Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 25
S vínakj ötsútsala
í Nýkaupi
22-42%
afsláttur
I DAG, fimmtudag, hefst svína-
kjötsútsala í verslunum Nýkaups.
Um er að ræða 16-18 tonn af fyrsta
flokks, fersku svínakjöti og að sögn
Arna Ingvarssonar, innkaupastjóra
hjá Nýkaupi, er búist við að þessar
birgðir endist fram að helgi.
Hann segir að framleiðandinn
sem Nýkaup kaupir af svínakjöt hafi
átt töluvert umframmagn af fersku
kjöti og vegna hagstæðra samninga
sem náðust sé nú unnt að bjóða kjöt-
ið á lægra verði en ella. Verðlækk-
unin er frá 22% og upp í 42%.
Sem dæmi má nefna að svínakót-
elettur lækka úr 1.049 krónum kílóið
í 749 krónur. Þá kostar svínahnakki
með beini 499 krónur kílóið en kost-
aði áður 859 krónur. Svínarifjasteik
lækkar úr 398 krónum kílóið í 259
krónur.
Nýtt
Finest Call
kokkteil-
blöndun
NÝLEGA komu á markað Finest
Call kokkteilblöndur, í 11 flöskum,
þær eru fáanlegar í 7 mismunandi
bragðtegundum, Finest Call
Bloody Mary, Finest Call Bloody
Mary Extra Spicy, Finest Call
Grenadin, Finest Call Pina Colada,
Finest Call Margarita, Finest Call
Mai Tai og Finest Call Strawberry
Puree. Einnig er fáanlegt Mix
Margarita salt í 227g dós.
Wesson
Shortening-
feiti
WESSON Shortening feiti, í 1,36 kg
dós, er komin aftur á markað en hún
hefur ekki verið fáanleg síðan í árs-
byrjun 1998. Shortening hentar í all-
an bakstur, þó sérstaklega í kleinu-
bakstur og til djúpsteikingar.
---------------
Tertumyndir
VERSLANIR Hans Petersen hafa í
samvinnu við Tertumyndir opnað
nýjar leiðir í tertuskreytingum.
Hægt er að fá prentaða ljósmynd á
tertur sem síðan má borða. Ýmsir
möguleikar eru í boði, t.d. ljósmynd-
ir af afmælisbaminu, uppáhalds-
íþróttahðinu, merki íþróttaliðs eða af
vinsælli teiknimyndapersónu.
Þá er hægt að fá texta skrifaðan á
myndimar.
Spurt og svarað um neytendamál
Brennivúi frýs við -24°C
Fyrirspurn barst varðandi ís-
lenskt brennivín sem sett hafði
verið í frystikistu þar sem bera átti
drykkinn fram kaldan. Vínið hafði
hins vegar frosið og vildi viðkom-
andi fá skýringar á því hvers
vegna það hefði gerst, því áfengi
sem inniheldur 40% vínanda á ekki
að frjósa við það hitastig sem
venjulega er í heimilisfrystikistum.
Svar: „Brennivín inniheldur 40%
vínanda sem gerir það að verkum að
það frýs ekki fyrr en við -24°C,“ seg-
ir Jón Snorri Snorrason, fram-
kvæmdastjóri Ölgerðarinnar Egils
Skallagrímssonar, sem framleiðir
íslenskt brennivín. „I þessu ein-
staka dæmi kemur fátt annað til
greina en að frystikistan hafi ein-
faldlega verið stillt á mestu kæl-
ingu, en venjulegar heimiliskistur
geta kælt allt niður í -26°C þrátt fyr-
ir að mælt sé með því að hitastigið
sé á bilinu -18—20°C. Það hefði auð-
veldað útskýringar ef hitastig í við-
komandi frystikistu hefði verið
mælt, en fólk þarf alltaf að fylgjast
með hitastigi í kistunum. Brennivín
þykknar venjulega í frysti við -18°C
en útilokað er að það frjósi við það
hitastig."
Ferskir kjúklingar skemmast
fljótt ef gat kemur á umbúðir
Ferskur kjúklingur var í vikunni
keyptur á síðasta söludegi í Bónus
í Hafnarfirði og reyndist hann úld-
inn þegar heim var komið. Kjúkl-
ingnum var skilað og fengin inn-
eignarnóta. Kemur það oft fyrir að
ferskir kjúklingar úldni innan
leyfílegs sölutima og hver er skýr-
ingin á því að sölutúninn er þá ekki
styttur?
Svar: „Það kemur ekld oft fyrir
að ferskir kjúklingar skemmist,“
segir Róbert Skúlason, verslunar-
stjóri í Bónus í Hafnarfirði. „Fersk-
um kjúklingum er pakkað í loft-
tæmdar umbúðir en ef gat kemur á
þær og loft kemst að kjúklingnum,
getm- hann skemmst á skömmum
tíma. Ég geri ráð fyrir að það hafi
gerst í þessu tilfelli. Ferskir kjúkl-
ingar á síðasta söludegi eru fullkom-
lega góð vara.
Við erum með manneskju í starfi
við að hafa eftirlit með kælivörunum
sem fer því reglulega yfir kjötið.
Skemmd vara á að sjálfsögðu ekki
að vera í sölu heldur á að fjarlægja
hana.“
20 - 50% afslattur
af öllum potlaplöntym
GróSurhúsin eru úttroðin
af glæsilegum pottaplöntum
Fjöldi sjaldgæfra plantna
og nýjunga í bland vií
Meira úrval en nokkru sinni!
NYTT BLOMASKEIÐ