- gerð. Fyrir þessa sannfæringu sína, að í mismun- uninni felist framtíðin, eru þeir tilbúnir að fórna þjóðarhag. Þeir eru ekki tilbúnir að fara hag- kvæmustu leið við nýtingu auðlind- anna eins og aðrar vestrænar þjóðir, það er með uppboðum. Uppboð á langtímakvóta opnar nýjum mönnum leið inn í útgerð í samkeppni við þá sem fyrir eru, og samkeppnin ein leiðir til hagkvæmni John Locke (1632-1704) sýndi, þegar á 17. öld, fram á að gjafakvdti væri hið eina rétta. og samkeppnin er mest þar sem flestir geta tekið þátt, eins og t.d. í hugbúnaðargeiranum þar sem lítið þarf til að hefja rekstur. Rökin fyrir gjafakvótanum eru að núverandi útgerðarmenn hafi fjár- fest í tækjum til að nýta auðlindina og eigi hana því. Á sama hátt ættu skjólstæðingar Félagsbústaða leigu- íbúðirnar sem þeir búa í, þeir eru jú þeir einu sem nýta þær og hafa fjár- fest í húsgögnum í þær. Þessi rök telja fyrrverandi ótrún- aðargoð ungu mannanna, OECD og Milton Friedman (frjálshyggjumað- ur og nóbelsverðlaunahafi í hag- fræði), ekki nægjanleg og styðja uppboð á kvótum. Einnig hefur hæstiréttur gefið gjafakvótanum gula spjaldið. Með þessi skilaboð í vasanum hafa ungu mennimir orðið að leita sér leiðsagnar aftur á 17. öld, til Johns Lockes (1632-1704), en hann mun lýsa þeim veginn inn í hið nýja árþúsund. Ungir sjálfstæðismenn ættu öðr- um fremur að vera óháðir boðberar frelsis og jafnréttis. Ættu að berjast fýrir því að allir hafi tækifæri til að menntast og nýta hæfileika sína, þjóðinni allri til hagsbóta. Sú mis- munun til náms og atvinnu sem þeir boða nú er því sorgleg. GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON, Laugalind 1, Kópavogi. Stöldrum aðeins við Frá Jónínu Baldursdóttur: EG get ekki lengur orða bundist yfir góðmennsku íslenskra yfirvalda gagnvart erlendum flóttamönnum. Á meðan of margir Islendingar eiga hvorki ofan í sig né á, og fá sáralitla hjálp frá ríkisvaldinu, er stanslaust tekið á móti fólki utan úr heimi. Hér fær það húsnæði, húsbúnað, heilsu- gæslu, tannlæknaþjónustu, náms- efni sniðið að þeirra þörfum; einfald- lega allt sem það þarf til að koma undir sig fótunum, á kostnað ís- lenska ríkisins. Neinei, ekki mis- skilja mig, þetta er allt gott og bless- að svo langt sem það nær. Vissulega á þetta fólk bágt og þarf á hjálp að halda, og ég er ekkert óánægð með veru þess hér. En mér er bara spum: Hvað eru margir Islendingar á landinu okkar sem þyrftu á sömu aðstoð að halda? Eigum við ekki að staldra aðeins við og skoða stöðuna hér heima? Ég er sjálf lífsreynd kona og hef upplifað það meðal annars að vera einstæð með tvö börn, atvinnulaus, húsnæðislaus og eiga ekki mat handa bömunum mínum svo dögum skiptir. Óg ég veit að þannig er komið fyr- ir mörgum íslendingum í dag, og margir sem mundu taka því fegins hendi að fá tækifæri til að koma und- ir sig fótunum á ný, á sama hátt og flóttamennimir. Ég vil taka það fram að ég hef það ágætt í dag og er ekki að grenja á hjálp, en mér er annt um samlanda mína sem fá ekki tækifæri til að koma undir sig fótunum. Eigum við ekki að hugsa fyrst um okkur sjálf til að vera fær um að hjálpa öðrum? Ég skora á íslensk yfirvöld að íhuga þessi mál, viðurkenna vandann hér heima og hætta að nota þessar móttökur á erlendum flóttamönnum til að upphefja sjálfa sig í útlöndum. Það era nú þegar of margir ís- lenskir flóttamenn erlendis! JÓNÍNA BALDURSDÓTTIR, Brimnesbraut 35, Dalvíkurbyggð. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Brúðhjón A11ur borðlninaður GIæsi 1 eg gjaídVdra • Briíðlijóndlistdi Vr-i/jkvvV VERSIl/NIN Ltuigavegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.